Morgunblaðið - 06.01.1916, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 06.01.1916, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ viðurkent um alian heim sem bezta kex er fæst. í heildsölu fyrir kaupmenn, hjá G. Eirikss, Reykjavík. Einkasali fyrir ísland. Tilboð óskast um akstur á alt að 50 tonnum af koksi frá Gasstoðinni til Hafnarfjarðar, bráðlega. Tilboð merkt Akstur sendist á afgreiðslu blaðsins. Verzlunarþjónn. Piltur 14—18 ára, helzt vanur afgreiðslu í búð, getur fengið stöðu frá 15. þ. m. við verzlun í Hafnarfirði. Eiginhandarnmsóknir, ásamt meðmælum, mrk. »Verzlunaratvinna í Hafnarfirði*, sendist afgreiðslu Morgunblaðsins í Hafnarfirði fyrir 10. þessa mánaðar. Munið að ganga í Sjúkrasam- lag Reykjavikur. Snúið yður til lækn- anna, sem gefa allar nauðsynl. upp- lýsingar um það og skoða innsæk- jendur. Vanur pakkhúsmaður óskar eftir fastri stöðu frá i. janúar. Agæt meðmæli til sýnis. Ritstj. vísar á. L'OGMBNN Sveinn BjOrnsson yfirdJöntn. Frfklrkjuveg 19 (Staíastað). Sfmi 202. Skrifstofutími kl. io—2 og 4—6 Sjálfnr við k.l. 11—12 og 4—6. Eggert Claessen, yfirrénarmáía- flutningsmaður Pósthússtr. 17 Vsnjulsga hsima 10—11 og 4—5. Simi 18 .íón Asbjðrnsson yfird lögm Hverfisgötu 45 (hús Matth. Einars- sonar læknis, uppi). Sími 435. Heima kl. 1—2 og 5—6 síðd. Guðm. Olafsson yfirdómslögm. - Miðstr. 8. Sími 488. Heima kl. 6—8. Skúli Thoroddsen alþm. og Skúli S. Thoroddsen yfirréttarmálaflutningsmaður, Vonarstræti 12. Viðtalstimi kl. 10 —11 f. h. og 5—6 e. h. Hittastá helgidögum kl. 6—8 e. h. Simi 278. tbúð Góða 5—6 herbergja íbúð, annaðhvort i húsi með öðrum eða sér- stakt hús vantar mig frá 14. maí næstk. Carí Tittsen. Alt sem að grefnun lýtur: Likkistnr og Líkklæði bezt hjá Matthíasi Matthíassyni. Þeir, sem kaupa hjá honum kistuna fá skrautábreiðu lánaða ókeypis. Sími 497. VÁTÍ? YGÖIN© AH Vátryggið tafarlaust gegn eldi, vörur og húsmuni hjá The Brithish Dominion General Insurance Co. Ltd. Aðalumboðsm. G. Gíslason. Brunatryggingar, sjó- og stríðsYátryggingar. O. Johnson & Kaaber. A. V. Tulinius Miðstræti 6, Talsími 254. Brunatrygging —. Sæábyrgð. Strí ðs vatry ggln g. Skrifstofutími 10—11 og 12—3. Deí kgl ocír. Brandassorance Co. Kaupmannahöfn vátryggir: hus, húsgðgn, alls- konar vöruforða o. s. frv. gego eldsvoða fyrir lægsta iðgjald. Heimakl. 8—12 f. h. og 2—8 e. h í Austurstr. 1 (Búð L. Nieisen). N. B. Nielsen. Carl Finsen Laugaveg 37, (nppi) Brunatryggingar. Heima 6 —7 Ví- Talsími 331. Geysir Export-kaffi er bezt. Aðalumboðsmenn: 0. Johnson & Kaaber, Morgunblaöið er bezt. Angela. Eftir Georgie Sheldon. 1. k a p í t u 1 i. 4 (Framh.) Honum sýndist hún jafnvel yndis- legri i þessum búningi heldur en þegar hann sá hana í fyrsta sinni í þykku ullarkápunni og með brúna ullarhattinn. Hann tók eftir því hvað allir sjúklingarnir glöddust er hún gekk á milli þeirra og útbýtti blómum þeim, sem á hverjum morgni voru send frá gróðrarstöðinni til sjúklinganna. — Hún virðist vera vel hraust, tók hjúkrunarkonan til máls. Mig furðar oft hvað hún er styrk. Eg játa að hún lítur veiklulega út, en alt um það er orka hennar undra- verð og hún kemst af með minni svefn en nokkur önnur hjúkrunar- kona er eg hefi þekt. Hún er mjög reglusöm og iðkar ýmsar líkams- æfingar og íþróttir