Morgunblaðið - 26.09.1915, Blaðsíða 1
Sunmidag
26.
sept. 1915
2. árgangr
323.
tölublað
Ritstjórnariími nr. 500
Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen.
ísafoldarprentsmiðja
Afgreiðslnsím' nr. 499
í. S. 1
Knattspyrnukappleikur kl. 4 i dag á Iþróttavellinum.
Tram og Valur Keppa.
Nýja Bfé sýnír: Frá ófriinm mikla
verður haldin
í Iðnaðarmannahúsinu
sunnudaginn 26. og miðvikudaginn 29. sept. kl. 9 siðdegis.
Hugsanalestur — Fimleikar — Handæfingar
Missýningar — Hringæfingar.
Aðgöngumiðar kosta: Beztu sæti 0.75, almenn sæti 0.50, barnasæti 0.50.
Hernaðarmyndir frá Frökkum,
Rússum og Þjóðverjum.
Rin Reykjavtkur Id | fí
D1UJ Biograpk-Tlieater |U IU
Talsími 475.
Morgan & Glarks
Feikna spennandi og áhrifamikil
mynd i 3 þáttum.
Góð og skemtileg mynd jafnt
fyrir yngri sem eldri.
cFœéi og Rúsnœéi
fæst í Kaffi- og Matsöluhúsinu Fjall-
konan, Laugavegi 23.
K. Dahlstedt.
Tryggvi Hjörleifsson
Vonarstræti 2 (niðri)
kennir ensku og dönsku.
Hittist heima kl. 7—S e. m.
K. F. U. M.
Kl. 8»/«: Almenn samkoma.
Allir velkomnir.
Hestar,
bæði vagn- og reiðhestar, verða teknir
á fóður i Holti undir Eyjafjöllum.
Nánari upplýsingar gefa
Lárns Pálsson og Jón þórðarson,
Spitalastíg 6.
Notið eingöngu:
»Nigrinc og »Fuchs<
ágætu skósvertu og
skóáburð í öllum
litum,
Bauer feitisvertu,
Pascha fægiefni,
Kosak ofnsvertu,
Sápuduftið
»Goldperle<, »Schneekönig<
»A« »B« og »BS<.
I heildsölu fyrir kaupmenn, hjá
G., Eiríkss, Reykjavik.
Erl. símfregnir.
Opinber tilkynning
frá brezkn ntanríkisstjórninni
i London.
London 24. sept.
Útdráttur
úr opinberum skýrslum Frakka til 23. sept.
Stórskotahríð er haldið áfram lát-
laust og skotgrafir Þjóðverja, skot-
færabirgðir, matvælabirgðir, hergagna-
flutningur og bjálkahús lagt í auðn
og ónýtt á endilöngu orustusvæð-
inu.
Óvinirnir skutu stórum gaskúlum
á Arras 20. og 23. sept., en stór-
skotalið vort svaraði þeirri skothrið
og olli miklu tjóni á stöðvum Þjóð-
verja.
20. sept. náðum vér stöðvum á
hægri bakka skurðarins mtlli Aisne
og Marne. Óvinirnir gerðu gagn-
áhlaup frá Sapigneul, en voru neydd-
ir til að hörfa undan og skildu eftir
margt fallinna manna og mikið af
sprengjum.
Norðan við Aisne neyddum vér
óvinina til þess að yfirgefa viggirtar
stöðvar.
Eftir ákafa stórskotahríð með smá-
um og stórum sprengikúlum, tund-
urskeytum og sprengjum, af hálfu
Þjóðverja f Champagnehéraði, tók
stórskotalið vort til óspiltra málanna
og framsóknarliði Þjóðverja, sem
ætlaði að komast í gegn um varn-
arlínu vora, var tvístrað.
