Alþýðublaðið - 15.04.1958, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 15.04.1958, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 15. apríl 1958. Alþýðublaðið Sunnudagur. ---------MIG VARÐAR ekkert um, hvað aðrir segja, háir eða lágir, helgir eða heiðnir, mér finnst útvarps- dagskráin um páskana yfir- leitt hundleiðinleg, og mér hefur fundizt þetta í mörg ár. Dagskráin er alltof þung, há- stemmd og alvarleg. Páskarn- ir eru nú einu sinni gleðihá- tíð, eða er það ekki, vorhátíð, vonrlhátíð? Hvað á þá allur þessi yfirmáta hátíðleiki að þýða? Má ekki vera svolítið létt yfir kirkjuhátíðum líka? Kirkjan er dauðadæmd, ef hún á sér enga gleði, æskan gengur aldrei til móts við hana nema svolítil kátína sé með í leik. Ég vil segja það hér, og það getur hver tekið það eins og vill, að mér finnst allur þessi hátíðleiki í útvarpinu vitna um skinhelgi. Og skinhelgi er alltaf leiðinleg, í hverju sem hún birtist. Satt að segja veit ég ekki, hver óskar eftir öll- um þessum hátíðleik, flestir eru orðnar þreyttir á þessari löngu hátíð um háannatím- ann, þótt ekki sé verið að þyngja hana með misskilinni og hástemmdri andakt í út- varpinu. Mánudagur. } —- -—■ — Það va.r víða unnið í dag, þótt annar í páskum væri, leit helzt út fvrir, að menn væru orðnir hálfþreytt- ir á helgidögunum. Enda kom nú páskahrota af fiski. Það hefur oft verið mikið að gera um þetta leyti í verstöðvum. Um þetta vorum við að ræða, tveir gamlir félagar er við fór ; um í smágönguför í dag. Hann sagði mér þessa sögu: ,„AIdrei hef ég unnið meira en eitt sinn laugardaginn fyrir páska. Þá var ég um ferm- íngu. Það hlýtur að hafa ver- ] íð árið 1934. Ég vann þá á eyr- inni. Við þyrjuðum á föstu- daginn langa, unnum tvo tíma um kvöldið við að tdarga nýj- ; um fiski af togaradekki frá : skemmdum. j Síðan byrjuðum við kl. 4 um nóttina og unnum allan dag- inn til klukkan 3 á páskadags nótt, fengum aðeins kaffi- og matarhlé. Ég man ekki, hvað við losuðum marga togara. Svona hrota var fátíð á þeim tímum, þegar atvinnuleysi var hin reidda skálm. Ég vár svo þreyttur, þegar ég labbaði heim um nóttina, að ég vissi naumast í þennan heim né annan. Samt höfðu stórkostleg : ar fréttir breiðzt út meðal okk ar, er við komum upp úr tog- aralestinni: Það var eldur í Vatnajökli. Menn gátu séð mökkinn, ef þeir fóru upp í bæinn. Veðrið var himneskt, logn og ljúflings blíða. En ég ! orkaði ekki að fara upp eftir og horfa á hina tignarlegu sjón. Ég settist niður, reyndi lengi að herða mig upp, en ég treystist ekki að vaka lengur ! pg sízt að ganga upp í móti. Ég drattaðist því he,im og lét eldgos og stórfenglega sýn eiga sig. Ég sá mikið eftir þessu, þegar farið var að segja mér frá stórmerkjunum, sem á himninum sáust. En stundum síðar hefur mér fund izt þetta getuleysi mitt til að sjá og skoða merkin um trölls- legar hamfarir náttúrunnar þessa ljúfu páskanótt, svo ægi fagrar og tignarlegar sem þau voru, vera táknrænt fyrir líf og stríð fólks á þessum árum, ekkert umfram frumþarfir var leyfilegt né mögulegt. Væri