Alþýðublaðið - 04.12.1957, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 04.12.1957, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 4. des. 1957 Alliýðublaðið 3 Alþýðublaöiö Útgefandi: Ritstjóri: Fréttastjóri: Auglýsingast j óri: Ritstj órnarsím ar: Auglýsingasími: Afgreiðslusírai: Aðsetur: Alþýðuflokkurinn. Helgi Sæmundsson. Sigvaldi Hjálmarss'on. Emilía Samúelsdóttir. 14901 og 14902. 1 4 9 0 6. 1 4 9 0 0. Alþýðuhúsið. Prentsmiðja Alþýðublaðs ins, Hverfisgötu 8—10. Stefnan í utíuiríMsmáhun SÓSÍALISTAFLOKKUPJNN hefur haldið flokksþing i | Reykjavík undanfarna daga. Hafur þingið vafaiaust átt úr vöncíu að ráða. um ályktanir í' ýmsum rr.álúm, þegar velja hefúr þurtt á miili ábyrgðarlausrar yfi> boðsstefnu undan- genginna ára og raunhatírar stjórnarstefnu. Þjóðviijinn birii í gær ályktun fiokksþingsins um utanríkismál, og má af hsnm rnarka, að þingið hai'i í þeim efnum valið fyrri kostinn. Er þá eftir að sjá, hvert samhengi verður á milii orða og aShaiina. Alyktun fiokksþingsins um utanríkismál er í stuttu máli á þá leið, ao varnarliðið skuli hverfa úr landi, ísland ganga úr Atlantshafsbandaiaginu og lýsa yfir ævarandi hlutleysi. Enda þótt óijóst sé, að hve miklu leyti Alþýðubandalagiö, sem er sðili að núverandi ríkisstjórn, tslur sig bundið af samþykktum flokksþings kommúnista, verður ekki hjá þvi korr.izt að ræða þsssa ályktun í ljósi þeirrar utanríkisstefnu, sem ríkisstjórnin hefur fyigt. Þegar stjórnin var mynduð fyrir hálfu ö.ðru ári, var þaS ciu ai hofuðforsendum stjórnarsamstarfsiiis, að minnsta kosti af hálfu Alþýðuflokksins, að utanríkis- stefna Isiendinga sltyldi vera óbreytt cins og hún kom fram í ályktun alþingis 28. marz 1956. Efni þeirrar þings- ályktunar var í fyrsta lagi að tryggja sjálí'stæði og ör- yggi þjóðarinnar með samstöðu um öryggismál við ná- grannaþjóðir hennar, m. a. með samstarfi í Atlantshafs- bandalaginu, og í öðru lagi, að „MED IILIÐSJÓN AF BREYTTUM VIÐHORFUM“ skuli hafin endurskoðun varnarsamningsins. Allir þrír stjórnarflokkarnir voru sammála um það, að marzályktun alþingis, báðar málsgreinar hennar, skyldi vera stefna ríkisstjórnarinnar í utanríkismálum.. Það er því margyíirlýst og óbreytt stefna stjórnarinnar að ganga ekki úr Atlantshafsbandalaginu og lýsa ekki yfir hlutleysi. ís- land mun því halda áíram nánu samstarfi við grannþjóðir sinar um öryggismál, ekki sízt þjóðir Atlantshafsbandalags- ins, enda hefur utanríkisslefna stjórnarinnar verið við það miðuð undanfarið hálft annað ár. Þau „breyttu viðhorf“, sem voru forscnda seinni máls greinar marzalyktunarinnar og þar með forsenda þess, að íslentiingar liu-gsuðu þá mjög til brcyttrar skipunar varnarmálanna, voru hinar friðvænlegu liorfur eftir Genfarfund æðstu manna Bandaríkianna og Sovétríkj- anna 1955. Þær íriðarvonir, s.em þá ríktu um allan heim, voru að engu gerðar með ofbcldisárás Rússa á Ungverja- land. Þá varð öllum ljóst, að l'riðarhorfurn*-"* liöfðu v rið tálvonir. Ekkért hafði breytzt frá innrásinm í Suður- Kóreu, og síðan í fyrrahaust liefur hrimurinn livað eftir annað verið á barmi styrjaldar. Þannig brcyttust við- horfin aftur mjög til hins verra og forsendur s inni máls- greinar marzályktunarinnar voru liorfnar. Um þetta voru allir stjórnarflokkarnir sammála, eins og þjóðin hcyrði glögglega í umræðum á alþingi í fyrrahaust. Ekkert hefur gerzt, sem gefur rökstuddar vonir um bætta sambúð stórveldanna eða öruggari frið. Ástandið er óvissara en nokkru sinni eftir tilkomu hinna langdrægu eldflauga. Því eru engin skynsamleg rök fyrir neinum breytingum nú á þeirri afstöðu, sem