Morgunblaðið - 07.06.1915, Qupperneq 2
4
MORGUNBLAÐIÐ
Hvað er Danolif-málning?
Það er nýjasta, bezta eu samt ódýrasta máloing:n til allrar útimálningar.
Jafngóð á stein, tró og járn.
Danolit er búinn til'af
Sadolin & Holmblad & Co’s Eftf., Kaupmannahöfn.
Aðalumboðsmenn: Nathan & Olsen.
Redmond í aforingi.
leyai. Skíðabrautin verður þeim því
ætíð til háðungar, þótt kartöflugarður-
inn verði þeim ef til vill sæmdarauki.
Svo er það »Skinfaxi«. Það var
einnig rótt setn eg sagði um hann.
Fyrst þegar honum var hleypt úr garði
1909 var tveggja manna ritnefnd, sem
sá um efni hans. Kvað þá heldurlít-
ið aö honum. Nú er hann i uppgangi
og mun varla of sagt, að gengi sitt
□ú, eigi hann nær eingöngu að þakka
ritstjóranam sem nú er, og verið hefir
aðalritstjóri hans síðan 1912.
Um það ætla eg ekki að þræta,
hvert gagn þeir hafi unnið íþróttunum
þegar öll kurl eru til grafar komin.
Það munu þeir fá sóð, sem um það
nenna að hugsa af nokkru viti.
Við vitum það báðir, Kári sæll, að
þú talar þér þvert um hug, er þú
þykist sjá framtíð »vörmanna« okkar
í fögrum litum. Okkur dylst hvorug-
um, að það er einhver Níðhöggur, sem
býr í rótum asksins, sem þið hafið
gróðursett. — Það er eitthvað óheilt
1 því öllu saman.
Þú spyr mig um bjargráð. Þau eru
ekki vandfundin. Þú talar um að þið
ætlið ekki að ráðast i neitt stórtæki
meðan þið hafið svo mörg járn í eldin-
um, sem þið hafið nú. £g skal ráða
ykkur heilt: Fækkið járnunum, sem
þið hafið í eldinum. Takið þau burtu
sem farin eru að kólna, en aukið eld-
inn að þeim, sem heitari eru og þið
þurfið fyrst að hamra.
Ef að vana lætur, þá munu þið
ekki fækka járnunum, sem í eldinum
eru. Þið hafið alt af stórhuga verið
og óforsjálir.
Þið þykist standa öllum fótum í
jötu og vera vinir drottins og fóstur-
landsins. Þið ætlið að klæða landið
alt milli fjalls og fjöru. Þið ætlið að
vitka og hreysta kynslóðina, sem nú er
að vaxa upp. Þið ætlið að hreinsa
og hefja til vegs okkar skynsama mál.
Þið hafið sett markið hátt. Það færi
betur að þið mistuð ekki af þvf. Eg
skal verða fyrsti maður til að gleðjast
þegar þið verðið íslandi til einhvers
gagns, því þá hefir sá frjóangi blómg-
ast, sem eg hélt að síxt mundi stinga
höfðinu upp úr moldinni.
B-n 0.
Sturlunga,
»Seint koma sælir, en koma þó»,
flaug mér í hug nýlega, þegar mér
var sagt að seinasta heftið af Sturl-
ungu væri á leiðinni. Eg var búinn
að þrá hana lengi, eins og maður
þráir komu góðs gests, sem vissa er
fyrir að komi. Mig vantaði hana í
bókaskápinn við hliðina á íslendinga-
sögunum og Eddunum.
Annars er líklega óhætt að segja,
að margir þekki Sturlungu síður en
skyldi, og miklu síður en íslend-
ingasögurnar, og kemur það til af
því, að hún hefir verið ófáanleg í
langan tíma. Heyrt hefi eg lika
menn segja að hún væri ekki jafn-
skemtileg sem sögurnar og hefði
ekki jafnmikið bókmentalegt gildi.
En því fer fjarri. Það sem skilur
mest, er það, að í íslendingasögun-
um er meira dregin fram bjarta hiið-
in á gullaldarlífi okkar íslendinga.
Glæsimenskan er þar sett i öndvegi,
en dekkri hliðarinnar gætir minna.
Fornu rithöfundarnir viidu halda uppi
hreysti og glæsimensku ættanna og
þjóðarinnar, og þess vegna ber meira
á björtu hliðinni.
Með þessu er eg ekki að kasta
neinni rýrð á sögurnar. Það er siður
en svo. Þær hafa verið og verða
gimsteinar í bókmentum heimsins,
og sá eldur, sem aldrei slokknar
meðan islenzkt þjóðerni er til.
