Morgunblaðið - 14.11.1915, Síða 8

Morgunblaðið - 14.11.1915, Síða 8
MORGUNBLAÐIÐ 8 allir karlmenn farnir til vigvallar- ins. Verð á allri nauðsynjavöru hefir hækkað afskaplega. Smjörpundið kostar nti mrk. 2.55, kjöt 2 mörk pundið og alt er eftir eftir þvi. Fólkið heimtar mat af yfirvöldunum, sem orðin eru ráðalaus. Víða hafa orðið uppþot i borgunum t. d. í Berlín og Chemnitz. Lögreglan varð að skerast í leikinn og taka fjöida kvenna höndum fyrir spellverk. Stærsta hættan biður Þjóðverja — ekki á vígvöllu.ium, heldur í þeirra eigin landi, þar sem ef til vill aldrei verður barist með fallbyssum. Þýzka- land er dauða dæmt. Þannig farast amerikska blaðamanninu orð um á- standið í Þýzkalandi. Með Botniu til NewYork Feröa8aga farþega. Við lögðum af stað frá Rvik 30. sept. siðastl. kl. 7V2 árd. með e. s. »Botnia« frá Bergen, vestur um land til Akureyrar í ágætu veðri. Þeir, sem höfðu tekið sjer far með skip- inu vestur um haf, voru: Ólafur Johnson frá firmanu O. Johnson & Kaaber í Rvik, er hefir skipið á leigu i ferð þessa, Guðmundur Thorsteins- son og Björgólfur Stefánsson. Auk þess voru með skipinu til Akureyrar Matthias Jochumsson skáld með frú og tveir aðrir farþegar. Botnia er vöruflutningaskip, ein- göngu, ber 1600 smál. og gengur 8 mílur á vöku, bygð 1901, er eign útgerðarfélags William Hansen i Bergen. Skipstjórinn, Chr. Christen- sen, á að gizka miðaldra maður, er einkar kurteis í framgöngu, en fá- látur, og hefir ailan hugann á skip- stjórninni. Fyrsti stýrimaður heitir á okkar máli Pjetur Níelsson; kátur og skikkanlegur náungi. Alls eru skipverjar 15, Norðmenn að einum undanteknum, hann er portúgalskur og skilur að eins bendingár. A leiðinni til Akureyrar bar ekki annað til tíðinda en að við sigldum framhjá borgarísjaka á Húnaflóa að morgni 1. okt., stóð hann þar við botn á 60 faðma dýpi, og var sem stór eyja til að sjá er hann bár við land. Sama dag að kvöldi lögðumst við framundan Hanastöðum skamt fyrir utan Akureyri. Var þar tekin sild í skipið næsta dag, síðan farið inn í kaupstaðinn og þar haldið áfram að ferma. Frá Akureyri fórum við 6. okt. að morgni. Höfðu þá alls verið teknar í skipið 3100 tunnuf af síld, er íara átti til New York. Þar bætt- ist við til ferðarinnar Jón Bergsveins- son síldarmatsmaður. Hjer þarf að geta þess, að skip, sem sigla til eða fr4 Bandarikjn Norður-Ameríku, mega ekki flytja farþega nema með ákveðn- um skilyrðum, sem ekki voru fyrir hendi á Botnin. Varð því að skrá- setja okkur alla til ákveðins starfa, var því þannig hagað, að O. fohnson var kaupvörður (supercargo) og G. Thorsteinsson aðstoðarmaðut hans. Jón Bergsveinsson og B. Stefánsson síldarmatsmenn. Eins og allir kannast við sem ferðast hafa á sjó i fámenni, er það heldur tilbreytingalítið líf. — Aðal dægrastytting okkar fjórmenninganna á leiðinni var því að reikna út hve lengi við mundum verða, og fylgd- umst við trúlega með hve mikið okkur skilaði áfram á hverri vöku. A þriðja degi eftir að við fórum fiá Akureyri tók að hvessa, á móti, og því meir sem lengra