Morgunblaðið - 07.08.1916, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
=9 DA0BÖE[IN. C=sn
Afmæli í dag:
Agústa Þorsteinsdóttir, húsfrú
Guðm. Guðmundsson, bókb.
Halldór Þórðarson, bókb.
Niels Jósefsson, bakari
Yilhj. Gíslason, skipstj.
Eytt Armada-flota árið 1588.
Sólarupprás kl. 3.55
S ó 1 a r 1 a g — 9.8
Háflóð í dag kl. 10.39 f. h.
og kl. 11.23 e. h.
Þinglýsingar.
27. júlí.
1. H.f.- P. J. Thorsteinsson & Co. í
Likv. selur 12. maí s. 1. firmanu
Nathan & Olsen húseignirnar nr.
16 við Austurstræti og nr. 11 við
Pósthússtræti.
2. Böðvar Gislason selur 23. f. m.
Jóni Guðmundssyni húseignina nr.
32 a við Laugav.
3. Sesselja Guðmundsdóttir selur 30.
f. m. Kristjáni Möller l[2 húseign-
ina nr. 10 við Ingólfsstr.
4. Elín Erlendsdóttir seiur 5. maí s.
1. Kolbeini Þorsteinssyni 105 □
al. lóð við Vatnsstíg.
5. Einar J. Pálsson selur 8. þ. m.
Magnúsi Benjamínssyni. o. fl. J/4
úr húsinu nr. 4 við Norðurstíg.
3. ágúst.
1. Báðherra íslands f. h. landssjóðs
selur 28. f. m. Gunnari Gunnars-
syni kaupm. 1258,8 □ ál. lóð við
Hverfisg. (úr Aruarhóltstúni).
2. Firmað J. P. T. Bryde í Likv.
selur. 1. þ. m. Sofíu E. Einars-
dóttur húsið nr. 53 a við Vestur-
götu.
3. Helgi Thordersen selur 1. þ. m.
Konráði R. Konráðssyni húsið nr.
21 við Þingholtsstr.
4. Hans Gravdal selur 10 maí s. 1.
Helga Helgasyni vólbátinn Hörpu.
Kosningarnar. Dauft hefir verið
yfir þeim víðast hvar á iandinu. —
Sagt er að um hálft annað hundrað
manns hafi kosið á Akureyri og í
sumum sveitum hefir víst alls eigi
verið kosið.
M. Gaillard beitir franski ræðismað-
urinn, sem á að koma hingað í stað
A. Blanche. Mun hans ekki von hing-
að fyr en seint í haust eða fyrri hluta
vetiar.
íslands Falk kom hingað suður í
fyrradag. — Hafði lítið að gera fyrir
norðan.
Leiðinlegt. er að sjá það hvað Aust-
urvöllur er illa hirtur. — Er engin
bæjarprýði að honum meðan hann er
eins og nú. Gangstígarnir eru þótt-
grónir illgresi og um völlinn sjálfan
brelðist illgresið út óðfluga.
Mæðarog synir
París 7. júlí.
I seinustu herskýrslunni í »Jour-
nal Officiel« er farið þessum lofs-
orðum um greifafiú de la Forest-
Divonne:
— »Hún hefir dvalið í Arras síð-
an ófriðurinn hófst, þrátt fyrir stöð-
uga skothríð og hefir með aðdáunar-
verðu hugrekki daglega lagt sig í
hættu við það að hjúkra hinum sáru,
sem liggja í sjúkrahúsum borgar-
innar*. —
Þessi ágæta kona, er sér þess
meðvitandi, að aðalstignin leggur
mönnum skyldur á herðar. Þess
vegna hefir hún ekki flúið frá Arras,
eins og svo margir aðrir, heldur
hefst hún þar við í kjallara húss,
sem er skotið í rústir, svo að þar
er nú hvorki þak né reykháfur.
En vílji maður fletta lengra aftur
í »Journal Officiel* þá mun maður
rekast þar þrisvar sinnum á nafnið
de la Forest-Divonne. Því að greifa-
frúin á þrjá syni og allir hafa þeir
getið sér ódauðlega frægð.
Um hinn elzta, de la Forest-
Divonne ábóta er sagt »að hanu hafi
stöðugt hafst við í Arras til þess að
grafa lík þeirra sem önduðust á
sjúkrahúsunum og haft til þess að-
stoð — tveggja sjáífboðaliða«.
