Morgunblaðið - 22.06.1914, Side 1
Mánudag
1. argangr
22.
júní 1914
MOB&DNBLADID
227.
tölublað
Ritstjórnarsimi nr.
500
Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen.
ísafoldarprentsmiðja
Afgreiðslusími nr. 140
pjn I Biografteater
DlO | Reykjavíknr.
Tals. 475
Bio
Landsla gsmy n dir.
Hilleröd-markaður.
Pierre St. Lys.
Fílatamning.
Kona stjórnieysingjans.
Ahrifamikil mynd.
Aðalhlutverkið leikur:
Miss Florence Turner.
Sundmaðurinn.
eða: Lifandi líkneski.
Aðalhlutverkin leika:
Oda Rostrup og Holger Petersen
Þetta er hin ágætasta sýningar-
skrá og áreiðanlega lærdómsrík
og fræðandi, bæði fyrir full-
orðna og börn.
■ip
n U" ■" J
Bio-Kafé er bezt.
' Sími 349. Hartvig Nielsen. ’
—aiK—.ifc. iT ir ir
Shrífsfoja
Eimskipafélags Ísíands
Atisturstræti 7
Opin kl. 5—7. Tals. 409.
Hjörtur Hjartarson yfirdóms-
lögmaður. Bókhl.stig 10. Sími 28.
Veujul. heima 12Y2—2 og 4—$l/z.
Notið sendisvein frá
Sendisveinastöðinni
(Söluturninum).
Sími 444.
Karföfíur
ódýrastar og beztar hjá
P e f e r s e n frá Viðeij,
Hafnarstræti 22.
Vöruhúsið.
•<3
Os
fi
ar
a-
0»
Nikkelhnappar kosta:
3 a u r a tylftin.
Öryggisnælur kosta:
6 a u r a tylftin.
V ö r u h ú s i ð.
<!
©:
II
fi
s*
ö'
»
Galv. Vatnsfötur og Balar
Gas-katlar
í verzlun
O. Amundasonar.
Gerlarannsóknarstofa
Gísla Guðmundssonar Lækjargötu
14 B (uppi á lofti) er venjulega opin
II—3 virka daga.
Holdsveikar rottur.
Athugunarvert mál.
Skoðun sérfræðings.
Merkur maður hér i bæ hefir skrif-
að Morgunblaðinu og skýrt þvi frá,
að sézt hafi oftar en einu sinni í
nánd við Laugarnesspítala sjiikar
rottur, slegnar kaunum, og er það
skoðun hans, að rottur þessar þjáist
af holdsveiki og hér geti verið um
mikla hættu að ræða, — rotturnar
geti borið þenna voðasjúkdóm til
manna.
Oss þótti þetta svo alvarlegt mál,
að vér hittum þegar að máli þann
mann, er vér vissum allra hæfastan
til þess að gefa áreiðanlegan úrskurð
um þetta efni. Það er prófessor
Sæmundur Bjarnhéðinsson, læknir
Holdsveikraspítalans. Hann er sér-
fiæðingur í holdsveiki og viðurkend-
ur meðal erlendra holdsveikislækna
fyrir þekking og vísindalega ná-
kvæmni.
Hann sagði það væri nokkuð langt
siðan sér hefði fyrst borist sú fregn
til eyrna, að hér væri holdsveikar
jottur, og erlendis væri holdsveiki
algeng í rottum, viða um lönd.
Hann sagði að oft mætti sjá rottur
með meinsemdum og kaunum, Jog
hann heiði einmitt ransakað slíkar
rottur, en það hefði komið í ljós,
að þær sem hann hefði rannsakað,
hefði ekki verið holdsveikar, heldur
haft venjulega graftarígerð. Rottur
eru oft í áflogúm, bita hver aðra
illilega og þá getur grafið i þeim
sárum. Var það skoðun prófessors-
ins, að kaun þau, sem sést hefði á
rottum hér, væri graftar-igerðir,
runnar af þessum rótum. Þó vildi
hann ekki þvertaka fyrir, að holds-
veiki kynni að finnast í rottum hér
eins og annarsstaðar. En það hefir
ekki verið rannsakað nægilega itar-
lega enn.
Prófessor Sæmundur sagði enn-
fremur, að hann hefði ekki alls fyr-
ir löngu fengið mjög ítarlega skýrslu
um rottu-holdsveiki frá Pasteur-
stofnuninni í París, og samkvæmt
þeim rannsóknum, sem þar hafa
verið gerðar, þykir það fullsannað,
að rottu-holdsveiki sé ekki nákvæm-
lega sami sjúkdómur sem holdsveiki
sú er menn þjást af, og það er ætl-
un lækna, er bezt vita, að rottu-
holdsveiki berist ekki á menn. Ein
sönnun þess er sú, að rottu-holds-
veiki er víða þar i löndum, sem
mannaholdsveiki er algerlega ókunn.
Að þvi leyti ætti mönnum ekki að
standa háski af holdsveikum rottum,
en það er kunnara en frá þurfi að
segja, að rottur eru skaðvænlegustu
pestardýr, og geta borið marga aðra
sjúkdóma með sér, og valda auk
þess stórskemdum bæði á húsum,
munum og matvælum.
