Morgunblaðið - 22.11.1915, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
Kjötbúðin í Ingólfshvoli.
Nýkomið með Islandi:
Gulrætur, Rauðkál, Hvítkál, Blómkál, Ptirrur, Selleri, Citrónur, Epli,
Vínber og allskonar niðursoðnir ávextir.
Ennfremur fæst: Reyktur Lax, reyktur Áll, reykt Bornliolmersíld
og Kryddsíld, Ostar o. fl. o. fl.
M. Frederiksen.
Bann.
Hérmeð auglýsist, að öllum er bannað að taka sand í
Skólavörðuholtinu.
Bæjarstjórnin mun sjálí láta taka þar upp steypusand og
verður hann seldur að svo miklu leyti, sem bærinn þarf ekki
sjálfur á honum að halda.
Borgarstjórinn i Reykjavík 20. nóvember 1915.
K. Zimsen.
Carr’s
enska kex og kökur
er ljómandi;'fyrirtak I
Fæst hjá kaupmönnum.
Hvert brjú, sem getur gengið
i Sjúkrasamlag Reykjavikur, ætti,
sjálfs sin vegna, að ganga i það sem
allra fyrst.
og nautakjöt, saxað kjðt
og kjðtfars
fæst í
Kjötbúðinni í Ingólfshvoli.
M. Frederiksen.
Saumur.
Eins og undanfarió tek eg að mér
allskonar saum
svo sem peysuföt, morgunkjóla
barnaföt o. fl.
Ragnhildur Magnúsdóttir,
Bergstaðastræti 52.
Hestur óskast til fóðurs. Snú-
ið yður sem fyrst til undirritaðs.
Guðjón Jónsson,
Frakkastig 19, uppi.
Nokkrir morgunkjólar fást i
Grjótagötu 14 (uppi). Til sýuis og söln
kl. 2—4.
Morgunkjólar beztir, ódýrastir og
smekklegastir fást á Vesturgötu 38 (niðri).
Flaueliskjóll til sölu. R. v. á.
^ dFfméié ^
S v i p a fundin. Vitjist á Vitastig 8.
^ cTapaé
B u d d a töpuð frá Söluturninum að
Confectbúðinni. Skiliss á afgr.
.,Dannebrog“ í Belgin.
í her Belga berjast nokkrir Danir
sem sjálfboðaliSar. Einum þeirra var
n/lega sent danskt flagg heiman aS.
ÞaS batt hann á byssustinginn sinn
og veifaSi meS því til óvinanna, sem
lágu í skotgröfum rótt þar hjá. Undr-
un hans var mikil, er hann heyrSi
kallaS til sín á dönsku: »Hver ert þú,
sem veifar dönsku flaggi?« MaSurinn
sem kallaSi var danskur sjálfboSaliSi í
her ÞjóSverja og má þaS undarlegt
heita aS þeir skyldu hittast þannig.
Og enn undarlegra aS hugsa til þess,
aS þeir, samlandarnir, skuli berjast
hvor á móti öSrum — og þaS fyrlr
ahrar þjóSir.
£3» DAÖBÓÞfíN. -CZZZt
Afmæli f dag:
María Ásmundsson húsfrú.
Einar Kr. AuSunsson prentari 50 ára.
O. Forberg ritsímastj.
FriSrik Bjarnason 50 ára.
Þorv. Magnússon póstur.
Friðfinnur Guðjónsson L a u g a
v e g 4 3 B, selur fjölbreytt og smekk-
leg a f m æ 1 i s k o r t.
Sólarupprás kl. 9.18 f. h.
S ó 1 a r 1 a g — 3.7 e. h.
Háflóð i dag kl. 5.39
og í nótt kl. 5.57
Veðrið í gær.
Sunnudaginn 21. nóv.
Vm. v. stinnings gola, hiti 7.3.
Rv. s.a. stinnings gola, hiti 8.5.
íf. 8. snarpur vindur, hiti 7.1.
Ak. s. stinnings gola, hiti 10.5.
Gr. s. stinnings gola, hiti 6.0.
Sf. logn, hiti 4.1.
Þh. F. s.v. snarpur vindur, hiti 7.7.
Ingólfnr fer til GarSs og kemur
þaSan aftur.
Silfnrbrúðkaup eiga í dag þau heiS-
urshjónin Sæmundur Halldórsson kaup-
maSur í Stykkishólmi og frú hans
Magdalena f. Hjaltalín.
50 ára er i dag FriSrik Bjarnason
verzlunarmaSur hjá Zimsen.
Aukafundur verSur haldinn í bæjar-
stjórninni í þessari viku til þess aS
afkljá fjárhagsáætlun bæjarins. Hún
hefir nú veriS til 1. umræSu og fyrri
hluta annarar umræSu í bæjarstjórn-
inni og engar verulegar athugasemdir
komiS fram viS hana ennþá, enda mun
hún gætilega samin.