Annar sonurinn, Robert de la
Forest-Divonne liðsforingi »var svo
hugrakkur hermaður, að hann kunni
ekki að hræðast. Féll hann dauð-
særður í áhlaupi einu, þar sem hann
brauzt fram fremstur sinna manna,
og blæddi honum til ólífis vegna
þess að það var eigi fyr en 30 kl.-
stundum síðar að hjúkrunarmennirn-
ir gátu komist þangað sem hann
lá«.
g^Gilbert de la Forest Divonne kapt.
»féll dauðasærður þá er hann brauzt
fyrsturj allra yfir í skotgröf óvin-
anna«.
Ofriðurinn hefir sýnt það, að hér
í Frakklandi er fjöldi manna, sem
ekki kann að hræðast og þeim fer
ekki fækkandi.
Þegar hugrekki mæðranna virðist
vera á þrotum, þá eru synirnir und-
ir eins við því búnir að skjóta þeim
nýju hugrekki í brjóst.
Það má t. d. geta einnar móður,
Madame de G., sem á fjóra syni i
hernum og allra þeirra hefir verið
getið opinberlega fyrir hreystiverk.
Fyrir skömmu kom yngsti sonur
hennar að finna hana. Hann er í
flugmannasveitinni og hafði nú feng-
ið 6 daga heimfararleyfi.
Þegar hún fylgdi honum aftur á
járnbrautarstöðina þá átti hún bágt
með að verjast gráti og brá vasa-
klútnum fyrir augun.
Þá mælti sonur hennar:
»Elsku mamma min 1 Nú verð
eg alvarlega að ávíta þig. Þú mátt
ekki setja £upp þennan sorgarsvip í
hvert skifti, sem þú sérð einhvern
okkar, þvi að þá endar það með því
að við gþorum alls ekki að koma
heim. Þú verður að vera skynsöm
og segja við sjálfa þig að þú getir
ekki vænst þess að við komum
allir fjórir heim aftur*.
«En — þig má eg þó ekki
missal* andvarpaði móðirin og horfði
með aðdáun á son sinn.
»Þú mátt allra sízt hugsa um
mig«, svaraði hann ákafur. »Mér
er metorðagirndin meðfædd. Eg vil
fá a 11. Eg hefi nú fengið ófriðar-
krossinn og hreysti-medalíuna en eg
vil einnig fá riddarakross heiðurs-
fylkingarinnar og g r a f a r - kross-
inn, því að h a n n verður að fylgja,
mamma mín 1* — —
Annar ungur hðsforingi, Rodolphe
Wurts (frá Elsass) ritar móður sinni
svolátandi bréf, og fanst það á líki
hans:
— »Elsku mamma mín! Eg vona
það að þú fáir aldrei þetta bréf, því
að þá er eg farinn heim til pabba
og Emils litla. Það er þó eigi svo
að skilja að eg óttist dauðann hið
allra minsta. Eg er fús til þess að
fórna lifi mínu fyrir Frakkland ef
þess er krafist. Það er aðeins um-
hugsunin um sorg þína sem hryggir
mig. Eg vona samt að ef svo skyldi
fara að þú mistir mig, að þú farir
þá ekki að hrópa sorg þina út yfir
stræti og gatnamót, heldur berir
harm þinn í hljóði. Þurfir þú að
trúa einhverjum fyrir honum, þá
gaktu út í kirkjugarðinn í Luché-
Thouarsais og hvíslaðu honum við
leiði föður míns. Segðu honum að
nú séu báðir synir hans fallnir fyrir
föðurlandið — bæði Emil litli og
eg — og báðir höfum við gert
skyldu okkar. Og setjist þú að
h e i m a, í Elsass, sem nú er orðið
f r a n s k t aftur, þá hugsaðu til þess
með gleði og stærilæti að drengirnir
þínir voru meðal þeirra, sem létu lif
sitt til þess að vinna það aftur.