ég skáld, skyldi ég semja um þetta skáldverki.,, Þriðjudagúr. -----— Sérfræðingur minn í heimspólitíkinni, Kalli var á kvistinum, var harla reifur í kvöld. Hann sagði, að sér lík aði vel við Eisenhower núna. Svona ætti að taka Krústjov, senda honum bara óskorun á móti áskorun, segja skák við skák. „Bara þeir létu þá eystra ekki alltaf skáka fyrst, þetta eru allt saman leik- brögð, hvort sem er. Og eins og ég hef sagt við þig áður, það gerir ekkert til, þótt. þeir ,,stóru“ kastist á bréfum, þeir gera þá ekki annað verra á meðan. „Skák“ Eisenhowers „engin kjarnakleif efni nema til þarfa“ var sem sagt góð. Vonandi segir hann „skák“ bráðum aftur, því að vissast sendir Krústjov sína „skák“ út um víða veröld. Hann vígð ur varla eftirbátur Bulganins í því.“ MiSvikudagur. --------Góður vinur minn kom að máli við mig í dag og hafði ýmislegt að segja um háttalag pólitíkusanna al- mennt. „Ég er enginn pólitík- us, ekki einu sinni flokksbund inn, en hvað heldurðu, að sagt hefði verið um sveitabónda hér áður fyrr, ef hann hefði hlaupið til útlanda, þegar hann þurfti að ráða fram úr . vandamálunum í sambandi við bú sitt. Ferðalag fjárveit- inganefnd minnir á þetta. Þarna hendast þeir bara suð- ur á Kaprí, þegar þjóðin stend Ur á öndinni að fá að vita hvern.ig á að reka þjóðarbúið. Mér finnst þetta táknrænt fyr ir allt okkar æði í þessu landi á síðustu árum. Vandamál þjóðarinnar eru ekki stórvægi leg, ef persónuleg hugðarefni eru annars vegar, og í þessum efnum eru allir undir sömu sökina seldir. Svo er verið að álasa almenningi fyrir gálaus legan lifnað, En eftir höfðinu dansa limirnir. Mér er sama, hver borgar svona hópferð ráðamanna um fjármál, það virðist nú vera aðalspurning dagsins, — auðvitað hlýtur þjóðin að þorga í einhverri mynd.“ Ég reyndi að malda í mó- inn, sagði, að þeim hefði víst ekki ver.ið vanþörf á smáveg- is upplyftingu, blessuðum köll unum, en ég komst ekki upp með moðreyk. Vinur minn var með ákafasta móti í þetta sinn. Ég sel þetta ekki dýrara en ég keyti. Nú er móðins að finna alls konar tákn í öllu æð,i manna. Er þetta kannski táknrænt fyrir þjóðlífið í heild — eða mas vinar míns bara venjulegt nöldur?“ Fimmtudagur. — —- — Það var allfjöl- mennt á fundinum um manns sálina í Gamla bíó. En kunn- ingi minn, sem sat hjá mér vákti athygli mína á því, hve fátt æskufólk væri í salnum. Þetta gaf tilefni til nokkurra umþenkinga. Sannléikurinn er líklega sá, að æskufólk er ekki verulega stjórnmálalega sinnað nú á dögum. Annað atriði þarf líka umhugsunar við. Við, sem ekki erum eftirstríðskvnslóð, gerum líklega mjög fávísleg- ar kröfur til þess æskufólks, sem vaxið er úr grasi eftir styjöldina. Það finnur alls ekki eins til og við hin, skvnjar ekki eins, á sér allt önnur brennandi spursmál, ef það á sér þá nokkur brenn- andi spursmál. Við höldum endilega, að unglingar þurfi að vita um at- burði og söguleg hvörf, sem hafði djúptæk áhrif á okkur. En getum við ætlazt til þess? Er ekki mat okkar á eftir- stríðskynslóðinni allt gert með rangri og