ríkisstjórnin öll tók til endurskoðunar varnarsamningsins fyrir ári síðan. Alþýðublaðið vanlar unglinga fil að bera blaðið til áskrifenaa í þessum hverfum: Kópavogi, Lönguhlíð. Tjarnargötu. Taiið viS afgreiðsluna - Sími 14909 ( Bækur og höfundar ) Vilhjálmur S. Vilhjálmsson: Við sem byggðum þessa borg II. Endurminningar átta Reykvíkinga. Teikningar eft- ir Halldór Pétursson. Bóka- útgáfan Setberg. Prentsmiðj- an Oddi. Reykjavik 195/. ÞETTA er annað bindi sat'n- rits, sem til var stofnað í fyrra og hlaut ærnar vinsældir. Bók- in flytur ævisögur átta Reyk- víkinga og er hin læsilegasta. Vilhjálmur S. Vilhjálmsson kann þetta verk ágætlega, enda langþjálíaöur blaðamaður og góðkunnur ævisagnahöfundur. Og svona bók semur enginn með skœrum. Hér er venð að bjarga fróðleik, sem ella mvndi giatast á næstu árum. Fyrst nokkrar almennar að- finnslur. Bókin er dálítið laus í reipunum. Þættirnir reynast sem sé of langir til að vera í ætt við blaðaviðtöl, en of stuttir til • að koma í staðinn fyrir ævisög- j ur. Hins vegar dvlst engum, hvað vakir fyrir höfundi og út- . gefanda. Þetta eiga að vera eins konar samþjappaðar ævisögur. En slíkt er mikið vandaverk. : Sennilega færi betur á því að takmarka frásögnina við helztu minnisverð tíðindi í sögu við- komandi og láta nægja að gera einstökum atburðum skil en leitast við að stikla á svo stóru sem hér er reynt. Mannsævin verður ekki hnoðuð. Aftur á móti er auðvelt að bregða upp svipmyndum í bókum sem þess ari þannig að smátt verði stórt. Og þá má koma fleirum á fram- færi. Næst skal reynt að segja kost og löst á einstökum þátt- um: Frásögn Guðmundar Thor- oddsens læknis sýnist einhvern veginn misheppnuð. Hann mun manna fróðastur og skemmti- legastur, og víst hefur margt sögulegt á daga hans drifið, en þessa verður lítt eða ekki vart í þættinum. Guðmundur endur- segir ævisögu sína, en lesand- inn sé ekki trén í skóginum. Vilhjáimur nær naumast öðru sam.bandi við hann en heilsa og kveðja, annarhvor eða báðir reynast líkt og miður sín í sani- '.alinu, og þátturinn verður hvorki fugl né fiskur. Myndin af Hannesi Jónssyni kaup- manni er miklu stærri og skýr- ari, frásögnin einkennist af hreinskilni og einlægni, og þar er Vilhjálmur í essinu sínu. Hins vegar fer hann hálfgerða erindisleýsu á fund Siguröar Ólafssonar rakara. Ekki svo að skilja, að maður telji sig þurfa að gera athugasemdir við það, sem kemst til skila, en eitthvað hlýtur að liggja í láginni, ef sæmilega hefur verið lifað. Sig urður þykir grandvarasti rak- ari höfuðstaðarins, en einhver hinna heí'ði víst haft frá meira að segja. Lífssaga Ólafs G. Ein- arssonar bifreiðastjóra er bér ágripskennd, en vel fjallað og hugkvæmnislega um niikið efni, barátta reykvískrar al- þýðu rakin í meginatriðum, viðhorf einstaklingsins látin spegla örlög og hlutskipti fjöld ans og engu undan skotið at' til- iitssaniri hlífð við sjálfan sig eða aðra. Ólafur telst táknrænn fulltrúi þegna þagnarinnar. Saga hans virðist hversdagsleg í fljótu bragði, en stormur at- burðanna byltir þar upp úr djúpinu hrönnum ógleyman- legra örlaga. Vilhjálmur S. Vil- hjálmssyni lætur jafr.an bezt að túlka slíkt í bókum sínum og blaðagreinum. Aðrir heföu varla haft upp á Ólafi og þvi síður metið hann að verðleik- um. ErLndur Ó. Pétursson fcr- stjóri er hér hress og kátur ehis og fyrri daginn, sýnir sjáifan Vilhjálmur S. Vilhjálmsson Sig í spegli vesturbæjarins, ger ir skemmtilega að gamni sínu, reynist harla fróður um menn og málefni og kann hið bezta samstarfinu við bókarhöfund. Undirrituðum kom á óvart, hvað íþróttir Erlends eru maig ar— þetta