Morgunblaðið - 08.01.1914, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.01.1914, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ 316 Þegar varpan er tilbúin er bún flutt niður á Glasgowgrunn,inn í litið hús, sem hr. Th. Th. hefir látið reisa þar. Þar fer íram tjörgun á vörp- unni. Griðarstór pottur hangir þar á járntemum yfir eldinnm; i pottin- um sýður koltjara og bullar i sífellu. Það var farið að skyggja er vér vor- um þar, og urðum vér eigi varir við manninn sem um tjörgunina sér, fyr en seint og síðarmeir. Stóð hann þar á bak við pottinn í þéttum og gasblöndnum reykjarmekki. Varpan er látin i pottinn — öll nema sjálf- ur pokinn — og síðan hengd til þerris. Tjaran þornar aldrei alveg i vörpunni, en gerir það að verkum, að garnið fúnar síður. Pokann má eigi tjarga vegna þess, að í hann fer fiskurinn, og yrði þá hætt við tjöru- bragði af fiskinum, ef pokinn væri tjargaður. í ráði er að breyra til og nota eigi tjöru til þess að verja vörp- una fúa, heldur nýtt efni, Cuprinol, sem reynzt hefir mjög vel i síldar- nótum. Kvað það vera miklu hrein- legra en tjara. Margir af islenzku botnvörpung- unum nota þegar þessar íslenzku vörpur. Hafa þær reynzt ágætlega f alla staði, en eru dálítið dýrari en vörpur, sem keyptar eru erlendis. En það er aðgætandi, að þær eru gjörðar úr þvi allra bezta efni, sem unt er að útvega, og því haldbetri miklu en algengt er um þær útlendu. Þenna litla vísi til innlendrar iðn- aðaraukningar, væri vonandi að allir útgerðarmenn vildu styrkja. Bæði er það, að mikið fé fer út úr landinu fyrir botnvörpur — og það eykst með skipatölunni — og eins hitt, að margt fólk getur þarna fengið stöðuga atvinnu. Þeir eru fáir enn- þá, sem vinna á verkstæðinu — en það ætti eigi að líða langur tími áður verkstœðið yrði orðið að stórri verkstniðju — eigandanum og land- inu til gagns og sóma. Carol. Zabern-hneykslið. Beillet flokksforingi og niu menn aðrir i herliðinu í Zabern, hafa verið settir í varðhald og kærðir fyrir það, að hafa gefið blöðunum ýmsar upp- lýsingar um framkomu Forstners, og eiga að dæmast fyrir samblástur gegn yfirboðurum sínum. Herforinginn í Zabern kallaði rit- stjóra »Zaberner Anzeiger« á sinn fund og krafðist þess af honum að hann ræddi málið á annati hátt, en hann hafði gert, og breiða yfir mesta hneikslið. Ritstjórinn gaf gegnt svar og gott. Kvaðst aldrei mundi ganga frá sannfæringu sinni, hvað sem öðr um litist. Paul de Cassagnac, ritstjóri blaðs- ins »Autorité«, reit Forstner bréf þann 17. des., og skoraði hann á hólm fyrir ýms ósæmileg orð, er hann hafði látið sér um munn fara um franska fánann. Bréfið fekk hann endursent óopnað. Sendi hann þá Forstner símskeyti, en því hefir hann ekki svarað ennþá, kappinn. Rit- stjórinn hefir nú birt í blaði sínu bæði bréfið og skeytið, sem opið bréf til Forstners, og skammar hann blóðugum skömmunum fyrir fram- komu hans alla. Kaup ríkisstjóranna. Maður nokkur, frauskur, hefir að gamni sínu og annara, reiknað hve miklar tekjur þjóðhöfðingjarnir hefðu á mínútu hverri. Neft.ir hann það kaup þeirra, vegna þess, segir hann, að flest veizluhöld, vígslur og þess háttar, tel eg frekar til