Morgunblaðið - 30.07.1916, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Bárufélagið i Garði hefir til sölu
360 skpd. af verkuðum
þorski f i
r ,Z°g
190 skpd. af smáfiski og
ýsu.
Tilboð sendist undirrituðum fyrir
5. ágúst næstkomandi.
Bakkakoti i Leiru, 25. júlí 1916.
Eiríkur Torfason.
Slysið í Soginu.
í gær barst'hingað sú fregn aust-
an úr Sogi, að lík Einars Guðjóns-
sonar hefði fundist, skamt frá
Úlfljótsvatninu. Var þegar send bif-
reið austur til þess að sækja likið
og var komið með það hingað seint
í gærkvöld.
tSS59 DA0BÖF[IN. C=9
Afmæli í dag:
Helga Claessen, húsfrú
Jósefina Hobbs, húsfrú
Vigdís Ketilsdóttir, húsfrú
Baldur Sveinsson, skólastjóri Isafirði.
Magnús Guðmundsson stúdent 20 ára.
•
Sólarupprás kl. 3.29
Sólarlag — 9.36
Háflóð í dag kl. 5.30 f. h.
og í nótt kl. 5.48 e. h.
Veðrið í gær:
Laugardaginn 29. júlí.
Vm. logn, hiti 8.6
B.v. logn, hiti 9.3
ísaf. logn, hiti 8.3
Ak. logn, hid 11.0
Gr. logn, hiti 11.5
Sf. logn, hiti 10.3
3?h.F. v.s.v. stinnings gola, regn,hiti 11.9
Bögglapóststofan. Nú kemur ís-
land hingað í dag árdegis. Ef að vanda
lætur, fær maður ekki bögglapóstinn
afhentan fyr en á morgun — rúmum
sólarhring eftir að skipið kemur. Sam-
göngurnar eru ekki góðar eins og all-
ir vita, og það er hart að þurfa að
Wða eftir blöðum sínum heilan sólar-
hring, eftir að þau koma loksins hingað.
Póststjórnin ætti að geta þekt úr þá
bögglana sem blöð eru í og það ætti
ekki að vera neitt þrekvirki að afgreiða
þann bögglapóst í dag. Og menn
mundu kunna póststjórninni góða þökk
á því ef hún gerði þetta.
ísland kom til Vestmannaeyja f gær
og er væntanlegt hingað snemma í dag.
Kalknámufnndur var haldlnn 27.
þ. m. í húsi K. F. U. M. kl. 8. e. h.
Dan. Daníelsson setti fundinn og stakk
npp á yfirdómslögmanni L. Fjeldsted,
«em fundarstjóra og var hann kosinn
einu hijóði. Á fundinum mœttu um
30 af þelm, sem fó höfðu heitið til
rannsóknarinnar.
Fundurinn ákvað að stofna þá þeg-
ar fólag og byrja sem fyrst að rann-
saka námuna í Esjunni. Kosin var 5
manna stjórn, sem semja skyldu upp-
kast til laga fyrir fólagið og ennfrem-
ur semja við námueigandann um rótt
til rannsókna á námunni o. s. frv.
í stjórn voru kosnir: Lárus Fjeld-
sted, Dan. Daníelsson, Guðm. Breið-
fjörð, Magnús Tn. S. Blöndahl og Einar
Erlendsson.
Finnist einhverjir, sem áhuga hafa
fyrir þessu þarfa fyrirtæki og vilji þar
af leiðandi ieggja fram fé til þess, geta
þeir það með því að snúa sér til ein-
hvers úr stjórninni.
Oddfeliowar fóru saman skemtiför
í gær upp í Rauðhóla.
---------------------
Verzlunarsfaðfr
t %
Æfður verzlunarmaður sem er vel að sér í bókfærzlu og útlen^10
bréfaviðskiftum, sérstaklega þarf hann að kunna ensku, getur fengiú ví
anlega stöðu sem prókúristi við stærri verzlun hér í bænum, fri *•
eða fyr.
Reglusamir’og að öllu Ieyti áreiðanlegir lysthafendur sendi uffisúk0
sinar ásamt meðmælum og tiltaki hverra launa þeir krefjast, til ritstj1^
þessa blaðs fyrir 12. ágúst n. k., merkt »Trúnaðarstaða«.
