Alþýðublaðið - 26.03.1958, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 26.03.1958, Blaðsíða 5
'SIiSvikudagtir 26. marz Í958j llkýllklllll aumbúðu HOMÖGENISERUÐ M.TÓLK ýkramin mjólk) er mjólk, sem fitukúlurnar hafa verið kramd ar í, með þeim árangri, að eng- inn sýnilegur rjómi sezt ofan á hána, þótt hún sé géymd í 48 klukkustundir. Vísindi og tíékni hafa 'sannað, að homo- geniseruð mjólk er mun Ijúf- fcngari og bragðbetri heldur [ en sú mjólk, sem við eigum að ! venjaSt. Því er brýn nauðsyn áð byrja nú þegar áð homogeni sera okkar neyzlumjólk (sölu- mjólk). ANNARLEGT BRAGÐ í MJÓLK. A þessum tíma árs ber stund j um lítið éitt á því, að annarlegt i bragð má finna í mjólk hér á landi og víðar erlendis. Ýmsar getgátúr hafa verið uppi um það, hvað veldur þessu bragði. Wú hafa hins vegar vísindi og tækní íeitt í Ijós, að útrýma rná annarlegu bragði í mjólk með því að homogénisera mjolkina og nota pappaumbúðir undir hana, en ekki glerflöskur.Það er þegar sannað, að homogeni- seruð mjólk er miklum mun Ijúffengári og bragðbetri en ó- kramin mjólk, auk þess fer hún betur í maga. — Að sjálfsögðu verður að tryggja örugglega, að mjólkin spillist ekki í meðför- um eftir gerilsneyðingu og ho- mogeniseringu. — Það verður bezt gert með því að nota pappa umbúðir eins og fyrr segir, því að t.d. birta getur haft skaðleg áhrif á mjólkina, breytt bragði hennar, auk þess. er hreinlætið irfeira, ef pappaumbúðir eru notaðar. —■ Því skal nokkru nánar rætt um pappaumbúðir. Fyrir nokkrum árum benti ■eg á kost Tetra-Pak pappaum- búða, og þar eð Mjólkursam- salan hefur nú ákveðið að ikaupa slíka vél, er ekki úr vegi ?.ð minnast nokkru nánar á þessa frábæru vél og pappaum- búðir. TETRA-PAK PAPPA- UMBÚÐIR. Um áraskeið voru tilraunir gerðar áður en Tetra-Pak hylk að var framlei'tt eins og það er nú. A tilraunaskeiðinu voru 'uppi raddir um það, að nýtt herf'i væri í uppsiglingu, nú er 3jóst orðið, svo að ekki verður xim villzt, að það hefur marga. kosti. Framleiðendur halda íram, að samanborið við hinar fceztu amerísku aðferðir til að gevma -mjólk t''hylkjum; þá spari Tetra-Pak aðferðin 65% af pappaefni, 75% af plássi og 75% vinnustunda við pakkn- tingu í mjólkurvinnslustöð. ÞRÍHYRNINGSLÖGUN. Hin nýstárlega lögun Tetra- Pak hylkisins gerir mögulegt að nota smærri arkir úr létt- vigtarpappír. Tetra-Pak er þrí- hyrningur, þ.e. reglulegur 3ja hliða píramídi, með jafnhlið- uðum þríhvrningum, bæði í feotn og hliðum, en þetta þýðir, að réttur endi snýr ætíð upp, af því að allár 4 liíiðarnar eru jafnar. MÓTUNAR- OG ÁFYLL- INGAVÉL. Tetra-Pak vélin er byggð á éftirfylgjandi. einföldum grund Yelli: Hún myndar borða af plastik þornum (húðuðum) pappír, sem lokast (innsiglast) borða uppundnum í rúllu og gerðum pípulaga. Hin löngu samiskeyti festast saman við hita. Á stöðugri leið sinni nið- ur á við er þípunni þrýst sam- an af hituðum sámþrýsti-töng- um eða járnum á hreýfi-keðj- urn, sem hreyfast niður á við með sama hraða og pípan. Jafn framt rennur