Alþýðublaðið - 04.12.1957, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 04.12.1957, Blaðsíða 6
6 Alþýðublaðið Miðvikudagur 4. dcs. 1957 Setning frœðslulagannci fyrir fimmtíu árum SETNING fræðslulaganna fyrir hálfri öld markaði stór- merk tímaxnót í íslenzkum skólamálum og lagði grundvöll að þeirri alþýðumenntun, sem þykir eitt aðaleinkennið í fari Islendinga. Hér á eftir minnast nokkrir þjóðkunnir skólamenn og fræðslufrömuðir þessara títnamóta að beiðni Alþýðu- biaðsins: GYLFI Þ. GÍSLASON menntamólaráðherra: UM ÞESSAR MUNDIR eru íiðin 50 ár síðan hin almennu fræðslulög voru sett, fyrstu ís- lenzku lögin, sem gerðu ráð fyr- ir almennri skólaskyldu. Þessi lagasetning var merkur áfangi í íslenzkri menningarsögu. Það er athyglisvert —- og án efa ekki tilviljun, að jafnstórt spor skyldi stigið í fræðslumálum rétt eftir að stjórnin fluttist inn í landið. Skólamálin eru gildur þáttur í sérhverju menningarbjóðfé- lagi. Það er algengt, hér á landi og annars staðar, að um það sé rætt, og undan því kvartað. hve skólakerfið sé dýrt. Sjálf- sagt er auðvitað að keppa að því, ao sem mest fáist í aðra hönd fyrir það íé, sem varið er til skólamála, eins og annars. En um hitt er sjaldan rætt, sjaldnar en vera ætti, hversu dýrt það væri, að hafa lélegt skólakerfi eða jafnvel ekkert. Gildi skóla verður ekki mælt í peningum, — ekki einu sinni sá hluti þess, sem hefur hag- nýta þýðingu. Tilgangur mann- legs lífs hlýtur að vera mann- iegur þroski. Skólanám er að vísu ekki skilvrðislaus forsenda þess, að unnt sé að ná miklum persónulegum þroska, en hitt er víts, að gott skólakerfi stórbæt- ir aðstöðu alls almennings til þess að njóta menningarverð- mæta og þá um leið tll að auka þau og skapa ný. En umfram þetta hafa skól- arnir ómetanlegt hagnýtt gíldi. Hvað stoðar að eignast skip, ef enginn kann að sigla? Hvert gagn er að vélum, ef eng- fnn er fær um að stjórna þeim? Nútíma þjóðfélag er orðið svo margbrotið bákn, að óhugsandi er, að þar geti allt farið sóma- samlega eða vel, nema menn- imir, sem hafa hina einstöku þætti í hendi sér, séu menntað- ir; bæði almennt og svo hver á sínu sviði. Maðurinn sjálfur — e&a þroski hans er nefnilega ekki aðeins takmark tilverunn- af, heldur er hann, á- samt þeirri þekkingu, sem aJinn hefur aiflað sér á árþúsundum, mesta verðmæti veraldarinnar. Hæfileikar mannsins og leikni hans hafa ómetanlega þýðingu fyrir hag- sældina. Skólarnir skapa að vísu ekki hæfileika, en þeir stuðla oft að þvi að þeir upp- götvast og hjálpa til að þroska þá, og þeir bæta skilyrði manna til að öðlast leikni í störfum. Um það skólakerfi, sem vaxif hefur upp hér á landi á grund- velli fræðslulaganna frá 1907 mætti margt segja. Að mörgu leyti gæti það sjálfsagt verií betra og hagkvæmara en þaí er. Skólarnir þurfa að breytas' með breyttum tímum. A síðustv áriun hafa tímarnir breytzt sv< ört og svo mikið, að vafasam er, hvort skólarnir hafa fylgz með. Það er t.d. ekki víst, a< skólamir taki nægilegt tillit til | þess, hve tækniþróunin hefur, verið ör og hversu almenn. tæknimenntun er nú orðin öll-1 um almenningi nauðsynleg og hversu brýn þörf er á sér- greindri tæknimenntun á mörg- um sviðum. Á hitt ber þó og að líta, að viss hætta er á því, að hin mikla tækni brengli mat manna á andlegum verðmæt- um. Hér hafa skólarnir og mik- ilvægu lilutverki að gegna. En það má þó hiklaust full- vrða, að fræðslulöggjöfin frá 1907 var traustur grundvöllur til þess að byggja á, hún var nýtízkuleg á sínum tíma og bar vott um stórhug. Að svo var, á bjóðin ekki hvað sízt að þakka Guðmundi Finnbogasyni, sem undirbjó lagasetninguna, ekki aðeins af stakri elju og mikilli vandvirkni, heldur einnig af ást á viðfangsefninu og trú á mann inn. Um alla framtíð munu ís- lenzkir skólamenn minnast Guðmundar Finnbogasonar með þakklæti fyrir það braut- ryðiendastarf, sem