Morgunblaðið - 19.02.1914, Page 1

Morgunblaðið - 19.02.1914, Page 1
Fimtudag 1. argangr 19. febr. 1914 MORCrUNBLADID 107. tölublað Ritstjórnarsími nr. 500 Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen. |ísafoldarprentsmiðja|Afgreiðslusími nr. 140 Biografteater Reykjavíknr. cTísíarþrá Ástaræfintýri í 2 þáttum. (Messter-Film — Berlín). Ást og kvikmyndir Vitagraph-gamanleikur. Nýja Bió: Hugrakkur vagnstjóri Amerísk mynd. Sagan af móðurinni Ast - Rógur - Afbrýði Vitagraph gamanleikur. Skrifstofa Eimskipafétags Ísíands Austurstræti 7 Opin kl. 5—7. Tals. 409. Notið sendisvein frá sendisveinaskrifstofunni. S í m i 4 4 4. Simfregnir. Ólaýsník l gœr. Veður hér er mjög ilt þessa dag- ana. Stormur mikill og 10 stiga frost. Enginn hefir róið til fiskjar hér í marga daga, en nægur fiskur er úti fyrir. Slys. Stýrimaðurinn á Geir meiðist. Björgunarskipið Geir hefir undan- farna tvo daga verið inni í Sundum til þess að gera við akkerisfestur á kolabarki hr. Chouillou kolakaupm. Við þá vinnu varð slys í gærdag. Vírstrengur lenti á kné stýrimanns- ins á Geir. hr. Wittlup, og meiddist hann mikið, bæði á knénu og á höfði. Geir kom í gær aftur með stýri- manninn inn á höfn og var hann fluttur á land. Hr. Wittlup býr í húsi, Schou’s steinhöggvara og var hann fluttur þangað. Annar maður meiddist og dálítið, en alvarleg meiðsli fékk hvorugur. Fundur í Skandia á Hotel Reykjavík í kvöld kl. 9 JEoifífdlag *ffiayfíjavífíur. Æfintýri á göngufðr eftir O. Hostrvip, Fimtudagrinn 19. febrúar kl. 8. Verður leikið að eins fáein kvöld. Aðgöngumiða má panta í Bókverzlun ísafoldar. Kaupendur Morgunblaðsins eru vinsamlegast beðnir um að borga blaðið á afgreiðslunni eða skrif- stofunni, Austurstræti 8. N orðlingamót á Sprengikvöld 24. febr. kl. 8 e. h. í Hótel Reykjavik. Listar liggja frammi i Bókverzlunum ísafoldar og Sigfúsar Eymundssonar. Menn eru beðnir að skrifa sig fyrir sunnudag. Forstöðunefndin. Björgunartæki. Sem betur fer, ber það tiltölu- lega sjaldan við hér á landi, að hús brenna, þ. e. a. s. borið saman við hve tíðir húsbrunar eru í öðrum löndum. Stöku sinnum ber það þó við, og heyrir maður þá vanalega frá því sagt, að fólkið með naum- indum hafi komist úr eldinum, á náttklæðunum einum, og stundum með brunasár á andliti eða á hönd- um. Læknar stunda sjúklingana og tíminn græðir öll sár. Menn gleyma brunahættunni þangað til elds á ný verður vart — þangað til eitthvert annað hús brennur og annað fólk með naumindum hefir komist úr eldinum með brunasár og meiðsli. Örsjaldan kemur fyrir að menn • brenni inni« — týnist í eldinum. Stafar það af því, að hús eru hér fremur lág og geta menn vanalega komist út um glugga hússins, ef eldur kviknar í húsinu. En ef eldur kviknar í háu húsi hér í bænum, hvaða tæki hafa þá ibúarnir til þess að bjarga sjálfum sér og börnum sinum út um glugga á efra lofti hússins? Samanburður við hús erlendis er hér eigi alskostar réttur, þar eð hús- in þnr eru svo miklu hærri. En taka viljum vér það fram, að nær á hverri íbúð hvers húss t. d. i Norgi eru fyrir hendi tæki til þess að gera ibúunum kleift, að komast út um glugga, þegar eldur er i húsinu. Þessi tæki munu vera með öllu óþekt