Morgunblaðið - 18.02.1915, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Hafnbannið.
Þýzkur ríkisþingmaður, Erzberger
að nafni, ritar nýlega í Berlinarblað-
ið »Der Tag« um hafnbannið, sem
Þjóðverjar leggja á Bretland í dag,
og farast svo orð:
»Hafnbannið er ekki »smellið
hrekkjabragð*, heldur fylsta alvara.
Það þýðir alls ekki að þýzka stjórn-
in ætli að virða að vettugi óskir
hlutlausra þjóða, meðan þær koma
ekki i bága við hernaðarfyrirætlanir
hennar, heldur að þýzka stjórnin
hefir einsett sér þetta, og hverfur
ekki frá því þrátt fyrir mótmæli og
ógnanir*. —
Hann tekur það skýrt fram, að
með þessu sé ekkert gert á hluta
Ítalíu, Norðurlanda eða annara hlut-
lausra rikja, því þær vörur, sem þau
hafi keypt frá Englandi, geti þau
keypt með betri skilyrðum í Þýzka-
landi og Þýzkaland væri alveg eins
fúst til þess að kaupa afurðir þeirra
og England og gjalda þeim eigi sið-
ur fyrir.
»Magdeburgische Zeitung« segir:
Vér verðum enn einu sinni að sýna
Bretum sannleikann: að vér höfum
unnið sigur á Frökkum og Riissum
og munum vinna sigur á þeim oftar,
en að oss er ekkert nær skapi og
vér leggjum ekki jafn mikið kapp á
neitt annað eins og það að koma fram
hinni miklu hefnd á Englendingum.
Parísarblöðin hafa þá frétt frá
Rómaborg, að Ítalía muni ekki mót-
mæla^>essu atferli Þjóðverja. Ókunn-
ugt er enn með öllu hvernig Hol-
lendingar snúast i málinu, og ekki
vita menn heldur hvað Norðurlönd-
um sýnist. En konungarnir þrír og
ráðgjafar þeirra ætla að eiga með sér
fund í Málmey til þess að ræða um
málið.
þýzkir kafbátar nanðulega staddir
Fréttaritari »Daily News* í Kaup-
mannahöfn símar blaði sinu þær
fréttir þann n. þessa mánaðar að
norsk beitskip hafi fylgt io þýzkum
kafbátum inn til norskra hafna (Björg-
vinjar, Stafangurs, Þrándheims o. fl,).
Höfðu skipin fundið þá illa til reika
og nauðulega stadda komna utan úr
Ncrðursjó.
Mennirnir á kafbátunum skýrðu frá
því, að þeir hefðu verið marga daga
fæðislausir úti i rúmsjó í versta veðri
og voru margir þeirra fárveikir orðn-
ir af illu viðurværi.
Kafbátunum var gefinn 24 klukku-
stunda frestur til þess að lagfæra
þær skemdir, er á höfðu orðið, ella
áttu þeir að kyrsetjast i Noregi.
Þeir lögðu allir af stað aftur eftir
tæpan sólarhring. Voru þó margir
mennirnir alls eigi færir um það að
vera á fótum og eigi nærri gert við
allar þær skemdir er á bátunum
höfðu orðið.
Frá Berlin,
Eftirlit með brauðsöla.
í enskum blöðum frá 12. þ. m.
er getið um það hvernig stjórnin í
Þýzkalandi hefir eftirlit með því, að
eigi sé eytt meira af brauði i land-
inu en nauðsyn krefur.
Berlínarborg er skift niður í 170
deildir og yfir hvern þann borgar-
hluta er sett brauðaúthlutunarnefnd.
Hjá nefndinni verða menn að kaupa
brauðmiða og er hverjum manni
ætluð 4 pund af brauði á viku. Bak-
arar og brauðsölumenn gæta þess
nákvæmlega, ásamt nefndinni að
kaupendur komi ekki við brögðum,
en ef einhver bakari skyldi selja
brauð án þess að fá brauðmiða í
staðinn, hefir hann unnið sér til
stórrar sektar. Veitingahúsum og
gististöðum eru eigi seld brauð frem-
ur en öðrum, nema nema því að
eins að þau hafi brauðmiða stjórnar-
innar í höndum. Séu veizlur haldnar
eða samsæti, verða menn að koma
sjálfir með brauð handa sér, þvi
enginn fær meira brauð heldur en
rétt svo að það nægi honum sjálfum
og fjölskyldu hans.
