Morgunblaðið - 24.11.1913, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ
Dömuklæði og Alklæði
gott og ódýrt.
Síuría Jónsson. — Laugaveg 11.
'H-'ff Jf f / Nýtízku ísaumsvél (Broderi-
Jltjlt W ÍSlUnUl, maskine) heíi eg undirritaður
útvegað mér. Nokkur sýnishorn af vinnu hennar fyrirliggjandi.
C. 71. Jíemmerí.
Nýtt fyrir húsmæðurnar
til bökunar og matartilbúnings
»CoÍovo«-þuregg i pökkum,
Eggjablómur,
Eggjahvítur og
heil Egg,
jafngildir nýjum eggjum, en er mun ódýrara, fæst í
J. P. T. Brydes verzlun.
Regnkápur
karía og kvenna, vandaðar og ódtjrar.
Skinnvesti og skinnjakkar.
Golftreyur fyrir kvenfólk og unglinga ódýrastar í
^&afnaéarvöruverzluninni JSaugaveg ö.
JTL Tf). Rasmus.
Vetrarfrakkar,
afarmikið úrval, lang ódýrast.
Sturla Jónsson. — Laugaveg 11.
108
Handsápur
Stórt úrval. Verðið afarlágt.
H|f.
P. I. Thorsteinsson
& Go.
(Godthaab).
Kven-vetrarkápur
verða seldar nú í nokkra daga fyrir
hálfvirði.
Kápur sem kostuðu áður
30 kr. nú 15.
— 25 ----- 12,50.
— 18-----9.
Notið tækifærið meðan það býðst.
Sturla Jónsson
Laugaveg 11.
Kálmeti
fæsti
Liverpool.
Allir
ættu að kaupa gullfallegu
jóla- og nýápskOFtin
í Safnahúsinu.
Úr afar-miklu að velja.
Svörtu gammarnir.
33 Skáldsaga
eftir
Ovre Richter Frich.
(Prh.)
— Það er kvendýrið! hrópaði
Saimler og nísti tönnum. Hann
hefir skotið leopardana mína. Það
skal hann má margfaldlega endur-
goldið . . . Eltum hann félagar!
Rauðskeggjaði maðurinn horfði
varkárnislega i kring um sig. Það
var ekkert vit í f>ví að ætla sér að
klifra yfir girðinguna, sem var fjögra
stikna há. En honum datt annað
ráð í hug. Hann hafði séð lítinn
kjallaraglugga með járnrimlum fyrir.
Það var eini felustaðurinn.
í sama mund og hann kom að
glugganum, opnuðu þeir félagar hurð-
ina, og komu út með blys i hendi.
Tveir þeirra fóru að húsabaki, ef
ske kynni að hann reyndi að flýja
þeim megin.
Saimler rak upp heiftaróp, þegar
hann sá uppáhaldsdýrið sitt liggja í
dauðateygjunum við runnann, skotið
með kúlu gegn um augað, og inn í
heila. Saimler froðufeldi af reiði og
augun ranghvolfdust í höfði hans.
— Hvar er hann? hrópaði hann.
Grípið hann lifandi! Við skulum
kvelja úr honum lífið, ögn fyrir
ögn . . .
Það fór hrollur um rauðskeggjaða
manninn, sem var hinu megin húss-
ins. Hann kreisti sína skammbyss-
una hvorri hendi, svo hnúarnir hvítn-
uðu. Svo stakk hann þeim skyndi-
lega í vasa sinn og rykti í járngrind-
urnar fyrir glugganum. Atakið var
karlmannlegt, því grindurnar létu
undan. Hann rykti í 'aftur, og þær
losnuðu alveg. Hann skreið gæti-
lega inn um gluggann og þreifaði
fyrir sér með fótunum. Hann kom
niður á tunnubotn, og um leið og
hann fekk fótfestu, kipti hann grind-
inni aftur í samt lag, eftir því sem
frekast var unt.
Það mátti ekki seinna vera. Leit-
armenn bar þar að í sömu svipan.
— Hann hefir klifið yfir girðing-
una, sagði einn þeirra.
— Það er ómögulegt, hreytti
Saimler úr sér. Við hefðum þá
hlotið að sjá hann. Það klífur eng-
inn yfir þá girðingu, eins og það
væri heysáta. Manndjöfullinn hlýtur
að vera hér einhversstaðar . . . Ann-
aðhvort verður hann að deyja eða
okkur er bráður bani búinn.
Þeir staðnæmdust rétt fyrir framan
gluggann, og i sömu andrá hringdi
bjalla inni í húsinu.
— Hver fjandinn er nú á seyði,
tautaði Saimler.
— Lögreglan ? hvíslaði Anderson.
Þá var hringt aftur, tvær stuttar
hringingar.
— Það er Pétur, sagði Saimler og
létti honum fyrir hjartanu. Við
skulum vita hvort hann hefir séð
nokkurn.
Þeir flýttu sér að girðingarhliðinu.
Þá áræddi maðurinn i kjallaranum
að lýsa í kring um sig. Kjallarinn
var allur steinlímdur, og ekkert var
þar annað inni en stór tunna, með
lausum botni. Maðurinn greip lokið
af og lýsti ofan í tunnuna. Hún
var tóm, nema á botninum lá hnapp-
ur. Nú vaknaði forvitni hans, og
fór hann að athuga tunnuna betur.
Hún var svolítið mygluð innan, og
Ágat egg
fást stöðugt
hjá
Jes Zimsen.
Stórt úrval af
Kexi og Kaffíbrauði.
King Georg kexið
komið aftur.
H|f. P. I. Thorsteinsson
á Go.
(Godthaab).
Reyktur lax
fæst í
NÝHÖFN
Pundið kr. 0,75.
Nýtt Glarinet,
frá frægustu verksmiðju Þýzkalands,
til sölu með tækifærisverði. — Til
sýnis á skrifstofu Morgunblaðsins.
í mygluna sá hann skrifað með stór-
um og óreglulegum bókstöfum, og
stóð kross yfir: Patrick Dawis . . .
Maðurinn rétti úr sér. Ljósið
féll á andlit hans. Skeggið og hárið
hafði losnað, og vinur vor Jonas
Fjeld stóð þar Ijóslifandi.
— Patrick Dawis? tautaði hann.
Þessi tunna hefir verið líkkista hans
frá drykkjukrá Péturs frænda og yfir
í helgreipar Josias Saimlers. Svo
hafa þeir bundið hann á höndum
og fótum, til þess að fórna honum
norður í Kristianiu. Hann hefir þá
bitið hnapp úr jakkanum sínum,
haldið honum milli tannanna og
skrifað þannig dánarvottorð sitt í
mygluna.
Hann hleraði. Hurðinni fyrir gerð-
inu var lokið upp, og hann heyrði
kvenrödd, sem hann kannaðist við.
Hann kinkaði ánægjulega kolli.
Þar var komin Bessie Lecouvreurs.