Morgunblaðið - 23.11.1913, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.11.1913, Blaðsíða 2
98 MORGUNBLAÐIÐ Fyrir tveimur árum kom kind inn um eldhúsdyrnar hjá mér, af því að þær stóðu opnar. Eldhúshnífurinn lá þar hárhvass á borðinu og vatnið sauð og bullaði í pottinum, svo freistingin var mikil. Þá átti eg engan garð, svo eg lét »Naade gaa for Ret« í það skifti. En nú er öðru máli að gegna, þegar kind- urnar hafa tvisvar sinnum eyðilagt garðinn minn, sem mér þótti vænst um af öllu er eg á. A. H. Fiskifélag íslands. Fiskifélag íslands hélt útbreiðslu- fund í Bárubúð í gærkvöldi. Hafði auglýst fundinn í blöðunum og auk þess boðið sérstaklega nokkrum mönnum. Forseti, Matth. Þórðarson útgerð- armaður, setti fundinn. Var fundar- stjóri kosinn dr. Jón Þorkelsson, en hann kvaddi sér skrifara Magnús Sigurðsson lögmann. Skýrði forseti frá því, hver til- gangur félagsins væri, hve mikið væri hér að starfa fyrir félagið og mætti það ýmsu til leiðar koma. Hvatti menn til að styðja félagið og gerast meðlimir þess. Rætt var því næst nokkuð um steinolíumálið. Skýrði forseti frá því að félagsstjórnin væri að starfa að því máli og ekki vonlaust um ein- hvern árangur. Þá var loks rætt nokkuð um sölu pilskipanna til Fareyja. Fundur þessi var langt frá því að vera eins fjölsóttur sem skyldi. Úr hóp sjómanna sáust þarna miklu færri en hefði átt að vera. Þessi bær lifir á fiski. En [samt sýn- ist svo, sem þeim fáu mönnum, sem eru að brjótast i því með Fiski- félaginu að efla þekkingu og hags- muni þeirra, sem fiskveiðar stunda, gangi ver en við mætti búast að vekja þá úr mókinu, sem verið er að vinna fyrir og fá þá til að taka þátt í starfinu — vakandi og með áhuga. í félaginu eru nú 80—ioo manns; bættust við á fundinum milli io og 20. Mest eru þetta skipstjórar, em- bættis- og menta-menn. Vonandi heldur félagið bráðlega aftur útbreiðslufund. Vér trúum því ekki, að sjómennirnir láti sig vanta á hvern fundinn eftir annan. Toqari. Morðsýki, Maður nokkur, Harry Spencer að nafni, hefir nýlega verið tekinn fast- ur í Chicago og kærður fyrir það að hafa myrt unga danskenslukonu. Hann hefir nú ekki eingöngu játað það morð á sig, heldur segist hann hafa myrt 20 menn á síðustu 14 árunum. Helmingur þeirra sem hann hefir myrt, eru konur og fjór- um þeirra hefir hann verið giftur. Nokkrar líkur virðast vera til þess að hann hafi ekki drýgt þessi morð, en ímyndi sér það aðeins, því hann er eyðilagður maður á sál og lík- ama af ópíumreykingum og mor- fín nautn. En á því leikur enginn efi, að hann er einhver hinn versti glæpamaður sem nokkru sinni hefir komið fyrir rétt í Chicago og er þá mikið sagt. , Spencer segist hafa drýgt sum morðin til þess að hefna sín á þjóð- félaginu, en suma hafi hann myrt til f)ár, því það hafi sér þótt auð- veldaslur vegur til þess að eignast peninga. Hann segir svo frá, að hatur sitt til þjóðfélagsins eigi rót sína að rekja til þess, að hann hafi á unga aldri verið dæmdur i 10 ára betrunarhúsvist fyrir það að kaupa fatagarma, sem hann vissi að voru stolnir. Meðan hann dvaldi í fangelsinu, hafði hann unnið sér