Tíminn - 01.04.1965, Blaðsíða 16
SKIP STRANDAR
Á HORNAFIRÐI
AA-Höfn, miðvikudag.
Á sunnudaginn tók norska flutn-
ingaskipið Petrell, sem er leigu-
skip á vegum SÍS, niðri á sandeyri
við innsiglinguna hér, og er skipið
þar enn, en búizt er við að það
Ráðstefna SUF í
Reykjanesk.dæmi
Ráðstefna SUF
um efnahags-,
verkalýðs- og hús
næðismál hefst í
Félagsheimilinu,
Kópavogi, laugar
daginn 3. apríl,
ikl. 2 e.'h. og verð
ur fram haldið
Jón Skaftason sunnudaginn 4.
apríl kl. 2 e.h. Framsögumenn
verða Jón Skaftason ,sem ræðir
um efnahagsmál, Jón Snorri Þor-
leifsson, sem ræðir um verkalýðs-
mál og Hannes Pálsson, sem ræð-
ir um húsnæðismál. Framsóknar-
menn! Mætið vel og stundvíslega.
Jón Snorri Hannes
losni upp á flóðinu í fyrramálið,
þar eð Dísarfell hreyfði það í dag,
er tilraun var gerð til þess að ná
því á flot.
Skipið átti upphaflega að fara
með áburð til Norðurlands og
Austfjarða, en vegna íssins var það
ráð tekið að láta það fara hingað
inn. Kom skipið hingað á sunnu-
dag og ætlaði skipstjórinn að sigla
skipinu að bryggju án þess að
taka hafnsögumann um borð. Ekki
tókst betur til en svo, að skipið
tók niðri á sandeyri innan við
ósmynnið og sat þar fast. Skipinu
var engin hætta búin þarna og
var unnið við losun úr því á strand
staðnum. í dag kom Dísarfellið svo
hingað og reyndi að ná Petrell á
flot á flóðinu, en vírar slitnuðu,
er skipið hafði mjakazt tvær
Framhald á 14. síðu
Þyrlan
komin
MB-Reykjavík, miðvikudag.
Hin nýja þyrla Landhelgisgæzl-
unnar er komin til landsins. Hún
kom með einni af flutningaflug-
vélum vamarliðsíns til Keflavík-
urflugvallar í dag. Þyrlan mun
flutt til Reykjavíkur á morgun,
en þar verður hún sett saman og
reynd. Kom þyrlan þannig nokkru
fyrr en búizt var við, en áætlað
var að hún kæmi ekki fyrr en
um miðjan aprílmánuð.
Þessi mynd var tekin af yfirborði einnar tjarnarinnar | eldisstöðinni í Kollafirðl í gær. Hún var
troðfull af laxi og sést greinilega hvernig yfjrborð vatnsins ólgar.
(Tímamynd KJ)
Laxinn kominn!
FB—Reykjavík, miðvikudag.
Þau tíðindi hafa gerzt, að
Kollafjörður og eldistjarnirn-
ar í Kollafirði fylltust af laxi
í fyrri nótt. Er þetta staðfest-
ing á þeirri kenningu, að með
því að flýta klaki um tvo mán-
uði, gangi laxinn tveimur mán
uðum fyrr til æskustöðvanna
og nærliggjandi vatnasvæða.
Laxagengdin í eldistjörnunum
er nú orðin slík, að þar sýð-
ur sem í potti af sporðaköst-
um. Lax þessi er yfirleitt að
meðalstærð. Þar sem leyfilegt
er að veiða á stöng með strönd
um fram, ruku ýmsir til í dag
og fóru með stöng uppeftir.
Urðu þeir fengsælir, enda
Kollafjörður fullur af Iaxi.
Stærsta laxinn veiddi Páll Ól-
afsson, lyísali, Miklubraut 19,
en það var tuttugu og eins
punda hængur, tekinn á abu-
spón nr. 8.
Þegar starfsmenn klak- og
eldisstöðvar ríkisins komu til
vinnu snemma í morgun, sáu
þeir strax hvers kyns var, enda
var mikil ólga og hreyfing í
tjörnum þeim, sem ætlaðar eru
til að taka á móti laxi sem
kemur aftur til eldisstöðvar-
innar í Kollafirði. Þegar þeir
huguðu betur að þessu, sáu
þeir að tjarnirnar voru fullar
af laxi, sem hafði augsýnilega
gengið í þær um nóttina. Þeg-
ar starfsmenn stöðvarinnar
fóru að huga enn betur að
þessu, sáu þeir að fjörðurinn
var einnig fullur af laxi, sem
stökk mikið inni við strönd-
ina.
Þessi laxavaða kemur starfs-
mönnum alveg í opna
skjöldu, þar sem margar tjarn
ir eru enn ófullgerðar, svo ekki
er viðlit að taka á móti öllum
þessum laxi. Verður því að
drepa kynstrin öll af laxi, til
að grynna eitthvað á þessu,
og halda einhverju á lífi í
iþeim tjörnum, sem nú eru
yfirfullar.
