Morgunblaðið - 06.12.1913, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.12.1913, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ rS8 Hörmulegust eru forlög þeirra, sem sendir eru til Siberiu án dóms og laga, eftir ákvörðun umboðsvalds- ins eingöngu. Flestir þeirra eru sendir í hreina eyðimörk, þar sem þeir far- ast von bráðar af kulda og hungri. Þegar lýsingar Georqe Kennans komu út, vöktu þær hina mestu gremju góðra manna. En nú, aldar- fjórðungi síðar, er ástandið orðið miklu verra en það var þá. Þetta mál er ekkert innanríkismál Rússa, heldur kemur það við öllum siðuðum þjóðum. Á síðustu árum hefir risið öflug hreyfing í Vestur-Evrópu, mótigrimd- arathæfi Rússa-stjórnar. Árið 1909 tóku nokkrir menn á Bretlandi sig til og gáfu út bók: Hormunyarnar á Rússlandi, sem vera átti nokkurs- konar áskorun til brezku þjóðarinn- ar um að hefjast handa. í Frakklandi skipuðust og nokkrir mannvinir í fylking, í sömu veru. Og þessi hreyfing er nú að breiðast út um fleiri lönd. Skýrslan endar á þessum orðum: »Vér, sem ritum nöfn vor hér nndir, höfum birt skýrslu þessa til þess að gefa öllum vinum réttlætis og mannúðar, færi á að dæma sjálfir um ástandið, og von vor er sú, að hugir manna um víða veröld risi upp gegn grimd og harðýðgi valdhafanna rússnesku, og sýni það í orði og verki, að siðaðir menn fordæmi at- ferli þeirra, en hafi samúð með hin- um óhamingjusömu fórnarlömbum í fangelsunum á Rússlandi og á eyði- mörkum Síberíuc. ___________ Comes. *) George Eennan amerisknr landkönnnðnr (f. 1845) ferðaðiet nm Siberin 1885—1886 og gaf út bók nm það ferðalag, með hin- nm gr&tlegnstn lýeingnm & kjörnm rúas- nesku útlaganna þar. Verzlunarskólinn. í tilefni af skærum þeim, sem orðið hafa milli nemenda skólans og skólastjórans, hefir skólanefndin sent hinum herskáa æskulýð skólans svo látandi skjal: Af því tilefni, að ýmsir nemendur Verzlunarskólans hafa ritaðundirkæru til vor, dags. So. f. m. og yfirlýs- ingar 30. f. m. og 3. þ. m. um, að þeir neiti að hlýða fyrirmælum skóla- stjórnar og sækja allar kenslustundir, unz úrskurður er fallinn um kæru þeirra, þáverðum vérnú í síðasta skifti að endurtaka við þá, að vér verðum að skoða þessar yfirlýsingar af þeirra hendi svo, sem þeir segi sig úr skól- anum, ef þeir halda lengur áfram þessari óhlýðni. Reykjavík 4. des. 1913. (undirritað): )ón Ólafsson. B. H. Bjamason. Sighv. Bjarnason. Það virðist sem piltarnir ætli að hafa harla lítið upp úr frumhlaupi sínu gegn skólastjóranum. í gærkvöldi kl. 6 skeði það í skóla- málinu, að um 40 verzlunarskóla- nemendur ruddust inn á heimili eins skólabróður síns, sem býr hjá Geir kaupmanni Zoöga, og kröfðust þess að hann fylgdi þeim að málum. Piltur þessi hafði legið rúmfastur um hríð, og því ekki tekið neinn þátt í óspektunum. — Mjög höfðu pilt- ar farið geist og fremur mun fram- koma þeirra mælast illa fyrir. Enda er slík framkoma eins dæmi hér í bæ. Carol. = DAGBÓB)IN. C=3 Afmæli i dag. Þuriðcr Jónsdóttir húsfrú. Þorgrimnr Gnðmundsson kennari, 63 ára. Einar