Láttu eigi öfund né gremju tii
neins festa rætur í huga þínum. Öf-
undaðu ekki þær mæður, sem heimta
syni sína úr Helju. Mundu eftir að
það er ekki ætíð auðvelt að vera
hugrakkur og tápmikill á friðartím-
um. — — Það er betra að falla
með sæmd, en lifa við skömm. Og
svo sendi eg þér einn koss og fel
þig guðiU---------
Gömul bóndakona (76 ára) ritar
syni sínum, sem liggur helsærður í
sjúkrahúsi nokkru:
»— Ekki veit eg hvort þessar
línur komast nokkurn tíma til þín,
því að eg veit ekki hvar sjúkrahús-
ið er þar sem þú liggur. En eg
vona að númer þitt nægi — ef þú
ert þá lifandi.
Góðir menn hafa skrifað mér um
þig, en það eru engar gleðifregnir
sem eg hefi fengið.
Eg bið þig: Vertu hugrakkur.
Guð er jafnan með oss þegar i móti
blæs. Og gleymdu því aldrei, að
það sem heimurinn nefnir oft ógæfu
breytir nafni, þegar h a n n leggur
blessun sína yfir það.
Oft, þegar þú varst vondaufastur,
hefir þú skrifað mér og talað við
mig um Job. Jæja. Job segir: »Og
þótt þú deyðir mig, herra, þá mun
eg samt varpa allri minui von á
Þig«-
Mundu eftir þessu, þegar þér
gengur mest í mót.
Móðir þín, sem ekki gleymir þér.
Ófriðarsmælki.
SJálfstæðisflokkurinn í Ungverja-
landi hefir klofnað eins og sjálfstæð-
isflokkurinn hérna. Gengu 25 þing-
menn úr honum og mynduðu nýj-
an flokk, sem þeir kenna við árið
1848, þegar uppreistin var þar 1 landi.
Formaður floksins hefir verið valinn
Michael Karolyi greifi. Á stofnfundi
þessa nýja flokks mælti hann með-
al annars:
Til þess að koma í veg fyrir mis-
skilning verð eg að lýsa yfir því,
að enginn skoðanamunur getur
átt sér stað meðal Ungverja um ófrið-
inn, því að þegar óvinirnir hafa ráð-
ist á okkur, þá höfum við allir að-
eins eina skyldu og hún er sú, að
verja föðurlandið.
Matvöruverð í M klagarði lækkar
nú stöðugt, segir Times, og hafa nú
Tyrkir nóg af öllu.
Fangaskifti. Bretar og Þjóðverj-
ar eru nú farnir að skiftast á særð-
um föngum fyrir milligöngu Hol-
lendinga.
I Elsass hafa Þjóðverjar nú mik-
inn viðbúnað, eftir því sem Sviss-
nesk blöð herma. Hefir nýlega verið
flutt til Mtllhausen ein af hinum
griðarstóru fallbyssum Austurríkis-
manna og bendir þetta til þess að
Þjóðverjar búist við sókn af hendi
Frakka á þessum slóðum.
Tveir jafnaöarmenn sem erunafn-
kunnir í Þýzkalandi, hafa boðað til
jafnaðarmannafundar í Niirnberg og
er það ætlan þeirra að reyna að sam-
eina aftur alla jafnaðarmenn í landinu.
Birtu8parnaður. Ymsir prússneskir
ráðherrar hafa sent þá uppástungu til
héraðsstjórna að »sumartíminn« verði
framvegis látinn gilda og nái yfir
timabilið frá x. apríl til 30. sept.
*
Verkamenn í steinsteypuverksmiðj-
um 1 Belgíu hafa hafið verkfall og
bera því við að þeir vilji ekki óbein-
linis stuðla til þess að styrkja skot-
grafir Þjóverja. Járnbrautarverka-
menn í Ghentbrttgge og Ledebergk
hafa einnig lagt niður vinnu og hafa
sumir þeirra þess vegna verið fluttir
til Þýzkalands.
Mercury heitir ný járnbrautarlest
sem gengur milli Bukarest og Wien.
Á hún að keppa við þýzku járn-
brautarlestina »Carmen Sylva« sem
gengur milli Berlínar og Bökarest.
Jafnaðarmenn frá Norðurlöndum
hafa verið boðnir til Þýzkalands og
farið þangað til þess að sjá með eig'
in augum hvert starf jafnaðarmenIT
þar hafa með höndum. EnnfreIIlur
fara þeir til Belgíu og vesturvíg-
stöðvanna.