Þegar blaðið hafði samband
við Víðines áður en birtu fór
að bregða í kvöld, sögðust
menn sjá mikið af laxi stökkva
í Leirvogi, og virtust þeir vera
á innleið, en Leirvogsá, sem
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
hefur á leigu, rennur í Leir-
vog.
Tíminn átti tal við Guðmund
Magnússon í Leirvogstungu, en
hann er formaður veiðifélags
ins „Leirvogsá". Hann kvað
Framh. á bls. 2.
BÍLARNIR RÚNIR ÖLLU
SKRAUTI OG SPJÓTUM
IGÞ-Reykjavík, miðvikudag.
Þann 5. apríl n.k. hefst skoð-
un bifreiða í Iögsagnarumdæmi
Reykjavíkur Verður þessi skoð-
un væntanlega með tíðindameira
móti, þar sem bæði er um að
ræða stórfellda hækkun á iðgjöld-
um bifreiðatrygginga og fram-
kvæmd reglugerðar um skraut á
bifreiðum, sem hefur í för með
sér, að allir oddhvassir hlutir, svo
sem á vélarhúsi og brettum verða
að fjarlægjast.
Frétt er á öðrum stað um fyr-
irhugaða hækkun iðgjalda. Mun
mörgum þykja þar full hart að
gengið, enda um allt að
tvö hundruð prósent hækkun að
ræða í einstaka tilfellum.
Þá er allt í einu farið að fylgja
eftir reglugerð frá 1963 um odd-
hvasst skraut á bifreiðum, og hef-
ur það verið fjarlægt að undan-
förnu, m.a. við aukaskoðun
á leigubifreiðum.
Margar eldri gerðir bíla, eink
um amerískra, eru með oddhvöss
spjót á vélarhúsi og aurbrettum,
sem réttilega hafa verið talin
hættuleg í umferðinni. Munu
dæmi þess að spjót þessi hafi
gengið á hol við árekstur og vald-
ið miklum meiðslum. Þessi skraut-
vopn á bílunum eru mörg
FB-Reykjavík, miðvikudag.
Blaðinu hefur borizt skýrsla um
störf Barnaverndarnefndar Reykja
víkur á síðasta ári. Þar kemur
fram, að nefndin hélt 42 fundi
á árinu og þar voru tekin til með-
ferðar 341 mál. Að auki fjallaði
starfsfólk barnaverndarnefndar
um fjölda mála, sem ekki þótti
ástæða til að ræða á fundum.
Á árinu var alls vísað til nefnd-
arinnar málum 612 barna og hafa
ástæðurnar, sem lágu til afskipta
nefndarinnar verið flokkaðar.
hver þannig sett, að bílarn-
ir breyta mjög um svip, þegar
þau hafa verið rifin burtu. Eftir
sumum leigubílum að dæma af
nýrri gerðum, hefur verið gengið
Framhald á 14. síðu
Vegna heimilisástæðna hafði
nefndin afskipti af 117 heimilum
vegna aðbúnaðar 350 barna, í flest
um tilfellunum eða 41 lágu veik-
Framhald á 14. síðu
DAVÍÐSKVÖLD
Á ÍSAFIRÐI
ísfirðingar munu efna til minn-
ingarsamkomu um Davíð Stefáns-
son skáld frá Fagraskógi 2. apríl
n. k. og hafa fengið séra Sigurð
Einarsson til þess að flytja erindi
um þjóðskáldið og skáldskap þess.
Einnig mun Karlakór ísafjarðar
syngja undir stjórn Ragnars H.
Ragnar og flutt verða kvæði
skáldsins.. Menningarráð ísafjarð-
ar stendur fyrir þessari samkomu.
Einnig mun séra Sigurður flytja
predikun í ísafjarðarkirkju sunnu
daginn 4. apríl og flytja erindi
um för sína til ísrael. Loks mun
séra Sigurður koma á fund Slysa-
varnardeildar kvenna á ísafirði
mánudaginn 5. apríl og flytja er-
indi um slysavarnamál.
PEYSUFATADAGUR
Kvennaskólastúlkur héldu peysufatadag í gær, og urðu þessar glað-
iegu stúlkur á vegi Ijósmyndara Timans GE, þegar hann átti leið
fram hjá Kvennaskólanum. Það hefur verið fastur slður um árabil,
að stúlkurnar klæddust íslenzkum þjóðbúningi einn dag á vetri hverj-
um, og virðast þær sóma sér jafnvei í þessum búningl og ömmur
þeirra gerðu hérna áður og fyrr., þótt yngismeyjar nú tll dags séu
ekki jafnvanar að bera hann og þær voru þá.
AFSKIPTI HÖFÐ AF
MÁLUM 612 BARNA