Morgunblaðið - 08.01.1914, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 08.01.1914, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ 317 Frá útlöndum. Hafnarháskóli. Þess hefir áður verið getið hér í blaðinu, að guð- fræðisdeild háskólans er þunnskipaðri en sumir mundu æskja. Er litlit fyrir prestaþurð í landinu ef slíku heldur fram. Nú hefir Moldenhawer etazráð komið fram með tillögu þess efnis, að konum sé veittur aðgangur að kirkjuembættum og vonnst þá til þess að bót ráðist á þessu vanda- rnáli. Caruso ætlar að syngja fyrir Kaup- mannahafnarbúa í vor á Cirkus Varieté. En söngvarinn heimtar 12,300 kr. fyrir hvert kvöld er hann syngur og kosta því aðgöngumiðarnirekki minna en tiu krónur. En því er spáð, að þrátt fyrir það muni færri fá miða en vilja. Beilis, gyðingurinn, sem mest var ofsóttur í Rússlandi, hefir nú fengið ótal áskoranir og beiðnir um það að ferðast um Evrópu og Ameríku og sýna sig. Hefir honum verið boðið offjár til þess, en hann hefir hafnað boðinu. í New-York hafa gyðingar haíið samskot og hafa þeim safnast 400 þús. mörk. Fyrir það fé ætla þeir að kaupa búgarð í Ameríku og gefa Beilis. Ofveðrin, sem geysuðu yfir Norð- ur-Ameríku í fyrra mánuði, hafa vald- ið miklu meira tjóni en menn bjuggust við í fyrstu. Er það álit manna að tíu gufuskip hafi farist þar á vötnunum og 167 manns hafi druknað. Olympiuleikarnir í Aþenuborg. Sím- að er frá Aþenu, að framkvæmdar- nefnd Olympiuleikanna, hafi, sam- kvæmt ósk Konstantins Grikkjakon- ungs, ákveðið að leikirnir skuli næst fram fara í Aþenuborg, t aprílmánuði þessa árs. Albaníukongur. Stórveldin hafa samþykt það að Wilhelm prins af Wied skuli vera konungur Albaníu. Vatnagangur í Texas. I grend við Bryan i Texas hafa brotnað flóðgarðar hjá ánni Brazo og flæddi fljótið inn á akra bænda og eyði- lagði alt er fyrir varð. Fólkið flýði upp á húsþökin en sumir klifruðu upp í tré til þess að bjarga sér frá dtuknun. Þó hafa farist hér um bil 50 manns, en skaðinn er metinn 5 miljónir dala. Eldur i leikhúsi. Garrich leikhús- ið í Hereford á Englandi brann 24. des. — aðfangadag jóla • Skað- inn er metinn 2000 sterlingspund. Leikhúsið dró nafn af David Garvich, sem fæddur var i Hereford. Óvíst er um upptök eldsins, en álit manna er það, að óvarlega Morgunblaðið Það kostar að eins 65 aura á mánuði, heimflutt, samsvar- ar 34—35 blöðum á mánuði (8 síður á sunnudögum), með skemtilegu, fróðlegu og frétta- miklu lesmáli — og myndum betri og fleiri en nokkurt ann- að íslenkzt blað. Gjörist áskrjfendur þegar í dag — og lesið Morgunblað, ið um leið og| þér drekkið morgunkaffið! tað er ómissaiidi! Sími 500. hafi verið farið með sigarettur eða eldspítur,| því reykingar voru leyfð- ar á sýningarsviðinu. g|Ný jflugvélagerB. Rússi| nokkur, Sikorsky fjað nafni,íhefir fundið upp gríðarstóia flugvél, sem ber 6 menn. Vélin vegur 3l/g smálest, og í henni eru fjórar 100 hesta bifvélar. Þar er svefnherbergi fyrir fatþega, en það hefir ekki verið í neinni flug- vél fyr. Það er mælt að Sikorsky hafi flog- ið með|fsjö” menn í vél þessari 56 milurjá tæpumAveim stundum. Mona Lisa er nú loksins komin aftur heim til sín í Louvre. Eins og vér gátum um fyrir nokkru fanst hún í Fiorence, en Italir af hentu hana í Róm. Var margt tig- inna manna við er myndin var af- hent og var signor Credaro, ítölsk- um ráðherra, falið það að fá frakk- neska sendiherranum Barrére lista- verkið í hendur. Credaro lét í ljós ánægju sína yfir því að geta afhent myndina til hins rétta málsaðila og kvaðst vona að þetta atvik yrði til þess að tryggja frekar eti áður vin- áttubönd milli frönsku og ítölsku þjóðarinnar. Barrére vottaði ítölum þakkir, í nafni frönsku þjóðarinnar, fyrir framkomu þeirra í málitiu og síðan var honum afhent myndin í vottaviðurvist. Var myndin síðan flutt til Louvre og fengm Leprieur, umsjónarmanni málverkasafnsins, til varðveizlu. Fornmenjafundur. Nokkrir verka- menn í Whitstable fundu fyrir skömmu beinagrind af mammút-dýri 12 íetjm neðanjarðar. Var þessi fundur fluttur á safn, og á að geym- ast þar. gNokkrar fleiri leifar af mammút-dýrum hafa fundist þar i grend, og er það álit manna að þau muni hafa borist þangað með jökum á ísöldinni. Ísaíold 1914. Nýir kaupendur að næsta árgangi ísafoldar (1914) fá i kaupbæti, um leið og þeir greiða andvirði ár- gangsins (4 kr.) 3 neðantaldar bækur: 1. Fórn Abrahams (600 bls.) eftir Gustaf (ansson. 