Morgunblaðið - 20.08.1916, Blaðsíða 7
MORGUNBl.AÐIÐ
7
cTií
SíuítfJaíía^QífJar.
Koin, hjartans ljúfasta lifið mitt,
f>ig leiði’ eg við hðnd að Kyrra-
hafs-strönd.
Þar vaggar gnoðinni víðis-blær,
og veðrið indælt og seglin þönd.
Lengst út við kvöldroðans himneskt
haf
hillir evju með fjöllin — gull,
er kóngur sævarins kyssir æ
og kneifar ástfanginn hennar ful!.
Halt þú í skautið, hjartað mitt!
hinsvegar eg við stýrið sezt. —
Elyseum er eyja sú:
þitt ættland og mitt, er þarna sést.
Og ekkert gerir þótt gangi út
gullúrið mitt; því þau bak við fjöll
við njótumst, og leiðumst í æsku æ
um ódáins-blómfrjóvan sólskinsvöll.
Jón Rtinólfsson.
cTýnái sonurinn.
Stúlkurnar kátar og kvikar
komu með dýrlegt vin;
hann hellir því ei, en — hikar,
þvi hugsi tekur hann bikar
hið fyrsta sinn til sín.
»Þú hikar — sem böls þér baki,
ef bikar tæmir þann.
Við hyggjum sizt þig saki«. —
Og sveinnin kneif, — en að baki
svíns-stíu fúla fann.
Jón Runóljsson.
Rá ðherraskifti
í Russlandi.
Sassonoff utanríkis ráðherra Rússa,
hefir nýlega sagt af sér em'bætti sínu
og er borið við heilsulasleika. Hann
Sassonoff
hefir verið talinn með stórmennum
þessara tíma, enda hefir hann ekki
legið á liði sinu síðan ófriðurinn
hófst.
Bifreið
fer til Þingvalla i dag. Tveir til
þrír menn geta fengið far. Upp-
lýsingar í Litlu búðinni, Þingholts-
stræti x frá kl. 9—12.
vFunóié
Kvenúr fundið. Vitjist til lögregl-
nnnar.
Peningabudda fundin. R. v. á.
Sturmer forsætisráðherra og innan-
rikisráðherra, hefir bætt við sig utan-
riki.ráðherraembættinu, en einhver
annar hefir verið gerður að innan-
ríkisráðherra, þótt enn sé eigi kunn-
ugt hver það er.
Þjóðverjar
taka brezkt skip.
Það er sjaldgæft á þessum timum,
að Þjóðverjar nái nokkru brezku
skipi heilu, þó Bretar sigli nú um
öll höf heimsins. En það ber þó
stöku sinnum við. Nú siðast náði
vopnaður botnvörpungur þýzkur
brezka farþegaskipinu »Eskimo«, einu
stærsta og fegursta skipi Wilsons-
linunnar, og flutti það til þýzkrar
hafnar. »Eskimo« var á leið frá
Noregi til Englands og var komið
um 15 sjómilur frá Arendai, þegar
botnvörpungurinn skyndilega skaut
á það, svo annar reykháfurinn brotn-
aði. Eskimo reyndi að komast
nndan með þvi að sigla með full-
um hraða til lands, en þá skutu
Þjóðverjar úr mörgum fallbyssum í
einu, svo Eskimo varð að gefast
upp. Var skipið nú flutt suður
Eyrarsund til Þýzkalands. í sund-
inu varpaði einn kolamokaranna sér
fyrir borð og synti að landi. Vildi
hann heldur freista sundsins en
lenda í fangabúðum Þjóðverja.
Bretar eru vitanlega sárgramir yfir
því, að Þjóðverjum skuli hafa tekist
að ná í Eskimo.
Alpjóðafriðarstejnu ætluðu jafnað-
armenn úr ýmsum hlutlausum lönd-
um að halda í Amsterdam i önd-
verðum þessum mánuði.
i> a (•» nOglN. czzy
Afmaili í dag :
GuSrún Skaftadóttir, húsfrú.
Sigríður Jónsdóttir, húsfrú.
Þórey Halldórsdóttir, húsfrú.
Ágúst tí. Bjarnason, prófessor.
Tnngl, síð. kv. kl. 11.53 f. h.
Sólarupprás kl. 4.35
S ó 1 a r 1 a g — 8.23
Háflóð í dag k!. 9.51 f. h.
og kl. 10.31 e. h.
(eftir íslenzkum meðaltíma.j
Veðrið í gær:
Laugardaginn 19. ágúst.
Vm. a. stinnings kaldi, biti 9.5
Rv. a. kul, hiti 10.5
ísafj. logn, hiti 10.4
Ak. logn, þoka, hiti 9.0
Gr. logn, þoka. hiti 6.5
Sf. logn, þoka, hiti 8.5
Þórsh., F. a.n.a. gola, hiti 8.8
Guðsþjonustur i dag, 9. sunnudag
eftir trinitatis. (Guðspj.: Hinn rang-
láti ráðsmaður, Lúk. 16, 10,—17.