Meö e.s. Islandi
koma birg-ðir at Cylinderolíu.
Æfintýramaður.
Hið íslenzka steinolíuhlutafél^’
Fyrir nokkru kom norskur sjómað-
ur á skipi til Hafnarfjarðar. Skömmu
eftir komu hans þangað veiktist hanu
af misiingum og var fluttur á Landa-
kotsspítala, að tilhlutun norska kon-
súlsins hér. Þegar hann kom þaðan
aftur heill heilsu og fór til staðar þess,
þar sem föt hans voru geymd, kom í
ljós, að kunningi hans, annar Norð-
maður af sama skipi, hafði stolið öll-
um fötunum. Yfir þessu kvartaði
hann við norska konsúlinn og tjáði
honum, að þetta væri í fjórða sinni á
16 mánuðurn, sem hann misti aleigu
sína. Sagði hann konsúlnum þá eftir-
farandi sögu. —
Eg var á ensku flutningaskipi. Þyzk-
ur kafbátur náði í það og sökti því.
Við fórum allir í bátana, en að eins
4 okkar komust iífs af. Fötin mín
og 18 sterlingpund í gulli, aleigan,
sökk með skipinu.
Þegar eg kom á land, róð eg mig á
annað brezkt skip. Því var einnig
sökt, en okkur var öllum bjargað.
Þó mistum við allir föt okkar og eig-
ur. Það var í annað sinn, sem eg
misti aleigu mína.
Enn einu sinni róðst eg á skip,
þetta sinn á rússneskt skip, sem fór
hlaðið skotfærum frá Bretlandi til
Arkangel. Þegar við áttum skamt
eftir ófarið tii ákvörðunarstaðarins,
kom þýzkur kafbátur þar að, skipaði
oss í bátana, og sprengdi síðan skipið
og öll skotfærin í loft upp. Var það
ógleymanleg sjón að sjá, er skipið
sprakk í þúsund mola. Rússneskur
tundurbátur futti oss til lands, en þaj
var eg undir eins tekinn fyrir þýzkan
njósnarmann, og var settur í varðhald.
Varð eg að dúsa þar í 6 daga og fékk
ekkert nema vat.n og brauð. Loks
komst eg þó eftir mikla erfiðleika í
samband við norska ræðismanninn, sem
fókk mig lausan, en þó með þeim skii-
yrðum, að eg færi burt úr Rússlandi
innan 24 stunda. Til allrar hamingju
komst eg á norskt skip, sem þaðan
fór um það leyti — og feginn varð
eg. — Mér finst sem eg hafi verið í
ófriðnum, þótt aldrei hafi eg á víg-
völlinn komið. Eg hefi 4 sinnum
mist aleigu mína, og þó hún hafi ekki
altónd. verið mikil, metin til fjár, þá
er það nógu bagalegt samt.
— Þessi ungi Norðmaður er að eins
20 ára. Hann er nú á síldveiðum
fyrir Norðurlandi. Vonandi missir
hann ekki fötin sín í fimta skiftið.
--------------------------------
Cinn íiíiíí Batur ocj aiít fj&Sr^
mannqfar ósRasf Reypt nú þegar.
c71. v.
Skólastjórastaðan
: við kvöldskóla Iðnaðarmannafélags ísfirðinga er laus. ,
Föst laun®5Jo kr. yfir kenslutímabilið, 15. okt. til 15. aprn. ^
4 stundir á dag. , f>
Umsóknir ásamt meðmælum sendist formanni skólanefndarin°ar'
Helga Sigurgeirssyni fyrir 31. ágúst þ. á.
ísafirði 28. júll 1916.
Skólanefn<lin'
Herbergi
2 góð herbergi, helzt með að-
gangi að baði, óskast nú þegar.
R. v. á.
Munið að bezt er að aug-
| lýsa í Morgunblaðinu.|
íslenzk og útlend
frímerki
kaupir alt af J. Aall'H9*! 2g,
Þingholtsstf*0
cFunóið___i
F n h d í s't hefir reghkáp®