mjólkin í pappírs pípuna frá áfyllingapípu að ofan. Yfirbórð mjólkurinnar er haldið hærra en innsigluninni (lokuninni), sem nú hefur myndazt. Með þessum hætti ýta samþrýsti-járnin burtu þeirri mjólk, sem umfram er fylli í píramídanum, sém eru að mynd ast. Vökvamagnið í hverju Tetra-Pak hylki ákveðst af þvermáli tækisins, sem myndar pípuna og lengdarfjarlægðina milli samþrýsti-járnanna. Vogir komá ekki til greina né heldur mælitæki, en samt er minni innihaldsmunur heldur en á löggiltum glerflöskum. Til að fyrirbyggja að nokkur vökvi sé eftir við innsiglingunina, er þrýstingur, sem nemur smálest settur á lokunarjárnin. Gerir þetta gjörlegt að fylla hylkin með seinhnígandi efnum, svo sem rjómaís og venjulegum rjóma o. fl. ENGIN FROÐA. Það, að mjólkin (lögurinn) er ætíð ofar því, er innsiglinu nem ur, er miög þýðingarmikið. Það þýðir, að áfyllingspípan endar neðan við yfirborð lagarins. Með þessu er loku fyrir það skotið, að froða komist að. Við alla aðra áfyllingu hltur straum ur lagarins fyrr eða seinna að snerta lagaryfirborðið, en með því myndast froða. Hinn eini vissi, en auk þess einfaldasti og ódýrasti máti til að forðast froðuna, er að koma í veg fyr- ir yfirborðssnertinguna, m.ö.o. að fylla fyrir neðan yfirborðið. Pípan skilur sig frá vélinni eins og keðja af fylltum píra- mídum, sem eru aðskildir með irmbyggðum skera, og þá búnir til pökkunar í kassa, eða þar til gerðar umbúðir. VÉLINNI ER EINFALT AÐ STJÓRNA. Oll vélin er af mjög einfaldri og auðskilinni gerð. Hún er hið ytra steypt járnhylki, en á það er fest pappírspípan og áfylli- samstæður, fjögurra hliða sam stæður með hitalokunartöngum á keðjum sínum, svo og 2ja hestafla mótor. Pípumyndunarsamstæðurnar og áfyllipípurnar er auðvelt að losa frá, þannig að létt sé að þvo þær eftir notkun. Hvora hliðarsamstæðuna fyrir sig má losa á 15 sekúndum. Þær eru óbrotnar, enda eru aðeins tvær við hitun,pípur úr steypujárni, sem keðj- urnar hvíla á. Lokunarjárnin eru tvenns konar. Er annað klætt silicone (maríuglers) gúmmí, en hitt er samfest við rafmagnsgeymi og hitastilli. Bæði má setja á og af keðjurnar á 10 sekúndum, og silicone plöturnar, rafgeyminn eða hitastillinn á jafnlöngum tíma. En vegna einfaldleikans á samsetningu vélarinnar, og með því, að hún er vatnsþétt, i plássi. Þær þurfa aldrei að ótt- má þvo hana þegar þess gerist ! ast truflanir hjá verksmiðjum þörf. Til þess kemur þó varla, þeim, er sjá þeim fyrir efni. þegar þess er gætt. að lokunar- tjárnin ein snerta vtra borð 4. FLUTNINGSKOSTNAÐ- hylkjanna. UR. Tetra-Pak er svo létt, að I einn maður raðar á bíl tvöföldu PLASTKLÆDDUR magni mjólkur samanborið við PAPPÍRSIIORÐI. mjólkurmagn í venjulegum I vélina er látinn plastik- | glerflöskum. klæddur kraftpappír. Tegund ur framleitt 5400 fyllta pakka á klukkustund, fullröðuðum til flutnings í kössum. 