Alþýðublaðið - 04.12.1957, Qupperneq 8

Alþýðublaðið - 04.12.1957, Qupperneq 8
8 Alþýðubláðið Miðvikudagur 4. des. 1957 Kffálflutningur Innheimta Samningagerðir Málflutniagsskrifstofa Vagns E. Jónssonar Austurstræti 9. PILTAR ÉPPlQ ÉfölÓ UHHÖ2T(/NA }>Á;'h éG mti&Atifi / : '• 'k*—-3 l :' Bílaleigan OPIN DAGLEGA KL. 2—6. Sími 2-33-98 Sigurður Ólason Hæstaréttarlögmaður -■»5« Austurstræti 14. Sími 15535. Viðtalst. 3—6 e. h. Samuðarkort : Slysavarnafélag íslands kaupa fiestir. Fást hjá slysa vgrnadeildum um land allt. í Reykjavík í Hannyrðaverzl upjnni í Ba-nkastr. 6, Verzl. Gunnþórunnar Halldórsdótt ur og í skrifstofu félagsins, Grófin 1. Afgreidd í síma 14897. Heitið á Slysavarnafé lagið. — Það bregst ekki. — 3/liEirsiingarspjöleJ D. A. S. fást hjá Happdrætti DAS, Austurstræti 1, sími 17757 — Veiðarfæraverzl. Verðanda, sími 13786 — Sjómannafé lagi Reykjavíkur, sími 11015 — Jónasi Bergmann, Háteigs vegi 52, sími 14784 — Bóka verðl. Fróða, Leifsgötu 4, sími 12037 — Ólafi Jóhanns 33096 — Nesbúð, Nesvegi 29 syni, Rauðagerði 15, sími ----Guðm. Andréssyni gull smið, I..augavegi 50, sími 13769 — í Hafnarfirði í Póst húsinu, sími 50267. Leiðir allra, sem ætla að kaupa eða selja B I L liggja til okkar Bílasalan Klapparstíg 37. Sími 19032 Áki Jokobsson og Kristján Eiríksson hæstaréttar- og héraðs dómslögmenn. Málflutnmgilr, innheita, samningageírðir, fasíeigna og skipasala. J3augaveg 27. Sími 1-14-53. Húsnæðis- miðlunin, Vitastíg 8 A. Sími 16205. Sparið auglýsingar og hlaup. Leitið til okkar, ef þér hafið húsnæði til leigu eða ef yður vantar húsnæði. Auglýsið í Önnumst allskonar vatns- og hitalagnir. Hiialagnlr s.f. Símar: 33712 og 12899. KfkVPUM prjónatuskur og vað- málstuskur hæsta verði. Álafoss, Þingholtstræti 2. Loftpressa til leigu Byggingafélagið BÆR H.F. Sími 33 5 60 eða 17 9 74. Fræðslulögin frá 1907 Framhald af 7. síðu. hafa haft það framsækna og menningarlega markmið fyrir augum við setningu þeirra, ekki sízt Guðmundur Finnbogason, sem segja má að væri aðalhöf- undur þeirra og hvatamaður, þótt ekki væri hann þingmað- ur. Minnist ég ræðu hans um þessi efni norður í Eyjafirði á þeim árum, þar sem hann lagði áherzlu á nauðsyn og megin- þýðingu almennrar fræðslu. Mennt er máttur, sagði hann, og þann mátt verður þjóðin að tileinka sér. Trú á fræðslu og skóla var yfirleitt sterk með þjóðinni. Og af skólum væntu menn sér mik ils. Því vakti setning laganna vonir um batnandi menn og vaskari þjóð. Einkum fögnuðu þeim hinir yngri menn, sem þá gengu fram til starfa. Fræðslu- lögin mörkuðu því verulegt spor og brýndu til sóknar. Þau voru Manchettskyrtur hvítar og mislitar. Sportskyrtur Sportpeysur Hálsbindi Náttföt Nærföt Sokkar Hattar Húfur, alls konar Plastpokar til að geyma í föt. Hálstreflar alls konar Gaberdine-frakkar Poplín-frakkar Gjafakassar Raksctt Skinnhanzkar, fóðraðir Kuldaúlnur á börn og fullorðna. Kuldahúfur á börn og fullorðna. mm