Morgunblaðið - 07.07.1915, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
gg-i DAGBÓFflN. CT=
Afinæli í dag:
Amelía Sigurðsson, húsfrú.
Asta Hallgrímsson, húsfrú.
Emilía Lárusdóttir, jungfrú.
Guðrún Erlendsdóttir, húsfrú.
Jóhanna Þorsteinsdóttir, húsfrú.
Katrín Thoroddsen, stúdent.
Snjólaug Sigurjónsdóttir, húsfrú.
Sofía Jónsdóttir, húsfrú.
Ari B. Antonsson, vitavörður.
Lorentz Múller, verzlunarstj.
Guðm. Guðmundsson f. pr., ísafirði.
Sólarupprás kl. 2.21 f. h.
S ó 1 a r 1 a g — 10.41 siðd.
Háflóð í dag kl. 1.52
og í nótt — 2.26
Veðrið í gær:
Vm. logn, hiti 8.6.
Rv. logn, hiti 10.6.
Isaf. logn, regn, hiti 9.0.
Ak. n. kul, regn, hiti 6.5.
Gr. logn, hiti 13.0.
Sf. logn, þoka, hiti 8.1.
Þórsh. F. logn, móða, hiti 11.1.
Rauðmagar voru seldir hór í bæn-
um í gær fyrir 15 aura. Rauðmaga-
afli er hér talsverður og liggur nú
niðri fjöldi neta.
Örsökin til þess að hesturinn fæld-
ist í fyrradag í Hafnarstræti, er oes
sögð sú, að ekið var á hann þar sem
hann stóð fyrir vagninum — bundinn
þó. Er það furðumikið athugaleysi
hjá ökumönnum að aka þannig um
götuna, að þeir sjái ekki hvað fyrir
verður.
Að gefnn tilefni skal þess getið,
að það er misskilningur, ef menn
skilja orð þau, er höfð eru eftir bæjar-
fulltrúa Hannesi Hafliðasyni frá síð-
asta fundi, svo sem hann treysti eng-
um sinna stóttarbræðra til þess að
hafa á hendi hafnarfógeta-
e m b æ 11 i ð hér í bænum. Hann
sagði einungis — og átti það að skilj-
ast á því sem eftir fór — að fyrst í
stað, meðan það hvíldi á þeim manni,
sem tæki að sór umsjón hafnarinnar,
að hafa eftirlit með uppfyllingu allri
og mannnvirjum meðfram höfninni,
þ á treysti hann betur verkfræðingi
en skipstjóra. Þetta lýtur að þv/, að
það er talsvert annað starf, sem hvíl-
ir á umsjónarmanni hafnarinnar fyrsta
árið, heldur en þegar höfnin er full-
ger.
Nýja fánastöng er verið að setja
upp á Stjórnarráðsblettinum. Það
er gert til þess að bæði danski
og íslenzki fáninn geti blaktað þar í
bróðerni.
Goðafoss var á Blönduósi í gær.
ísinn er nú farinn að greiðast frá land-
inu og vona menn að skipið komist
leiðar sinnar.
Gnllfoss lá í Stykkishólmi í gær
og tók þar hesta.
Vélbátnrinn »Óskar« fór hóðan í
gærkveldi áleiðis til Eyrarbakka og
Vestmanneyja. Hafði mikinn flutning
meðferðis.
Fögnuður kvenna.
Það munu flestir hér í bæ hafa
heyrt eða séð það í blöðunum, að
kvenfólkið hér í Reykjavík hefir í
hyggju að minnast atburðar þess, að
íslenzkar konur hafa nú öðlast nokk-
urnveginn jafnrétti við karlmenn í
stjórnmálum, með almennri samkomu
í dag. Þátttakendur í henni eru alt
kvenfólk bæjarins, yngra og eldra.
Það er almennur siður, hvar sem
er í heiminum, að menn fagna stór-
um viðburðum, með sameiginlegu
borðhaldi, samdrykkju og ýmsu
öðru og fer það nokkuð eftir árs-
tíðum. Á sumrin virðist eiga bezt
við að hafa slíkt undir berum
himni, eins og hér er ráðgert. En
svo að eins getur þetta orðið kven-
fólkinu til sóma að það f j ö 1 m e n n i.
Það má enga konu vanta í fyiking-
una frá 6 ára börnum til áttræðra
kvenna. Þetta verður nú samt eng-
in herfyiking, svo karlmönnunum er
alveg óhætt að láta sjá sig við AuSV
urvöll, það mundi meira að segja
gleðja okkur að sjá þá hópast þang-
að til að samgleðjast okkur.
Brynhildur.
Ofriðarsmælki.
Ballin. Ýms frönsk blöð og ensk
höfðu komið með þá staðhæfingu
að Herr Ballin, forstjóri Hamburg-
Ameríka-gufuskipafélagsins væri orð-
inn geðveikur. Þýzkt blað sendi
honum þessi ummæli og svaraði
Ballin á þessa leið:
Eg er yður mjög þakklátur fyrir
að senda mér frönsku blöðin. Þér
kannist við það að einusinni sá Mark
Twain andlátsfregn sína birta i blaði
einu, og simaði þá til ritstjórans og
sagði að fregnin væri mjög orðum
aukin. Hið sama vildi eg segja um
þessa fregn. Að minsta kosti verð
eg að segja það að fregnin er mjög
langt á undan tímanum.
Berchtold greifi, sem áður var
utanríkisráðherra Austurríkis, hefir
gerst óbreyttur sjálfboðaliði í hern-
um og hefir verið kent það að stýra
bifreið. Hann er í her þeim, er
sendur er á móti ítölum.
