Morgunblaðið - 13.05.1914, Blaðsíða 1
Miðvikud.
13.
maí 1914
MOR&UNBLADIB
1. argangr
188.
tölublað
Ritstiórnarsimi nr. 500 I Ritstjóri: VilhjAlmur Finsen
ísafoldarprentsmiðja | Afgreiðslusimi nr. 140
Dín I Biografteater
DlO I Reybj avíbur.
Bio
Tals. 475
Manndýrið.
Sjónleikur i 3 þáttum.
Aðalhlutverkið leikur:
Peter Pjeldstrup.
Listin að koma sér vel.
Grískur gamanleikur.
Bio-Kafé er bezt.
’ Sími 349. Hartvig Nielsen.
Græna auga
gula guðsins.
Indíánaástir.
Indverskir toddarar.
Nánara á götuauglýsingum.
«©
•M
*
-d
X!
3
u
SO
>
Vöruhúsið.
Nikkelhnappar kosta:
3 a u r a tylftin.
Öryggisnælur kosta:
6 a u r a tylftin.
Vörnhúsið.
Oí
|-S
H
P*
g*
Skrifstoja
Eimskipafétags ístands
Austurstræti 7
Opin kl. S—7- Tals- 409-
Notið sendisvein
frá sendisveinaskrifstofunni.
gími 444.
Lesið morgunbtaðiðt
c Góifdúkar- o
« Linoleum. ^
^ Fallegastir -- beztir -- ódýrastir. ^
Fjölbreyttast úrval. - Greið og 5^
^ ábyggileg viðskifti. 5^
á borv. Sigurðsson & Kr. Sveinsson
7 Bankastræti 7.
Gólfdúkar
Linoleum og Voxdúkar, aíiar teg
undir, allar breiddir.
Stærst úrval — iægst verð
m
Jónatan Þorsteinssji.
UPPBOÐ!
Af sérstöknm ástæðum verða
800 pokar af kartöflum
seldir við uppboð á föstndaginn 15. mai i pakkhúsi
Edinborgar við Hafnarstræti
kl. 12 á hádegi.
Liverpool-linan.
Beinar ferðir milli Isiands
og Liverpool.
Menn muna eflaust eftir því, að
Morgunblaðið gat þess nokkru eftir
nýjárið, að ráðgert hafi verið að
koma á fót beinum ferðum milli ís-
lands og Liverpool. Fylgdi það þá
með sögunni, að þeir fisk-kaupmenn-
irnir enskn, Mr. Bookless í Hafnar-
firði og Mr. Hobbs í Reykjavík, ætl-
uðu að gangast fyrir þessu fyrirtæki.
En er vér spurðum þessa menn hvað
hæft væri í þessn, kvaðst hvorugur
þeirra hafa neitt með þetta að gera,
og vissu þeir þá ekki til að neitt
væri afráðið um slíkar ferðir. Sann-
leikurinn mun hafa verið sá, að Mr.
Bookless hefir kvatt gufuskipaeigend-
ur í Skotlandi til að gangast fyrir
beinum samgöngum hingað til lands
frá Liverpool, en hvorki hafi hann
ætlað sér að eiga neinn þátt í því
fyrirtæki sjálfur, né neitt hafi verið
ákveðið um það, er þessi fregn barst
hingað fyrst.
En nú er svo að sjá, sem alvar-
leg hreyfing sé aftur komin á málið.
Hingað til bæjarins kom um daginn
með Sterling enskur maður nokkur,
að nafni Mr. Cook, frá Aberdeen á
Skotlandi. Er hann meðeigandi í
gufuskipafélagi einu þar i bæ, og
hefir félagið nú afráðið að gera til-
raun með að senda skip hingað beint
ftá Liverpool, flytja hingað kol og
annan varning, og fisk og aðrar ís-
lenzkar afurðir til Liverpool og það-
an áfram, ef æskt er.
Vér höfum grenslast eftir um nán-
ara fyrirkomulag á þessum ferðum,
og skulum nú skýra frá hvers vér
höfum orðið áskynja.
Fyrst um sinn ætlar félag þetta
að hafa einungis eitt skip í förum,
og flytja eingöngu varning, en ekki
farþega. Skipið, sem notað verður
fyrst um sinn, heitir »Glen-Gelder<,
og rúmar rúmlega 800 smálestir. —
Ætlast er til að skipið fari nokkurn-
veginu reglubundnar ferðir, einu-
sinni í mánuði. Hingað er það vænt-
anlegt í fyrsta sinn kringum þann
20. þ. m., hlaðið kolum hingað til
bæjarins og Hafnarfjarðar. Viðkomu-
staðir hér á landi er ætlast til að
verði ekki aðrir en Reykjavík og
Hafnarfjörður.
Aðaláherzluna mun félagið leggja
á fiskflutning héðan. Hingað til hafa
fiskikanpmenn vorir verið afarilla
settir með að koma fiski sínum á
markaðinn, þ. e. þeim fiski, sem
ekki er sendur í heilum förmum
beint til Spánar eða ítaliu. Hafa
þeir orðið að senda hann með skip-
um Thorefélagsins eða Samein. fél.
til Leith, en þaðan hefir síðan orðið
að flytja fiskinn annaðhvort með
járnbrautinni til Glasgow, eða með
öðrum skipum til einhvers þess stað-
ar á Bretlandi, sem hentugar ferðir
falla frá til Miðjarðarhafslandanna.
En bæði er þetta afar-kostnaðarsamt
og auk þess er fiskurinn með þessu
móti afarlengi á leiðinni þangað til
hann kemst á markaðinn, og er þar
að auki oft hrakinn og illa útleikinn
vegna þessa margfalda flutnings er
hann loksins kemst á markaðinn. —
Nú upp á síðkastið hefir fiskur líka
stundum verið sendur með skipum
Bergensfélagsins, en þá hefir hann
oftast þurft að fara norður og aust-
ur um land og þaðan til Noregs og
síðan verið fluttur á skip í Bergen
áleiðis til Miðjarðarhafsins; tekur
þetta líka langan tíma og er að
mörgu leyti óhentugt. En ef fisk-
urinn er sendur héðan beint til
Liverpool þarf að flytja hann milli
skipa aðeins þar, og er hann síðan
fluttur þaðan beint til móttökustað-
arins. Frá Liverpool eru ferðir mjög
tíðar til allflestra staða út um heim,
og er þvi það tvent unnið við að
senda fiskinn þangað, að hann kem-
ur fyr en ella til móttökustaðarins
og kemur auk þess óhrakinn og vel
útlítandi. Þegar þar við bætist að
flutningsgjöld þau, er félag þetta
heimtar, eru mjög sanngjörn, þá
virðist vera mjög mikill fengur í
þessu nýja sambandi við umheim-
inn, þótt í smáum stil sé enn.