Morgunblaðið - 07.06.1915, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.06.1915, Blaðsíða 1
2. árgangr Manudag 7. j*ní 1915 HOR fi Ritstjórnarsími nr. 500 Ritstjóri: Vilhjálmnr Finsen. §IOj B,SSir |BIO Talslmi 475. - Fífldjarfi Dick Kvikmynd i 3 þáttum og 100 atriðum. Afar spennandi frá upphafi til enda. Jafn spennandi bardagi '^Mjón hefir ekki sést áður. Theodor Johnson Konditori og Kafé stærsta og fullkomnasta kaffihús í höfuðstaðnum. Bezta dag- og kvöldkaffé. — ^ljóðfærasláttur frá 5—7 og 9—uVa Conclitori & Café Skjaldbreið fegursta kaffihús bæjarins. ^amkomustaður allra bajarmanna. Hljómleikar á virkum dögum kl. ^ til/a, sunnudögum kl. 5—6. A.V. Mikið úrval af ágœtis kökutn. Ludvig Bruun. K. F. U. M. Bibiíulestur í kvöld kl. 8V2 Allir karlmenn velkomnir. Biðjið um: Mazawattee og Lipton’s heimsfræga the í pökkum og dósum. Lipton’s sýróp, kjöt- extract, pickles og annað súr- rneti, fjsk. kjötsósur alls- ‘'onar, niðursoðið kjöt og tung- Uri fæst hjá kaupmönnum um a't land. umboðsm. fyrir ísland ö. Eirikss, Reykjavík. Keykið að eins: ‘Cbairman' °Q ,Dice Cfyair' ^igarettur. ^ast i öl] betri verzlunum. Steinbær. Á fuudi bæjarstjórnar 3. júní var samþykt svohljóðandi tillaga til sam- þyktar um viðbót við byggingarsam- þykt fyrir Reykjavikurkaupstað 7. sept. 1903: »Framvegis má ekki byggja neitt hús í Reykjavíkurbæ úr öðru efni en steini, steinsteypu eða öðru efni, ekki ótraustara eða óeld- tryggara að dómi byggingarnefnd- ar og bæjarstjórnar nema þar sem opin bygging er, þ. e. þar sem hús er ekki sett nær lóðarmörk- um en 3.13 mtr. og minst 2 mtr. frá götujaðri. Á slikurn stöðum skal beimilt að byggja járnvarin timburhús, sem eru ekki stærri en 75 m2. að grunnfleti og mega timburhús aldrei vera hærri en tví- lyft og íbúð ekki á meira en tveim- ur gólfum fyrir ofan kjallara. Sam- þykt þessi nær einnig til höfuð- breytinga á eldri timburhúsum og viðbótar við þau. Þau ákvæði í byggingarsamþykt- inni 7. sept. 1903, sem koma í bág við þessa samþykt, eru úr gildi numin*. Eins og menn sjá er þetta aðeins bráðabirgðaráðstöfun. Er það von- andi að farið verði nú að flýta fyrir endurskoðun byggingarsamþyktarinn- ar, sem eru orðin afar úrelt og langt á eftir tímanura. En nú er þó svo komið að allur bærinn á að fara í steininn og er vel farið. Bannlögin. Herra ritstjóri. Þar eð ókunnugir kunna að ætla eftir orðalaginu í frásögn blaðs yðar í dag, að örfáir aðrir menn en templar- ar hafi skrifað undir brófið um vernd- un bannlaganna, sem > bæjarstjórnin hafði til meðferða á síðasta fundi, þá bið eg yður að geta þess, að af þeim 80, sem skrifuðu undir brófið, voru 34 ekki templarar, og þeir allflestir úr hóp helstu borgara þessa bæjar, t. d. biskupinn, 3 prófessorar, 2 banka- stjórar, 2 læknar, 2 skólastjórar, 4 prestar, 3 kaupmenn o. s. frv. En vitanlega er öllum ljóst að það hefði verið hægt að fá margfalt fleiri nöfn undir þetta bróf, ef hlutaðeigend- ur hefðu kært sig um. Enda óhætt að fullyrða alment, að mikill meiri bluti Reykjavíkurbúa vill láta ganga ríkt eftir því, að bannlögunum só hlýtt. 