Ungverska stjórnin hefir lagt hald
á allar þær birgðir af gaddavír, sem
til eru i landinu — bæði seldar og
óseldar. Virinn á að nota handa
hernum.
Goeben. Það er mælt að sundur-
lyndi hafi orðið meðal þýzka flota-
foringjans Souchon og skipstjórans
á Goeben út af hrakförum skipsins
í Svartahafi. Brezk blöð segja að
skipstjórinn hafi verið kallaður til
Þýzkalands.
Foringi frönsku flotamálastjórnar-
innar, Aubert flotaforingi, er nýlát-
inn. Sá maður hefir tekið við starfi
hans er Fouqué de Jonquiéres heitir.
Þingmálafundir.
Á fundi, sem haldinn var í Hafn-
arfirði á mánudagskveldið, var sam-
þykt svolátandi tillaga í stjórnar-"
skrármálinu með 30 atkv. gegn 13:
»Um leið og fundurinn lýsir fullu
trausti á þingmönnum kjördæmisins,
felur hann þeim að ráða fram úr
því, fyrir kjördæmisins hönd, hvern-
ig alþingi skuli taka staðfestingar-
skilyrði stjórnarskrárinnar®.
Á þingmálafundi, sem haldinn var
á Akranesi sama dag, var samþykt
svolátandi tillaga:
»Fundurinn lýsir ánægju sinni
yfir staðfesting stjórnarskrárinnar og
fána og þakkar ráðherra og þeim
mönnum, er unnið hafa að fenginni
lausns þessara. mála. — Jafnframt
álítur fundurinn uppljóstunina á til-
lögum þrímenninganna ósamboðna
þingmönnum þjóðarinnar*.
Samþ. með 20 : 4. Fundur hafði
þá staðið lengi og voru margir farn-
ir. En oss var sagt í síma frá
Akranesi í gær, að tillagan mundi
hafa hlotið þeim mun fleiri atkvæði
hefðu þeir eigi farið áður en hún
var borin upp.
Nýjar bækur.
Skýrsla til stjórnarráðs íslands
0% stjórnar iFiskijélags lslands« frá
erindreka jiskijélaqsins erlendis. Frá
ársbyrjun til júníloka 191J.
Þetta er fróðleg bók. Fyrst og
fremst sýnir hún það að nægilegt
starf er fyrir íslenzkan erindreka í
útlöndum til þess að greiða fyrir
viðskiftum íslendinga og i öðiu lagi
sýnir hún það að margt hefir hr.
Matthías Þórðarson gert á jafnstutt-
um tíma.
Bókinni skiftir höfundurinn í fimm
kafla:
r. Bréf og skýrslur erindreka
Fiskifélagsins erlendis.
2. Erindi til stjórnarvalda.
3. Um viðkomu á íslandi í ferð-
um milli Noregs og Ameríku.
4. Skólaskip, hjálparskip, löggæslu-
skip m. fl.
5. Nokkrir bréfkaflar viðvíkjandi
síldar og fisksölu.
Vér skulum leiða það hjá oss að
rekja efni hvers kafla, en geta þess
aðeins er oss þykir merkilegast.
Er þá það fyrst, að erindrekinn
hefir átt bréfaskifti við norsku Ame-
ríku-línuna um það að hún léti skip
sín koma við hér á íslandi á tveim
ferðum yfir Atlanzhaf, sumarmánuð-
ina júlí—sept., og fengið góðar und-
irtektir. Mætti landinu vera þetta
til mikilla hagsmuna. Þá hefir hann
og komið því vel á veg að Spán-
verjar afnæmu innflutningstoll á ís-
lenzkum saltfiski. Toilur þessi er
hár og íslendingum þá mikil hags-
von væri hann afnuminn. A bréf-
um þeim, sem birt eru i bókinni
um þetta mál, er svo að sjá sem
leyfið muni áreiðanlega fást.
Bæjarbúar!
Gerið svo vel og sjáið sjálfir að
þau steinhús bæjarins sem hafa verið (
máluð með
flall’s Disteraper
bera eins og gull af eir af hinu®-
Til sölu i
Yerzl. Björn Kristjánssofl
og hjá
4 Slippfélaginu, Bvik*
Agætar
Rjúpur
fást hjá
Slátrtl. Snðnr
Sími 211.
Fjórði kaflinn er eigi sízt fr<^”
legur. Erindrekinn hefir leitað npPj
lýsinga um, hvernig það skip þy^11
að vera, er nota mætti hér fyrlf
skólaskip, gæzluskip í landhelgi °%
spítalaskip og björgunarskip fyflí
fiskiflota vorn. Hugmyndin er ág1®1
og hefir erindrekinn fengið lýsiogar
á tveim skipum, sem reyndur mað01
hyggur að nota megi til alls PesSt
i senn. Kostnaðurinn við dtgef
þessara skipa er eigi ákaflega núki
og mundu botnvörpungasektir °°
borgun fyrir bjarganir eflaust
meiri á ári hverju til jafnaðar. "
skólaskip er oss nauðsynlegt að el»
handa nemendum sjómannaskólaoS’
Vonandi er það að erindrekastar,
ið verði ekki látið falla niður,
það getur orðið landinu til ómetíl11
legs hags.
Maðnr slasast.
”** < m°s'
Vinnumaður á Blikastöðum > *
fellssveit slaSaðist allmikið á .*
1
á sunnudaginn. Var hann 9
á ótemju, sem kastaði honeIÝ 4
sér og féll hann með höf0®1 0g
stein. Sár fékk hann allst^rt^(1g.
heilahristing að auk. Gut”1 Qg
ur læknir Claessen var sóttllf
saumaði hann sárið saman-