Morgunblaðið - 17.11.1913, Qupperneq 4
7^
MORGUNBLAÐIÐ
Trúlofnnarhringar
vandadir. meö hvaða
lagi eem menn úska.
em ódýrastir hjá
gnllsmiT). Langaveg 8.
“Jóni Sigmundssyni
Upphlntsmillur, Beltispör o fl.
ódýrast hjá
.Tóni Sigmundssyni
gullsmið. Laugaveg 8.
OSTAR og PYLSUR áreiðanlega
bæjarins stærstu og beztu birgðir í
Matarverzlun Tómasar Jónssonar,
Bankastræti 10. Talsimi 212.
Kenslu í ensku, dönsku og
hannyrðum, veitir Inga Lára Lárus-
dóttir, Miðstræti 3.
Ennþá geta nokkrir menn feng-
ið gott fæði á Laugav. 23 K. Johnsen.
Góður heitur matur fæst allan
daginn á Laugaveg 23. K. Johnsen.
A
D [=11
iŒI
A
ístór útsala! Stór útsala! f
Alls konar vefnaðarvara. Tilbúinn fatnaður.
Vetrarfrakkar og -jakkar. Regnkápur (Waterproof) kvenna, karla og barna-
Hálslín, slipsi og slanfnr, Skðfatnaðnr alls konar o. m. fl.
Alt selt með afarlágu verði.
j 10—40 H afsláttur.
Sturla Jónsson, Rvík.
I
T
Gunnlaugur Claessen læknir
Bókhlöðustíg 10. Talsími 77.
Heima kl. 1—2.
777. JTÍaqnús læknir
sérfr. í húðsjúkd. Kirkjustr. 12.
Heima n—x og 6^—8. Tals. 410.
PORVALDUR PALSSON
Spec. meltingarsjúkd. Laugaveg 18.
Viðtalst. 10—11. Sími 334 og 178.
Massage læknir Guðm. PéturSSOn.
Heima kl. 6—7 e. m.
Spitalastig 9 (niðri). — Simi B94.
ÓL. GUNNARSSON læknir
Lækjarg. 12 A (uppi). Tals. 434.
Liða- og beinasjúkdómar (Orthopædisk Kir-
urgi) Massage Mekanotherapi. HeimalO—12.
G. BJÖRNSSON
landlæknir
Viðtalsstundir á virkum dðgum:
10—11 árdegis,
7—8 siðdegis.
___________18. talsími,_______
Piano nýtt, af vönduðustu
gerð, fæst með tækifærisverði. Frú
Anna Petersen gefur upplýsingar.
Röntgenstofnun háskóians
óskar að fá til leigu í austurbænum, frá 1. jan. næstkomandi, eitt
herbergi ca. 7X9 álnir, og tvö lítil herbergi.
Menn snúi sér til Gunnlaugs Claessens læknis, Bókhlöðustíg 10.
Talsími 77.
C. A. HEMMERT
mælir með sínum góða nærfatnaði, handa konum, börnum og karlmönn-
um, verkmannafötum, hvítu vörunum og mislitu kjólatauunum.
Ef það er einhver sem ekki veit það
að
verzlunin Edinborg
selnr beztar og ódýrastar kornvörur í borginni,
þá er það tilkynt hérmeð. Sem dæmi skulum við nefna: Hrísgrjón á
27,00 pr. 100 kg., Haframjöl 13,30 pr. 30 kg., Rúgmjöl 17,00 pr.
100 kg.
yátíjyggingaí^
A. V. TULINIUS, Miðstræti 6,
vátryggir alt.
Heima kl. 12— 3 e. h.
ELDURI
Vátryggið í »General«. Umboðsm.
SIG. TH0R0DDSEN
Frlkirkjuv. 3. Heima 3—5. Talsimi 227.
Carl Finsen Austurstr. 3, Reykjavík.
Brunatryggingar. Heima 6 l/t—7 r/4.
Talsími 331.
nm iuli t & u..ma:jnL,mi
Mannheimer vátryggingarfélag
10. Trolle Reyk,iavik
ð* Landsbankanum (uppi). Tals. 235.
Allskonar sjóvatryggingar
Lækjartorg 2. Tals. 399.
Havari Bureau.
/ Alls konar
‘ ísl. frímerki
c* ný og gömul
Z kaupir ætíð
" hæsta verði
Helgi Helgason, hjá Zimsen.
Svörtu gammarnir.
16 Skáldsaga
eftir
Ovre Richter Frich.
(Prh.)
Og litli maðurinn hleypti brúnum.