I Argonnehéraði stóð stórskota-
liðsviðureign og hlutu bjáikahús
Þjóðverja og járnbrautarlestir stór-
skemdir. Vér skutum á stöðvar
Þjóðverja, þar sem vér höfðum
njósnir af að þeir höfðu viðbúnað,
og svaraði stórskotalið þeirra af litl-
um dug.
20. sept. skemdum vér víggirðing-|
ar Þjóðverja í Lothringen og tvístr-
uðum verkaliði þeirra og flutningsliði.
21. sept. beindum vér stórskota-
hrið vorri á vissar stöðvar og hitt-
um mannvit-ki Þjóðverja, þar sem
þeir voru að koma fyrir stórum fall-
byssum, sem þeir ætluðu að hafa
til þess að skjóta á Nancy og Lune-
ville.
í Ban de Sapt-héraði skutum vér
á bjálkahús Þjóðverja og varð af
stórskotaliðsviðureign. Vér bárum
hærra hlut og ollum þeim miklu
tjóni.
Á Meuse-hæðum hitti stórskotalið
vort víggirðingar Þjóðverja og kveikti
í þeim.
í Vogesafjöllum miðar oss tals-
vert áfram í skotgröfunum hjá Hart-
mannsweilerkopf með handsprengju-
hríð og sprengingum.
20. sept. voru flugmeun vorir á
ferli og köstuðu hutidrað sprengi-
kúlum á byggingar Þjóðverja og
skotgrafir hjá járnbrautarmótunum i
Bendsdorf.
21. september skutum vér á her-
mannaskála Þjóðverja i Middelkirk
og á járnbrautarstöðina i Conflanz.
í hefndarskyni fyrir skothrið Þjóð-
verja á borgara í varnarlausum frönsk-
Óvenjulega góðar myndir.
Myndasýningin stendur yfir á
annan klukkutíma og kosta því
aðgöngumiðar 50, 40 og 30 a.
um og enskum borgum, kastaði
frönsk flugsveit sprengikúlum á kon-
ungshöllina i Stuttgart og járnbraut-
arstöðvar þar. Þrátt fyrir skothríð
Þjóðverja komu allar flugvélarnar
heilar á húfi heim aftur.
Flugmenn hafa og kastað sprengi-
kúlum á járnbrautarstöðvar þar sem
Þjóðverjar höfðu hernaðar viðbúnað.
London 24. sept.
Útdráttur
úr opinberum skýrslum Rússa.
Orustunni hjá Eckau lauk með
því, að vér stöktum Þjóðverjum á
flótta og skildu þeir eftir mikið af
skotfærum. Norðan og vestan við
Friedrichstadt tókum vér nokkra
menn höndum og miklu herfangi
náðum vér þar.
í Kalahéraði hefir staðið þrálát og
látlaus orusta ng einnig vestan við
Dwinsk og lenti herjunum þar hvað
eftir annað saman í höggorustu.
Náðum vér þar tveimur Maximbyss-
um og handtókum rúmlega 200
manns. Vestan við Melodetcha og
skamt frá Vilha unnum vér sigur á
Þjóðverjum i byssustingjaorustu og
mistu þeir þar þorpið, tíu vélbyssur,
stóra fallbyssu og skotfæri. Gerð-
um vér siðan hvert áhlaupið á eftir
öðru og flýðu Þjóðverjar undan í
óreglu. Tóku Rússar þar 4 liðsfor-
ingja og 350 hermenn höndum,
náðu 9 vélbyssum, fallbyssum, reið-
hjólum, hestum og símaáhöldum að
herfangi.
Hjá Efri-Niemen standa enn fót-
gönguliðsorustur og verjast Rússar
þar af frábærri hreysti.
Austan við Lida hörfuðu Þjóð-
verjar í skyndi yflr ána.
Norðvestur af Dubno tókum vér
þorp á vestri bakka Ikwa-ár þrátt
fyrir öflugt viðnám Þjóðverja, hand-
tókum þar 28 liðsforingja og 1400
hermenn og náðum þremur Maxim-
byssum.