Morgunblaðið - 27.08.1915, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 27.08.1915, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ 5 Reykið einungis „G. K“ VINDLA. Aðeins ekta frá G. Klingemann & Co., Khöfn. Fást hja kaupmönnnm. Skal þingmönnum i hvorri deild skift í þessar nefndir, og má enginn vera í fleiri nefndum en tveimur, og eigi fleiri en 5 í neinni nefndinni. Hver fastanefnd kýs sér formann og fundarskrifara. Formenn fastanefnda, forseti og fyrri varaforseti skulu skipa eina Defnd. Skal hún ráða vinnubrögð- um allra nefnda i deildinni; heitir sú vinnunefnd; er forseti formaður hennar. Vinnunefndin skal skipa fyrir um fundatima nefndanna og sjá um að þeir rekist ekki á. Hún tekur til í hvaða röð hver fastanefnd skuli vinna að þeim mál- um sem til hennar er visað. Nú þykir nauðsyn til bera, vegna vinnubragða, að hafa mannabýtti í nefndum, lengur eða skemur, og skal vinnunefndin þá hlutast til um, að mannabýttin komist á, þó svo að viðkomandi fastanefndir samþykki. Náist ekki samkomulag, má vinnu- nefnd skjóta ágreiningnum undir úrskurð deildarinnar. Til fastanefndanna getur hvor þingdeild visað þeim þingmálum, sem fyrir þingið eru lögð og þörf þykir að nefnd ihugi, og skal þá vísa hverju máli til sömu fastanefnd- ar í báðum deildum. Það er sam- vinnunefnd, ef samkynja fastanefndir leggja deilda vinnu saman. Heimilt er þó hvorri deild að kjósa lausanefndir til að íhuga ein- stök mál. Hver lausanefnd kýs sér formann og ritara, og skal ritarinn vera framsögumaður........... Nú er borið upp frumvarp eða þingsályktun, sem fer fram á aukin útgjöld úr landssjóði, og er þvi máli vísað í nefnd, og skal þá sú nefnd, ef hún ætlar að mæla með frum- varpinu eða tillögunni, leita álits f]árveitinganefndarinnar um fjárhags- atriðið i málinu; skal fjárveitinga- nefnd í stuttu máli láta uppi álit sitt með eða móti, og skal það álit fylgja nefndarálitinu*. Annað nýmæli er um leynilega atkvæðagreiðslu þingmanna, ef óskað er. — Mun betur vjkið að þessu frv. síðar. Kolera allskæð er nú sagt að ^eysi i efra og neðra Austurríki, ^heimi og sérstaklega i Ungverja- landi. Bókasafn háskólans i Warschau Rússar eigi flutt á burtu með r‘ Og það var lika nær hið eina Setn þeir sþjidu eftir óskemt. Slys. Drengur verður undir hjólum og bíður bana. Það sorglega slys vildi til hér í bænum í fyrrakvöld, að lítifl drengur, Guðmundur Ólafsson að nafni, varð undir hjólum og beið bana af. Sagan til þessa er þannig: í fyrrakveld var unglingspiltur, sem er í búð hjá R. P. Leví kaup- manni, að hjóla um göturnar. Kom hann fyrir hornið hjá Nýja Bíó, en þar voru þá tveir dreugir eitthvað að tuskast. Annar þeirra var Guð- mundur þessi, en hitt var drengur sem er í Smjörhúsinu. í sama bili sem hjólreiðapilturinn kemur fyrir hornið, hlaupa hinir út á götuna og varð þá alt í einni svipan, að hjólin runnu á minni drenginn og féll hann við. Eigi var svo að sjá í fyrstu sem hann hefði meiðst mjög mikið. Var farið með hann inn i búð til Leví og hrestist hann þar talsvert, en kvartaði um að sér væri ilt í höfð- inu. Síðan lagði hann af stað heim- leiðis og fór einn. En eitthvað versnaði honum á leiðinni og er heim kom, var hann mjög máttfar- inn og fékk þá uppköst. Sæmundur Bjarnhéðinsson læknir var sóttur til hans og athugaði hann sjúklinginn. Virtist honum sem hér mundi engin hætta á ferðum. Þetta var klukkan átta. Klukkan ellefu var drengurinn látinn og bar andlát hans furðulega skjótt að. Meira verður ekki um þetta sagt að svo stöddu. Próf