Flora fór frá Bíldudal um hádegi í
fyrradag. Er væntanleg hingaS í
fyrstalagi á þriSjudag.
Heyrt höfum vér aS margir menn
hafi þegar sótt um þaS aS fá aS hafa
lifrarbræSslu í Fossvogi. Hrósar auS-
vitaS happi sá er hl/tur — en komast
allir þar aS?
Fyrirlestur Bjarna Jónssonar frá
Vogi í ISnó í gær, var vel sóttur. —
GerSu menn yfirleitt góSan róm aS
máli hans.
Leikhúsið. Kúsfyllir hefir veriS í
ISnó bæSi kvöldin, sem »Skipi3 sekk-
ur« hefir veriS leikiS. Hefir áheyr-
endum þótt mikiS til leikritsins koma
og þykir þaS yfirleitt betur leikiS en
í fyrra skiftiS þegar þaS var s/nt hór
í bæ.
Filurius greyiS var allskonar óværS
þjáSur í gær vegna greinar sinnar í
MorgunblaSinu. Streymdi aS honum
allskonar þjóSalíSur meS ó i fyrir fram-
an og þóttist eiga hönk upp í bakiS á
honum. En sagt er oss aS sættir hafi
komist á meS því, aS hann hafi aug-
l/st orS sín dauS og ómerk — þó ekki
í MorgunblaSinu.
»Skipið sekkur«, leikrit IndriSa
Einarssonar, þaS er hann sjálfur hefir
útbúiS fyrir leiksviS, hefir nú veriS
leikiS í tvö kvöld. ÞaS er almanna-
rómur, aS IndriSa takist betur aS hafa
áhrif á menn meS smekkvísi sinni á
því, hvaS vel má fara á leiksviSi, held-
ur en efnL leikritanna, þótt ólastaS só.
Skautasvell Skautafélagsins hefir
löngum þótt hált. Enda fer nú svo
um hiS fyrsta á þessu ári, aS þaS fór
til------— engis — því lofthitinn,
sem nú er, bræddi þaS algerlega.
Sumir segja, að Skautafélagið ætli aS
^ díaupsfiapuT \
Frímerki,
erlend og islenzk
kaupir ætið
J. Aall-Hansen.
éZrœnar Baunir
trá Beauvals
erw Ijúffengastar.
Nfðnrsoðíð kjöt
frá Beauvais
þykir bezt á ferðalagi.
flytja á land — því trúum vór ekki.
Drottinn þekkir sína — SkautafólagiS
sem aðra — og gefur því vonandi gott
svell »hægra megln« á tjörninni frá
herfræSislegu sjónarmiði séS. En hjart-
aS er ætíð róttu megin.
Vesla kom hingaS í gær meS koi
handa iandsstjórninni. Með skipinu
kom Sigurjón Pótursson kaupm.
Bankabyggingin. Hún hefir veriS
í viðgerð undanfarnar vikur og mun
eiga að geyma þar iandssjóðsvörur þær,
sem frá Ameríku komu. Er það ei
lítið gamansamt, að þarna skull eiga
að geyma landssjóSshveitið, þar sem
allir vita, að kaupmenn hafa aldrel
haft meiri matvörubirgðir en nú.
Tjörnin. ÞaS er meira en lítil skömm
að sjá hvernig farið er með Tjörnina.
Nú er ísinn horfinn á henni, og hefir
fólk, sem b/r þar í grend, notaS hana
til þess að kasta þangað /msu drasli,
sem þaS vildi losna við. Þeir, sem nú
ganga Tjarnargötu, geta sóS nokkra
tóma kassa, sem kastað hefir verið í
Tjörnina. Ennfremur úir þar og grúir
af tómum dósum, og /msu öðru drasli,
sem húsráðendur vilja iosa slg við. En
hvílík smán og svívirSing er ekki að
kasta þessu í tjörnina — eina fagra
staðinn, sem til er í þessum bæ. Hve-
nær skilst yfirvöldunum aS bæjarbúar
geta ekki þolað, að Tjörnin sé eyði-
ögð — af tómri vanrækslu.
Oeirðir í Þýzkalandi.
Mikið er nú farið að brydda á
óánægju meðal Þjóðverja heima fyr-
ir. Er einkum mikið ritað um það
i erlendum blöðum, að fólk svelti
þar í þúsundatali. Verð á allri nauð-
synjavöru er afskaplega hátt, svo
hátt, að fátækara fólkið getur ekki
keypt hana.
Víða hafa orðið óeirðir miklar í
stórborgunum, einkum Berlin og
Köln. Þar gengu nýlega þúsundir
manna um strætin og að húsi borg-
arstjórans og heimtuðu »mat, mat,
ekkert annað en mat<. Varð lög-
regluliðið að skerast i leikinn og
var fjöldi manna tekinn fastur.