Morgunblaðið - 25.07.1917, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
77ýr Lundi
fæst keyptur
/ Bankaslrϒi 6.
Duglega
kaupakonu
vantar nú þegar.
Goif kaup.
Þarf að fara með Ingólfi á fimtu-
daginn til Borgarness.
Upplýsingar gefur
Daníel Kristinsson
á pósthúsinu.
Nokkra
vana
‘V .
sjómenn
vantar á m.k. »Hermóður«, sem fer
á síldveiðar nú.
Fðikna góo kjðr.
Upplýsingar gefur
orv. <3jornsson
Framnesveg i C.
Embættisprófí
i læknisfræði hefir Sigtryggur Eiríks-
son lokið með I. eink. Fyrri hluta
læknaprófs hefir Jón Björnsson frá
Kornsá lokið með I. eink.
Slys.
Frá Eskifirði kom sú fregn hing-
að í gær, að þar hafi maður rotast
i fyrradag. Var sá yfirmaður kola-
graftar, sem þar á að fara að byrja,
hét Ögmundnr Ögmundsson og
var frá Eyrarbakka. Féll. steinn úr
fjallinu fyrir ofan námuna og kom i
höfuð Ögmundi. Lézt hann litlu
síðar. Hann lætur eftir sig ekkju
og eitt barn.
Útillegnmenn á Mosfellsheiði.
Fyrir nokkrum dögum birtist
grein i Morgunblaðinu með þess-
ari yfirskrift. Af því að eg er einn
af vegabótamönnunum, vil eg
gefa hér um nokkrar skýringar.
Við höfum tjöld okkar á hinum
svo nefndu moldbrekkum, sem
næst einum kílóm. austur af sælu-
húsinu. Var það eitt kvöld að
við sáum tvo menn, búna eins og
lýst er í áðurnefndri grein, koma
vestan veginn, en þegar þeir
nálguðust tjöldin, sem við bjugg-
um í, beygðu þeir út af veginum
til norðurs og hurfu sjónum okk-
ar. Síðan bar ekkert til titla eða
tiðinda fyr en næsta kvöld. Þá
koma piltar þessir heim undir
tjöldin; það var síðla kvölds,
og var eg genginn til hvíldar, en
annars flestir vegabótamennirnir
á fótum. Þeim komu þessir kump-
ánar einkennilega fyrir sjónir og
gengu þvi til þeirra og ætluðu að
tala við þá, en drengir þessir
tóku á rás undan. Tveir af vega-
bótamönnunum, Haraldur Skúla-,
son frá Ulfarsfelli og Þorsteinn
nokkur frá Hálsi í Kjós, veittu
þeim þá eftirför, en er svo hafði
gengið um stund, sneru drengir
þessir móti þeim, með heilmikl-
um móði. Sló þá felmtri á vega-
bótamennina og hlupu þeir þá
heim til tjalda. Þó rann Harald-
ur hægt undan og veitti þeim
betri eftirtekt; sýndist honum það
vera hríslukvistir, en ekki eggj-
aðir rítingar, sem þeir höfðu í
höndunum. Við þóttumst þegar
vis8ir um, að hér væri um »sum-
argestif úr höfuðstaðnum að ræða,
en eigi útlaga; því er það eigi
rétt, að við höfum haft viðbúnáðtil
að verjast árásum þeirra. Vega-
bótastjórinn, Guðjón Helgason
bóndi í Laxnesi, var eigi við-
staddur; hafði hann gengið frá
og bar leiti af, og sá hann þvi
ekki mennina, en er hann frétti
þetta, þóttist hann fullviss um að
hér væri um að ræða káta pilta
og saklausa úr Reykjavík, —
en eigi sökudólga, sem færu
um óbygðir með ránum og
ófriði. En þessi saga um útilegu-
menn þessa barst skyndilega til
bygðar; bændadætur er mér sagt
að hafi orðið hræddar, hjúfri sig
niður líkt og fuglar í sárum og
þori hvergi að bærast. Munu þvi
sumir bændur hér í grend hafa
hætt við grasaleitir, sem þeir þó
höfðu fyrirhugaðar, þv íað dætur
þeirra og aðrar heimilismeyjar
þora hvergi á fjöll að fara, vegna
sagna af hinum hættulegu úti-
legumönnum, sem nema muni
þær í brott með sér frá æsku-
stöðvum þeirra og sveitasælu. —
En eg held að þessir gamansömu
drengir, sem við vegabótamenn
sáum á Mosfellslieiði, verði eng-
um til meins þar uppfrá. —
Hinu gæti eg betur trúað, að
stúlkunum stafi hætta af piltun-
um niðri í bygðinni — vegabóta-
mönnum þó varla — ef þær eru
ekki á varðbergi.
Einn af vegabótamönnum.
