Morgunblaðið - 06.03.1914, Síða 4

Morgunblaðið - 06.03.1914, Síða 4
578 MORGUNBLAÐIÐ Konufigl. hirð-Yerksmiðja Bræöurnir Cloétta mæla með sínum viðurkendu Sjókólade-tegundum, sem eingöngu eru búnar til úr fínasta Kakaó, Sykri og Vanille. Ennfremur Kakaópúlver af beztu tegund. Ágætir vitnisburðir frá efnarannsóknarstofum. Skinfaxi vill fá miklu fleiri kaupendur í Reykjavík. Spyrjist fyrir um blaðið, ef þér ekki þekkið það. Bjarni Magnússon hjá Jóni Halldórsyni & Co. og Þorleifur Gunnars- 80n Félagsbókbandinu taka móti áskrifendum. Þér þurfið á urvalsgóðum byssum að halda. Kaupið því eigi annað en »Husqvarna«-byssur. Betri byssur eru ekki til. Afturhlaðm einhleypa, kal. 12, á fugla, tóur og seli, bezta stálhlaup, ioo centim., framþröngt, kostar 44 kr. 50 aur. Alls konar byssur eru til, alt að 600 kr. Biðjið um verðskrá með myndum. Einkasali fyrir ísland Jakob Gunnlögsson Kðbenhavn K. Beztu Cigarettur heimsins ern Special Sunripe trá R. & J. Hill Ltd, London. Heilbrigði og velliðan. I»að get egr vottað með goðri samvizku, skrifar lngi- björg Guðbrandsdóttir i Króki, og hún bætir við: Eg hefi þjáðst mörg ár af innvortis kvilla, lystarleysi, taugaveiklun og annari linku, og öll þan meðnl sem eg notaði, komn að engu haldi. Siðasta árið hefi eg notað Kina-lifs- elixír Waldemar Petersens, og hefi eg jafnan fnndið til hata þegar eg hefi tekið hann inn. Svefnleysi, lystarleysi og taugaveiklun. Guðný Aradóttir i Keykjavik skrifar: Eftir að eg um mörg ár hafði þjáðst mjög af þessnm kvillum og þar af leiðandi þjáningum, og árang- urslaust leitað annarar hjálpar, fór eg að reyna Kina-lifs-elixir Waldemar Petersens, og þegar er eg hafði tekið inn úr 2 flöskum, fann eg til verulegs bata. Með þvf að halda áfram að nota þenna góða bitter, vona eg að eg verði bráðlega heilbrigð. Annt'ir uorlianir W. S- Hsosen í Þórshöfn á Pæreyjum ritar: njjaiLal VCI Ixallll . Kina-lifs elixir Waldemar Petersens hefir veitt mér aftur mina góðu heilsu; hann tekur fram allri þeirri læknisbjálp, sem eg hingað til hefi notað, og verðskuldar í sannleika alt það lof, sem hann hefir hlotið fyrir slna ágætu eiginleika. Sináskamtalæknir L. Pálsson, Reykjavík, sinum, sem þjáðist af höf- uðverk og svefnleysi: Sjúklingnr þessi, sem eg veit að er mjög heilsulin, hefir, að minni ætlan, með þvi að nota Kina-lifs-elixir hlotið þá heilsubót, sem nú er sýnileg á henni. Hinn eini ekta Kína-lífs-elixir kostar aðeins 2 kr, flaskan og fæst hvarvetna á íslandi. Ekta er hann að eins tilbúinn af Walde- mar Petersen, Prederikshavn, Köbenhavn. 1 Þakpappaverksmiðjan Dortheasminde Köbenhavn B. JU Herkúles-þakpappi Haldgóöir þakpappalitir allsk. StrokkvoOan Saxolin. ZACHARIAS & Co, Dortheasminde. Stofnað 1896, * Tals.: Miðst. 