dró vestur á bóginn; gekk þi lítið með köfl- um og loks kom svo að við sáum að svo búið mátti ekki lengur standa. Það var 11. okt. Var þá slegið á ráðstefnu um hvað gera skyldi, og samþykt að senda einhvern sömu leið og Jónas spámann forðum, ef ske kynni að veðrið batnaði, Var síðan varpað hlutkesti um og dæmd- ist annar síldarmaðurinn til ferðar- innar. Nú stóð svo á að hann hafði meðferðis whisky-flösku og vildi gjainan tæma hana í félagi við þá sem eftir ætluðu að verða. Var því ekkert til fyrirstöðu. Lögðu síðan fleiri til samskonar vöru og dróst timinn, en er farið var að líta til veðurs, var komið logn og sjór að siéttast, svo þarflaust var að halda lengra með Jónasar hugmynditia. Eftir það fengum við sæmilegt veð- ur, og sáum New Foundland eftir 9 daga ferð frá Akureyri. Að eins eitt skip urðum við við var'r við á þeirri leið, en úr því fór að sjást meira til skipaferða. Einnig sáum við fjölda af fiskibát- um með ströndinni viðsvegar. Það sem eftir var leiðarinnar fengum við ágætt veður, en oftast dimma þoku. Tafði hún okkur að mun og var stundum skamt til að hún bindi enda á ferðalagið, því tvisvar er mælt var, vorum við, í annað skiftið á 10, en hitt á 3 faðma dýpi. Samt gekk alt slysalaust og komum við til New- York 20. okt. að kveldi. Höfðum við þá farið rúmar 2640 mílur á 14 og hálfum sólarhring. Lögðumst fyrir akkeri utan við hafnarmynnið, og næsta morgun héldum við inn og tók það fulla 2 tíma að komast gegn um skipastólinn á höfninni með því að ekki sá spönn frá borði fyrir þoku, en fjcldi mikill af alls- konar fargögnum alt umhverfis, og þurfti mikla varkárni til að komast hjá árekstri. Bæði kvöldið áður og á leiðinni inn um morguninn feng- um við heimsóknir af ýmiskonar eftirlitsmönnum, svo sem hafnar- verði, lækni, tollgæzlumanni o. fl. Voru þeir allir hinir kurteisustu, gáfu okkur ný blöð og fóru svo leiðar sinnai. Er við höfðum lagst á innri höín- inni, fóru þeir í land O. Johnson og skipstjórir.n. Skömmu síðar kom heilmikill skemtibátur út til okkar. Var þar á maður sá, sem keypt hafði síldina, er við höfðum meó- ferðis, og með honum um 20 aðrir Ameríkanar, blaðamenn og járnbraut- arfélagsformenn frá félagi því, er ætlaði að flytja tunnurnar til Chica- go, (því þangað áttu þær að fara). Þeir skoðuðu í nokkrar sildartunn- ur, fengu sér bita, og létu vel yfir. Síðan settu þeir Jón til að gæta farmsins, en tóku okkur tvo (G. Th. og B. S.) í land með sér, en ekki var haldið beinustu leið, heldur siglt fram og aftur i fulla 3 klt. Var þá þokunni létt, svo við fengum ágætt yfirlit yfir höfnina og nokkurn hluta borgarinnar. Veittu þeir óspart all- an tímann, bæði mat og drykk, og voru kátir mjög. Fanst okkur lönd- unum í fyrstu nóg um háreysti þeirra og gleðiurag, en svo fór, að við sáum að bezt mundi að taka upp sömu siði, enda gerðu þeir alt til að þóknast okkur og voru hinir vingjarnlegustu í hvívetna. Við kendum þeim að segja skál! já, nei, og eitthvað fleira, og sögðum þeim sitt af hverju, er þá langaði að vita um ísland. Þegar í land