3. RÚM. Miðað við annan framleiðslumáta og jafnmikið magn, er sparnaður a.m.k. 75%. Ekkert geymslupláss kemur til greina fyrir tóm hylki, því að þau eru send mjólkurstöðinni í mynd samanþjappaðra rúllna af húðuðum pappír í litlu Y'firburðir hins létta og þétta Tetra-Pak á sölu til neytenda er augljós. Sem næst tvöfalt meiri mjólk má flytja á saroa vagni og ekfci er um neinn, tímaspilli að rsðða né flutninga á tómagóssi. V - Fyrir húsmáfeður hlýtur Tetra-Pak að verá ákjósanlegt. Hún fasr pakka, sem trygging er fyrir að sé hreinn, og húni getur verið þess fullviss, að> 'mjólkin hefur ekki spillzt aðl neinu leyti frá því að hún var gerilsneydd. Pakkinn er léttur og þægilegur í vöfum, og þcgar hann hefur verið tæmdur, ei* honum fleygt eða brenní- Flöskuþvottur er enginn. os: ekkert pláss fer til spiljis £ skápunum. Vegna lögunar þeirra — öll hornin geta snúið upp — fæst pláss fyrir hylkin, jafnvel í yfirfylltum kæli'skáp. Það er létt að meðhöndla þau, jafnvel fyrir smábörn, og auS- velt að hélla úr þeim og þau standa stöðug vegna hinna jafn stóru flata. og þungi plastikhimnunnar er ókveðið eftir því, hver áfylling er. Almennt má búa hylkið þannig úr garði, að það endist ótakmarkað, en sé það ætlað fyrir mjólk, er ending þcirra gerð hæfileg með kostnaðartil- liti, svo sem svarar 3—4 dagar. Pappírsrúllan er afhent 5. MA SELJA I OLLUM MATVÖRUBÚÐUM. Að því athuguðu, að Tetra-Pak er lok- áð Ioftþétt og innsiglað við hita, getur mjólkin ekki spillzt. Tetra-Pak má þess vegna selja í matvörubúðuni. í flestum lönd um, að undanskildum U.S.A., er mjólk ekki seld í sérstökum mjólkurstöðinni prentuð og ' mjólkurbúðum húðuð, en um leið og hiiðin ^ neytenda. (plastikhúðin) er sett á, er papp írinn sótthreinsaður. I vélinni ér harsn innilokaður og varinn sóttkyeikjum í andrúmsíofti. Rétt þar sem pípan myndast er þappírinn aftur sótthreinsaður íií frekari tryggingar, og er það gert með rafmagnsliituðum elementum inni í pípunni. eða beint til Framhald af 7. síðu. (Þetta var stytzta leiðin í mát, en aðrar leiða til hins sama, t. d. 34. — Ke6. 35. Bg4-1 Kf7. 36. Hd7 t Kg6. 37. Bf5 t Kh5. 33. Hg7 og mát er c.umflýjanlegt). 35. Hd7 t og mátar fáum leikjum. í or- Ingvar Ásmundsson. KASSAR FYRIR HYLKIN ÁFYLLT. Tetra-Pak hylkin falla úr vél inni af sjálfu sér í þar til gerða kassa til flutnings. Kassar þess- ir, sem hylkin falla alveg að, eru sexhyrndir eins og sellur í hunangshleif. Leiðir af þessu, að þehn má raða saman, án þess að pláss fari tíl spillis. Raun- verulega má raðá saman tvö- falt mciri mjólk í sambærilegu plássi við það, sem þarf fyrir liina löggiltu V-t líters flöskur, er tíðkast í Svíþjóð. Eftir tæm- ingu má láta kassana hvern of- an í annan. AUÐKENNANDI FYRIR TETRA-PÁK. Yfirburðir Tetra-Pak aðferð- arinnar eru margir, sérstaklega að því er snertir: 1. EFNI. Áætlaður sparnaður á efni í U.S.A. (með það fyrir aúgum, að öll mjólk, sem þar er seld í pappírsumbiiðum, yrði nú. seld í Tetra-Pak) mundi neina h.u.b. 250.000 smálestum áf pappír árlega. 