inn 10 dali og hið fyrsta sem hann gerði er hann losnaði, var að kaupa sér 8 dalaskamm- byssu, því hann hafði svarið þess dýran eið í fangelsinu að úthella svo miklu mannsblóði sem hann gæti, ef hann einhvern tíma losnaði. Hann segist aldrei á æfi sinni hafa kynst þeirri konu, sem átt hafi einn einasta ærlegan blóðdropa í æðum, og þess vegna hafi hann engu síður myrt þær en karlmenn. Það gegnir furðu, að lögreglan skuli ekki hafa klófest hann fyr og dæmt fyrir morðin, en hann hafði í hvert skifti það lag á að skjóta sér undan grun, að hann framdi einhvern smá- vegis klæk þegar á eftir og lét taka sig fastan fyrir það og faldist svo í fangahúsinu meðan eftirgrenslanir stóðu yfir. Smávegis Yíðsvegar að. I Hollandi eru menn nú farnirað láta mjólk á rauðar flöskur að eins. Kvað mjólkin geymast betur þannig og eigi súrna. Lokkur úr hári Goethes var nýlega seldur í Pétursborg fyrir 20.000 kr. »ParÍ8 — Berlinc heitir nýtt tíma- rit, sem gefið er út í Berlínarborg. Takmark þess er að koma á betra samkomulagi milli Þjóðverja og Frakka. I I skilnaöarmáli í Lyon, fékk kon- an skilnað frá manni sínum vegna þess, »að hann skömmu eftir brúð- kaupið tók fram hjá henni, lét gera brjóstmynd af fylgikonu sinni og flutti myndina heim, lét hana standa á skrifborði sínu og taldi konunni trú um að myndin væri af »lýðveldinu(l)«. En konan trúði þessu. Konur í Vesturheimi. Komungog auðug stúlka í New York vildigjarn- an giftast, en vildi jafnframt, að eitt- hvað væri það með óvanalegum hætti, hvernig maðurinn næði í hana. Eitt sinn þegar hún var á seglbát sínum sér til skemtunar, skrifaði hún miða og lét í flösku, sem hún kast- aði fyrit borð. Á miðanum stóð, að sá, sem flöskuna fyndi, ætti að senda mynd af sér til hennar, því honum ætlaði hún að giftast. Ári síðar kom myndin — af sjötugum svertingja, sem átti 11 böm ! í bréfi hans stóð, að því miður gæti hann eigi komið sjálfur, en þó væri hann fáanlegur til þess að eiga stúlkuna, ef »Svarta mutter* dræpi sig ekki áður. Lax. í Hamarfossá i Noregi tóku vinnumenn nýlega laxa marga, er flutu uppi dauðir. Menn vita eigi með hvaða hætti fiskurinn hefir drepist. í Uppsölum i Sviþjóð ól kýr ný- lega kálf með 5 fætur. Auk hinna vanalegu, hefir bolakálfurinn fót á hryggnum. I Berlin myrti nýlega listamálari unnustu sína. Hann var að starfi sinu á málarastofunni og ung stúlka hjá honum. Hún var fáklædd, því hann var að mála hana. Unnustu málarans varð svo mikið um, þegar hún sá nöktu stúlkuna hjá heitmanni sínum, að hún varð bálvond. En er hún hafði ausið yfir hann skammar- yrðum um hríð, tók hann skamm- byssu sína og skaut í hjarta hennar — og svo drap hann sjálfan sig á eftir. Japönsk hetja. Það var i striðinu milli Japana og Rússa. Japanar sátu um eitt af virkjum binna og höfðu gert mörg árangurslaus áhlaup á það. Þá var það að japönskum liðs- fonngja datt ráð í hug til þess að vinna virkið. Hann tók átta tundurhylki og batt þau við belti sitt en kveikiþráðunum hélt hann í hendi sér. Svo kveikti hann sér í vindling og lagði þannig á stað til virkisins. Rússar skutu ekki, því þeim stóð enginn