Morgunblaðið - 20.09.1914, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.09.1914, Blaðsíða 4
M74 MORGUNBLAÐIÐ Tlæturbardagi í Ttliitbausen. Bréf frá Þjóðverja til Isiendings. Þjóðverjum hefir, sem von er, þótt fréttaburður þeirra bandaþjóðanna frá stríðinu ærið slæmur, en hafa ekkert getað gert til þess að hnekkja hon- um. Bréf það sem hér birtist í laus- legri þýðingu er frá þýzkum verk- smiðjueiganda til kaupmanns eins hér í bænum og af því það flytur nokkrar nýjar fregnir, og lýsir vel hug Þjóðverja, þykir oss rétt að kynna mönnum innihald þess. Það er dagsett þ. 26. f. m. — Þareð fréttaþráður vor við út- lönd er nú slitinn og lygalauparnir ensku og frönsku geía eftir vild flutt sínar fregnir af Norðurálfustyrj- öldinni út um allan heim, þá gefum vér yður eftirfandi stutt yfirlit yfir helztu atburðina, sem skeð hafa, og biðjum yður jafnframt um fram alt, að leggja engan trúnað á skeyti eða fregnir, sem berast frá Englandi eða Frakklandi. x. ágúst var herinn kallaður saman. í ríkisþinginu þ. 4. s. m. féllust allir flokkar orðalaust og einróma á hernaðaráætlanirnar og hétu keisar- anum því með handabandi að fylgja honum gegnum þykt og þunt, í lífi og dauða. A þeim fundi skýrði ríkiskanzlar- inn frá því að vér værum neyddir til þess að brjóta hlutleysi Belgíu til þess að koma í veg fyrir að Frakk- ar réðust inn í landið hjá Neðri-Rín. Hann hét því samtímis að Þjóðverjar skyldu bæta Belgiu að fullu fyrir alt það tjón er hún biði við það, einnig það tjón, sem hlytist af yfirför hers- ins o. s. frv. En síðar hefir það komið upp úr kafinu að Frakkar höfðu þá þegar níðst á hlutleysi Betgíu og flutt her- flokka inn í landið áður en Þjóð- verjar sögðu þeim strið á hendur. 4. ágúst sagði England oss stríð á hendur, vegna þess að vér hefð- um níðst á hlutleysi Belgíu — og var það ærið auðvirðileg ástæða — þótt nú sé það uppvist að Englend- ingar höfðu sjálfir í hyggju áður að skeyta ekkert um hlutleysi Belgíu ef þeim og Frökkum lenti i ófriði við Þjóðverja, en setja þar hiklaust lið á land. 7. ágúst tóku herflokkar vorir Liittich með áhlaupi — allar aðrar sögur, sem um það ganga eru ósann- ar — og var það ódauðlegt hreysti- verk. Herflokkar vorir héldu lengra inn í Belgíu eftir að þeir höfðu náð Liittich á sitt vald, og unnu þá sigur á Frökkum hjá Perves, á Belgum hjá Tirlemont og héldur inn í Biussel þann 19. s. mán. Núna sitja þeir um Antwerpen. í Efri-Elsass reyndu Frakkar að ráðast inn í Þýzkaland frá Belfort, en biðu ræklegan ósigur í Miilhausen þ. 10. ág. og annan ósigur þ. 11. s. m. hjá Lagarde. í öllum þessum or- ustum tókum vér óvini til fanga og náðum fallbyssum, hraðskotabyssum, flutningi 0. s. frv. Franski herinn í Vogesafjöllunum, sem hafði vígin Verdun, Toul og Epinal að bakhjarli reyndi að ráðast inn i Lothringen í 8 herfylkjum (hér um bil 360 þúsund manns) en biðu ógurlegt manntjón í orustu, sem stóð frá 17.—21. ágúst og varð að láta undan siga. Þjóðverjar tóku þar mörg þúsuud fanga, þar á meðal nokkra herforingja. Vinstri fylking- ararmur vor náði t. d. 150 byssum og fallbyssum. Þetta er sú stærsta orusta, sem enn hefir verið háð i heiminum. Undanhald Frakka varð að flótta, og fylgdu hermenn vorir á hæla þeim og hafa til þessa rekið þá á undan sér. Þjóðverjar hafa nú Luneville, Nancy og Rín-Marneskurðinn á valdi sínu. Herflokkar þýzka ríkiserfingjans réðust inn í Frakkland norðan við Metz og unnu sigur á Frökkum í fyrradag hjá Longwy. — Hversu marga fanga og hversu mikið her- fang þeir tóku þar, er til þessa ókunnugt. Samtímis réðust Þjóðverjar inn í Frakkland yfir Luxemburg og unnu glæsilegan sigur á Frökkum hjá Semoy. Vér vitum að eins að þeir tóku þar fjölda fanga, þar á meðal marga herforingja, fjölda af byssum, hraðskotabyssum o. s. frv. Þá unnu og Þjóðverjar sigur á framfylkingum Englendingaog Frakka hjá Maubeuge. Var það mest ridd- aralið þeirra