Kartöfluskortur.
Það er augljóst að kartöfluskortur
mun þegar verða í Þýzkalandi, því
síðan eftirlit með brauðsölu varð svo
strangt, hafa menn kepst um það
að kaupa þá vöru. Og þó hefir
þetta versnað siðan stjórnin mælti
svo fyrir að kartöflur skyldu einnig
notaðar í brauð til þess að drýgja
mjölið. Hafa brauðgerðarhúsin þess
vegna orðið að kaupa svo mikið, að
kartöflur hafa ekki hrokkið til í Berlin.
Og nú spyrja Þjóðverjar sjálfa sig:
Hvað á nú að koma i staðinn fyrir
kartöflurnar, fyrst þær eiga að koma
i staðinn fyrir mjöl ? En þeirri spurn-
ingu er vandsvarað. Það er alment
álitið að reglur þær, sem settar hafa
verið um brauðsöluna muni valda
ótrúlegum óþægindum. Gistihúsin
hafa til dæmis ekki leyfi til þess að
fá meira brauð en þarf til fæðis
starfsmannanna og gestirnir verða
sjálfir að leggja brauð á borð með
sér.
Slátrun kvikfénaöar.
Til þess að spara sem mest korn
cg kartöflur, er daglega slátrað svín-
um og nautgripum þúsundum saman,
en þó nægir það hvergi nærri til
þess að fylla þau skörð sem orðin
eru í öðrum matvörubirgðum.
Innan skamms á að hafa eftirlit
með ölgerðarhúsunum eins og brauð-
gerðarhúsunum. Þess er vænst á
hverri stundu að stjórnin muni leggja
hald á helming allra vörubirgða
þeirra.
Hátt verð fyrir afla sinn á botn-
vörpuskip fékk nýlega skipstjóri, sem
hór er all kunnur. Hann heitir Peter
Christensen, vanalega kallaður »danski
Pétur«. Aflann, Bem mest var koli,
seldi hann fyrir 3387 sterlings pund í
Bretlandi.
Ávörp
Bandaríkjanna til Þjóð-
verja og Breta.
Avarp Bandaríkjanna til Þjóðverja
út af hafnbanninu, hefir verið birt.
Bandaríkjastjórn segir að með »stakri
virðingu og vinsemd« leyfi hún sér
að minna þýzku stjórnina á það, að
réttur ófriðarþjóða nái ekki lengra
en að ganga á skipsfjöl og rannsaka
skip hlutlausra ríkja, nema að hafn-
bann sé algert, en stjórninni skilst
svo, sem það muni ^ekki verða í
þetta sinn.
Stjórnin er ófús á að trúa því,
að þýzka stjórnin ætli að framkvæma
það sem hún hefir haft við orð.
Það er algerlega gagnstætt þeim
reglum, sem hafa gilt í sjóhernaði
til þessa, að taka sér vald til þess
að ráðast á éða eyðileggja skip, sem
fer inn á tiltekið svæði á höfum úti,
án þess fyrst að vita með vissu
hvort það er eign óvinaþjóðar eða
hvort það hefir bannvöruflutning
meðferðis.
Ef skipstjórar á þýzkum herskip-
um þykjast vissir um það, að Banda-
ríkjaflaggið sé notað í heimildarleysi,
og haga sér eftir því og eyðileggja
ameríksk skip á höfum úti og verða
Ameríkumönnum að bana, þá geti
Bandaríkjastjórnin ekki litið öðru vísi
á þær gerðir, en það sé óverjandi
brot á siglingarétti og væri mjög
erfitt að samrýma við vináttu þá, sem
nú væri góðu heilli milli stjórnanna.
Bandarikjastjórnin tekur það skýrt
fram, að hún telji þýzku stjórnina
bera fulla ábyrgð á slíkum gerðum
og að hún muni neyðast til að gera
þær ráðstafanir, sem með þurfi til
að vernda líf og eignir Bandarikja-
manna.
í ávarpinu til Breta segir Banda-
ríkjastjórn að hún hafi fengið til-
kynningu frá þýzku flotamálastjórn-
inni, um að brezka stjórnin hafi leyft
brezkum skipum að nota flögg hlut-
lausra þjóða.