ótti af einum manni. Þegar hann var kom- inn rétt að fremsta varnarvirkinu, kveikti hann með vindlingnum i kveikiþráðunum og hljóp svo eins og fætur toguðu inn í virkisgarðinn, þangað sem herliðið stóð ífylkingu. Og áður en nokkurn varði, þeirra er í virkinu voru, kviknaði í tund- urhylkjunum og varð af voðaleg sprenging. Þegar reykurinn leið frá, var japanski liðsforinginn og fylking Rússa horfin með öllu, en valkestir af kjöttætlum og líkamspörtum lágu þar víðsvegar og blóðið féll i stór- um fossum út úr virkinu. í sama mund gerðu Japanar nýlt áhlaup og stundu siðar blakti fáni þeirraávirk- isrústunum. íslendingur druknar í Hull. Um daginn, er Ingólfur Arnarson kom til Hull, var á skipsfjöl íslend- ingur einn, Jón Kristjánsson að nafni. Skömmu eftir að Ingólfur var far- inn, fanst þessi íslendingur dauður í hafnarkvíunum, og er enn ófrétt með hverjum hætti hann hefir lífi týnt. Hvernig á eiginmaður- inn að vera? Svar nr. 26. Að hann leiti uppi alt það sem kon- unni er kalt og með kærleika þýði þann snæ. Svo í orðum »síns manns« bæði og atlotum hans finni hún ástúð, sem vorhlýjan blæ. Sé hann stuðningur vís henni á æf- innar is verður auðvelt að þerra hvert tár, við hans samúðar-glóð. — Og sem léttkveðið ljóð, mun þá líða hver dagur og ár. Þá fer sambúðin slétt, verður ljós- björt og létt, ef þau leiðast í gleði og sorg. — Það er öryggishöfn, lífs við drynj- andi dröfn, — eða dauðanum torunnin borg. /■ Svar nr. 27. Auðvitað sem beztur. Hógværr kurteis, góðlyndur, glaður, alúðlegur við konuna sina, skyldurækinn, ná- kvæmur og nærgætinn, lítur eftir hverri hreyfingu konunnar, til að sjá hvort ekkert gangi að henni, sem hann geti úr bætt. Efnilegur, iðju- samur, leggur ekki á konuna of mikl- ar barneignir, fyndinn og vel hag- mæltur, en morgunsvæfur á sunnu- dögum. — Svona er maðurinn rninn, og hann er sá bezti eiginmaður, sem eg þekki. Svona eiga þeir allir að vera, þá liði öllum konum vel f hjónabandinu. Gamla konan. Svar nr. 28. Því er mjög vandsvarað. Það fer auðvitað eftir því hvernig konan er skapi farin, og það fer líka eftir staðháttum. Það er t. d. ekki sama að vera eiginmaður í Rvík og aust- ur í Flóa. En hvað um það. Eg ætla að reyna að svara þessari spurn- ingu eins og eg býst við að Morg- unblaðið hafi ætlast til, þannig, að draga fram það í fari karlmanns, er flestum konum myndi geðjast vel. Hann á að vera hár og vel vaxinn, herðibreiður, brjóstviður cg sterkur. Laginn og viss í hreyfingum. Röskur í gangi, fótviss og beinn. Dökkhærður, með dökkar brúnir og dökk augu. Hann á að hafa hátt, slétt enni, beint nef, eða lítið eitt bogið. Ljósan hörundslit, þó fremur rjóð- ur en gulleitur, og nokkuð breiðleitur.- Ekki mjög bliðlegur á svip, nema þegar hann brosir. Raka sig helzt á hverjum degi. Hann á vera seinn til að reiðast — helzt aldrei að reiðast — en ein- beittur, viljasterkur og djarfur. Hann á að taka rólega hverju sem fyrir kemur, góðu og illu. Hann á að hafa glögt auga og eyra fyrir öllu sem við ber kringum hann. Hann á að vera ákveðinn og draga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.