sjálfsagðrar skyldu, hefdur en skemtana. Telst honum svo til, að flestir þjóðhöt'ðing- jar núlifandi muni vinna nær 8 stundir á degi hverjum. Árlegar tekjur Rússakeisara eru 53, 317,000 frankar. Verða þá tekjurhans á mínútu hverri 303 frankat- og 72 cent, og það er meira en nokkur annar geti stært sig af, enda verður hann og að kosta meiru til en nokkur annar þjóðhöfðingji núlifandi. Honum næst- ur er Ítalíu konungur. Tekjur hans eru 84,33 frankar á mínútu. Vilhjálm- ur Þ/zkalandskeisari er hinn fjórði í röðinni og hefir hann 66 franka á mítt- útu. Bretakonungur hefir 57,10 franka á míiiútu hverri. Lægstar tekjur hefir Wilson Bandaríkjaforseti, en það er 1,55 franki á mfnútu, og er það þó áreiðanlegt, að hann hefir meiri störf á höndum en svo, að hann geti unnið þau á 8 klukkustundum. Fátækur auðkýfingur. Maður nokkur er nefndur Morrison og átti heima á Suður-Englattdi. Þar bjó hann í litlu húsi og annaðist sjálf- ur flest það er gera þurfti. Alitu all- ir að hann væri fátækur maður. Fyrir nokkru sýktist hann og fór til Lundúna til þess að leita þar lækn is. En er hann ætlaði heim um kvöld- ið var hann svo sárþjáður að hann varð að biðja ökumann nokkurn að aka sór heint. En af því hann hafði ekki nægilega peninga til þess að borga ökumanninum fekk hann ekki vagninn. Skömmu síðar dó karlintt og kom þá í ljós að eignir hans námu 180 miljónum króna — eða með öðrum orðum: hann hefir haft hórumbil 20 þÚB. króna tekjur á dag. Simfregnir. Flateyri í qœr kl. 11 drd. Ingólfur Arnarson kom hingað i morgun. Hafði hann hleypt út úr ísnum, er hann kom, og komist norður fyrir ísspilduna. Var þá ís á báðar hliðar hans — um 20 sjó- mílur milli spildanna. Fiskur hafði verið þar nægur og hefir Ingólfur aflað mikið vel. En heldur var það óskemtilegt, fyrir norðan ísinn í hrið- unum. Ingólfur hafði mikinn fisk á þiljum og kom hingað til þess að útvega menn til þess að gera að fiskinum. Öllu líður vel um borð. Isafirði í %<er kl. 6. síðd. ísinn er kominn aftur. Hraff töluvert inni á Djúpi. Botnvörp- ungurinn, sem ekki fór út i gær,, fór í dag, en varð að snúa við vegna hafissins. Annar botnvörpungur brezkur kom hingað í dag og kemst eigi aftur út fyrir ís. Horfur illarl Engar fregnir frá Aðalvík. Patreksfirði í gcer. Jón Forseti kom hingað i dag og segir htnn mikinn ís úti fyrir öllum fjörðum. Bíó og leikhús. Kvikmyndahúsin og leikhúsin er- lendis eiga i sífeldum ófriði, Gera; þau hvort öðru það ógagn er þau geta. Einkum eru það leikhúsin, sem þráfaldlega hafa bannað leikur- um sínum að leika á kvikmyndum. En nýlega hefir Nordisk Films Kom- pagni í Kaupmannahöfn bannað ein- um sitina manna, Holger Madsen,r að leika á Dagmarleikhúsinu, þar sem hann átti að taka að sér eitt aðal- hlutverkið í leikriti nokkru, sem leika átti þar síðast i nóvember. Hnfði' Dagmar-leikhúsið þegar autjlýst leik- inn, og kom því þetta skyndilegæ og óvænta bann í opna skjöldu. — Madsen bauð kvikmyndafélaginu 400 krónur, ef hann fengi leyfi til að leika, en það fekst ekki. --------------------- 2400 ára gamlar verzlunarbækur, Háskólinn í Pennsylvaníu hefir látið gera rannsóknir í Nippon og hafa þar fundist