OEYSie H.F Fatadeildin. HoriiaSjarlarréfyr. Hornafjarðarrófur alltaf beztar. Leitið fyrst til okkar. Verzlanasam- bandið h.f. Vesturgata 20. Símar 11616 og 19625. m fóstur vaknandi þjóðar, og urðu jafnframt til þess að ska'pa vakningaöldu. Því voru þau mikill fengur á þeirri tíð. Segja má meo sanni, að hin fyrstu fræðslulög svöruðu vel til síns tíma. Þar var farið gæti- lega í sakirnar, sem og rétt var. Þeim var fyrst og fremst ætlað að tryggja það höfuðatriði allr- ar lýðmenntunar, að hver og einn þegn, sem gæti, yrði laes og skrifandi. Það áttu raunar heimilin að sjá um, með eftir- liti prestanna. En nú greip lög- gjöfin fastar í tauminn, gerði meiri kröfur en fól þó enn heim ílunum lestrarkennsluna. Var það skynsamlegt, og raunar sjálfsagt eins og þá stóðu sakir. Heimilin voru þá enn fjölmenn og fastmótaðar stofnanir, sem gátu sinnt slíku verkefni, þótt misjafnt væri að sjálfsögðu. En það vitum við, sem þá hófum kennslustarf, að víða leystu heimilin þetta verk af hendi með hinni mestu prýði. Að vísu reis mikil deila um það á Alþingi, sem nærri hafði stöðvað málið, hvort lögleiða bæri alrpenna skólaskyldu um land allt þegar í stað. Töldu margir það alls ekki tímabært né framkvæmanlegt, eins og sakir stóðu. En sætzt var að lok um á það, að fræðsluskyldan aðsins skyldi jafnframt lögíeyfð, en vorprófin sannreyna hvort nægði. Varð þessi málamiðlun án efa hið mesta happaspor. Þar sem ég hóf starf á öðru ári fræðslulaganna, komu því naer öll 10 ára börn í skólann vel læs. Og tveimur árum síð- ar prófaðí ég börn í því nær heilli sýslu, og þótti lestrar- leikni þeirra í góðu lagi, yfir- leitt. Furðar mig nú á þeim kröfum, sem ég gerði til barn- anna og hve vel þau stóðu sig. Flest þeirra kunnu mikið af ljóðum, spakmælum og gátum og sögðu vel frá því sem þau vissu. Og ekki var komið að tómum kofum hjá sumum þeirra ef Islendingasögurnar bar á góma. Auðfundið var að þarna voru heimilin með og að verki. En skólinn hafði líka örvað námfýsi þeirra og kennt þeirra, ef íslendingasögurnar reikningi kunnu þau meira en líklegt mátti þykja, eftir svo skamma skólagöngu, víðast hvar. Náttúrlega var húsakostur skólahalds.ins víða fremur bág- borinn. En þó var því til tjald- að,.sem skást var. Sums staðar í strjálbýlinu voru byggð smá- hýsi, sem þá voru kölluð skóla- skýli. Sá ég þessa einna víðast vott á Vestfjörðum. Og nokkur fremd þótti þá að því að geta tekið skóla á hcirnilið. Honum fylgdi líf og fjör og andblær þeirrar fræðslu og menningar, sem fólkið bráði. Eg minnist fátæklegra kennslustofa, mitt fvrsta ár, lé- legrar lýsingar og fátæklegrar uuohitunar. En allt hverfur þetta í skusgann þeggr ég hugsa til þess blossandi áhuga, sem börn.in höfðu á náminu og þeirri námsgleði, sem geislaði af þeiro, bótt mörg þeirra yrðu að ganga langa vegu og erfiða í skólann. Og minnisstæður er mér líka áhugi foreldranna á skólastrf- inu, heimsóknum þeirra í skól- ann