Morgunblaðið - 26.07.1917, Síða 1
Fimtudag
26.
júlí 1917
MORGONBLAÐID
4. árgangr
crnior
26T
tðlublað
i ui!onb:z ls
rl-Jict Oi!
Ritstjórnarsími nr. 500
Ritstjóri: Viihjalnmr Finsen
ísafoidarprentsmiója
Afgreióslnsimi ur. 500
Blöl Roykjavíkm |B|0
PIU | Biosraph-Theater l*^1^
Talstmi 475
Gullkrossinn
Ahrifamikill sjónleikur
í 4 þáttum.
Leikinn af ágætum
dönskum leikurum.
Mynd þessi sýnir glöggar en nokknr
önnnr, hvernig hið þr&ða gnll getnr
orðið til gagns og gleði, en nm leið
hvernig það annarstaðar getnr orðið
mönnnm til stórrar óhamingjn, eins
og hér sézt á harðneskju föðursins
gagnvart dóttnrinni.
i
Hér með tilkynnist vinum og vandamönn-
um að faðir ðkkar, Jón Jakob Jóhannesson,
andaðist að heimili sínu, Tungðtu 2, 24.
þ. mán.
Guðr. Jónsdóttir. Kristjana Jónsdóttir.
3
Erl. símfregnir.
Frð fréttaritara ísafoldar og Morgunbl.
Khöfn 24. jtilí.
Þjóðverjar hafa tekið
Tarnopol.
Rússar veita aftur tölu-
vert viðnám. Hafa þeir
unnið sigur hjá Vilna og
handtekið 1000 menn.
Skipulagi hefir nú aftur
verið komið á her Rú-
mena.
Kaupmannahöfn, 25. júli.
Vegna þess hve ástand-
ið í Rússlandi er nú iram-
úrskarandi alvarlegt, hafa
framkvæmdanetndir her-
manna og verkamanna-
ráðsins lýst því yfir, að
bráðabirgðastjórnin skuli
hafa algert einveldi.
Frá alþingi.
Nýungar.
1. Ný símaálma.
I Nd. flytur Pétur Þórðarson frv.
um, að talin verði með fyrirhuguð-
um 3. flokks talsímasamböndum síma-
álma frá Borgarnesi um Mýrasýslu
og Hnappadals að Hjarðatfelli.
2. Véfyœzla á mótorskipum.
Sjávarútvegsnefnd Nd. hefir nú í-
hugað frv. Matth. Ól. um atvinnu
við vélgæzlu á mótorskipum, og fellst
nefndin á frv. i ölium aðalatriðum.
Nokkrar breytingattillögur gerir hún
þó og er sú helzt, að kunnáttuskil-
yrði vélstjóra verði miðuð við skip,
sem hefir 6 hestöfl eða meira, i stað
þess að lágmark frumvarpsins er 10
hestöfl.
3. Bankaútibú i Suður-Múlasýslu.
Alit er komið frá allsherjarnefnd
Nd. um frv. þingmanna Sunnmýl-
inga og Bjarna frá Vogi um að fyrir-
hugað útibú Landsbankans á ^ustnr-
landi verði bundið við Suður-Múla-
sýslu.
Nefndin hefir i einu hljóði hallast
að þvi að frv. nái fiam að ganga.
»Aðalástæðan til þess, að þessi
hefir orðið niðurstaða nefndarinnar
er sú, að þegar hefir verið sett á
stofn bankaútibú á Seyðisfirði, en
vitaskuld, að almenningur hefir þá
mest not bankanna og útibúa þeirra,
er þau eru sem dreifðust um iand-
ið. Á þetta virðist sérstaklega bera
að lita í þessu máli, þar sem Lands-
bankinn er eign landsins og því
eðlilegt, að útibú hans séu sett þar
sem mest er þörf, en að sú þörf
sé meiri þar, sem ekkeit útibú er
fyrir, sýnist auðsætt, þegar tekið
er tillit til verzlunar, fiskiveiða og
fólksfjölda þeirra sýslna, sem hér
ræðir um.« I
Nefndin ætlar og hag búsins jafn
vel borgið þótt það sé sett i Suður-
Múlasýslu eins og á Seyðisfirði. —
Annars vill nefndin að stjórnarráðið
ákveði eftir tillögum bankastjórnar
og að fengnum skýrslum um óskir
manna eystra, hvar útibúið skuli vera
i Suður-Múlasýslu.
Framsögumaður málsins verður
Magnús Guðmundsson.
Um mál þetta urðu deilur miklar
við x. umræðu milli Sunnmýlinga og
Norðmýlinga.
Þess má geta að enginn Múlsýsl-
unga er i allsherjarnefnd.
4. Stoýnun hjónabands.
Gísli Sveinsson og Jón á Hvanná
flýtja (i Nd.) frv. um stofnun hjóna-
bands.
Aðalefni frv. er að löghelga borg-
araleg hjónabönd, hvort sem hjóna-
efnin eru, bæði eða annað, utan þjóð-
kirkju eða ekki, að skirn, ferming
og altarisganga skuli ekki vera hjú-
skaparskilyrði, hvort sem veraldlegur
valdsmaður eða prestur gefur hjón
saman, og að löglegt skuli þó vera
hvert það hjónabandj sem stofnað er
af þjóðkirkjuprestum eða öðrum lög-
giltum prestum.