6617. Álagning með ábyrgð Triumph-þakpappi Tjörulaus — lyktarlaus. T r iumph-einangrunarpapp j Rauða akurliljan. Skáldsaga frá 79 stjórnarbyltingunni miklu eftir baronessu Orczy, (Pramh.) Hún vissi ekki hvern veg þeir fóru með hana, né hve lengi þeir voru á leiðinni, því hún misti þeg- ar meðvitundina. Þegar hún raknaði við aftur, lá hún undir kletti einum og höfðu þeir breitt undir hana yfirhöfn, svo henni skyldi líða betur. Hafði nú aftur dregið ský fyrir tunglið og var á niðamyrkur. Hún áttaði sig þegar á því, að þau mundu nú komin í áfangastað, því hún heyrði þá hvislast á rétt við hlið sér. — Það eru fjórir menn inni i kofanum. Þeir sitja í kring um eld- inn og virðast rólegir. — Hvað er klukkan? — Hún er nær tvö. — Hvað liður flóðinu? — Það er nú að byrja að flæða. — Og hvar er skonnortan? — Hún liggur hér þrjár mílur undan landi og er auðsælega ensk. En bátinn höfum við hvergi séð. — Hafa mennirnir falið sig? - Já. — Og þeir rasa ekki fyrir ráð fram. ^ — Þeir hreyfa sig hvergi fyr en hái Englendingurinn kemur. Þegar þeir sjá hann, munu þeir ráðast á piltana alla fimm. — Það er gott. Hvernig líður frúnni? — Eg held að hún liggi enn í yfirliði hérna rétt hjá okkur. — Og gyðingurinn ? — Við höfum keflað hann og bund- ið á höndum og fótum, svo hann getur ekki hreyft sig. — Það er gott. Hafið þið svo byssurnar til taks ef ske kynni að þeirra yrði þörf. Farðu heim að kofanum, eg skal annast frúna. Desgas hlýddi og fór, en Chau- velin greip hendur Margrétár og hélt þeim föstu taki. — Eg áleit það réttast að vara yður við áður en eg tek klútinn frá hinum fagra munni yðar, mælti hann lágt i eyra hennar. Eg veit að vísu ekki hvernig á þvi stendur að mér hefir veizt sá heiður að þér skylduð elta mig hingað. En þó grunar mig, að það sé ekki eingöngu min vegna, að þér hafið ráðist í þetta ferðalag og þá grunar mig einnig, að fyrsta verk yðar verði það, er eg tek bandið frá munni yðar, að hrópa sem hæst þér getið til þess að gera þessum refi viðvart sem eg hefi nú fylgt heim að gren- inu. Og skjátlist mér ekki, þá er Armand St. Just bróðir yðar þarna inni í kofanum og þrír flóttamenn, sem bíða nú »rauðu akurliljunnar*, sem unnið hefir ættjörð vorri mest ógagn allra manna. Margrét gat engu svarað, því klúturinn var bundinn svo fast fyrir munninn á henni. En Chauvelin beygði sig niður að henni og hvesti á hana augun. — Það sem eg krefst af yður fyrir það að gefa Armand frelsi, er mjög einfalt og auðskilið, frú mín góð. Þér eigið að vera kyr hér á þessum stað án þess að láta nokkuð til yðar heyrast, þangað til eg gef yður leyfi til að tala. Eg vona að þér hlýðnist mér, hélt hann áfram og hló illgirnislega, því ef þér æpið eða látið nokkuð til yðar heyra, þá munu menn mínir, sem eru þrjátíu talsins, ráðast á bróður yðar og de Tournay greifa og drepa þá fyrir augum yðar. Margrét hlýddi á hann með vax- andi kvíða. Og þótt líkamleg þreyta hefði gert hana sljóa, þá fann hún þó glögt hve voðalegir þessir kostir voru. Fann hún glögt, að þeir voru hálfu voðalegri en kostir þeir, er hann hafði sett henni nóttina góðu. Nú var að eins um það tvent að gera fyrir henni, að horfa þegjandi á það, að maður sinn gengi í gildr- una, eða að öðrum kosti að sjá bróð- ur sinn myrtan og fleiri saklausa menn. Chauvelin leysti klútinn frá munni - hennar. Hún þagði við, þvi, hún var of þreytt til þess að koma upp nokkru orði. Hallaðist hún nú upp að klettinum og reyndi að átta sig á kringumstæðunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.