Morgunblaðið - 15.09.1916, Page 4

Morgunblaðið - 15.09.1916, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ gefa fengið vinnu í fiskþurkunarhúsinu hjá H. P. DUUS. Krone Lager öl Stú1ka þrifin, og vel að sér i matartilbáningi, óskast til að halda hreinum her- bergjum og laga mat fyrir einn mann, nú þegar. Ritstjóri vísar á. Sauðargarur kaupa G, Gíslason & Hay, Reykjavik hæsta verði. Bezt að auglýsa i Morgunblaðinu. Tlfvinna. Við niðursuðu geta kvenfólk og unglingar fengið atvinnu frá 20. september til ársloka. Menn snúi sér á Hverfisgötu 46 eða í Niðursuðuverk- smiðjuna, Norðurstíg 4. Skrifstofuherbergi, eitt vænt eða tvö minni, óskast til leigu nn þegar eða 1. október. Helzt sem næst höíninni. R. v. á. Cadbury’s kókó, át- og suðu-súlkkulaöi er bezt. Aðalumboð fyrir Island: 0. J. Havsteen nm sínum. Hún svaf eins og barn með munninn hálf opinn. Hann lýsti á hana með kolunni. Það tók hann mjög sárt að sjá litla andlitið bera merki af kulda, skorti og erviði. Það var auðséð að þessar daglegu göngur voru fullmikið fyrir þennan veikbygða llkama. En Bratt vissi af reynzlunni að ef þau hefðu ekki nóga hreifingu, þá voru þau viss með að fá skyrbjúginn. Og betra var að slíta sér upp til agna en að tærast upp smátt af þessum voða kvilla. En hvað hún svaf rótt og vært. Hann hafði svarið það með sjálfum sér að leggja alt I sölurnar til að frelsa hana. Og vegna hvers? Af þvt að hann elskaði hana. Það var þessi þögla ást sem herti hug hans og stælti viljaþróttinn. — Þetta var orðinn fegursti draumurinn, sem hann hafði nokkru sinni dreymt — þetta var nið undursamlegasta æfin- týri, sem hanm hafði lifað. Og nú voru jólin að koma. Hann hrökk við. Höfuðið litla snéri sér á koddanum og hún opn- aði augun hrædd. Svo lokaði hún þeim aftur. — Æ, lof mér að sofa, hvíslaði hún, eg er svo þreytt. Hann slepti sparlakinu, og brátt heyrði hann á hinum reglulega andar- drætti að hún var sofnuð aftur. — Vesalings litla Frida, sagði hann við sjálfan sig og var mjög hrærður. Ef eg aðeins gæti glatt hana, þó ekki væri nema eitt augna- biik. Gæti eg aðeins náð I einn einasta sólargeisla sunnan úr heimi, þar sem gleðin rikir i hverju heim- ili. Svo dróg hann borðið fram á — 15 5 — mitt gólf. í matarskápnum fann hann einn dúkinn frá »Viktoría«. Hann var nú reyndur ákaflega óhreinn af matnum sem hann hafði verið ofinn utan um forðum, en I saman- burði við duluna, sem þau voru vön að nota fyrir dúk, þá sýndist þessi vera mjallhvítur. Úr byrginu sem haft var fyrir búr, náði hann í síð- asta bindið af kertunum, sem hann hafði geymt þar til hátiðanna. Hann stakk þeim i 2 brúsa og 2 flöskur. Síðan hitaði hann upp í skaftpótti allstóran sveskjubúðing og náði í nokkrar feitar rjúpur, reitti þær, stakk þeim á járnteininn af byssunni sinni, með smjörbita innan í, og fór að steikja þær yfir eldinum. Þægilegur steikarilmur breiddist nú út um kofann og fór að kitla prófessor Marmont svo þægilega í nefið, að hann fór að smjatta i — 156 — svefninum. Og »Boy« sem hafði nú fyrirfarandi ekki lifað á kræsing- um, fór að sleikja út um af tilhugsun- inni umað hann mundi nú bráðum fá fuglabein að bryðja. Hann fylgdi hverri hryefingu húsbónda síns með stakri athygli og nú ýfðist áhonum lubbinn af gremju yfir því, hvað Bratt var seinn að dunda við að snúa teinunum svona fram og aftur. En loksins var hann búinn og »Boy« sá nú sér til mikillar ánægju rjúpunum vera skift i fjóra diska. Og á miðju borðinu stóð einhvef brúnleitur tum á diski. Hver skoll' inn gat þetta verið? En þegar húsbóndi hans mjög svo íbygginn tók fram digra flðsku með gyltum stút, þá ætlaði hvutti hrein^ alveg að springa af forvitni. Hvef þremillinn gat það verið? Hann vaf nefnilega ekki vanur neinu sælfi^ — 157 — 154 —

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.