hér á landi. Mörg hús þessa bæjar eru há og getur það komið fyrir á hverri stundu, að eldur kvikni í háu húsi, og má þá búast við að einhver ef til vill brenni inni, þar eð engin tæki eru til björgunar nema brunastigarnir, sem auðvitað tekur tima að sækja og koma á bruna- staðinn. Á skrifstofu Morgunblaðsins kom nýlega maður og sýndi oss björg- unaráhald, sem oss virtist vera mjög hentugt, og komast ætti inn á hvert heimili. Það var kaðall all-langur og honum áfastur var poki, er ætl- aður er til þess að hægt sé að koma börnum út um glugga úr húsi, sem brennur. Kaðallinn er festur í krók við glugga hússins og leikur hann um hjól. En lykkja er á kaðlinum til þess að menn geti sjálfir komist út, eftir að hafa látið börn og kon- ur siga niður á undan sér. — Þessu björgunartæki er mjög haganlega fyrir komið, snoturt, lítið fyrirferðar og afar-ódýrt. í Noregi og víðar er það notað mjög mikið og hefir það hlotið heiðurspeninga tvo. Vér höfum verið beðnir um að hafa björgunartæki þetta til sýnis á skrif- stofu vorri og gerum vér það gjarnan. Héðinn. Pröf. Har. Nielsson. Prédikun í Frikirkjunni. Þeim, sem vel þekkja til hér i bænum, er kunnugt um það, að mjög margt fólk þráir það að geta fengið að staðaldri að hlusta á pró- fessor Harald Nielsson sem prédik- ara. Þann tíma sem hann var prest- ur við dómkirkjuna, var aðstreymið að guðsþjónustum hans óvenjulega mikið, og fjölda manna þótti það mjög sárt, þegar hann varð að segja af sér vegna heilsubrests. Nú hefir nokkurum mönnum, körlum og konum, hugkvæmst að gera tilraun til þess að fá síra H. N. til þess að prédika. Ný safnað- armyndun er ekki fyrirhuguð, heldur eingöngu samtök, með því augna- miði, að semja við síra H. N. um að halda guðsþjónustu annanhvorn sunnudag með sálmasöng og pré- dikun. Mennirnir, sem áttu upptökin að þessu fyrirtæki, áttu fund með sér fyrir skömmu og kusu þá bráða- birgðanefnd til þess að koma mál- inu eitthvað áleiðis. í nefndinni eru: Asgeir Ásgeirsson stud. theol., Einar Hjörleifsson rithöfundur, Halldór Þórðarson bókbindari, Ludvig Kaab- er stórkaupmaður og Ólafur Rósen- kranz leikfimiskennari. Nefndin hef- ir fengið að vita, að síra H. N. er ekki ófáanlegur til þess að verða við væntanlegum tilmælum um þetta mál. Hún hefir lika leitað til Frí- kirkjusafnaðarins um húsnæði, og málinu hefir verið tekið vel og lip- urlega, bæði af safnaðarstjórn og safn- aðarfundi. Auðvitað kostar þetta nokkurt fé. En við því er búist, að mjög marg- ir muni verða fúsir á að leggja eitt- hvað fram, mikið eða litið eftir sin- um ástæðum, til þess að þessu megi verða framgengt. Listar liggja nú frammi, í bók- verzlun ísafoldar og hjá Haíldóri Þórðarsyni bókbindara, Laugaveg 4. Þeir, sem taka vilja þátt í fyrirtæk- inu, eru beðnir að skrifa nöfn sín og hqimili á þessa lista fyrir næstu mánaðámót. Að þeim tíma liðnum, verða þeir boðaðir á fund, sem hafa skrifað nöfn sin á listana. Á þeim fundi verður afráðið, hvort leggja skuli út i fyr- irtækið, og þá með hverju fyrirkomu- lagi. Eggjasala. Sala eflir þunga eða tölu. Það er hálf-einkennilegt, að egg skuli ennþá seld eftir tölu, þar eð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.