Morgunblaðið - 21.08.1917, Blaðsíða 2
2
MOKGUNBLAÐIÐ
Dr.P.J.OIafson
tannlækni
er fyrst nm sinn að hitta í
Kvennaskólanum við Frikirkjuveg
kl. io—ii og 2—3
á virkum dögum.
nefndin 2 þús. kr. fyrra árið og i
þiís. kr. síðara átið til að stofna og
starfrækja ljóslækningastofu fyrir út-
vortis berkla.
Jóni lækni Kristjánssyni er ætlað-
ur isoo kr. dýrtíðarstyrkur hvort
árið, til þess að hann geti rekið
lækningastofu sina í þvi skyni og
með því skilyrði, að læknishjálpin
verði ekki dýrari framvegis en að
undanförnu.
Útgjöld til Laugarnesspítalans,
Geðveikrahælisins og Vífilsstaðahælis
þykir nefndinni stjórnin hafa áætlað
Óskiljanlega lágt og hækkar því fjár-
veitingar til þessara stofnana að
miklum mun.
Styrkur til sjúkrahúsa og sjúkra-
skýla hækki úr 3 þús. upp í 6500.
Styrkur til að koma upp sjúkra-
skýlum á læknissetrum, sem stjórnin
ætlar 6 þús. kr. hvort árið, verði
15 þús. kr. síðara árið.
Ferðakostnaður héraðslækna til
eftirlits með barna- og unglinga-
skólum greiðist úr landsljóði, en
ekki úr skólasjóðum, eins og verið
hefir. Hins vegar sjái fræðlsunefnd-
irnar læknum fyrir borgun fyrir slík-
ar skoðanir, en læknar hafa ekkerl
fengið fyrir það sem af er.
Utanfararstyrk héraðslækna vill
nefndin hækka úr 2500 kr. upp í
3000.
Guðmundi Thoroddsen eru ætl-
aðar 2 þús. kr. hvort árið til að
framast í skurðlækningum erlendis,
enda ætlar hann að setjast hér að
að loknu námi.
Láru Sigurðardóttur frá Patreks-
firði ætlar nefndin 400 kr. síðara ár-
ið til hjúkrunarnáms erlendis.
Sjúkrasamlag hins íslenzka prent-
arafélags njóti 200 kr. styrks hvort
árið. —
Póstmál.
Nefndin vill hækka talsvert út-
gjöld til póstmálanna og yfirleitt vilj-
að fara þar sem allra mest eftir tillögum
póstmeistara. Er það alkunna, að
hann er mjög spar og 'hagsýnn á
landsfé, og því síður ástæða til að
draga úr því, sem hann álítur nauð-
legt að veitt sé.
Af hækkuninni má nefna að nefnd-
in vill færa laun 5 póstafgreiðslu-
manna í Rvik úr 10,800 kr. hvort
árið upp í 12,250 kr. fyrra árið og
12,750 síðara árið. »Alítur nefndin
sjálfsagt að beita fullri sanngirni við
þá menn, ekki sízt þar sem þeir
hafa gengt þessum starfa lengi, og
því áríðandi að þeir neyðist (ekki
til að hröklast í burtu vegna ónógra
launa. En pósthúsið hefir að likind-
um fengið að kenna á þvi, að missa
af góðum starfskröftum fyrir þessa
orsök, og er það illa farið*.
Póstafgreiðslumönnum á ísafirði,
Akureyri og Seyðisfirði er og ætluð
launahækkun.
Vegabœtur.
Um þann lið eru þessar almenn-
ar athugasemdir:
»Nefndin var á einu máli um það,
að fjárveitingar til vegagerða mætti
nú alls ekki spara. Er það fyrst og
fremst af þeim ástæðum, að búast
má við, að landið þurfi að veita fleiri
mönnum atvinnu á næstu árum en
verið hefir, en vegi þessa alla á hvort
sem er að gera í mjög náinni fram-
tíð. Fleiri ástæður eru líka fyrir
þessu, svo sem sú, að á yfirstand-
andi fjárhagstímabili var mjög mikið
dregið úr fjárveitingum til vegagerða.