var komið fylgdist einn þeirra með okkur til Hotel Astor, þar tókum við okkur aðset- ur. Hinir tvístruðust víðsvegar, nokkrir þeirra heimsóttu okkur svo síðar um kvöldið og endurnýjuðu kunningsskapinn. í New York vorum við aðeins 7 daga og höfðum ærið að starfa við vörukaup og því um líkt. Var því ekki annar tími til að líta í kring um sig og kynnast borgarlífinu en einn sunnudagur og kvöldin, eftir vinnutíma. Fórum við þá i ýms leikhús og skemtistaði, eftir því sem verkast vildi. Fimm borgir, sem voru sameinaðar laust fyrir síðustu aldamót, mynda New York eins og hún er nú, og er fólksfjöldi alls um sjö miljónir. Amerikanar kalla hana stærstu borg heims- ins; má vel vera að svo sé, að minsla kosti eru þar stærstar bygg- ingar i heimi. Woolworth bygging- in er hæzt 792 fet frá jafnsléttu 913 fet frá neðsta gólfi, 60 hæðir, vinna þar daglega um 10 þús- und manns; þangað er mikill straumur ferðamanna og þeirra er vilja fá gott útsýni yflr borgina Getnr maður farið þar upp á þak i lyftivél fyrir hálfan dollar og litast það- an um eftir vild. Við vorum þar 27. okt, og sáum i bók sem heim- sækjendur rita nöfn sín i, að þar höfðu komið yfir 72 þús. manns frá siðasta nýári, má af því sjá að húseigandi hefir allgóðar aukatekjur af að selja útsýni. Fjöldi mikill er þar annara stórhýsa, ýmiskonar mannvirkja má t. d. nefna aðal-járn- brautarstöðina »The Grand Central Terminak tekur yfir margar götur uppi á jafnsléttu en er þó meiri partur neðanjarðar og nær 45 fet í jörð niður. Þar koma og fara alt að 200 lestir með um 70 þús. far- þega á klst. ---------«»-5» ------- Epli, Appelsínur, Vinber, Bananar, nýkomið til Jes Zimsen. Morg'unblaðiö er bezt. $ Æaupsíiapur | Matvara flest er seld i Berg- staðastræti 2 7, svo sem: Kaffi, syk- nr, kex, kókó, hveiti, haframjöl, grjón, rnsinnr, svesbjur og snkkulade (6 tegnndi). Vikingmjólk, margarine, sætsaft, gosdrykk- ir. Ennfremnr ern bakariisbranð b e z t og ódýrust i Bergstaðastræti 27. 5 »Emdeu«-gæsir (1 steggnr) af verðlannnðn kyni, ern til söln nú þegar. R. v. á. Piðnr til söln á Skólavörðustig 41, hjá Páli Bergssyni. Morgnnkjólar, mikið úrval, fæst á Vestnrgötn 38 niðri. Lítið, vaudað hús, með stórri lóð, i Anstnrbænnm, fæst keypt. Ritstj. v. á. B a 11 k j ó 11, úr silki, er til söln með tækifærisverði. R. v. á. Stórt úrval af yflrfrökkum mjög ódýrnm, í Bergstaðastræti 33 B, og margt fleira. L i t i 11 0 f n, brúkaður, óskast til kaups strax. R. v. á. ^ j&iga P 0 r t fæst til leigu við Hafnarstræti R. v. á. Einhleypur maður óskar eftir her- bergi, helzt litlu. R. v. á. G-ott herbergi með húsgögnnm er ódýrt til l=ign fyrir 2 karlmenn, sem vilja búa saman. Bergstaðastræti 1. ^ ^finna Barngóð s t ú 1 k a óskast i vist nú þegar. Uppl. Bræðraborgarstig lð. cKapaó B u d d a týndist i gær á leiðinni frá KjötbúO Sláturfélagsins i Hafnarstræti að PÓ8thúsinn. Skilist gegn fnndarlannnm í Túngötn 2, nppi. Tapart hefir keðja með tönnnm innan i. R. v. á. Bezt að auglýsa í Morgunbl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.