Augl. um fyrirhugað borgaralegt
hjónaband ávaldsmaður aðsetja i Lög-
biitingablaðið, nema leyfisbréf sé
keypt. Annars er athöfnin lík og
nú gildir. Af smábreytingum má þó
nefna, að »pússunartollurc til valds-
manna á að hækka úr 4 kr. upp í
8 kr. og að sóknarpresti beri ekki
nein greiðsla fyrir »samgjöf hjóna«,
sem annar embættismaður en hann
hefir framkvæmt.
Alllöng greinargerð fylgir frum-
varpinu. Birtum vér hér kafla:
»Eitt af þeim málum, sem auð-
sælega eru borgaraleg einvörðungu,
er hjónabandið. Það hefir og i
löggjöf verið talið það, þangað til
kirkjan tók það undir sig. Marg-
ir vi ja nú eigi þýðast hinar geist-
iegu athafnir í þvi efni, eða »kredd-
ur« þær, sem þvi eru samfara, og
er svo einnig hér á landi. Ed
missrétti og réttleysi ríkir enn í
löggjöfinni, og það tilfinnanlega
hvað srofnun hjónabands snertir*.
»Hafa óskir komið fram,-reynd-
ar bæði fyr og siðar, um breyting
á ástandi þvi, sem nú er rikjandi
og verður ekki við þeim óskum
þagað, með þvi að vart getur nein-
um dulist, að þær eru i fylsta máta
réttmætar*.
Flm. ætla að aðgengilegra muni
verða i fvrstu að gera mönnum kost
á að velja á milli Þorgaralegrar og
kirkjulegrar hjónavigslu, heldur en
að gera strax borgaralega vígslu að
skilyrði lögmæts hjónabands.
Um ákvæði frv. segja þeir m. a.:
»Aðalþráðurinn er, að þessi
mál gerð með öllu óháð öllum
trúarjátningum, ef menn það kjósa.
Verslegum og geistlegum embætt-
ismönnum, sem bærir eru til stofn-
unar hjónabands, gert jafnt und-
ir höfði, hvað lögmæti þessara
verka þeirra áhrærir. Og um leið
allir löggiltir prestar gerðir jafn-
réttháir i þessu efni.«
Úr efri deild í gær.
Niu mál á dagskrá.
1. Frv. um eignarnámsheimild
fyrir bæjarstjórn lsaf]arðar; 3. umr.
Enginn tók til máls. Málið afgreitt
til neðri deildar.
vU «o\tiwO
núm bí6 %* d ha
öc Kí
qui
{
£03
Sjónleikur í 3 þáttum;afi i:
leikinn af Nordisk Films Cov
'VS
Aðalhlutverkin leika:
C. Lauritzen, Rob. Schmidt,,
I. Beithelsen, A. Hinding.
Tðlusett sæti.
Koniáð K. Konráðsson
læknir
Þingholtsstræti 21. Sími 575.
Heima 10—12 og 6—7.
2. Frv. um breyting á lðgum um
umboð þjóðjarða; 2. umr.
Flutningsm. Halldór Steinsson sagði
einn nokkur orð.
Málinu vísað til 3. umr.
3. Frv. um ábyrgð landssjóðs
á fé hins almenna kirkjusjóðs; 1.
umr.
Flutningsm. Eggert Pálsson reifaði
málið og taldi nauðsyn á því, að
tryggja það betur, að kirkjur, sem
verða að eiga fé sitt i þessum sjóði,
yrðu ekki fyrir skakkafalli.
Aðrir tóku ekki til máls.
Málinu vísað til 2. umr. i einu
hljóði nefndarlaust.
4. Frv. um breyting á lögum
um manntal i Reykjavík; 1. umr.
Flutningsm. Kristinn ‘Daníelsson
gerði stutta grein fyrir frv. og vænti
þess, að deildin færi vel með það.
Við því varð deildin — visaði mál-
inu til 2. umr. án þess að setja það
i nefnd.
3. Frv. um breytingu á lögum
um almennan ellistyrk (sem komið
er frá neðri deild); 1. umr.
Vísað til 2. umr. nefndarlaust.
6. Frv. um einkasöluheimild
landsstjórnarinnar á steinoliu (komið
frá neðri deild); 1. umr.
Magnúsi Kristjánssyni þótti þær
4 kr., sem stjórninni er heimilað í
frv. að leggja á steinoliutunnu, auk
þess að meiga leggja á riflega fyrir
kostnaði, altof bátt. Gæti svo farið,
að þetta yrði alt að 20 kr. skattur
á tunnuna, er kæmi \á útgerðar-
menn, og væri það altof þung byrði,
einkum þar sem engin trygging væri
fyrir þvi, að steinoliuverzlun yrði
betri í höndum landsstjórnarinnar
eða varan ódýrari en áður. Bjóst
hann við að gera að minsta kcsti
breytingartillögu um að færa gjald
þetta niður. En yfirlekt kvaðst hann
ekki vera hlyntur einkasölu, heldur
væri reynslan sú, að frjáls verzlun
gæfist bezt. Hitt gæti komið til