Ef þessu færi fram hvertfjárh.tímabilið
eftir annað, mundi það seinka um
of öllum vegagerðum á landinu og
raska öllum fyrirætlunum, sem gerð-
ar hafa verið I því efni fyrir fram-
tíðina. Þá má ekki gera lítið úr þvi
að þótt erhtt sé um framkvæmdir
ýmsra fyrirtækja á landinu, vegna
gífurlegs efniskostnaðar, þá nær/
það ekki til hinna eiginlegu vega-
gerða. Þar má beita enginn efnis-
kostnaður, að eins vinnulaun, og
og rennur féð því i vasa landsmanna
sjálfra. Oðru máli er að gegna um
brýrnar. Þar mi búast við að efni
verði svo dýrt, að ekki verði vitur-
legt, að ráðast í stærri brúarbygging-
ar af þeim ástæðum. Þess vegna
leggur nefndin til, að leyft sé að
fresta og færa til milli ára þau mann-
virki, en þó^ svo færi, að ókleift virtist
að byggja brýrnar, þá ætlast nefndin
ekki til, að landssjóði sparist fé á
því, heldur að brúarfénu sé þá varið
til vegagerða, eftir tillögum verk-
fræðings, eða til annara þjóðnýtra
fyrirtækja, er stjórnin kann að ráðast
í til atvinnu^óta. — Mundi þá hægra
síðar, ef svo sýndist, að taka fleiri
brýr í einu á kostnað vegagerðanna
að sama skapi. — Vill nefndin alls
ekki, að fé þessu verði varið til ann-
ara útgjalda, nema einhverja mjög
brýna nauðsyn beri til. Alítur hún
þá eina ástæðu ekki nægja, að tekjur
landssjóðs hrökkvi ekki til, ef hægt
er að fá fé á annan hátt en að taka
til þessara fjárveitinga*.
Samkvæmt þessu vill nefndin
hækka stórum fjárveitingar til flutn-
ingabrauta, þjóðvega og fjalivega og
tillög til akfærra sýslúvega, en oflangt
yrði að nefna einstakar fjárveitingar
undir þessum lið. Þó skal þess
getið, að 25 þús. kr. ætlar nefndin
til brúar á Jökulsá siðara árið. Er
það i samræmi við álit landsverk-
fræðings, og á að verja fénu til
undirbúnings undir smiði brúarinn-
ar,
Jafnóðum og trébrýr bila á flutn-
ingabrautum, sem sýslufélög kosta
viðhald á, leggur nefndin til að sett-
ar verði steinbrýr í staðinn, á kostn-
að landssjóðs, en vill ekki fara lengra
að svo komnu í að létta viðhaldi
flutningabrautanna af sýslunum.
Vegamálaverkfræðinginn vill nefnd-
Jn nefna framvegis vegamálastjóra
og vitaverkfræðinginn vitamála-
stjóra.
Ekki vill nefndin að sinni veita
fé til brúar yfir Hvitá i Borgarfirði
hjá Ferjukoti, en þykir sanngjarnt,
að landssjóður kosti brúna að a/3,
þegar þar að kemur, eins og Borg-
firðingar fara fram á. Aætlað er að
sú brú kosti 50 þús. kr.
Shnar.
A þeim lið gerir nefndin engar
verulegar breytingartillögur. í stj.frv.
er nefndur »gagnavörður« við land-
simann með 1800 kr. árslaun.
Nefndin vill breyta titli hans í: A-
halda og efnisvörður.
Hitt nafnið þótti henni orka tvi-
mælis.
V . v \
Vitamál.
Laun Guðm. Hlíðdals hækki úr
2500 kr. upp í 3000 kr. og skrif-
stofukostnaður vitamálastjóra úr 700
upp í 1 þús. kr.
Ketislumál.
Þar gerir nefndin litlar breytingar
og segir hvorki af né á um, hvort
skólahald verði i vetur.
Af nýungum má nefna, að hún
ætlar Ieikfimikennara kennaraskólans,
Birni Jakobssyni, 1700 kr. i föst
laun, og Ólafi Rósenkranz 500 kr.
nafnbundinn launaauka. Þorkeli
kennara Þorkelssyni á Akureyri er
ætlaður 300 kr. styrkur til útgáfu
kenslubókar hans i stærðfræði. Laun
til 3 yfirsetukvenna í Rvík fyrir verk-
lega kenslu yfirsetukvennaefna, bækki
úr 300 kr. upp 1 900 kr. (300 kr.
handa hverri).
