Morgunblaðið - 08.03.1914, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 08.03.1914, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ greiða í sekt 8500 rúblur eða 16000 krónur. Paincaré Frakkaforseti hélt nýlega ræðu á fundi blaðamanna í París. Sagði hann þar meðal annars: »Oft virðist mér sem blaðamannsstarfið hafi kallað mig, en síðan hrundið mér frá sér aftur; eða mér finst það sem fagurt land, er eg hefi ferðast um, en fæ nú ekki að lita framar. Eg þrái ætíð að vera blaðamaður og eg öfunda ykkur hina, sem megið láta skoðanir ykkar í ljós í blöðun- um. Og oft er það, að er eg les einhverja grein, sem mér er í móti skapi, þá langar mig til þess að and- mæla henni í einhverju blaði. En mér verður þá líkt og manni þeim, sem kennir verkjar í handlegg eða fæti, löngu eftir það að sá limur hefir verið tekinn af honum«. Húsráð. Postulin, sem fágað er gulli eða málað, þolir ekki sem annað postu- lin að vera þvegið upp úr södavatni. Verður þvi að þvo það úr volgu vatni sódalausu og síðan skola það aftur úr öðru vatni volgu. Verður því næst að þerra það með mjúk- um|dúki. — Gott er það og, að láta hvitan silkipappir liggja milli disk- anna svo þeir rispist ekki. —o— Silfurgripir, sem engin feiti er á, er hægast að hreinsa á þann hátt að þvo þá úr heitu vatni. Ella er það nauðsynlegt að blanda vatnið sóda. Verður að þerra þá þegar í stað og fága. Ef þörf krefur þess að þeir séu hreinsaðir, verður að nota silfursápu, en gæta verður þá og hins, að ekkert verði eftir af henni í fegurðar- eða leturstungunni sem er á flestum silfurgripum- Rauða akurliljan. Skáldsaga frá 81 stjórnarbyltingunni miklu eftir baronessu Orczy (Framh.) Chauvelin var ær af reiði. Hafði enginn maður fyr kollvarpað svo fyrirætlunum hans. — Ryðjist inn í kofann piltar og drepið alla sem eru þar, grenjaði hann. Hafði nú dregið ský frá tungli af nýju og var ljóst um alla klettana. Þustu nú nokkrir af hermönnunum inn i kofann, en sumir stumruðu yfir Margrétu. Dyrnar á kofanum voru í hálfa gátt. Hermaður nokkur hratt þeim upp. Var myrkur inni að öðru leyti en þvi, að kolaglæður vörpuðu daufri birtu yfir gólfið. Staðnæmd- ust hermennirnir á þröskuldinum og virtust bíða frekari fyrirskipana. Chauvelin varð sem þrumu lost- inn af undrun. Hafði hann vænst þess að flóttamennirnir mundu veita örðugt viðnárn, en nú stóðu her- menn hans þar kyrrir í sömu spor- Taubútar verða seldir mjög lágu verði þessa daga. Egill Jacobsen. t>eir, sem kynnu að vilja selja Holdsveikraspítalanum í Laugarnesi, um 1 ár frá 14. maí næstkomandi að télja, mjólk þá, sem spítalinn þarfnast fyrir (sem sé: hérumbil 1200 pt. nýmjólk og 600 pt. undanrennu mánaðarlega) heimflutta á hverjum morgni í hús spítalans, sendi undirrituðum tilboð sín, með tilteknu lægsta verði, fyrir útgöngu þ. mán. Laugarnesspítala, 7. marz 1914. Einar JTlarkússon. Beztu Cigarettur heimsins eru jSpecial Sunripe tra R. & J. Hill Ltd, London. Skinfaxi vill fá mikiu fleiri kaupeudur í Reykjavík. Spyrjist fyrir um blaðið, ef þér ekki þekkið það. Bjarni Magnússon hjá Jóni Halldórsyni & Co. og Þorleifur Gunnars- son Félagsbókbandinu taka móti áskrifendum. um og ekkert hljóð barst innan úr kofanum. Varð nú Chauvelin margt í huga Og greip hann bæði ótti og undrun. Gekk hann að bragði að kofadyrun- um og spurði með titrandi röddu hverju þetta sætti. — Eg ímynda mér að enginn maður sé hér inni. núna, svaraði einn hermannanna, — Þið hafið þó að líkindum ekki látið þessa fjóra menn ganga úr greipum ykkar, grenjaði Chauvelin. Eg hafði mælt svo fyrir að