í ávarpinu er minst á Lusitaniu-
málið og það sem blöð hafa eftir
brezka utanríkisráðherranum, þar sem
hann ver það, að hlutlaus flögg séu
notuð. Stjórnin segist vona það, að
brezka stjórnin geri alt sem hún geti
til þess að bamla þvi, að skip noti
Bandaríkjaflaggið.
Fangaskifti.
Þrjú þúsund franskir fangar,
sem hafa verið i varðhaldi hjá
Þjóðverjum, en eru óhæfir til
herþjónustu framvegis, hafa verið
sendir heim íil ættlands sins, og
eiga Þjóðverjar að fá jafnmarga
fanga frá Frökkum í staðinn. Þetta
eru fyrstu fangaskifti þeirra þjóða,
en áður höfðu Þjóðverjar og Bretar
skifst á föngum. Þetta er gert að'
undirlagi Benedikts páfa.
t • -1 T) AGHÓ K 1 N'
Afuiæli í dag:
Elísabet Bergsdóttir húsfrú
Halldór Sigurðsson úrsm.
Steinunn Guðmundsdóttir busfrú
Jakobína S. Torfadóttir húsfrú
Kristinn Olafsson verzlunarm’
Kristinn Daníelsson prestur, Útska u
Sólarupprás kl. 8.20 f-
Sólarlag — 5.6 *ííd'
Háflóð er í dag kl. 7.50 árd.
og — 6.7 siðd.
■x kl-
Þjóðmenjasafnið op*°
12—2.
P ó s t a r i dag :
Ingólfur frá Borgarnesi
Veðrið í gær:
Vm. n.a. hvassviðri hiti 0.5.
Rv. a.n.a. gola, frost 0.3.
ísaf. n.a. hvassviðri, frost 3.7.
Ak. Iogn, frost 5.5.
Gr. n.a. gola, snjór, frost 8.0.
Sf. n.a. kul, snjór, frost 3.4.
Þórsh., F. a. stingingsgola, hiti 3.*'
rnefud,r
lS.
12.
11.
Dagskrá á fundi bæjarstj°r'
fimtudag 18. febr. kl. 5 síðd.:
1. Fundargjörð byggingari
13. febr.
2. Fundargjörð fasteignanefnda*'
febr.
3. Fundargjörð hafnarnefndar
febr.
4. Fundargjörð fátækranefndar
febr. j
5. Umsókn um eftirgjöf á útsva^
6. ÚrBkurður á reikningi >Baðh°
Reykjavíkur« 1914.
7. Úrskurður á reikningi »Sjúbr
sjóðs Reykjavíkur« 1914. .
8. Úrskurður á reikningi >>d^0 ,
sveigasjóðs Þorbj. Sveinsdóttur« I ,
9. Úrskurður á kærum yf’r 3 ,jg
yfir gjaldendur til ellistyrktarsj
1915.
10. Brunabótavirðingar.
Snorrl Goði fór síðastliðið fðs ^
dagskvöld frá Fleetwood áleiðis
Skipsins var eftir því bráðlega
hingað. En í fyrrakvcld barst
unum Kveldúlfsfólaginu, símskeyt^^
skipstjóranum þess efnis, að ,
mundi fara frá Bolfast á írla*’ 1 ^
um kvöldið. Eftir þessu að dæ®0,
ir Snorri Goði verið stöðvaður af ^
um herskipum undireins og han*’
út frá Fleetwood og þá veriö Bn ^
til Belfast til rannsóknar.
peBt
getið í símskeytinu að öllum sk’P
um liöi vel.
ivetJ'
t - F1«0Í'
S k a 11 a g r í m u r fór f*'a $
wood á laugardaginn. Afla 811111,
skipið selt fyrir 856 sterlingsp1111
Skipið kom hingað í gærdag-
Jarðarför Sigurðar Þorl^"^),
fór fram í gær að viðstöddu fj° 0
----- . M bdlt
S t ú k a n »S k j a I d b r e * ^ v9í
bögglakvöld í fyrradag. Ágó®,ir. ng.
45 kr. og renna þær til Samve
----- jrjöldi
Öskudagur var í g®r'
barna með 'öskupoka á g°tn
gleðskapur töluverður að van