Englendinganna. Þannig halda herflokkar vorir sigri hrósandi áfram allstaðar. Nú er búist við stórorustu innan skams i vestan- verðri Belgíu, miili Þjóðverja og sam- einaðs hers þeirra Englendinga og Frakka. Belgaher og konungur þeirra hefir flúið til Antwerpen. Á eystri vígvellinum hafa Þjóð- verjar verið jafn sigursælir og að vestan. Pólverjar eru Rússum and- vígir og hið sama er að segja um Ukraine og Kaukasus. Þessi lönd fagna Þjóðverjum og Austurríkis- mönnum, sem lausnurum sínum. Hin vandræðalegu loforð, sem zarinn gaf Pólverjum, hafa engan árangur haft, jafnvel þótt hann talaði til »sinna kæru gyðinga«. Rússar gerðu innrás í Austur- Prússland, en 21. ág. unnu Þjóð- verjar sigur á þeim í mannskæðri orustu hjá Stallupönen og hröktu þá öfuga út aftur. Þar tókum vér 8000 fanga og fjölda af byssum. Rússar þora ekki að kalla til her- manna í Finnlandi. Pétursborg víg- girða þeir. Austurríkismenn vinna hvern sigurinn á íætur öðrum á Rússum. Sama máli er að gegna í Serbíu og það land virðist vera kom- ið alveg á heljarþrömina. Allar vonir mótstöðuþjóðanna hafa brugðist. 1. Von þeirra um það að borg- arastyrjöld mundi verða í Þýzkalandi, er að engu orðin. En hún sýnir samt sem áður hve lítið óvinirnir þekkja þýzku þjóðina. — Nú er engin flokkaskifting til í Þýzkalandi. Allir þyrpast i herinn fyltir guð- móði, hverjum flokki sem þeir hafa áður fylgt. 1^/4 miljón sjálfboðaliða hafa gengið í herinn og er það meira en nokkur hafði búist við. Frá Solingen hafa komið flestir sjálf- boðaliðar tiltölulega. Skólapiltar og stúdentar gerast sjálfboðaliðar. Aðrir eru lögregluþjónum til hjálpar, bera bréf o. s. frv. Veraldarsagan á engin dæmi slíks, sem nú gerist í Þýzkalandi. Hér er enginn ótti, engin hræðsla. Vér höfum ekki einungis viljann til þess að vinna sigur, heldur trúum vér því fyllilega að vé'r munum sigra. 2. Tilraunir óvinanna að vekja sundrungu í Austurríki hafa mishepn- ast. Oll austurrikska þjóðin stend- ur nú sem einn maður. Króatar, Tékkar og jafnvel Serbar fylkja sér til víga með sama guðmóði og Þjóð- verjar. Allsstaðar eru þeir eins og bræður; í Prag, Briinn, Kroatien og Slawonien. Slavar hirða ekki um yfirdrotnun Rússa. 3. Hinn mikli liðsafnaður Rússa að austan, sem koma átti i veg fyr- ir það að Þjóðverjar gætu komið við bolmagni sinu í viðureigninni við Frakka, hefir orðið þeim til skammar eftir þann ósigur, er þeir hafa beðið. 4. Eftir sigurför vora er það ómögulegt að Italir gangi í lið með Englendingum og Frökkum. Það fer einnig bezt á því að Ítalía sé hlutlaus, því með því móti getum við fengið þaðan nokkuð af nauð- synjum vorum. Fórnfýsi Þjóðverja og frjáls fram- lög -vaxa með degi hverjum. Til dæmis má nefna það, að Frankfurt am Main hefir á þessum síðustu fjórum dögum lagt fimm miljónir fram til »Rauða krossins*. Verksmiðjur, gistihallir og jafnvel kirkjur eru gerðar að sjúkraskálum. Nú liggur fyrir sú spurning: Hvað geta Þjóðverjar erlendis gert fyrir oss? Fyrst og fremst er það skylda þeirra að mótmæla lygafregnum þeim, sem um Þjóðverja eru born- ar og halda fram þeim fiegnum, er þeim berast frá áreiðanlegum mönnum í heimkynnum sínum. Vér biðjum yður um fram alt að gera það sem í yðar valdi stendur til þess að sannleikurinn fái að koma i ljós. Vér bætum því, við og leggjum sérstaka áherzlu á það, að allar fregnir um sigur Englendinga á sjó eru uppspuni einn. Engir óvinir eru við strendur vorar, og þótt enska flotanum tækist það jafnvel að eyða flota vorum — sem ekki getur komið til nokkurra mála — þá kæm- ist hann samt sem áður eigi að ströndum vorum. Hvað því við víkur að Englend- ingar hafi tekið af oss Togoland og Japanar sýndu þann ódrengskap að ráðast á oss og taka af oss Kiauts- chou, þá eru það aðeins smámuuir, sem vér verðum að sætta oss við. En það er þó víst, að stríðið er f Evrópu, en ekki í nýlendunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.