enginn þeirra mætti komast lifandi héðan I Eltið þál------ Hermennirnir brugðu við þegar og þustu niður klettana eins og og fætur gátu þá borið. — Þessi óhlýðni skal kosta Iíf yðar, flokksforingi, mælti Chauvelin, og þitt líf einnig, Desgas, þvi þið hafið óhlýðnast boði mínu. — Þér sögðuð okkur að bíða þangað til hái Englendingurinn kæmi á fund hinna. En enginn hefir kom- ið, mælti flokksforinginn önuglega. — Eg skipaði ykkur rétt áðan, þegar þetfa kvendi grenjaði, að gæta þess að enginn þeirra flóttamann- anna kæmist héðan lifandi I — Já, en min skoðun er sú, að menn þessir séu farnir héðan fyrir löngu. — Nú, það álítið þér! mælti Chauvelin og sauð í honum bræð- in. Og samt sem áður létuð þér þá sleppa. — Þér höfðuð mælt svo fyrir, svaraði liðsforinginu, að við ættum að biða hér kyrrir eða bíða bana ella. Þessvegna biðum við . . . Og skamt var þess að bíða, eftir að þér höfðuð gefið fyrirskipanir yðar er eg heyrði að mennirnir læddust út úr kofanum, og var það nokkru áð- ur en konan þarna tók að kalla, mælti hann ennfremur, er Chavelin gat engu orði upp komið fyrir reiði. Kváðu nú við skot i fjarska. Leit þá Chauvelin niður að sjónum en í sama bili vörpuðu himininský skugga yfir jörðina svo ekkert sást. Stóðu þeir nú allir þrir hnipnir í sömu sporum og hlustuðu. Heyrð- ist þá áraglamur i fjarska, en Chau- velin varð svo mikið um að kaldur sviti spratt honum á enni. 587 JTiorgunbíaðid kostar ekki nema 65 aura á mánuði fyrir áskrifendur (34—35 blöð). Sent heim eldsnemma á h v e r j u m morgni. Eina blaðið, sem enginn má án vera. Gerist áskrifendur þegar í dag. Það margborgar sig, — munið það l Grímudaiislekiir fyrir nemendur dansskólans í Báru- búð, bæði fyrir þá sem hafa verið í vetur og fyrravetur, verður haldinn i Iðnó föstudig 13. marz. Aðgöngumiðar seldir i Austurstr. 17 (Konfektbúðinni). Sig. Guðmundsson. Skíðafélag Reykjavíkur heldur æfingar hvern sunnudag, þeg- ar færð og veður leyfir, uppi í Ár- túnsbrekku. Stjórnin. €%il fíQÍmalitunar vl^urm sérstaklega ráða mönnum til að nota vora pakkaliti, er hlotið hafa verð- laun, enda taka þeir öllum öðrum litum fram, bæði að gæðum og litarfegurð. Sérhver, sem notar vora liti, má ör- uggur treysta þvi, að vel muni gefast. — í stað helllulits viljum vér ráða mönnum til að nota heldur vort svo- nefnda Castorsvart, því þessi litur er miklu fegurri og haldbetri en nokk- ur annar svartur litur. Leiðarvisir á islenzku fylgir hverjum pakka. — Litirnir fást hjá kaupmönnum alls- staðar á íslandi. cftucfis c£arvafa6ri/í — Þar róa þeir frá landi, mælti hann og svalg orðin. Var það nú auðsætt, að Armand St. Just og félagar hans höfðu læðst á burtu, en hermenn lýðveldisins, sem vanir voru því að hlýða í blindni, höfðu ekki þorað að stöðva þá vegna þess að þeir höfðu eigi feng- ið neinar fyrirskipanir þess efnis. Hitt var og vist, að báturinn frá »Dagdraumnum* hafði legið hér í nándinni. Höfðu nú flóttamennirn- ir náð þangað og róið bátnum að borði. Heyrðust nú og stórskota- drunur frá hafi, er sýndu enn betur hvernig komið var. — Skonnortan er að sigla á brautu, mælti Desgas. Chauvelin var nú að taka á því, sem hann átti til svo ekki hlypi reiðin með hann í gönur. Það var enginn efi á þvi að þessi bölvaður Englendingur hafði enn einu sinni narrað hann. Chauvelin skildi þó sízt i því hvernig hann hefði farið, að komast framhjá varð- mönnunum og inn í kofann. Það var auðskilið að hann hlaut að hafa komist þangað á undan hermönn- unum þótt Chauvelin skildi síst i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.