•— Ilmari frændi! Þú mátt ekki
vera svona reiður, sagði Jónas litli.
Dvergurinn sneri sér við og
brosti.
— Var eg reiður, mælti hann á
norsku. Það hæfir ekki mönnum,
Jónas litli.
Drengurinn sneri sér þá að föður
sínum og greíp um kné hans.
— Pabbi I Eg vil líka fá að fljúga.
Þetta er fuglinn minn.
. — Þú skalt fá að fljúga þegar
þú ert orðinn stór, sagði Fjeld og
klappaði á glókoll drengsins. Og
þá munt þú fljúga lengra og hærra
en hann faðir þinn.
Það var barið að dyrum og Jens
kom inn.
— Hérna kom hraðskeyti.
Fjeld reif það npp i snatri.
— Það er frá Redpath: Gamm-
arnir flugu yfir London í nótt. Þeir
köstuðu sprengikúlu á bakhýsi Scot-
land Yards og sprengdu það í loft
upp. Tíu menn biðu bana en tólf
særðust. Eg slapp sjálfur óskaddað-
ur. Ógurleg hræðsla i borginni.
Það var skotið á gammana frá
Aldershot, en þeir skeyttu því engu
og héldu áfram yfir Dover og út á
Ermarsund. Þráðlaus skeyti hafa
verið send til allra skipa. Þeir sá-
ust siðast stefna yfir Helgoland.
Síðan ekki spurst til þeirra. Hér
þarf skjótra aðgerða. — Redpath.
Burn varð ylgdur á svip.
— Eg er til, mælti hann. Hve-
nær getum við lagt á stað héðan.
— Sjálft loftfarið er þegar full-
smíðað á vinnustofunni á Akershus.
Hvenær er hægt að setja vélina í
það? spurði Fjeld.
— Ef alt fer eftir því sem ætlað er,
' þá getur loftfarið verið tilbúið í
kvöld, svaraði Erko.
— Þá leggjum við á stað kl. 2 i
nótt.
— Well, sagði Burns og gat ekki
dulið fögnuð sinn. Þetta er ágætt.
Og hvaðan leggjum við á stað?
— Frá Úlfaeynni.
9. k a p ít u 1 i.
Ttiqlinn.
í Kristianiu firðinum austanverð-
um liggja óteljandi hólmar og sker.
Ein eyja er þar skógivaxin og heitir
Úlfaey.
Eyja þessi er að mestu leyti
óbygð og þangað koma fáir. Slæp-
ingarnir hafa aldrei vanist á það að
eyða þar tímanum og eyjan ef næst-
um því eins afskekt eins og þó hún
lægi einhverstaðar út við heimskaut.
Einu mennirnir sem leggja leið
sina út i eyna eru ræðararnir, sem
æfa sig daglega á smábátum, sem
þeir róa aftur og fram um fjörðinn.
Þegar gott er veður lenda þeir við
strendur eyjunnar og þeir sem ern
kunnugastir klífa upp hlíðarnar, sem
bæði eru brattar og skógiklæddar.
En efst er eyjan flöt og grasi gróin.
Þar rikir kyrð og friður; enginn
eyðir þar frítimum sínum við kaffi
eða víndrykkju og enginn hávaði
ölvaðra manna, né hás hýenuvæl
kámugra matsölukvenna, trufla nátt-
úrufriðinn.
En sunnudag nokkurn sumarið
1916, var óvenjuleg ókyrð þar úti í
eynni. Fjölda mörgum bátum var
róið milli lands og eyjar, og stórir
kassar og annar farangur var settur
þar á land og fluttur upp hlíðarnar.
A ströndinni stóð lágvaxinn maður
og sagði fyrir verkum, en hinir fá-
mennu eyjarskeggjar horfðu undr-
andi á og vissu ekkert hvaðan á
sig stóð veðrið. Þeim fanst eitthvað
leyndardómsfult við alt þetta, eitt-
hvað sem minti á smyglahátt eða
Frederick Marryat skipstjóra.
Um kv@ldið þegar rökkva tók,
sást kynlegur glampi úti á eynni.
Það var eins og eyjan hefði sett á
sig maurildis-kórónu og blikuðu
geislar hennar í sjónum. Borgar-
búinn, sem sat úti á veggsvölunum
heima hjá sér og reykti pípu sína,
hafði aldrei séð þessa sjón fyrri og
það var eins og hrollur færi um
hann, er hann gat sér þess til hverju
þetta sætti. Og það er ekki víst
að honum hefði brugðið minna við,
ef hann hefði verið kominn út í
eyna og séð það sem þar fór fram