og hvernig þeir, og fólkið á heimilunum yfirleitt, fylgd- ist með skólastarfinu og námi barnanna og lét sér annt um bað. Því hefur þessi fyrsti vétur minn í Hrísey og á Arskógar- ’strönd orðið mér minnisstæður. Hann og fleiri þeirra á hinum fyrstu áratugum hafa oft minnt mig á það, hvað muni mikils • verðast í öllu skólastarfi. En þótt viðurkennt sé, svo sem rétt er og skylt, hversu vel heimilin ræktu yfirleitt þá skyldu sína, að gera hörn sín læs, eða svo hygg ég það hafi almennt verið, þá ber hitt að viðurkenna, að bæði urðu ein- hverjir alltaf útundan, og svo var heimafræðslan að sjálf- sögðu jafnan heldur fábrotin. Hið fjölþættara nám kom með hinu lögboðna skólahaldi. Og nú varð enginn alveg settur hjá. Að vísu var hinn lögboðni náms tími ærið misjafn, og svo er enn í dag, en átta vikna kennslu a.m.k. skyldi þó hvert barn njóta, að nokkurt skólahald hafði fest víðasthvar rætur hér, áður en upplausnaraldan mikla skall yfir lönd og lýði með hinni fyrri heimsstyrjöld. Þegar þessara tímamóta er minnzt þyrfti margs að geta, sem hér verður eigi skráð. Tvennt ber þó af. Hið fyrra er, hin örugga forsjá Jóns Þórarins sonar. Hann átti, sem kunnugt er, að hafá umsjón með fram- kvæmd hinna nýju fræðslulaga, og fórst bað giftusamlega. Hann fór hægt í allar sakir, en seig fast á. Víða var við mikla örð- ugleika að etja, — fátækt og skilningsskort, og löggjafar- valdið tregt í taumi. Þó miðaði áfram. Og ýtni Jóns Þórarins- sonar var það fyrst og fremst að þakka, að skólarnir eignuð- ust þegar á hinum fyrstu árum þessa tímabils nokkuð af n,auð- synlegustu kennslutækjum, sem þeir bjuggu lengi að. Og svo var það „Skólablaðið“, sem Jón Þórarinsson hélt lengi úti með mikiili þrautseigju. það gerði stórfellt gagn, að ég hygg, i öjlu sínu látleysi. Það glæddi áhuga og fræddi um niargt þessi fyrstu ár, þegar svo margir, sem við kennslu feng- ust höfðu litillar eða engrar kennaramenntunar notið. Og það annað, sem minnast ber sérstaklega á þessum tíma- mótum, er stofnunKennaraskól ans. Það var hin merkasta fram kvæmd og nauðsynleg. Ekki Isízf vegna þeirrar forystu, sem honum var fengin.^Það benti í lákveðna átt, og mun jafnan bera yfirstjórn fræðslumálanna þá gott vitni. Og með stofnun Kennaraskól ans er þá líka lagður grundvöll- ur að stétt barnakennara í land inu. Það var mikið lán að slíkur maður, sem síra Magnús Helga- son var, skyldi verða til þess að móta starf hins íslenzka kennaraskóla í upphafi. Því að bótt margt skorti af tækjum og tækni frameftirárum,varðkenn araefnunum dvölin undir hand leiðslu skólastjórans ómetan- legur þroska-auki. Um það hafa beir jafnan vitnað. Áhrif hans urðu þeim og þjóðinni giftu- drjúg. Og þess mætti óska nú, að íslenzk kennarastétt yrði jafn- an rík af þeim verðmætum, er síra Magnús Helgason lagði í brjóst frumherja hennar. Þá mun vel fara. Snorri Sigfússon.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.