Morgunblaðið - 06.12.1913, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ
160
LtÖGMBNN
Sveinn Björnsson yfirdómslögm.
Hafnarstræti 22. Sími 202.
Skrifstofutími kl. 10—2 og 4—6.
Sjálfur viP kl. 11—12 og 4—5.
EGGERT CLAESSEN, yfirréttarmála-
flutningsmaður Pósthússtr. 17.
Venjulega heima 10—11 og 4—5. Simi 16.
LÆí£NAí^j
m. magnús læknir
sérfr. í húðsjúkd. Kirkjustr. 12.
Heima 11—1 og ó1/^—8. Tals. 410.
Þorvaldur palsson
Spec. meltingarsjúkd. Laugaveg 18.
Viðtalst. 10—11. Sími 334 og 178.
Massage læknir Gliðm. PétUTSSOn.
Heima kl. 6—7 e. m.
SpitalaBtig 9 (niðri). — Simi 394.
YÁTl^YGGINGAÍ^
A. V. TULINIUS, Miðstræti 6,
Brunaábyrgð og lifsábyrgð.
Skrif8tofutími kl. 12—3.
ELDURI “^01
Vátryggið í »General«. Umboðsm.
SIG. TH0R0DDSEN
Frlkirkjuv. 3. Heima 3—5. Talsími 227.
Carl Finsen Austurstr. 5, Reykjavík.
Brunatryggingar. Heima 6 >/4—71/*.
Talsími 331.
mmumimmnTni
Mannheimer vátryggingarfélag
O. Trolle Reyk.iavík
Landsbankannm (uppi). Tals. 235.
Allskonar sjóvatryggingar
Lækjartorg 2. Tals. 399.
Havari Bureau.
Vátryggið hjá:
Magdeborgar brunabótafélagi
Den Kjöbenhavnske Söassurance
Forening limit
Aðalumboðsmenn:
O. Johnson & Kaaber.
Fátækt.
í sambandi við grein í Morgun-
blaðinu í gær með fyrirsögninni
»Fátækt« vill félagið K. F. U. K.
láta þess getið, að það veitir vænt-
anlegum gjöfum viðtöku á hverjum
degi frá kl. 5—7 frá 4.—12. þ. m.
i húsi K. F. U. M. Gefendur geta
því sent gjafir sinar þangað beina
leið ef þeir vilja. Annars annast
ritstj. Morgunbl. um að senda til
þeirra, sem þess óska, á þann hátt
sem hann tilkynti í grein sinni í gær.
Jólatré
1 koma með e/s. Botníu ,
í Liverpool.
Sá sem|vill fá sér fallegt en þó
ódýrt jólatré, biður eftir þeim.
OSTAR og PYLSUR áreiðanlega
bæjarins stærstu og beztu birgðir í
Matarverzlun Tómasar Jónssonar,
Bankastræti 10. Talsfmi 212.
Upphlntsmillnr, Beltispöro fl.
ódýrast hjá
Jóni Sigmundssyni
gullsmið. Laugaveg 8.
Hjá undirritaðri fást saum-
aðir kjólar handa fullorðum og
börnum. I. Nielsen, Kárastíg 11 2.
Hvitar, svartar eikarmálaðar. LlkklæÖi.
LikkÍ8tuskrant. Teppi lánuð ókeypis i
kirkjuna.
Eyv Arnason.
Trésmiðaverksmiðjan Laufásveg 2.
Kven-vetrarkápur
verða seldar nú í nokkra daga fyrir
hálfvirði.
Kápur sem kostuðu áður
30 kr. nú 15.
— 25 ---- 12,50.
— 18-----9.
Notið tækifærið meðan það býðst.
Sturla Jónsson
Laugaveg 11.
Trúlofnnarhringar
vandaóir, mel!i hvaða
lagi sem menn óska,
eru ætifc ódýrastir hj*
Kullsmih, Laugaveg 8.
Jóni Sigmundssyni
Herbergi óskar reglusamur
maður að fá leigt frá 15. þ. mán.
Æskilegt að geta fengið ræstingu og
þjónustu á sama sama stað. Tilboð
merkt 26, með leiguskilmálum, send-
ist afgr. Morgunbl. sem allra fyrst.
Sykraðir ávextir,
svo sem:
Appelslnur,
Sítrönur,
Fíkjur o. fl.
ódýrastir hjá
éCj.
<3*. c7. iJ’fíorsÍQÍnsson
& @0.
(Godthaab).
Den 15. Jannar begynder
sin nye Serie, hvori fölgende store Gievin-
Bter skal udtrækkes.
Störste Gevinst i heldigste Tilfælde.
Fres. 1.000.000 (En Million)
1 a 450.000 3 a 50.000
1 - 250.000 2 - 40.000
1 - 150.000 2 - 30.000
1 - 100.000 2 - 20.000
1 - 80.000 5 - 15.000
1 - 70.000 10 - 10.000
1 - 60.000 24 - 5.000
34 - 3.000 64 - 2.000
210 a 1.000 o.sv. ialt.
J Millioner 17ð Tnsinde Frcs.
paa 50.000 Lodder med 21.550 Gevinster
og 8 Præmier.
Altsaa: Hvert 2. No. vinder.
Gevinsterne ndbetales kontant.
Loddernes Pris for hver Klasse
V8 Lod Kr. 2.90. >/2 Lod Kr. 11.50.
V, — Kr. 5.80. Vx — Kr. 22.50.
