Morgunblaðið - 25.07.1917, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.07.1917, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Minning Skúla Thoroddsens. Fundur i sameinuðu þingi. Vegna fráfalls Skúla alþingismanns Thoroddsens féllu niður þing- fundir í gær i' báðum deildum þingsins. En forseti sameinaðs þings, Kristinn Daníelsson, boðaði þingmenn til fundar út af þessum atburði og mælti á þessa leið: »Eg hefi beðið háttvirta þingmenn um að koma samaa á þennan fund í tilefni af því, að eg hefi þá sorgarfregn að fiytja Alþingi, að alþingismaður Skúli Tnoroddsen er látinn. Hann lézt í nótt kl. 12 á miðnætti. Hann var fæddur 24. marz 1890, sonur Skúla heit. Thoroddsens alþingismanns. Hann tók stúdentspróf við lærða skólann 1908, heimspekispróf við Kaupmannahafnar-háskóla 1909 og lauk embættis- prófi í lögum við háskóla íslands árið 1914, og hefir verið yfir- dómslögmaður síðan árið 191S. Hann var kosinn á Alþing í kjördæmi föður síns við síðustu kosningar, og sat því nú í 2. sinni á þingi. Hann var yngstur allra þingmanna og hefir yngstur maður hlotið þingmannskosning hér á landi. Hann var efnismaður, og þótt lítt væri enn reyndur, bar sú reynsla þess vott, að hann mundi feta í fótspor föður sins og fyrir- rennara um staðfestu og ættjarðarást og verða þjóðnýtur maður. Vér viljum allir biðja guð að blessa minningu þessa unga starfs- bróður vors.c > Allir þingmenn stóðu upp. Greftrun á kostnað Alþingis. Þá mælti forseti: »Eg vil láta þess getið, að oss forsetum hefir komið saman um og vænti eg að það sé með allra samþykki, að Alþingi kosti útför þessa þingmanns*. Þingmenn samþyktu með því að standa upp. og liggja kolalögin skáhalt og hverfa í sjó þegar norðar dregur. Aðalnáman, sem unnin hefir verið og nú er verið að vinna, er í landa- eign Hringavers og Ytri-Tungu. — Landsstjórnin lætur vinna kol í Tungu-námunni, en Þörsteinn Jóns- son, kaupmaður á Seyðisfirði, rekur Hringvers námuna. Verkamannafélag- ið á Akureyri hefir og fengið leyfi hjá stjórninni til að brjóta kol í Tungu-námunni og hefir það þar nokkra menn að vinnu. Er því unn- ið þarna í þrcnnu lagi og munu alls vera þar um eða yfir 100 manns að vinnu. Kolalögiu. Þau eru þrjú, sem broíin hafa ver- ið til þessa, og mismunandi þykk. Eru kolin allmikið blönduð leir og möl, sem jafnharðan verður að brjóta úr þeim. Djúpt er nokkuð niður að efsta laginu og hafa námu- menn til þessa orðið að taka jafnt niður ofan af bakkabrún, vegna þesss að þeir hafa eigi getað grafið sér göng. Skortir til þess timbur í und- irrepti og stoðir. Hefir þetta tafið mjög fyrir, því að ruðningurinn ofan af kolunum er mikill og afarmikið verk að koma honum í burtu. Eigi alls fyrir löngu fanst fjórða kolalagið. Er það neðst og all-langt milli þess og hinna laganna. Er talið að þuð muni þykst og jafnvel bezt kol í þvi. Er þar móhella yfir og mætti því gera þar námugöng án þess að timbur þyrti að nota. En lag þetta er á kafi i mölskriðu þeirri, sem fallið hefir framan úr bakk- anum. Verður fyrst að grafa göng í gegn um skriðuna og er það ákaf- lega mikið verk. Verkamenn lands- sjóðs munu þó nú hafa lokið þvi, eða því sem næst. Ekki er loku fyrir það skotið að kolalögin kunni að geta verið fleiri þótt eigi hafi þau fundist enn, því að rannsóku mun hafa verið litil eða engin á námunni. Þau kol, sem brotin hafa verið, þykja góð, en eigi má geyma þau lengi undir beru lofti. Missa þau þá mikið af hitagildi sínu. Þótt und- arlegt kunni að virðast, hafa kolin reynst bezt úr efsta laginu. Hefir verið smiðað við þau og má af því sjá, að ekki eru þau hitalaus. Nokk- uð af kolunum hefir verið reynt hér syðra og hefir landsstjórnin selt þau á 6 5 kr. smálest hverja. Það er ekki mjög hátt veið, ef miðað er við verð á útlendum kolum, en það er nú ekkert hóf á þvi hvað þau eru dýr. Verkamannafélagið á Akureyri býst við því að kolin geti eigi orðið ódýrari þangað komin heldur en 60—65 krónur smálestin. Kol lands- sjóðs hafa verið seld á 30 kr. smál. þar nyrðra, en Þorsteinn Jónsson • seldi kol sin á 50 krónur, flutt um borð í skip. Versti ókosturiim. Eins og fyr hefir verið að vikið er engin höfn þarna hjá námunni og er það versti ókosturinn. Með fjöru eru grynningar svo