Forvitin rauð - 01.12.1972, Side 15
með yfirlýsingar fyrir alla
hreyfinguna.
Þegar hópur hefur lokið verkefni sínu,
getur hann valið sér nýtt verkefni eða
einstaklingar hans sameinazt öðrum
hópum eða hvílt sig um stund.
Miðstöð er tengiliður milli starfs-
hópanna. Starfshópar tilkynna henni
um verkefnaval, niðurstöður og
ákvarðanir, en miðstöð leggur ekkert
gildismat á verkefnaval hópsins eða
starfsaðferðir, svo lengi sem þær
samrýmast tilgangi hreyfingarinnar.
Til miðstöðvar er þannig hægt að sækja
upplýsingar, hún er því þjónustufyrir-
tæki en ekki stjórn. Miðstöð getur
einnig verkað sem hvetjandi af1, hún
hjálpar nýjum félögum til þess að
komast í starfandi hópa eða að mynda
nýja. Einn aðili í miðstöð skráir
alla meiri háttar viðburði, sem gerast
innan hreyfingarinnar í sérstaka
dagbók.
Það skal tekið fram, að miðstöð
hefur ekkert umboð frá Rauðsokkum
til þess að taka þýðingarmiklar
ákvarðanir né gefa yfirlýsingar.
Meðlimir miðstöðvar geta aftur á
móti starfað í hópi og beitt sér þar
eins og hver annar starfandi félagi.
NÚ kynnu ýmsir að spyrja, hvernig
þetta starfshópafyrirkomulag hafi
reynzt. Segja má, að þetta hafi
heppnazt mjög vel og félagar hafi haft
mjög mikla ánægju af starfinu.
Starfsemin hefði að sjálfsögðu mátt
vera meiri, og mjög æskilegt hefði
verið að fleiri hefðu komið til starfa,
en þó held ég, að þau séu fá félögin
á íslandi, sem státað geta af svo
mörgum virkum félögum, sem Rauðsokka-
hreyfingin, og má að miklu leyti þakka
það þessu frjálsa formi. Til starfa
hefur komið fólk, sem ekki er vaint
félagastarfi eða hefur verið í hinum
þögla meirihluta í hinum ýmsu félögum.
Á frjálslegkm starfshópafundum losnar
um málbeinið á þeim, sem ekki hafa kjark
til að tala á stórum fundum.
En slíkum starfsháttum, sem hér hefur
verið lýst, þarf að venjast, og fólk
sem er að byrja, gerir sér oft ekki
grein fyrir frelsi og sjálfstæði
hópanna, það bíður eftir skipun
"að ofan", sem svo aldrei kemur og
hefur það orðið til þess að hópar hafa
lognazt út af. Samábyrgð innan
hóps hefur líka oft verið ábótavant,
einum einstaklingi innan hóps hefur
verið ætlað að drífa starfið áfram.
Ríki samhugtir og gagnkvæmur skilningur
í starfshópi getur fólk öðlazt þar
félagsþroska og öryggi.
Rauðsokkahreyfingin nær ekki enn út
fyrir höfuðborgarsvæðið.
Einstaklingar út um land hafa enn
ekki stofnað hópa og tengzt miðstöðinni
í Reykjavík, en það er mikill áhugi
meðal okkar hér að ná sambandi við
konur og karla út um land, sem hafa
áhuga á jafnréttismálum.
Við hvetjum ykkur öll, sem viljið
leggja eitthvað af mörkum í þessari
baráttu, hvar á landinu.sem þið búið
til þess að stofna starfshópa um
eitthvert verkefni, eða til lestrar
og umræðna. Hafið síðan samband
við miðstöð munnlega eða bréflega.
| I miðstöð Rauösokkahreyfingari nnar eru nú:
| Björg Einarsdéttir s. 14156
Guðrún Ágústsdíttir s. 16857
Lilja ölafsdúttir s• 81492
Hannveig Júnsdéttir S. 14459