Por at undgaa Porsinkelse med For-
nyelse af Lodderne bedes Betaling ind-
sendt for 2 Klasser.
Adrs.
Frn Selma Edeling,
Autoriseret Kollektion.
Vendersgade 3. Köbenhavn.
Nýjir ávextir
allskonar
nýkomnir 1
J. P. T. Brydes verzlun.
Ttýjasla nýítl
Nú fást
ístenzk afmætiskorf
í Safnahúsinu.
Þau fallegustu sem hafa verið gefin ik.
Svörtu gammarnir.
3 5 Skáldsaga
eftir
Ovre Richter Frich.
(Frh.)
— Hreyfið yður ekki I sagði Burns
lágt, það er bezt að alt gangi þegj-
andi og hljóðalaust. Eg þekki yð-
ur. Það voruð þér sem veittuð
Franz Josef banatilræðið í Wien,
forðum. Það voruð þér sem dráp-
uð Maibrucks general, og það vor-
uð þér sem lögðuð snöruna um
hálsinn á Gapon presti .... Eg
þekki yður betur en þér ætlið. Þér
voruð vinur Jaap von Huysmann,
en þér svikuð hann þegar hann ferð-
aðist um sem forstjóri fyrir Credit
Lyonnais, Aristide Cabot. Huys-
mann dó, og þér urðuð forstjóri fyr-
ir félagi glæpamanna og bófa, sém
stálu fjármunum hinna ríku og sál-
arró hinna fátæku. Nei, þér heitið
ekki Josias Saimler, heldur Alexis
Azimoff, sem myrti menn sér til
garnans í Warschau, kvennamorðing-
inn frá Whitechapel, nr. 384, i bláu-
bókinni, hættulegi glæpamaðurinn
nafnlausi. En nú skal glæpasaga
yðar vera á enda ....
Saimler reis á fætur, og í augum
hans brann svo takmarkalaust hatur
og villudýrsæði, að Burns hafði al-
drei séð annað eins . . .
— Það er gott, tautaði hann. Eg
gefst upp.
En i sömu andrá réðst hann á
Burns. En lögregluþjónninn var við
því búinn. Hann gaf dýratemjaran-
um svo ósvikið kjaftshögg, að hann
valt um koll. Um leið greip hann
annari hendinni um hnéð á Burns,
í hinni hélt hann á skammbyssu.
Skotið reið af — sprengikúla sem
kom i fótinn á Burns fyrir ofan
knéð.
Kjöttætlur og beinflísar þyrluðust
í allar áttir. Burns náfölnaði en hann
lét kvalirnar ekki buga sig. Hann
beygði sig niður yfir Saimler og and-
lit hans afmyndaðist af bræði. Vinstri
hendinni greip hann um kverkar
Saimlers og kreisti af alefli. Það
heyrðist braka í einhverju og höfuð
Saimlers hneig máttvana niður á öxl-
ina. Og um leið hneig Burns með-
vitundarlaus yfir lík fjandmanns síns.
Fjeld beygði sig ofan yfir vin sinn,
athugaði sárið og batt um það eins
vel og unt var. Svo lyfti hann
Burns upp og bar hann þangað sem
flugvélin stóð. Erko var þar fyrir
og lögðu þeir nú Burns gætilega í
loftfarið.
Delma var gripinn og bundinn,
svo að hann gat hvorki hreyft legg
né lið. Var hann nú einnig lagður
í loftfarið við fætur þeirra Fjelds og
Erkos og svo sveif fuglinn á stað á
þöndum vængjum, yfir hæðir og dali
og stefndi til borgarinnar hjá Vetta-
kollen og Ekebergaasen.
Juní-nóttin varpaði töfraskikkju
sinni yfir hann...........
22. kapítuli.
Si^urlaunin.
í herberginu var hálfrökkur. Glugga-
tjöldin voru dregin fyrir gluggana til
að varna sólinni þess að skína inn,
en þrátt fyrir það komust geislar
hennar fram hjá þeim og inn í her-
bergið. Þar féllu þeir á fölt karl-
mannsandlit, sem hvíldi á hvítum
svæfli.
í fljótu bragði virtist svo, sem
maðurinn gæti ekki átt langt eftir
ólifað, þrátt fyrir það, þótt sólin,
móðir og viðhald als lífsins, gerði
gælur við hann og kysti hann á
kaldar og lokaðar varirnar.
Hjúkrunarkonan sat við rúmið og
hafði ekki augun af sjúklingnum, sem
lá þannig milli heims og heljar.
Þetta var nú í annað skifti á rúm-
um mánuði, að þessi stóri og hraust-
bygði maður lá fyrir dyrum dauð-
ans, lemstraður og aðframkominn
af þreytu og blóðmissi, en í andliti
hans sást nú engin vottur hins mikla
viljaafls, sem í fyrra skiftið hafði
borgið honum.
Helena systir var að hugsa um
værðina sem hvíldi yfir sjúklingnum,
og sem gekk næst algerðu meðvit-
undarleysi. Hún vissi, að það var
sönnun þess að sjúklingurinn þykist
hafa náð því takmarki, sem hann hefir
sett sér, og gengur því fús á vald
dauðans.
Hún hrökk við. Burns hafði lokið
upp augunum og horfði nú undrandi
í kring um sig. En þegar hann sá
hjúkrunarkonuna, þá brosti hann of-
urlítið. Svo horfði hann litla hríð á
sólargeislana, sem léku um rúmið og
lokaði svo aftur augunum. Þannig
liðu nokkrar minútur; þá bærði hann
varirnar.