voru haldin í málinu i gærdag, en ekkert vitnað- ist um það að hér ætti einn frekar sök að máli en annar. Þetta er slys sem alla getur hent, en ætti að vera alvarleg áminning til unglinga um það, að haga sér gætilega á göt- unum. Setja Þjóðverjar lið á i Finnlandi? > ___ Sú fregn hefir komið frá Finn- landi til »Aftonbladet« sænska, að Rússar búist við því að Þjóðverjar muni setja lið á land i Finnlandi til þess, að hefja þaðan sókn á Petrograd. Rússneska stjórnin hefir þvi sent fyrirskipanir um það til Finnlands að undireins og vart verði við það að óvinahersveitir ætli þar i land, skuli ibúarnir flytja sig austur á bóginn, austur fyrir linuna Kaiana- Willmanstrand. íbúunum er skipað að flytja með sér eins mikið og þeir geta með komist af búshlutum og öðrum eignum sínum, en það sem þeir komast ekki með á að brenna. Ungmetmaféíagar! Samfundur í Bárubúð í kvöld klukkan 9. Dagskrá: Fyrirlestur — Berjaförin — Orðakast — Félagsmál — Skinfaxi o. m. ft. Mætið ekki síðar en kl. Sl/t. Kolakörfur og Ofnskermar nýkomnir til Laura Nielsen, (Joh. Hansens Enke) Austurstræti 1. Sömuleiðis á að brerna hvert ein- asta hús, sem yfirgefið er. Það er ennfremur sagt að Steyn, finski landstjórinn verði sviftur embætti og Morlow, sem nú er aðalstjórnarskrifari, verði settur land- stjóri 1 hans stað. En þau stjórnar- skifti breyta i engu þeim fyrirskip- unum, sem gefnar hafa verið um hitt atriðið. Guíffoss smjörlíkið er langbezt og drýgst. Fæst að eins i Yerzlunin ,Svanur‘ Laugavegi 37. Heynið þadf Friðarumleitanir. Osannur fréttaburður. Eigi alls fyrir löngu barst hingað sú fregn, að Þjóðverjar hefðu boðið Rússum frið með því skilyrði, að Danakonungur gerði upp i milli. — Fregn þessi er komin alla leið frá Petrograd til Giornale d’Italia í Bo- logne, þaðan til »Petit JournaU í Paris og þaðan um alla álfuna. »Berlingske Tidende« segja að enginn flugufótur sé fyrir þessari fregn. Þá hefir og sú fregn verið borin út, að það sé tengdafaðir Rússakeis- ara, stórhertoginn af Hessen, sem eigi að vera milligöngumaður Þjóð- verja og Rússa. Og ýmsar fleiri líkar fregnir hafa komið. Sennileg- ast af öllu er það, að enn hafi Þjóð- verjar og Rússar eigi minst það, sin á milli, að semja frið. Manntjón Ástraliumanna. Það er opinberlega tilkynt að i miðjum þessum mánuði hafi Astralíuherinn mist alls 2782 fallna og x 1.027 særða menn. Til leigu trá 1. október n. k. búðin að norðanverðu i Hafnarstræti 20 og allur kjallarinn undir sama húsi. G. Eiríkss. íbúðarhús eða göð íbúð óskast á leigu 1. október. R. v. á. fXaupsRapur ^ H æ z t verð á ull og prjónatuskum i »Hlff«. Hringið i sima 503. R e i ð h j ó 1 ódýrust og vöndnðast hjá Jóh. Norðfjörð, Bankastrseti 12. Ullartnsknr, prjónaðar og ofnar, keyptar hæzta verði 1 Aðalstræti 18. Björn Huðmnndsson. Ullar-prjónatuskur keyptar hæsta verði gegn peningum eða vörum í Yöruhúsiuu. SjálfboðaliBar frá SuBur-Ameriku. Alls staðar að streyma sjálfboðaliðar heim til Bretlands, en sérstaklega hafa komið margir frá Suður-Ame- riku. Segja brezk blöð að ef þessu haldi þannig áfram, muni innan skams enginn fullþroska Breti finn- ast þar syðra. ^ cTapaó Tóbakspoki týndur milli Hafnarfj. og Reykjavikur. Skilist til Morgunbl. L i t i 1, brúkuð e 1 d a v é 1 óskast keypt. Upplýsingar á Bergstaðastræti 27. Hjólhesta-slöngnr og »dekk« ódýrast á Vitastig 14. Miðsvetrarbær kýr fæst i Kópa- vogi. *ffinna S t ú 1 k a óskast i vist nú þegar til 1. okt., hjá frú Aall-Hansen. Lesið Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.