Forvitin rauð - 01.03.1980, Page 9
\
Mig langar svo til aó líkjast Marilyn Monroe.
Ég tileinka mér heimskulegt en tælandi augnaráö
undir fölsku augnhárunum mínum
og bros mitt er fullt af sætleik og spillingu
Ég verð að muna að
Marilyn Monroe kom andrúmsloftinu til að titra af kynæsingu
Marilyn Monroe var lifandi, holdi klæddur draumur
Marilyn Monroe var taugasjúklingur
Marilyn Monroe át pillur í óhófi
Marilyn Monroe var vel snyrt
Marilyn Monroe drakk of mikið
Marilyn Monroe var ein stór bón um að fólk væri henni gott
Marilyn Monroe varó ástfangin af þeim sem hún skoðaói sem feóur
Marilyn Monroe var ljóshærð
Marilyn Monroe notaði Chanel Nr. 5
Marilyn Monroe var ein vinsælasta kvikmyndastjarnan
Marilyn Monroe var afar óhamingjusöm sem manneskja
Marilyn Monroe var engill
Ég vil helst vera engill
Ég set upp hiö blíóasta madonnuandlit
varlega
og hreinsa minn innri mann af öllu ókvenlegu
Ég veró að muna að
ég ætla ekki framar aó verða árásargjörn
ég ætla ekki framar að vera kvikindisleg
eg ætla aldrei framar aó vera háðsk
ég ætla ekki framar á fyllirí
ég ætla ekki framar að borða of mikið
ég ætla ekki framar aö hata tilhugsunina um að eignast börn
ég ætla ekki framar að vera hrokafull
ég ætla ekki framar að tala of hátt
ég ætla ekki framar aó vera andfélagsleg
ég ætla ekki framar að baktala þá sem ég hata
ég ætla alls ekki að hata framar
ég ætia ekki framar að þjást af sjálfsmeðaumkvun
ég ætla ekki framar aó halda framhjá
ég ætla ekki framar að vera þunglynd
ég ætla ekki framar að vera löt
ég ætla ekki framar að vera eigingjörn
nei - það vil ég ekki
Þvertámóti ætla ég
aó vera upphafin, róleg
og full af kvenlegum yndisþokka
tilbúin til að vera alltaf að hjálpa náunganum
hlédræg
og lamb
blíó eins
móðurleg
innileg
hrífandi
sterk líkamlega
viðkvæm einsog lilja
taka þátt í öllu
tilfinningarík
heilsteyptur persónuleiki
með markmió
og kvenlegum yndisþokka
Eg er svo glöó aö ég á mínar hugsjónir
og satt best aö segja
hvaó væri maður eiginlega án þeirra?
Eftir Jette Andersen
Dagný Kristjánsdóttir sneri.