T al s í m ar Alþ i n g i s:
354 þingmannasími, TJm þetta númer
þurfa þeir að biðja, er œtla að
ná tali af þingmönnum í Alþingis-
húsinu i síma.
4)1 skjalaafgreiðsla.
61 skrifstofa.
Gangverð erlendrar myntar.
Doflar Bankar 3,55 Fósthús 3,60
Franki 62,00 62,00
Sænsk króna ... 106,00 107,00
Norsk króna ... 103,00 104,00
Sterlingspund ... 16,50 16,50
Mark 50,00 51,50
Nýr mótorkútter, sem Hermóðnr
heitir, kom hingað í gærmorgun frá
Danmörku. Hafði verið um 3 vikur á
leiðinni vegna olíuleysis. Báturinnn er
37 smálestir að stærð og er eign fisk-
veiðafólagsins »Dröfn«. Verður hann
þegar sendur á síldveiðar.
Kolaskip komu "hingað í fyrri-
nótt og í gær, öll hlaðln kolum,
3 til Kol og Salt og eitt til lansstjórn-
arinnar. Öll eru skip þessi rússnesk
og bera frá 450 til 700 smálestir.
I
Kanpið Morgunblaðið.
Hitt og þetta.
Capt. Bonnell, ameriski flugmaður-
inn, sem skaut niður hinn hinn þýzka
flugmann Bölcke á vesturvigstöðv-
unum, er nú í New York önnum
kafinn við það að safna sjálfboðalið-
um í flugsveitir Breta. Fyrstu vik-
una, sem hann starfaði, létu 843
menn ráða sig. Bonnell sjálfur býst
við að fá mörg þúsund manna, eink-
um í vesturfylkjum Ameriku.
GyOingaofsóknir eru nú ákaflegar
af Tyrkja hálfu í Palestinu. Hafa
Tyrkir myrt margt fólk og flutt
burt úr landi menn svo þúsundum
skiftir. Hafa bandamannastjórnir
hafist handa og farið þess á leit við
sendiherra Hollendinga í Miklagaiði
að hann í nafni réttlætisins léti tyrk-
nesku stjórnina stöðva þessar of-
sóknir.
Þjóðverjar ráðgera að hafa 3500
flugvélar á vigvöllunum vorið 1918.
En það mun tæplega nægja, ef
Bandarikjamenn smiða 10 þúsundir
og senda til Frakklands.
Flögg voru dregin í hálfa stöng
víða í gær í tilefni af fráfalli Skúla
S. Thoroddsens alþingismanns.
Elliðaárbrýrnar hafa nú verið
dubbaðar upp og eru vart þekkjanleg-
ar, frá því sem áður var! í stað þess
að þær voru áður rauðmálaðar, eru
þær nú tjargaðar — en styrkleiki
þeirra mun vera hinn sami og áður.
Jóhann Þorkelsson dómkirkju-
prestur er nýkominn heim úr ferð,
sem hann fór sór til hressingar og
hvíldar upp 1 Borgarfjörð.
Þingfundir verða í báðum deildum
í dag kl 1. A dagskrá verða þau
mál, sem ítt að vera til umræðu i
gær, ef úr fundum hefði orðið (sjá.
Morguubl. í gær).
Botnía fór 1 gær vestur og norður
• um land með fjölda farþega.
§ ^íaupsRapur
Góður reiðhestur til sölu. Uppl.
hjá Jóni beyki á Klapparstig 7.
Utanrikisráðherra Svía, Lindvan
aðmírálf, lýsti þvi nýlega yfir í ræðu
að það væri skoðun sín að ófriður-
inn mundi standa lengi enn þá. —
Vandræði mundu verða meiri í Svf-
þjóð í vetur og næsta vor en dæmi
væru til nokkuru sinni áður.
Brezka blaðið »Scotsman« getur
þess eftir simskeyti frá Svisslandi,
að samkomulag sé nú mjög ilt milli
Þjóðverja og Austurríkismanna. Seg-
ir í skeytinu, að það geti jafn vel
komið að þvi, að beinn ófriður verði
milli þeirra þjóða, því Austurríkis-
menn vilji ekki til lengdar þola það
að þeim sé saipað fyrir i öllum mál-
um af Þjóðverjum.
17 daga voru 8 skipverjar af einu
brezku skipi, sem þýzkur kafbátur
sökti, i skipsbátnum, áður en þeim
var bjargað. Einn skipverja nafði þó
mist fótinn við sprenginguna, og
þykir það merkilegt, að hann skyldi
ekki deyja. Til allrar hamingju höfðu
þeir dálitinn meðaiakassa i bátnum,
og gátu hinir skipverjarnir bundið
vel um sár mannsins. — Raunir sjó-
mannanna á þessum timum eru bæði
miklar og margvislegar.