hann vann við undirbúning fræðslulöggjaf arinnar. Sá grundvöllur, sem þá var lagður, og sú bygging, sem á honum hefur verið reist, hefur ekki aðeins hjálpað ís- lenzkum mönnum til þroska og hamingju, heldur einnig ís- lenzkri þjóð til hagsældar. Gylfi Þ. Gíslason. BL.AÐEÐ bað fræðslumála- stjóra að svara í fáum orðum þessum spurningum: Hvaða ákvæði fræðslulaganna frá 1907 teljið þér mikilvægast, bvernig var þeim tekið og hvaða breytingar hafa helztar verið gerðar á þeim? HELGI ELf ASSON fræðslumálastjóri: SETNING fræðslulaganna 1907 markar tímamót í skóla- og uppeldismálum hér á landi. Um nærfellt 30 ára skeið höfðu verið borin fram frumvörp á alþingi í einhverri mynd eða þingsályktunartillögur varð- andi fræðslu barna. Allmiklar breytingar urðu á högum og háttum þjóðarinnar á þessum árum, og er sýnt, að alþingis- mönnum, kennurum og öllurn þorra fólks hefur sýnzt óhjá- kvæmilegt að fá löggjöf, sem tryggði, að öll námshæf böm um fermingaraldur hefðu hlot- ið a.m.k. nokkurrar lágmarks- fræðslu í flestum þeim náms- greinum, sem nú — og enn —- eru kenndar í barnaskólum. Og langflestir litu svo á, að þetta væri ekki hægt að gera, nema með lögboðinni skóla- eða fræðsluskyldu. Það var gert, og mun ótvírætt mega telja það stærsta sporið, sem stigið var með fræðslulögunum 1907. Vart var við öðni að búast, en að skyldunámsákvæði hinna fyrstu almennu fræðslulaga mættu nokkurri mótspyrnu. Einkum fannst sumum, að sjálfur ákvörðunarréttur framfærenda barnanna í þessum efnum væii skert- ur frá því, sem áður var Þetta kemur m.a. mjög, ljóst fram í erindi, sem séra Magnús Helgason skólastjóri Kennara- skólans flutti á Hrepphóluir. 1917 um fræðslumál. Séra Magnús taldi skóla- skyldu nauðsynlega, ekki aðeins fyrir 10—14 ára börn, heldui víðast hvar einnig fyrir yngri börn. Hann lagði áherzlu á, ai vel þyrfti að mennta kennars til þess að þeir yrðu sem bez1 starfi sxnu vaxnir og færir un að taka að sér þann þátt fræðslr og uppeldis, sem breyttar að- stæður hefðu torveldað heimil unum að annast eins og áður var. Enginn, sem þekkti séra Magnús Helgason, mun efast um einlægni hans og ást á þjóð legum fræðum og kristilegu sið- gæðisuppeldi. En framangreind ræða hans, er halain var sem næst 10 árum eftir setningu fræðslulaganna 1907, var svo ákveðin og þrungin trausti í garð skóla og góðra kennara, að enn í dag mundu þeir menn, er gerðu hans orð að sínum, vera taldir bjartsýnir á gagnsemi skólanna. . Fræðslulögin hafa verið end- urskoðuð rækilega og ný lög sett árin 1926, 1936 og 1946. Litlar breytingar hafa verið gerðar á sjálfum’ námskröfun- um til fullnaðarprófs í barna- skólum, en um skólaskylduna varð sú breyting 1926, að heim- ild var sett til að ákveða skóla- skyldu frá 7 ára aldri, 1936 var skólaskyldan ákveðin frá 7—14 ára aldurs en heimild veitt til undanþágu hennar upp að 10 ára aldri. 1946 verður sú breyt- ing á þessu ákvæði, að fræðslu- skyldan er lengd um eitt ár, þ.e. til 15 ára aldurs, en þó veitt heimild til þess að stytta hana eða lengja um 1 ár. Aðalbreytingin við endurskoð un fræðslulaganna árin 1926, 1936 og 1946 var fjármálalegs eðlis, og var í öll skiptin á þá lund, að hlutur ríkissjóðs í stofn kostnaði og rekstri skólanna var aukinn frá því sem var í næstu lögum á undan. 1955 voru enn sett skýrari ákvæði um fjár mál skólanna og greiðslur úr ríkissjóði og hlutaðeigandi sveifarsjóði. 1 Hvað, sem segja má um breyt ingar þær, sem gerðar hafa ver- ið á fræðslalögunum frá því að lögin um fræðslu barna voru sett árið 1907, þá tel ég, að fyrstu fræðfilulögin hafi haft meiri breythigaf í för með sér í fræðslu- og skólamálum hér á landi en þau lög um fræðslu barna, er síðár hafa verið lög- fest. Helgi Elíasson. HALLGRÍMTJR JÓNSSON fyrrv. skólastjóri: TÍÐINDAMAÐUR írá Al- þýðublaðinu skrapp lieim til Hallgríms Jónssonar fyrrver- andi skólastjóra, sem nú er orð- inn 82 ára gamall. og spurði hann, hvar hann hefði verið kennari, þégar fræðslulögin voru sett 1907. „Ég var kennari við barna- skólarm hér í Reykjavík, Mið- bæjarskólann. Ég kom að skól- anum árið 1904.