Spítalalæknirinn sagði, að mikið
væri af rottum i fjörunni umhverfis
spitalann og eins er mikið af þeim
á Kirkjusandi, hér í bænum og í
Örfirisey.
Vér göngum að þvi vísu, að
bæjarstjórn telji sér skylt að gefa
gaum að þessu máli hið bráðasta.
Það er bersýnilegt nauðsynjamál, að
fara herför gegn rottunum og eyða
þeim á allar lundir, hvað sem það
kostar.
+
Hans Alfred Kristensen
bóndi i Einarsnesi.
Fyrir fáum dögum flutti síminn
hingað þá sorgarfregn frá Danmörku
að Alfred Kristensen væri látinn.
Síðastliðinn vetur kendi Kristen-
sen veikleika í brjósti, læknarnir
sögðu það vera tæringu á lágu stigi
Til að leita sér bóta við þessu fór
hann í vor, á heilsuhæli í Silkiborg
í Danmörku. Þar var hann búinn
að vera nokkurn tíma og voru góð-
ar horfur á bata, er síðast kom bréf
frá honum. Andlátsfregnin kom því
öllum vinum hans og kunningjum
óvörum og ekki hefir ennþá frézt
annað en fáort simskúyti um dauð-
ann og annað um það að jarðarför-
in hafi farið fram í fyrradag.
Alfred Kristensen var fæddur 10.
oktober 1881, var faðir hans þá
ráðsmaður á fátækraheimili við Vejle,
en síðar bóndi. Olst drengurinn
upp í foreldrahúsum til 17 ára ald-
urs. Eftir það stundaði hann nám
á mjólkurmeðferðarskóla og á lýð-
háskólanum i Askov.
Árið 1904 fluttist Kristensen
hingað til; lands var það að tilstuðl-
un Búnaðarfélags íslands óg fyrir
milligöngu hins konunglega danska
Landbúnaðarfélags. Fór hann þá
vinnumaður að Sauðafelli til Bjöms
sýslumanns Bjarnasonar. Vann hann
þar og á ýmsum öðrum bæjum i
Dölum, að jarðabótum fjögur sum-
urin fyrstu. Fyrstu veturna tvo
vann hann að kvikfjárrækt, en fór
síðan að vetrinum til Kaupmanna-
hafnar og las búfræði við Landbún-
aðarháskólann.
Um vorið 1908 fluttist Kristensen
til Borgarness og þá um sumarið
keypti hann Einarsnes, fluttist þang-
að um haustið og tók við búinu.
NYJA 610
Þrjár örlagastundir.
Áhrifamikill og fagur sjónleikur
i 3 þáttum og 50 atriðum.
Aðalhlutverkið leikur hin heims-
fræga þýzka leikkona
Maria Forescu.
Þetta sama sumar giftist hann frænku
sinni, Rebekku Schousen. Eiga þau
4 börn, hið elzta þeirra er 5 ára
gamalt, en hið yngsta var nýfætt,
þegar faðirinn fór utan í vor.
ísland hefir marga góða og dugr
lega menn fengið frá Danmörku.
Af seinni tíma mönnum eru þeir
einkum tveir, sem unnið hafa land-
búnaði og garðyrkju ómetanlega
mikið gagn, það eru þeir Schierbeck
landlaknir og Alfred Kristensen.
Schierbéck kom af stað heillavæn-
legum hreyfingum, Kristensen gerði
sitt til að ryðja þeim braut, ásamt
öðrum nýjum.
Með dauða þessa mánns er mikið
skarð höggvið í hóp íslenzku jarð-
ræktarmannanna. Kristensen hafði
óvenjulega mikla búfræðisþekkingu *
af þeim fræðigreinum mun jarð-
ræktarfæðin hafa verið honum hugð-
næmust.
Það eru ekki lítil áhrif, sem
Kristensen hefir haft á jarðræktina
hér á landi, auðvitað gætir þeirra
mest þar sem hann dvaldi i Borg-
arfjarðarhéraði og í Dölum. Hann
var viðkynningargóður maður, glað-
ur, ræðinn, fjörugur og áhuga-
samur og lét sér einkar ant um að
geta orðið að sem mestu liði. Öllum
þeim sem honum kyntust þótti
vænt um hann, hann var hvers
manns hugljúfi,
Á vorin hélt Kristensen uppi
kenslu í plægingum og ýmiskonar
jarðyrkjustörfum, studdur til þess af
búnaðarfélaginu. Hann skrifaði ýms-
ar fræðandi og hvetjandi ritgerðir í
Búnaðarritið og Frey og í ^Atlantenc
skrifaði hann ýmislegt um íslenzk
búnaðarmál.
Það var sumra manna mál að ó-
ráð hefði verið af Kristensen að
kaupa Einarsnes svo dýru verði, en
hann mun aldrei hafa séð eftir þeim
kaupum. Að visu mun það hafa
verið all erfitt framan af að stand-
ast útgjöldin, en hetjudugur hjón-
anna beggja yfirvann þá örðugleika,
svo ástæðurnar fóru batnandi ár frá
ári. Konan lét ekki sitt eftir liggja
fremur en bóndinn; dugnaðurinn,
áhuginn, myndarskapurinn og ljúf-
menskan í óvenjalega ríkum mæli.
Tveir bræður Kristensens eru hér
á landi, annar þeirra kom jafnsnemma
honum og hefir verið hér síðan, er