Lúk. 12, 32.—48). — í dómkirkjunni
kl. 12 síra Bj. J. — Engiu síðdegis-
messa. — í fríkirkjunni í Reykjavík
kl. 12 á hád. síra H. N. og kl. 5 síðd.
síra Ól. Ól.
Messað í þjóðkirkjunni í Hafnar-
firði kl. 5 síðdegis.
Rúnigóða þjóðkirkjan heitir dá-
lítill pósi, sem nýkominn er út, eftir
síra Sigurð Stefánsson. Segir höfundur-
inn að þjóðkirkjan só að verða »lif-
andi lík« í höndum kirkjustjórnar og
klerkdóms ríkisins. Skilnaður só æski-
legasta leiðin. Er höf. mjög andvígur
nýju-guðfræðingunum.
Jarðarför Björns Þórhallsonar bú-
fræðings fór fram í gær að viðstöddu
fjölmenni.
2 jarðskjálftakippir urðu hér í
gærmorgun, hinn fyrri allsnarpur
kl. 4.40, hinn síðari um kl, 6. Var
sá miklu vægari.
Vélbátur kom hingað í gær frá
Eyrarbakka.
Nýgift eru Jóhanna Rriðriksdóttir
og Daníel Kr. Oddsson símritari.
Þinglesin afsöl.
10. á g ú s t:
1. Lárus Fjeldsted o. fl. selja 20.
maí sfðastl. Sveini Jónssynl frá
Vatnsenda »Doktorshúsið« við
Vesturgötu.
2. L. K. Tverbergvik o. fl. selja
17. maí síðastl. firmanu G. J.
Breiðfjörð & Co. vólbátinn »Jack-
son« (= Reginn).
3. Karl Olgeirsson selur 18. f. m.
Pótri Gunnarssyni vólbátinn
»Hurry«.
4. Ólafur Þórðarson selur 31. f. m.
Kristínu J. Hagbarð húsið nr.
24 C við Laugaveg.
G|7 { Vindlar.
**■■**■ lingemann & Co.
Kaupmanuahöfa er eina veiksmið au
í heimi sem býr til egta »G. K.«
vindla, »E1 Diplomats (litla) og »E1
Sol« (stóra) svo og margar aðrar
ágætar* tegundir, svo sem: »Peter
Cornelius«, »Dan«, »Julius« o.fl.o.fl.
Varið yður á lélegum stælingum af
»G. K.« vindlum.
Einkaumboðsmenn fyiir ísland
Clausensbræður
Sími 563.
Gólfmottur
stórt úrval Dýkomið
til
Jónat Þorsteinssonar.
17. á g ú s t:
1. Jón Jónsson beykir selur 26. f.
m. Jóni Jónssyni frá Vaðnesl
lóðarsneið við Klapparstíg.
2. Jón Björnsson selur 24. febr.
síðastl. Ásmundi Gestssyni J/2
húsið nr. 2 við Laugaveg.
3. Guðmundur Kr. Guðmundsson sel-
ur 14. þ. m. Páli Ólafssyni hús-
eignina nr. 22 við Vesturgötu.
4. Rakel Ólafsdóttir selur 31. maí
s.l. Gísla Björnssyni húsið »Norð-
urpóllinn«.
5. Magnús Árnason o. fl. selja 23.
júní s.l. Kristjáni Berndsen %
húsið nr. 15 B við Skólavörðustíg.
6. Sturla Jónsson selur 15. þ. m.
Ágúst Pálmasyni húsið nr. 1 við
Rauðarárstíg.
7. A. J. Johnson selur 15. þ. m.
Sveini Teitssyni húsið nr. 97 við
Laugaveg.
8. J. G. Mikkelsen o. fl. sólja 11. þ,
m. h.f. »Kveldúlfi« skipið »Jane
& Wi)liam«.
Arfnr Morgans.
Eftir þriggja ára starf hefir nú tek-
ist að telja saman eignir hins al-
kunna miljónamærings Pierpont
Morgans. Eignir hans nema sam-
tals 3r2,580,000 krónum. Listasöfn
hans eru metin á 145,480,000 kr.
handritasafn hans á 16,380,000 kr.
og safn hans af kínversku postu-
lini á 8,700,000 krónur.
Hann átti einn son og erfir hann
220 miljónir króna. Dætur Morg-
ans þrjár fá sinar 12 miljónirnar
hver og tengdasynir hans tveir sín-
ar 4 miljónirnar hvor.
Slysför
Hinn 10. f. mán. hvarf stúlka frá
Hrauni i Grindavik. Þórunn Jóns-
dóttir, ættuð af Mýrum. Var henn-
ar viða leitað, en hún fanst loks
þann 12. ágúst rekin af sjó, ekki
langt frá Hrauni.