merkilegar fornleif- ar. í einni hvelfingu, sem þar var,. fu' dust verzlunarbækur, sem eru 2400 ár.t gamlar, og hefir hvelfing þessi þá verið nokkuiskoiiar banka- fjárhirzln. Bæknr þessar eru að vísu ekki eins og bækur þær sent nú gerast, heldur leirtöflur. Verzlunin hefir verið eign Muraschu nokkuis og sona hans og hafa þeir rekið gimsteina- verzluri i Nippon 487 árum fyrir Krists fæðingu. Auk þess hafa þeir einnig ávaxtað fé fyrir menn. Reikn- ingarnir, sem á töflurnar eru skráðir,, ná yfir 50 ára tímabil. TJfram eftir O. Sweíf JHarden. Framh. í öðrum bjálkakoí'a í frumskógum Ohio bjó blásnauð ekkja með hálfs annars árs gamlan pilt. Hún er að velta fyrir sér hvernig hún eigi að verja barnið hungri. Pilturinn stálpast og fer þá að fella tré og plægja jörðina — hvorttveggja til að létta undir með móður sinni. En allar tómstundir notar hann til að lesa bækur — lánsbækur, því að ekki hefir hann ráð á að kaupa neina bók. Um sextán ára aldur gerist hann gólfþvottamaður og hringjari í skóla einum og borgar með þvi starfi kenslu og dvalarkostnað sinn. Fyrsta missirið kostaði hann 17 dollara. Að loknu öðru miss- iri átti hann 6 peninga (pence) í vasanum, og þá gaf hann í sam- skotakassa í kirkjunni næsta dag. Hann tók sér vist hjá snikkara nokkrum og greiddi 1 dollara og ö cent um vikuna fyrir alt, en áskildi sér jafnframt að fá atvinnu hjá snikkaranum í tómstundum sínum. Hann bar að garði á laugardag og þann dag vann hann að viðarhöggi af svo miklu kappi, að kaupið nam nærri hinu ákveðna vikugjaldi eða 1 dollar og 2 centum. Þegar námsmissirinu lauk gat hann eigi að eins goldið allan kostnað, heldur átti hann eftir 3 dollara. Næsta vetur kendi hann og fekk fyrir 12 dollara á mánuði og »alt frítt«. Og um vorið var hann búinn að safna sér 48 dollur- um. Þegar hann kom aftur í skólann hafði hann mat hjá sjálfum sér, og kostaði það hann 31 cenf um vikuna. Skömmu síðar er hann kominn aftur í Williams skólann og tek- ur þar próf eftir 2 ár með ágætiseinkunn. Þegar hann er 26 ára kemst hann í öldungadeildina, og 7 árum seinna inn í þjóðþingið (Congres). Rúmum aldarfjórðung eða 27 árum eftir að hann sótti um gólfþvottinn í Hiram skólanum — er þessi maður valinn forseti Bandaríkjanna. Maðurinn var James A. Garfjeld. Annað eins dæmi og þetta er sennilega meira á metaskálunum í augum allra æskumanna en öll auðæfi Astorst, Vanderbilts eða Goulds. Þeir reynast oft mestu hetjur og velgerðarmeun heimsins, er við þyngstu kjörin áttu að búa í barnæsku og lentu á unga aldri í hafróti forlaganna, en treystu á guð og hæfileika sjálfra sín. »LítiIl, ömurlegur kofi virðist fæðingarstaður flestra af stór- mennum yðar«, sagði enskur rithöfundur, er hann var búinn að kynna sér bók með æfisögum ýmissa merkra Ameríkumanna. Enginn drengur með 5 »færi« á hverri hendi og fast mark þarf að örvænta, hversu fátækur sem hann er. Það veltur að eins á, að hann kunni ar grípa færið. Engu máli skiftir, hvort hann er fæddur í höll eða moldarkofa. Ef hann er ákveðinn um það, sem hann vill, 0g lætur sig aldrei, er það hvorki á manna valdi né djöfla að hamla honum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.