Hjörieifsson skáld, 54 ára. Jón Jakobsson landsbókavörðnr, 53 ára. I dag byrjar 7. vika vetrar. Háflðð er i dag kl. 11.26 árd. og kl. 11.50 siðd. Sólarupprás kl. 10.9. Sóiarlag 2.26. Veðrið f gær: íteykjavik, anstan stinn- ingsgola, -4- 5.1. ísafirði, anstangola, -4- 2.3. Aknreyri, sunnanknl, -4- 10.0. Grims- staðir, snðanstan stinningsgola, -4- 20.0. Seyðisfjörður, snð-snðvestan gola, -4- 8.2. Vestmannaeyjar, logn -4- 1.5. í Þórshöfn á Færeyjum var norð-norð- vestan stórhríð og 2 stiga frost. © I I I I Meðan endist fá allir viðskiftavinir okkar, er verzla fyrir minst kr. 1,50 hjá okkur fyrir jólin, 1 fallegt Veggalmanak. Munið að líta á Jólabazarinn, sem nú er opnaður. Mikið af ódýrum ogsmekklegum varningi. Að vanda, bezt kaup hjá verzluninni á VefnaðarYörn, Prjónavöru og SmáYörn. %3ón cfijörnsscn & @o. J ólatré af öllum Btærðum. Menn eru beðnir að panta i tíma. — Síml 39. Pðstáætlun á morgun: Ingólfur til Borg- arness. Norðan- og vestanpóstur fara. Eimskipafilagið. íslendingar i Eanada hafa lofað að styrkja Eimskipafélag ís- lands með þvi að kaupa hluti i félaginu fyrir 75.000 dali = 277.500 kr. Má það heita riflegur skerfur, sem frá löndum vestan hafs kemnr, og eiga þeir sannar þakkir skilið. Þilskipin, sem Færeyingar keyptu af Edinborgarverzlun i Hafnarfirði ern nú sem óðast að halda heim. Fimm þeirra fóru i gær og búist við að bin fari mjög bráðlega. Hlutavelta E. F. (J. M. verðnr haldin i kvöld i samkomusalnum við Amtmanns- stig. Meðal drátta verðnr t. d. kvittnn fyrir næsta árgang allra blaða og tima- rita, er út koma i Rvik, 10 rakaramiðar, kol, steinolía 0. m. fl. Skautasvellið.HNú hefir Skautafélaginu loksins tekist að koma Thorvaldsen gamla á kaldan klaka. Allur Austurvöllur »lagður«, svo hvergi sér á dökkan dil, og þá var fólkinu skemt. Enda mátti sjá mann á isnum í gærkvöldi. Allir, sem vetlingi gátu valdið, þustu inn á völlinn, en svell- ið hélt öllum þeim grúa, og er það trúa manna, að þar geti enginn »dottið ofani«. Og naumast að nokkur geti dottið — það er ekki >rúm< til þess. En hornin gullu og götnljósin vörpuðu ljóma yfir hópinn, — töfrandi yngismeyjar og vaska sveina, sem leiddust þar alt kvöldið — á hálum brautum................. Sterling fór i gærkvöldi til útlanda. Farþegar: frú Guðmnndsson, kona Gnð- mnndar bryggjusmiðs, Páll Stefánsson, Mr. Halden fiskikaupm. frá Hafnarfirði. Vesta fer til Vestfjarða í dag kl. 6. J. P. T. Brydes verzlun. t ,Alaf oss‘ Klæðaverksmiðja. Ódýrust vinna á Islandi. — FJjót afgreiðsla. Biðjið um verðskrá. Afgreiðsla verbsmiðjunnar: Langaveg 32, Reykjavík. Talsimi 404. ©Tlauel er ljómandi fallegt í jólafötin fyrir kvenfólk og börn. — Hvergi eins mikið úrval af litum, né lægra verð en bjá Verzlunin Björn Kristjánsson. y«i ,HÁDKDR‘ hngholtsstr. 21 býður betri kjör á allskonar —skófatnaöi — nú i nokkurn tíma, en allir aðrir; ennfremur á sama stað: fallegar og ódýrar jólagjafir. Flýtið yður meðan birgðirnar endast, og reynið hvort ekki sé satt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.