misskilinni mæli- stiku? Hvers vegna skyldi hún hugsa eins og við, okkar and- lega reynsla vera hennar lífs- spursmál? Vafalaust er ekki sanngjarnt að ætlast til þess. Ég hef orðið þess var að ártal, sem fólk á mínu reki telur lýsandi stólpa í þjóðarsögunni af því að við lifðum það og fundum þýðingu þess í lífi okk ar, og snerti ekki unglinga og skiptir engu máli fvrir þá. Svon-a er þetta. Hver kynslóð á sín vandamál, og við getum sennilega verið þakklát fyrir, að nýja kvnslóðin þarf ekki að burðast með okkar reynslu, þótt okkur þyki það stundum sárt. Föstudagur. -----— Ég var glaður, þeg- ar ég fór úr Þjóðleikhúsinu í kvöld. í fyrsta sinn er þar sýn ing á íslenzku nýtízku drama, sem samið er fyrir það og sennilega vegna þess, að það er til. Agnar Þórðarson á þakk ir skildar fyrir að takast svona alvarlega á við leik- rítsformið, af fullri einbeit- ingu, í leit og gagnrýni, eins og listamanni sæmir. Gauks- klukkan spáir góðu. Agnar hefur ef ég man rétt, sagt ein- hvern tíma í viðtali, að hing- að til hafi íslenzka leikrita- höfunda fyrst og fremst skort úthald. Mér sýnist hann ætla að hafa þetta úthald, sem nauðsynlegt er. Vinnubrögðin eru fyrir öllu, ef nokkur neisti er til. Ég kunni leikendum vel. Ef til vill mætti segja, að vin- irnir ungu væru ekki leiknir eftir fyllstu kröfum, en Helgi óx með hlutverkinu og Bene- dikt hefur ekki áður gert betur. Og gleðilegt var, að tveir ungliðar fengu a<5 spreyta sig á þessu tíma- mótaverki. Hin eldri voru góð, og leikstjórnin prýðileg. Vilji menn sjá fínan, nákværa an og ,,kúltiveraðan“ leik í litlu hlutverki, er það leikux Arndísar í hlutverki móðui- innar. Höfundur hefur sjálf- sagt stundum verið í vafa. hvort persónan ætti að vera með, en Arndís fann hlutverk inu prýðilegan stað. Laugardagur. --------Vinur, minn, kenn- arinn, sagði mér þessa sögu yfir miðdegiskaffinu í dag: „Það er alltaf verið að fár- ast yfir, hvað skólaæskau kunni lítið eftir alla skólaset- una. Vafalaust er það rétt. Eu vita menntamenn það, ser.u æskan veit? Ég rak mig held- ur illilega á um daginn. Ég spurði um ákveðinn atburð í íslandssögunni í unglinga- bekk. Enginn vissi, hvenær hann var eða hvað gildi hana hafði. Mér fannst það hneisa. Ég skammaðist hálfpartinn. Upp úr því fórum við að ræða um, hvað þau vissu eiginlega í bekknum? Ég reið þar ekki feitum hesti frá, skal ég segja þér. Þau spurðu um margt, sem ég hafði ekki hugmynd um. Vissi ég t.d., hvort Gina Lollobrigida hefði eignaz.t dreng eða telpu í fyrra? Vissi ég, hvað skellinaðra evddi rniklu? Vissi ég, hver væii methafinn í 100 m skriðsundi, og Hvért metið væri? Vissi ég hver hefði hlaupið harðast í heiminum í ár? Vissi ég, hvoi t Volkswagen yrði eins í ár og í fyrra? Vissi ég, hvað Aúdrey Hepburn væri gömul? Svona riðu spurningarnar á mér. Og ég spyr: Veizt þú það, sem þessir unglingar vita upp á hár?