Morgunblaðið - 17.05.1914, Page 6

Morgunblaðið - 17.05.1914, Page 6
906 MORGUNBLAÐIÐ Söngskemfim Ingimundar Sveinssonar — verður sunnudagskvöldið 17. þ. m. kl. 9 síðdegis — / SiooéÍQmpíarafíúsinu. Fjórar fallegar ábreiður (íslenÉar) óskast nú þegar. Komið með þær a skrifstofn Morgunblaðsins, sem annast kaupin. hefi aldrei þekt hugrakkari mann en James Clinch Smith. Hann var ró- semin sjálf og hugrekkið alla þessa skelfingarnótt. Eg var með honum alla þá stund, er hin mesta hætta vofði yfir og get eg borið þess vitni að aldrei sá á honum æðru. Hann var alt af hinn sami rólegi maður, er allir vinir hans og syrgjandi ætt- ingjar þektu svo vel. Öll framkoma hans er hin fegursta fyrirmynd og hin bezta grafskrift, sem honum yrði gefin eru þessi orð Krists: »Sú er ástin fegurst, er fórnar lifi sinu fyrir vin sinn. Ryklausir vegir. Margt hefir verið reynt til þess að gera akvegi og stræti ryklaus, en þær tilraunir hafa allar mishepnast til þessa, að meira eða minna leyti. Öruggasta leiðin hefir verið talin sii, og er það að líkindum, að »asfaltera< göturnar, en það er ærið kostnaðar- samt og engar líkur til þess að hér- aðavegum muni nokkurn tíma sá sómi sýndur. Þess vegna hafa menn lengi brotið heilann um það, hvort ekki mundi önnur ráð duga. Og nú er svo mælt að fundið sé nýtt efni, er gerir vegi ryl kusa og fylgi þvi auk þess sá kostur að það hefir til þessa verið álitið einskis eða lítils virði. Efni þetta nefnist Chlorcal- cium. Það er þunt kalkkent efni, er líkist mest salti og er það notað í sláturhúsum erlendis til þess að þurka við það kjöt og bjúgu. Það hefir þann eiginleik að drekka i sig alla vætu og er það hefir verið not- að í sláturhúsunum er það orðið að leðju, sem síðan er kastað burtu eins og hverju öðru sorpi. í’ Danmörku hafa nú nýlega verið ingi. En eftir því sem mér hefir skilist, hafið þér ekki ennþá játað henni ást yðar. — Mér gafst ekkert tækifæri til þess. Eg mundi án efa hafa gert það hefði hún ekki horfið jafnskjótt og eg kyntist henni. — Já, eg vissi um hvarf hennar, en skipanir þær er eg gaf gömlu Teresa voru hinar ströngustu. Og hefði eg ekki vitað það að Pauline hlýddi gömlu konunni í einu og öllu, mundi eg ekki hafa leyft henni að dvelja á Englandi. — Eg vona' nú að eg fái leyfi til þess að tala við jungfrú March, mælti eg. — Já — en þó með vissum skil- yrðum. Sá maður, sem ætlar sér að giftast Pauline March verður að sætta sig við það að eiga hana eins og hún nú er. Hann má einskis spyrja og ekkert grenslast eftir ætt- erni hennar eða æfiferli. Honum verður að nægja það, að hún er vel upp alin og skynsöm stúlka og óvenju fögur og eins hitt, að hann elski hana. Viljið þér sætta yður við þessa kosti? gerðar tilraunir til þess að nota þetta blauta Chlorcalcium sem rykvara á vegum og hefir árangurinn orðið ágætur. Rykið hefir horfið að mestu leyti og vegirnir orðið eins og fjala- gólf. Það er hverjum manni auðsætt að miklu er ekki tilkostað þótt efni þetta sé borið á vegina — að eins vinnunni, sem til þess gengur. Þykja líkur til þess að dönsk héruð vindi bráðan bug að því að bera það á vegi sína. í Kaupmannahöfn hefir það verið borið á nokkurn hluta Lyngby-vegarins og þótt koma að góðu haldi. <5m Verzlunarmenn. »Handelsfunktioneren«, sem er málgagn verzlunarmanna í Noregi, fiutti nýlega svæsna grein um órétt þann er verzlunarmenn og búðar- þjónar væru beittir með of langri vinnu á degi hverjum. Kom þar fram tillaga um það, að annaðhvort yrði að gera ströng ákvæði um það hvenær búðum skyldi lokað, e^a þá að öðrum kosti ættu búðarþjónar að hafa aukalaun fyrir yfirvinnu. Félag kaupmanna hefir nú borið hönd fyrir höfuð sér og segir þar meðal annars: * »Að það sé satt, að yfirvinna sé oft og tíðum í búðunum. Þó sé sá siður nú áreiðanlega í rénun og ólíku saman að jafna og fyrir nokkr- um árum. En nauðsyn krefji þess oft og einatt að búðarþjónarnir vinni hálfa eða heila klukkustund eftir ákveðinn lokunartíma, til þess að afgreiða vör- ur þær, er pantaðar séu á síðustu stundu og rýma til í búðunum o. s. frv. t Þetta kom mér svo á óvart að eg hikaði við að svara. —Eg get að eins fullvissað yður um það, hélt Ceneri