2. VINNUKOSTNAÖUR. — Tetra-Pak vélin afkastar 90 hylkjum á míh. Einn máður get Kaupfélapstjórasfarfið við Kaupfélag Vestmannaeyja, Véstmannae yjum, er laust til uinsóknar. Umsóknir ásamt meðmáelum og upplýs inguin um fyrri störf sendist fyriy 20. apríl n.lc. til- formanns félagsins, Steingríms Bene diktssonar, Vestmannaeyjum eða til Krist- leikfs Jónssonar, Sambandi ísl. samvinnufé laga sem gefa allar nánari upplýsingar. Stjcrn ICaupféSags VesttnanirsaeylaB UNDANFARIÐ hafa staðið yfir þrjár stórar frímerkjasýn- ingar erlendis, en það eru „Fil- ex“, ,,Caritas“ og ,,Stampex“. FILEX Þessi sýning stóð yfir í Kaup- mannahöfn um síðustu mánaða- mót og var aðalhlutverk liennar að kynna söfnurum falsanir meistarans Sperati, sem skrifað hefur verið um hér í þættinum að undanförnu. Voru margar af fölsunum hans sýndar þar og þá einnig ófölsuð merlti af sömu eintökurn. Þá var og sýnt ó sýn- ingunni hvernig liann vann að fölsunum sínum stig af stigi unz þær urðu nær óþekkjanlegar frá hinum upphaflegu merkjum. Einnig var hægt að kynna sér á hvern hátt falsanir hans voru frábrugðnar ekta merkjum, svo að auðveldara yrði fyrir safnar- ana að þekkja þær frá framveg is. Á þessari sýningu gat og að líta ýmislegt merkra afbrigða frá íslandi, sem sum reyndust Tölsuð þegar tilátti a.ð taka. Þarna var t. d. eitt af gömlu auramerkjunum, með miðstykk ið á hvolfi, en það var síðan dreg ið til baka, þegar upp komst að miðstykkið hafði verið skorið úr og snúið við og síðan límt inn á ný. Þá voru þarna tvær arkir af merkinu 5/35 aurar Hekla, með yfirprentunina á hvolfi, og eru það að öllum líkindum einu árk- irnar, sem til eru. Margt annarra merkja, girni- legra til fróðleiks, gat að líta á sýnirigunni, sem of langt yrði hér upp að telja. CARITAS Caritas-sýningin stóð yfir dag ana 15. og 16. þ. m. og var fyrst og fremst sýning á jóla- og líkn armerkjum. Ýms góð söfn voru þarna, eins og safn hins látna póstmeistara Einars Holböll, sem ber af öðr- um jólamerkjasöfnum, scm þekkt eru. Þá var þarna fjöldi einka- safna auk safns jólamerkjaskrif- stofunnar dönsku. Meðal gesta voru menn írs öllum Norðurlöndunum og jafn vel frá Englandi. STAMPEX Hin árlega enska frímerkja- sýning Stampex fór fram dág- ana 15.—22. þ. m. í London. Eitt var nýstárlegt við þeSsá sýningu. en það var að valirr vsr fegursta stúlkan meðal frí- merkjasafnara sem Miss Stamp- ex 1958. Ekki er mér kunnugt um að þessi titill gefi nokkra heimild til frekari þátttöku í öðrum fegurðarkeppnum, en þetta hressti nú samt mikið upp á allan brag sýningarinnar. Þarna bar mest á eins og svo oft áður söfnum merkja írá Bretlandi og brezku nýlendun- um og voru mörg þeirra hin glæsilegustu. Sýningu þessa, sem þegar er orðin heimsfræg, sóttu menri frá flestum þjóðlöndum heims. Á sýningunni voru margar söludeildir og þar gat að líta marga girnilega muni. Annars mun rætt nánar um báðar þessar sýningar liér í blani inu á næstunni, en ritstjóri frí- inerkjaþáttarins var staddur á þeim báðum og mun væritanlega skrifa sína greinina urri hvora þeirra, þegar hann kemur heim, nú um mánaðamótin.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.