daglega. Flestar hjúkrnnarkonurnar kvarta yfir því að þær fái ekki nógan svefn eÖa hvíld, og eru stúrnar og sljóar þegar þær eru kallaðar til verka, en ungfrú Howland er siglöð og fjörug. Hún segir að það sé af því að hún flýti sér í svefn á kveldin, og forðist að eyða tímanum er hún á að hvílast i óþarfar viðræður. Hennar eina takmark virðist vera að stunda starf sitt og taka framförum i því, og á þvi er enginn efi að hún verður óviðjafnanleg hjúkrunarkona ef — — Ef hvað ? spurði forstöðumaður- inn forvitnislega, er hjúkrunarkonan hætti talinu svo skyndilega.-------- — Ef einhver finnur hana ekki áður langt liður og giftist henni og tekur hana svo frá okkur, svaraði hjúkr- unarkonan gletnislega. Hún er svo frið sínum og skynsöm að menn hljóta að dást að henni. Ungu læknarnir gefa henni allir hýrt auga, en hún lætur sem hún sjái þá ekki. — Það er svo, og rétt er nú það, sagði forstöðumaðurinn hlæjandi. Það hefði jafnvel mátt saka hann um hið sama, því hann gat varla haft augun annarsstaðar en þar sem ungfrú Howland var. — Já, næstum afundin og frá- hrindandi, hélt hjúkrunarkonan áfram. En bíðum við, sá útvaldi mun koma er minst varir og þá flýgur hún á braut á vængjum vindanna, því er þannig farið með alla slíka dýrgripi. Forstöðumaðurinn gat ekki að sér gert að brosa að þessum spádómi hjúkrunarkonunnar. — Það gleður mig að þér eruð ánægð með hana, sagði hann og fór siðan sína leið að gegna öðrum störfum, en Salome Howland gleymdist — að minsta kosti um tíma. 2. k a p í t u 1 i. Það var í öndverðum janúarmán- uði. Hræðilegt illveður hafði geis- að nærfelt í viku, en nú var komið stilt veður og kaldi. Það bar til seint um kvöld að ungur maður beiddist gistingar í gistihúsi nokkru í Boston og skrif- aði nafn sitt í gestaskrána: Truman H. Winthrop M. D. frá New-York. Hann var á að gizka luttugu og fimm ára gamall, hár og þrekinn og herðibreiður og manna bezt á fót kominn. Ennið var fagurt og hátt, hárið mikið og hrokkið, jarpt að lit. Andlitið slétt og frítt, augun blá og snör og lágu djúpt og báru vott um glöggskygni og skarpa dóm- greind. Nefið var nær því beint, svipfrítt og ekki þunt. Hann var hinn tígulegasti i allri framkomu og hinn prúðmannlegasti í hvívetna. Svipur hans og látbragð lýsti góð- vild og blíðu, samfara óbilandi þreki, staðfestu og einurð. — Getið þér leigt mér þægilegt herbergi? spurði hann skrifarann, er hann hafði skráð nafn sitt í gestaskrána. Skrifarinn kvað þar svo margt gesta, að öll hin betri herbergi væru þegar bygð. Aðeins eitt litið her- bergi á miðlofti hússins gæti hann fengið. — Það er svo, tautaði ungi lækn- irinn hálf vandræðalegur á svipinn- Hvernig er það hitað, spurði hann eftir augnabliks umhugsun. — Með ofni, svaraði skrifarinn Það var áður notað til geymslu, en þegar gistihúsið var endurbætt fyPr nokkrum árum og bætt hér inD miðstöðvarhitun var ekki leidd gnfa i það. — Nú jæja, ef það er hið bezta sem þér hafið til, þá neyðist eg að nota það eina nótt. Eg get ekki verið að rölta hér um borginfl 1 þessum kulda til að leita eftir öðrUj -sagði gesturinn hálf þreytulega. — Eg hygg að á morgun flet| eg leigt yður betra herbergi, skrifarinn ennfremur, því sunair gestum vorum fara þá.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.