í Sturlungu koma aftur fram skýr-
ar myndir af báðum hliðum á lífi
Islendinga á þeim tima, svo það
fæst glögg heildarmynd af íslenzkri
menningu og hugsunarhætti á Sturl-
ungaöldinni. Er það líka skiljanlegt,
þegar sjónarvottar hafa oft sjálfir
ritað frásögnina. Og ekki stendur
frásögnin að baki frásögu gullaldar-
sagnanna. Sama snildin og orða-
valið kemur þar fram sem fyr. Þess
vegna hefir Sturlunga stórmikla þýð-
ingu fyrir bókmentir okkar og ætti
að vera til á hverju íslenzku heim-
lli, ekki síður en íslendingasögurnar
og Eddurnar.
Það er aunars gremjulegt að vita
til þess hvað íslendingasögurnar eru
óvíða til, þrátt fyrir það þótt þær
séu til í ódýrri alþýðu-útgáfu. Menn
horfa líklega í peningaupphæðina, og
þó er hún ekki stór, og þyrfti eng-
um að vera tilfinnanlegt að eignast
þær allar, með því að kaupa þær
smámsaman, eftir því sem efnin
leyfa. Fjöldi eyðir fleiri tugum kr.
í tóbak og annan óþarfa á hverju
ári, en á enga góða bók. Væri
ekki þeirn mönnum nær að sleppa
einhverju af þeim óþarfa og kaupa
heldur eitthvað af góðum bókum,
og er þá auðvitað sjálfsagt að byrja
á ísiendingasöðunum, Eddunum og
Sturlungu, og mundi engan iðra
þeirra kaupa. Ef menn alment ættu
þessar bækur og læsu þær með eftir-
tekt, ekki eingöngu til þess að kom-
ast að efninu, heldur, og það ekki
síður, að skygnast inn í sálarlíf for-
feðra okkar og tileinka sér málsnild-
ina, sem kemur fram i þessum bók-
um, þá mundu menn verða auð-
ugri að orðum í ræðu og riti og
hafa miklu meira vald yfir málinu
en alment gjörist, og augu þeirra
mundu opnast fyrir hreimfegurð og
orðgnótt tungunnar, og það mundi
verða til þess, að menn hreinsuðu
málið og legðu niður fjölda orð-
skrípa, sem læðast eins og gráir
kettir inn i málið nú á tímnm.
Það er því muðsynjegt að allir*
sem unna íslenzkri tungu — og þa®
vona eg að allir gjöri — kaupi þess'
ar bækur og lesi þær. Þær þurfa
að vera til á hverju heimili á land-
inu og vera lesnar af öllum, kon-
um og körlum, með athygli. Ef
það væri gjört, mundi málinu okkaf
fagra og snjalla eigR-standa neio
hætta af útlendum orðskrípum og
málleysum.
P. t. Reykjavik, 5. júni 1915.
Jóhannes Friðlaugsson.
523 D AGBÓRIN.
Afmæli f dag:
Á8a Þorsteinsdóttir jungfrú.
Eygió Gísladóttir jungfrú.
Guðrún Kristjansson húsfrú.
Kristrún Benediktsson húsfrú.
María Guðlaugsdóttir húsfrú.
Andrós Andresson klæðskeri.
Ingvar Bjarnason stýrim.
Matth/as Einarsson læknir.
O. J. Havsteen umboðssali.
Þorst. Guðmundsson fiskimatsm.
Tómas Sæmundsson f. 1807.
Alex. Puschkin f. 1799.
Sólarupprás ki. 2.17 f. h.
Sólarlag — 10.37 síðd
Háfióð í dag kl. 2.38
og í nótt — 3.2
Póstar í dag:
Ingólfur til Borgarness.
Póstvagn til Ægissíðu.
Aukapóstur til Víkur.
Á m o r g u n .
Vestanpóstur kemur.
Norðanpóstur kemur.
Ingólfur frá Borgarnesi.
Veðrið í gær:
Vm. v. logn, hiti 7.5.
Rv. v. logn, hiti 8.5.
ísaf. n.a. kaldi, hiti 5.1.
Ak. logn, hiti 3.6.
Gr. logn, hiti 8.0.
Sf. logn, hiti 6.1.
Þórsh. F. kul, hiti 9.0.
Leið prentvilla hafði slæðst inn *
nokkurn hluta upplagsins i gær, Þaf
sem talað var um hæstaróttardóminI)’
sem fóll í hafnarteikningamáli Krabb0
verkfræðings, var sagt að honum hob'
um hafi verið dæmdar 3000 kr.
4000 kr. í málskostnað, en átti
vitað að vera 400 kr. i málskostnaS-
í sambandi við frásögn vora í
um nýju umboðsverzlunina í Templarí*
sundi, ber að geta þess, að Þorstei1111
Bjarnason e i n n er eigandl henn*r'
En Þorstelnn Jónsson er starfsma^11^
hjá frænda sínum.
Henny Porten leikur aðalhlutver^
í mynd þeirri, sem Nýja Bíó
þessa dagana. Henni heflr tekist ð®*
um leikurum fremur að leika i kV>
myndum svo að unun er á að horf»'