miklar fram undan, að ill-lendandi er tóm- um bátum og óhugsandi að hægt sé að skipa fram þungavöru, svo sem kolum, nema þvi að eins að vaðið sé með þau yfir flúðirnar. Með háflóði flýtur sæmilega að landi, en ekkert má vera að veðri, því að þetta er fyrir opnu hafi. Húsavík er næsta höfnin, en þang- að er all-langur vegur, eins og áður er sagt. Ætti að flytja kolin þang- að, þá yrði að leggja járnbraut, en það mun reynast nokkuð kostnaðar- samt og borgar sig áreiðanlega ekki, nema því að eins að náman verði staifrækt áfram að striðinU loknu. Á þvi mun þó leika all-mikill efi, því að kolin þola ekki samanburð við góð skozk kol og vetði þau ekki talsvert ódýrari, þá mun enginn vilja kaupa þau. En það er viðbúið að verðmunur verði eigi mikill, þegar skaplegt ástand er aftur komið á í heiminum og ensk kol fást með sfip- uðum kjörum og fyrir stríðið. Það mun enn algerlega órannsak- að mál, hvort kolanáman á Tjörn- nesi er svo auðug, að það borgi sig að kaupa til hennar nýtízku-vélar, sem hafðar eru við kolagröft í stór- námum erlendis. En meðan kolin eru unnin með mannsaflinu einu saman, þá verða þau aldrei ódýr. Með annað hagar vel til þarna. í miðju námulandinu rennur á, er Skeifá nefnist, og fellur þar fram af sjávarbakkanum í háum og fögrum fossi, en þó eigi vatnsmiklum. Er það mestur foss þar nærlendis. Mætti sjálfsagt nota afl hans til þess að bjálpa til við námugröftinn og ætti það eigi að veiða ýkja kostnaðar- samt, þar sem hann er rétt við hend- ina. Krafímikill er fossinn að visu eigi, en vera má, að hægt væri að auka vatnsmagn hans með því að veita lækjum í Skeifá. Utan af landi. Mótekja mun nú vara með mesta móti um land alt. Akureyrarkaup- staður hefir farið að dæmi Reykja- víkur og lætur nú sem óðast taka upp mó, sem svo á að selja kaup- staðarbúum i haust. A að taka þar upp mörg þúsund smálestir. Frí- mann B. Arngrimsson hafði gert til- raun til þess að smíða móeltivél handa bænum en sú tilraun hepnað- ist eigi. Að minsta kosti var vélin dæmd ónýt af nefnd þeirri, er bæj- arstjórn setti til þess að athuga hana. Grasajerðir hafa nú hafist aftur í sumum heruðum og er það vel farið. Aðallega mun hafa verið gengið til grasa í Þingeyjarsýslum. Voiu gerð- ir út leiðangrar upp um heiðar, eins og áður fyr og lágu sumir í tjöldum nokkra daga. Mest hefir verið um grasatekju á heiðunum fram af Öx- arfirði, báðum megin Jökulsár. Grasa- fengurinn hefir orðið misjafnlega mik- ill, og segja gamlir menn að læplega muni nú jafngott til grasa eins og áður, hvað sam því veldur. Fráfceur eru líklega með mesta móti í sumar um land alt. Hafa nú marg- ir ær í kvíum, þóit áður hafi þeir látið ganga með dilk. Mundu þó fráfærur enn almennari heldur en raun er á, ef eigi væri fólksskortur í sveitunum. Smalar fást varla og þó er en'n verra að fá stúlkur til þess að mjalta ær, Kaupakonur gera það venjulega að skilyrði, þegar þær ráða sig til sumarvinnu, að þær þurfi eigi að mjalta, enda kunna þær það vist fæstar. Er þetta mikið mein. Vonandi er þó að bændur fari alment að taka upp fráfærur aftur, því að eflaust verður það happadrýgsta bú- skaparlagið. Ær hafa alls staðar mjólkað vel í sumar og viða hvar með lang-bezta móti. Sem betur fer mun því verða framleitt meira smjör í landinu held- ur en á undanförnum árum. Landar erlendis* Kaupmannahöfn, 28. júní. Jóhann Sigurjónsson. Tónskáldið Roger Henrichsen er nú að semja »óperu« yfir Fjalla- Eyvind Jóhanns. Textann hefir Hans Ahlmann undirbúið. Búast menn við miklu af samvinnu þessara lista- manna. Pétur Jónsson söng í Tivoli-konsertsalnum 9. júní fyrir troðfullu húsi. Voru þar meðal annara allflestir landar, sem nú dvelja í Kaupmannahöfo. Blöðin ljúka lofs- orði á rödd Péturs, hve hún sé mikil og hljómfögur. En þau segja að nokkuð skorti á að hann syngi af tilfinningu, og viðkvæmni. Án efa á hann góða framtíð fyrir höndum sem ,ópera‘ söngvari, segir »Politiken«. Heimspekispróf hafa þessir landar tekið við Kaup- mannahafnarháskóla auk þeirra 5, sem áður hafa verið taldir: Jón Helgason ág. eink. Arsæll Gunnarsson I. eink. Lárus Jónsson I. — Sigurður Jónasson I. — Valtýr Blöndal Il^ — Sveinbj. Blöndal II. —

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.