er eins konar andleg tugþraut. Frásögn Egils Vil- hjálmssonar forstjóra dæmist ósköp tilkomulítil. Raunar ger- ist sitthvað , athyglisvert, en þáttinn vantar samt nef og augu, svo að ásýndin er svip- laus. Sennilega hefur Vilhjálpi ur ætlað að gera almenningsá- litinu til hæfis með þvi að kynna lesendum sínum jafn- virðulega- borgara og Egil og Guðmund Thoroddsen, en ekkj haft kaup sem hlaup — þecta er eins og að grafa eftir gulli í í'allegu en fátæku fjalli. Kunn- ingsskapurinn við Sesselíusi Sæ mundsson verkamann verður ó- iíkt þakkarverðari. Þar segir .'rá persónulegri reynslu. Sum- ■r munu kalla þetta „straum og skjálfta“, en Sesseliusi er ai- vara, hann opnar heiðarl'ega nug sinn og hjarta, reynir ekki að sýnast og kemur til dyranna eins og hann er klæddur. Gam- an og alvara Hannssar Krist- inssonar verkamanns rekur svo lestina, og sá þáttur ber af öll- um ihnum. Hann er íslenzkar bókmenntir og slyngum ritftöf- undi samboðinn. Hannes og Vil hjálmur leggjast þar á eitt að gera vel og tekst með afbrigð- um. Hér kennir margra grasa, þó að sögusviðið sé höfuðborgin, en ekki heiðin eða sveitin. Þei'r, sem frá segja, eru háskólaborg- ari og embættismaður, kaup- maður, iðnaðarmaður, sjómað- ur, bifreiðastjóri verkamenn, stórkaupmað,u rog iðjuhöldur. Bak við þá upptalningu er Reykjavík með líf sitt og læti, önn og bai'áttu, gleði og sorgir, vonir og sigra. Vilhjálmur S. Vilhjálmsson sýnir lesandan- um allt þetta. Og það hefði mað ur haldið, að væri einnar kvöld stundar virði. Helgi Sæmundsson. Mesf viðskipti við Sovétríkin og Bandaríkin á þessu ári Fluttar út vörur fyrir 183.6 millj. tiS Sovét ríkjanna og 79.4 milfj. til Bandaríkjanna NÝÚTKOMIN hagtíðindi sltýra svo frá, að í október hafi verið fluttar út vörur fyrir 12.3 niillj. til Sovétríkjanna og 8.9 millj. til Bandaríkjanna. Eru þessi tvö lönd langstærstu við- skiptalönd okkar á þcssu ári. Heildarútflutningur til Sov-s étríkjanna á þessu ári (til okt,- loka) nemur 183.6 millj. en heildarútflutningur til Banda- ríkjanna nemur á sama tíma 79.4 millj. INNFLUTNINGUR EINNIG MESTUR FRÁ USSR OG USA. Innflutningur hefur einnig verið langmestur frá Sovétríkj um og Bandaríkja undan- farið. Til októberloka voru fluttar inn vörur frá Sovét- ríkjunum fyrir 220 millj. kr. og frá Bandaríkjunum fyrir 138.1 millj. kr. Næst kemur Bretland með 132 millj. kr. inn flutning. Bretland er einnig hið þriðja í röðinni hvað útflutn- ing snertr með 61,2 millj. kr. Ný fðrsófíarlcg Framhald af 12. síðu kostnaðar af farsóttavörnum hafi ekki þótt svo skýr og ó- tvíræð sem skyldi. Hefur það jafnvel leitt til málaferla. Með ! þeirri breytingu, sem gerð er á 16. gr„ er tekið af skarið um þá ! greiðslutilhögun, sem heilbrigð I isstjórnin hefur iaínan haldið i sér við og staðfes-t hefur verið réttmæt fyr.ir dómi. (Ríkissjóð ur ber kostnað af opinberum f arsóttarvörnum). Um aðrar efnisbreytingar á núgildandi löggjöf en þær, seitn nú hefur verið gerð grein fyr ir, er ekki að ræða, og er slíkra breytinga því ekki að leita ut- an 3. (sbr. 4.), 15., 16., og 17. ! greinar. Orðalagj annarro j greina hefur víða verið vilcjð við til samræmis við orðala,g hinna éf'nisbreyttu greina, svo og sóttvarnarlaganna, og að öðru levti eftir því sem skij- merkilegra þykir. Frumvarp þetta, sem samið er af landlækni, hefur verið sent t’.l umsagnar læknadeild háskólans, stjórn fjæknaíelags íslands, Tryggingastofnun rík- isins og Jiprgarlækni í Reykja vík, en enginn taldi astæðu til að gera við það athugasemdir, að því er efni þess varðar.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.