“ 12,—4,—’58. Vöggur. - ( Utan úr heimi ) ENGINN getur verið í minnsta vafa um að það er um hreinan áróður að ræða þegar Rússar tilkynna að þeir hafi stöðvað allar tilraunir með kjarnorku- vopn. Sem framlag til afvopn- unar og til þess að draga úr viðsjám i heiminum er þessi tilkynning þeirra því einskis virði. Áður en sjálf tilkynningin var opinþer ger var boðað að hún væri væntanleg og var frá því sagt í símskeytum frá Moskvu. Mátti því segja að hún lægi í loftinu. Ao unanförnu höfðu þá staðið yfir sífelldar kjarnorkutilraunir í Sovétveld unum. Állt var því undir það búið að slá um sig svo um mun aði. Bandaríkjamenn eru hins vegar í þann veginn að hefja árlegar kjarnorkutilraunír sín- ar. Og Rússar voru ekki seinir á sér að grípa áróðurstækifærið, án þess þó að skuldbinda sig á nokkurn hátt. Um leið og þeir hafa lokið undirbúningi að nýj um kjarnorkutilraunum þurfa þeir ekki annars við en ásaka aðra um að þeir hafi ekki hald ið samkomulagið. Gromyko ut- anríkisráðherra tók það meira að segja skýrt fram. Rússar þurfa því ekki lengi að fresta kjarnorkutilraunum sínum þeg ar þeir hafa gengið frá öllum undirbúningi. Þessi einhliða yfirlýsing Rússa verður þá fyrst skilin þegar itillit er tekið til þess að Rússar hafa slitið þátttöku í af- vopnunarnéfnd Sameinuðú þjóðanna í bili. Vesturveldih hafa stungið upp á því að kjárn orkutilraunir verði stöðvaðar um leið og hætt verði fram- leiðslu kjarnkleyfs efnis til hernaðarþarfa, en eftirlitsstofn- un se^t á laggirnar er sæi um að samningar yrðu haldnir svo báðir aðilar gætu talið sig ör- ugga. Þessi tillaga var sam- bykkt með yfirgnæfandi meiri- hluta á þingi Sameinuðu þjóð- anna en kommúnistafulltrúarn ir greiddu einir atkvæði gegn henni. En Sovétfulltrúarnir létu sér það ekki nægja heldur neituðu þeir og áframhaldandi þátttöku í afvopnunarnefnd Sameinuðu þjóðanna. Þeir neita enn að taka þátt í störfum nefndarinnar og það eins þótt orðið hafi verið við þeirri kröfu þeirra að fjölga nefndar- fulltrúum. Að vísu var ekki orðið við þeirri meiningarlausu kröfu Iþeirra að sérhver af Sameinuðu þjóðunum skvldi eiga fulltrúa Inf.l- rði|;t í nefndinni, en fulltrúar Iú lánds og Júgóslavíu börði) fyrir þeirri málamiðlunartil- lögu að fulltrúum skyldi fjölg- að í 25, og er því ekki um nein. brögð að ræða í því sambandi af hálfu andstæðinga kommún- ista. Samt sem áður neita Rúss- ar að vinna að afvopnunarmál- unum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Ef það er einlægni Gromyko að hann vilji láta stöðva framleiðslu kjarnorku- vopna ber honum því að sýna það og taka upp aftur samvinmi í afvopnunarnefnd Sameinuðn þjóðanna. Vitanlega er áróður meira og minna saman við utanríkispóli- tík allra ríkja, og margir munu segja áém -svo að þetta áróðurs- bragð Rússa sé að minnsta kosti meinlaust. En það er þó ekfci með öllu rétt afstaða. Það get- ur alltaf orðið. til tjóns ef eitt- hvert ríki hágnýtir sér aðeins áróðursleiðina í utanríkismál- um, Þegar Bandaríkjamenn era svo tortryggnir gagnvart fupdi æðst.u manna er það vegna þess að þeir kvíða því að Rússar muni ganga þar á áróðurslagið, og Khrustjov aðeins nota fund- Framhald á 9. síðú.uJ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.