5. júní. S. A. Gislason. ísafoldarprentsmiðja Loftskeytastöðvar á Færeyjum, í vetur hefir danska stjórnin verið að undirbúa stofnun tveggja loft- skeytastöðva í Færeyjum, sem reis- ast eiga í sumar. — Stöðvarnar verða fremur litlar, enda aðallega ætlaðar til þess að hafa samband innbyrðis milli tveggja eyjanna, þær sem eigi hefir verið unt að koma á sæsímasambandi,' en auðvit- að verða þær og notaðar til sam- bands við sk'p i hafi. AIls eiga stöðvarnar að kosta 60 þús. kr. með byggingum og öllu tilheyrandi. Hvenær skyldu íslendingar verða svo frægir að eignast loftskeytastöð ? Hneikslismál. Þýzkur þingmaður tekinn fastur og kærður fyrir drottinssvik. Það bar til í öndverðum fyrra mánuði, að hinn mikli fjármálamað- ur Þjóðverja og þingmaður, E. Poss- ehl, var tekinn fastur og kærður fyrir drottinssvik. Var honum gef- ið það að sök að hann hefði selt Bretum málma og brennisteinskis síðan ófriðurinn hófst. Possehl þessi er vellauðugur mað- ur og á fjölda margar námur, verzl- unarhús og iðnaðarstofnanir um öll Norðurlönd. Er mælt að hann hafi stofnað útibú í Kaupmannahöfn og látið það annast verzlunarviðskiftin við Breta í vetur. Sjálfur á Poss- ehl heima í Lílbeck og er ríkasti maður í þeirri borg. Hann er nú um sextugt. Stórfé hefir hann oft og tíðum gefið til ýmsra nytsamra fyiirtækja. T. d. gaf hann 1 milj. marka til Zeppelinsloftfara, 600 þús. krónur til »Ltibeck Stadttheaterc og 100 þús. krónur í sjóð til styrktar ungum sænskum verkfræðingum o. s. frv. Possehl á 50 þús. hlutabréf í »Grángesberg Selskapetc, sem er hin öflugasta og bezta járnverksmiðja í Sviþjóð. í henni á sænska stjórn- in flest hlutabréfin, en Possehl er næstur. Það er nú búist við þvi, ef Possehl verður sannur að sök, að þýzka stjórnin slái eign sinni á all- ar eigur hann og þá vill svo ein- kennilega til að hún verður annar stærsti hluthafinn í öflugustu járn- verksmiðjunni í Sviþjóð. Aígreiðslusimi nr. 499 NÝJA BÍ Ó Stjnduqa konan Sjónleikur i 3 þáttum, 65 atr. Aðalhlutv. leikur hin fræga þýzka leikkona Henny Porten. „Vormenn“. Grein Kára í MorgunblaSinu á sunnu- daginn var, kom mór ekki á óvart. Hann kemur þar fram sem málsvari Ung- menuafólagsins og reynir að s/na fram á, að greinin um félagið hafi ekki verið á neinum rökum bygð. Því til sönnunar tekur hann /ms orð og setn- ingar úr greininni, úr róttu samhengi, sem hann rangfærir og notar eins og honum hentar bezt til þess að koma ár sinni fyrií borð. Hvort hann gerir þetta viljandi eða í ógáti eða af heimsku, það læt eg mig einu skifta, því mér er sama hvonyn megin hryggj- ar hanu liggur með rangfærslur sínar og köpuryrði. Það er ekki ætlan mín að eiga í ritdeilum við ungmennafélaga hór, út af grein minni, þótt margir þeirra séu skammfærir til slíks, en eg ætla að sýna fram á að eg fór með rétt mál. — það litla sem eg sagði um Ungmenna. fólagið er satt. Eg sagði að þeir hafi unnið að skíða- brautinni i mörg sumur. Það segir Kári satt vera. En það er eins og honum þyki það, sem eg sagði, að loksins hefði henni verið snúið upp í kartöflugarð. Engum heilvita manni var hægt að skilja orð mín þann veg, að eg hyggi það vanvirðu fyrlr þá að hafa ræktað þarna kartöflugarð. Mér s/nist þeim vera það miklu fremur til sæmdar. — En var það ekki ætlanin í fyrstu að gera þarna skíðabraut? Átti ekki að nota svæði þetta til ann- ars en garðræktunar og trjáræktunar? Því mun engi neita. Félagsmenn höfðu lengi unnið að skíðabrautinni, þegar þeir sáu að vonlaust var að gera hana þar, sem sjaldan kemur snjór. Þeir hlupu á garðinn þar sem hann var hæstur, án þess að gjöra sér grein fyrir, hvort þeir hefðu nokk- urt gagn af að komast yfir hann. Hefði það í fyrstu verið hugsun þeirra, að vinna þarna eingöngu að jarðbótum, þá var slíkt hinn mesti glópsháttur. Það hefði eflaust verið hægt að fá nóg land til ræktunar, sem ekki var svo vandunnið sem þetta, en staðið því samt eigi að baki hvað gróður snertir. Svæðið, sem einu sinni átti að vera skíðabraut, ber merki um dugnað en það ber líka vott um barnalegt fyrirhyggju-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.