“ — Og urðu nokkrar breyt- ingar á skólahaldi hér í höfuð- staðnum, þegar fræðslulögin ’gengu í gildi? „Nei, ekki það ég man. Hér ! var skólahald komið í það horf, 1 að vér breyttum engu í kennslu og starfsháttum í vorum’skóla, þegar lögin voru sett. Hér stóð að vísu margí til bóta í skóla- málum, en fastur skóli hafð. starfað í bænum um hálfrar aldar skeið, svo að hér var stór- um betur ástatt í þessum efn- um en víðast annars staðar. Mér I er minnisstætt, að munur var í 'aðbúnaði og tækjum hér og úti í sveitunum, þar sem ekkert va ' til neins. Hér voru þó landa- bréf og ýmis sýnishorn í nátt- 'úrúfræði, en það þekktist ekki ! úti á landinu. Horft var þó peninga, sem til skólahaldsin: 'fóru. Voru skólanefndir oft naumar og íhaldssamar. Launin I vóru lág, svo að ekki var mögu jlegt að lifa af þeim. Árið áður jen ég kom að Reykjavíkurskól- ' anum, var tímakaupið fvrir kennslu 30 aurar, en hækkaði j upp í 50 aura haustið 1904. Mig j minnir, að ég fengi 3 fasta tíma á viku fyrsta veturinn. Vér urð- um að vinna baki brotnu, kenn- ararnir, bæði vetur og sumar. Það var erfitt að komast að skól anum hér, en það var engin vild j arstaða í peningalegu tilliti: Þó j átti þetta að heita skás.t hér. [Nei, það varð enginn ríktxr af að gerast barnakennari upp úr aldamótunum fremur en nú.“ — Þið hafið þá lítið orðið var- ir viðfræðslulagasetningunahér í höfuðstaðnum? ? ,.Já. Skólinn starfaði undir öruggri stjórn Mortens Hansen. Breytingar urðu ekki miklar í hans tíð. Þegar ég kom að skól- anum. starfaði Sigurður Jóns- son einnig við skólann, ágætur kennari, síðar yfirkennari og skólastjóri. Svo voru ýmsir fleiri. Skóliiin starfa'ði eftir fastri reglugerð; og til hans runnu ákveðin giöld; En fræðslu lögin höfðu mikil áhrif úti í sveitum og þorpum. Og ekki var vanþörf á að bætá ástandið í fi’æðslurnálum víðast hvar.“ j GUNNAR GUHMUNDSSON 'form. Samb. ísl. barnákennara: LÖG um almenna barna- barnafræðslu á íslandi eru hálfr ar aldar gömul um þes.sar mund j ir, og minnast þá margir með þökk í huga brautryðjendanna, sem áttu bjartsýni og' stórhug til að bera stórmál fram til sig- urs við mjög erfiðar aOstæður. Þeir menn hafa. haft glöggan kilning á þeirri staðreynd, að xf og hagur hverrar þjóðar er óroía tengslum við alménna aenntun þegnanna. Kennarar áttu sinn þatt í setn ngu fræðslulaganna í upphafi jg hafa jafnan síðan unnið að jreytingum og umbótum, sem (erðar hafa verið á þeim, og xtt frumkvæði að mörgum jeirra. Verður ekki annað sagt n samvinna ríkisvalds og kenn irasamtaka um fræðslulögin lafi verið góð. Aðstæður og viðhorf breytast jrt í nútíma þjóðfélagi, og þai'f á að samræma lög' og reglur JÖrf Iíðandi tíma. Mun því enn 'yrirhuguð endurskoðun ræðslulaganna með þátttöku .'ulltrúa frá samtökum kennara. ÍJin hugsanlegar breytingar verður ekki rætt að sinni, en á það bent, að flestir munu þeirrar skoðunar, aö jöfn og eðlileg þróun sé heppilegri en ; síór stökk. j Stundum er á það minnzt, að fræðsluskyldan sé þjóðinni of- viða byrði, og hafa sumir lagt til samdrátt í því eíni. En flest- ir munu þó á einu máli um, að því fé sé vel varið sem fer til menntamála, og minna má „á, að sumar miklar menningar- þjóðir, er nálægt okkur búa og hafa á sér orð fyrir ráðdeild og hagsýni, eyða meiri fjármunum að tiltölu' til- fræðslumála en hinir eyðslusömu Islendingar. Kennaiarnir, þeir menn, sém vinna að því að framkvæma fræðslulögin, eiga við margan vanda að stríða, ekki sízt vegna þess að starfsskilyrði þeirra eru engan veginn fullnægjandi. jÞeir eiga sér því margar óskir

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.