áfram, að hún er góð og óspilt — og af jafngóð- um ættum og þér sjálfur. Foreldrar hennar eru dáin og hún á engan nákomin sdftingja annan en mig. — Eg er ánægður 1 mælti eg og rétti honum hendina. Gefið mér Pauline, um það eitt eitt bið eg yð- ur. Hvers vegna hefði eg átt að vera óánægður? Eg kærði mig ekkert um það að vita ætterni hennar eða æfisögu. Eg þráði það svo innilega að mega nefna hana mína, að þótt Ceneri hefði sagt mér að hún hefði flekkað mannorð, mundi eg án efa hafa sagt við hann: — Gefið mér hana og látið hana byrja nýtt líf sem konu mína. — Það eru dæmi til þess að menn hafa verið svo blindaðir af ást. — Jæja, Mr. Vaughan, mælti nú ítalinn um leið og hann slepti hönd minni, nú vil eg spyrja yður nokk- urs, sem ef til vill kemur nokkuð flatt upp á yður. Þér elskið Pauline En það sé ekki nema sanngjarnt að búðarþjónar fái aukaþóknun fyrir þá aukavinnu er þeir verða nauðsynlega að leysa af hendi. En benda mætti þó það, að vel gæti það orðið til þess að ala upp í þeim leti og hitt að draga alt á langinn«. Svo mörg eru þau orð. — Nú á að fara að semja lögreglusamþykt fyrir okkar bæ og verður þá án efa ákveðinn sá timi er búðum skal lok- að hér í bænum. Væri þá á þetta að líta hvern byr málið fær hjá frænd- þjóð vorri. ---- i .......... Stærsta skip heimsins. Hvað á það að heita? r Stærstu skipin, sem nú sigla um úthöfin, eru eign Hamborgar-Ameríku- línunnar. Hámarkinu náði félagið með smíði »Imperators«, sem hefir rúm fyrir j þús. manns. Siðan og eg imynda mér að henni sé og hlýtt til yðar. Hann þagnaði stundarkorn og eg fann hvernig hjartað í mér hoppaði af gleði er hann mælti síðustu orðin. — Getið þér gift yður nú þegar? Getið þér tekið konuna að yður eftir fáa daga? — Eg vildi helzt giftast henni þegar í dag, ef það væri mögulegt. — Ekki liggur nú lífið á —. En gætum við t. d. hagað því þannig, að þlfe giftust hinn daginn. Eg glápti á hann alveg forviða. Eg gat naumast trúað því að mér hefði heyrst rétt. Átti mér innan fárra klukkustunda að auðnast það, að giftast Pauline? Þetta var eflaust einhver hrekkur frá Ceneris hendi. Eða var maðurinn ekki með öllum mjalla ?J — En eg hefi enga vissu fyrir því að hún elski mig — hún hefir enn eigi gefið samþykki sitt, stam- aði eg. — Pauline er hlýðin og mun fara að óskum mínum. Þér getið alveg eins reynt að vinna ástir hennar eftir brúðkaupið og á undan því. 3 herbergi og eldhús fæst á leigu frá i. júní til i. okt. R. v.á. hefir félagið látið smiða skipið »Vaterland«, er innan skamms mun fara fyrstu för sína yfir Atlanzhaf. Verða á því skipi iooo skipverjar. En í næsta mánuði hleypur þó stærsta skipið af stokkunum hjá þessu félagi. Er það enn óskírt. Blaðið »Neuen Hamburger Zeitung« hefir boðið mönnum til samkeppnis um nafnvalið og heitið 2000 mörkum að verðlaunum. Fyrstu verðlaun, 1000 mörk, falla þeim manni i hlut, er stungið hefir upp á því nafni, er skipinu verður gefið. Hinum 1000 mörkunum er skifl milli annara nafna, er dómnefndin telur næstbezt. En dómnefndina skipar stjórn gufu- skipafélagsins. Allir hafa uppástungurétt, hvort sem þeir eru Þjóðverjar eður eigi. Vill ekki einhver landi taka þátt í samkepninni? — En getur maður gift sig með svo stuttum fyrirvara? — Já, ekki veit eg betur en hægt sé að kaupa leyfisbréf. Yður kem- ur uppástunga mín ef til vill nokk- uð á óvart — en svo er málinu varið að eg er neyddur til þess að ferðast aftur til Ítalíu svo fljótt sem unt er. Og það verðið þér sjálfir að viðurkenna, að eins og nú horfir við, get eg ekki með góðri sam- vizku skilið Pauline eina hér eftir ásamt gömlu konunni. Mr. Vaug- han! Þótt yður virðist það sem eg fer fram á nokkuð einkennilegt, þá segi eg yður þó satt, að annað- hvort verður Pauline að giftast yður áður en eg fer — eða hún verður að fara með mér. — Við skulum fara og tala við Pauline sjálfa, mælti eg óþolinmóð- lega og reis á fætur. — Með ánægju, svaraði Ceneri alvarlega. Við skulum fara á fund hennar nú þegar. Meðan við ræddum saman hafði eg snúið baki við glugganum. En er eg nú stóð á fætur og birtan féll á andlit mér virti hann mig fyrir sér gaumgæflega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.