2. Fólkid við hafið eftir Harry Söiberg. 3. Mýrakotsstelpuna og Guðsfriðinn eftir Selmu Lagerlöf í þýðingu Björns heit. Jónssonar. Nýir kaupendur utan Reykjavíkur, er óska sér sendan kaupbætirinn — verða að greiða í burðargjald 30 au. Ella eru menn vinsamlega beðnir vitja kaupbætisins í afgreiðslunni. Zl DAGBÓíflN. =3 Afmæli í dag: Guðrún Lárusdóttir húsfru Vigdís Amadóttir húsfrú Sigríður Jóliannesdóttir verzlunarkona Magnús Einarsson verzlunarm. Mislestur. Það hefir orðið mislestur á einum stað í handritinu að grein minni hér í blaðinu í gær: annan fyrir aura, 0g geta þau orðaskifti valdið óþægi- legum misskilningi. Ætlun vor með Samverjastarfinu er sem sé ekki að eins sú að gefn, heldur og að selja ódýrt þeim, sem kunna ekki við eða þurfa ekki beinar matgjafir, og því átti að standa í grein minni að mál- tiðin yrði seld á 25 eða 3oaurafyrir þá, >sem hefðu a u r a með sér, (en ekki: »annan með sér»). 5. A. Gislason. Sólarupprás kl. 10.15 árd. Sólarlag kl. 2.52 síðd. Háflóð er í dag kl. 2.10 árd. og kl. 2.40 síðd. Þjóðmenjasafuið opið kl. 12-2. Veðrið í gær: Rvík: vestangola, hiti 1.5. ísafj.: norðaustanhvassviðri frost 3.0. Ak.: v. n. v. andvari, regn, hitilO.5. Gr.: sunnankul, frostl.5. Sðf. austankul, regn, hiti 1.5. Vm.e.: vestanandvari, hiti 5.1. Þórsh., F.: v.s.v. stinn gola, regn, hiti 2.2 Björgunarskipið Geir (fór vestur á Vestfirði í gær að leita skipa þeirra er í ísnum lentu og reyna að bjarga skipverjum. Er þetta gert eftir ráðstöfun umboðsmanns ensku ábyrgð- arfólaganna, hr. kaupm. Helga Zoega. Enskur botnvörpungur fór hóðan í gær með póst til útlanda. Erlendur póstur er væntan- legur hingað í dag með botnvörpung- um. Borgarafundur. Jóh. kaupm- Jóhannesson boðar til almenns borg- arafundar í Goodtemplarahúsinu sunnu- daginn 11. þ. m. kl. 8J/2. A þar að ræða fjárhagsástandið í landinu. L e i k h ú s i ð Lénharður fógeti var lelkinn fyrir troðfullu húsi í gærkvöld. Nýr ritstjóri. SveinbjörnEgils- son frá Viðey er nýlega orðinn rit- stjóri »Ægis«. Réttur maður á rétt- um stað. — A 11 i r viðurkenna, jafnt stjórn- mála-andstæðingar sem nðrir, að ísafold sé fjölbreyttasta og efnismer • blað landsins, pað bladið, sctn .. hœqt án að vera — það blað, sem hver íslendingur verður að halda, er fylgjast vill með í því, er gerist utan- lands og innan í stjórnmálum, at- vinnumálum, bókmentum og listum. Talsími 48. Til hægðarauka geta menn út um land sent andvirðið í frí- merkjum. ÍSAF0LD er blaða bezt. ÍSAF0LD er fréttaflest. ÍSAF0LD er lesin mest. 0STAR og PYLSUR áreiðanlega bæjarins stærstu og beztu btrgðir i Matarverzlun Tómasar Jónssonar, Bankastrati 10. Talsimi 212. Matgjafir. í dag byrja mat- gjafir Umdæmisstúkunnar nr. 1. í Goodtemplarahúsinu (uppi) kl, 10 árd. Bifreiðarnar hafa verið mikið á ferðinni í gær og í fyrradag. Hafa þær farið margar ferðir til Hafnarfjarð- ar með fólk, og alt gengið stórslysa- laust. Bonzin. Benzinið er, eins og margir muna vita, í geypiverði. Hafa því verið gerðar ýtnsar tilraunir í þá átt, að finna eitthvert ódýrara efni, sem komið geti í stað þess. Eru það einkum bifreiðamenn, sem hafa á- huga fyrir máii þessu. í Svíþjóð hafa verið gerðar til- raunir með Suljitsprit, og virðast þær hafa góðan árangur. Eru þvi margir farnir að nota það, því það er svo miklu ódýrara en benzinið. í Þýzka- landi hafa menn reynt Benzol, og fer notkun þess stöðugt vaxandi. Á fundi allsherjar kaupmannafé- lags, sem haldinn var í París í haust, kom sú tillaga fram, að hin- ar ýmsu deildir félagsins skyldu veita verðlaun hverjum þeim, sem gæti fundið eitthvert efni eða vökva, er leysti benzínið af hólmi. Tiilagan var að visu feld, en hún sýnir þó, og einkum sézt það á umræðunum um málið, að þetta málefni er álitið mjög mikilsvarðandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.