Ekki vill nefndin veita fé til að
reisa skólahús, meðan húsagerð er
svo afardýr sem nú er hún. Þó
vill hún veita 25 þús. kr. til barna-
skólahúss í Vestmannaeyjum, sem
oflangt er komið til þess að snúið
verði aftur.
Landsbókasajnið.
Því eru ætlaðar 1200 kr. fyrra
árið til að gefa út handiitaskrá safns-
ins og 2500 kr. fyrra árið tii samn-
ingar og útgáfu á minningarriti safns-
ins.
Skáld og listamenn.
Styrk til skálda og listamanna,
sem stjórnin hefir ætlað 12 þús. kr.
hvort árið, vill nefndin hækka upp
i 16 þús. kr.
»Nefndinni þótti stjórnin hafa
numið styrk til skálda og listamanna
um of við neglur sér, því að með
þeirri upphæð var gersamlega ófært
að taka nokkurt hæfilegt tillit til
margra nýrra umsókna frá ágætum
mönnum, bæði þektum skáldum og
efnilegum listamönnum. Telur
nefndin óheppilegt að höggva styrk-
ina alt of smátt«.
Niðurlag þessa útdráttar úr nefnd-
arálitinu kemur í blaðinu á morgun.
Breyting
á tekjuskattslögunum.
Fjárhagsnefud Nd. flytur frv. mik-
ið um breyting á tekjuskattslögunum
frá 1877.
Málið er svo mikilsvert, að rétt
þykir að telja hér upp aðalákvæði frv.
Tekjuskatt þann af eign, sem ræð-
ir um í 2. gr. tekjuskattslaganna (þ.
e. a. s. af allskonar vaxta og leigu-
fé) skal greiða með 4 af hundraði af
tekjum, sem nema 1000 kr., en síð-
an eykst skatturinn um 1 af hundr-
aði á hverju þúsundi, uns hann er'
orðinn 15 af hundraði, sem greiðist
af því, sem eignartekjur ne.na yfir
11,000 kr. [Samkv. lögunum er
skatturinn 4%» hvort sem tekjurnar
eru miklar eða litlar.]
Tekjuskattur af atvinnu eykst með
sama hætti og segir i lögunum, unz
hann er orðinn 15 af hundraði, sem
greiðist af þvi, sem tekjurnar nema
yfir 29,000 kr. [Lögin ákveða hæst-
an skatt 4% — af tekjum yfir 7
þús. kr.]
Atvinnuskatt skal einnig greiða af
landbúnaði og sjávarútvegi.
Ákvæði 12. gr. laganna (um skyldu
til að láta skattanefndum í té upp-
lýsingar) skulu einnig ná til stjórn-
enda baDka og sparisjóða, að því er
snertir innieign og vaxtafé í þeim
stofnunum.
Ef gjaldþegn gefur enga skýrslu um
tekjur sinar, skal skattanefnd áætla
tekjur hans svo freklega, sem hún
telur fært, svo að eigi sé hætt við,
að þær verði settar lægri en þær eru
í raun og veru.
Þyki skattanefnd ástæða til, getur
hún krafist þess, að framteljandi stað-
festi framtal sitt með eiði eða dreng-
skaparheiti fyrir dómi.
Yfirskattanefnd á að hafa strangt
eftirlit með þvi, að skattanefndir í
umdæmi hennar gegni skyldu siqni,
og ganga ríkt eftir réttu framtali.
Leiðréttir hún síðan skattskrárnar, svo
sem hún telur þörf á. Úrskurðum
hennar verður eigi áfrýjað.
Skýrslum þeim, um efnahag gjald-
þegna, er skattanefndarmenn fá vit-
neskju um i starfa sinum, skulu þeir
halda leyndum fyrir öllum úti i frá
að viðlagðri refsingu.
Lög þessi öðiast gildi þegar í stað
og gilda til jafnlengdar 1919.
í ástæðunum segir að frv. miði að
því tvennu,
1. að ná hcern skatti en nú er af
miklum tekjum, og
2. að tryggja það, að slíkur skattur
náist hjá gjaldþegnunum.
KosnÍDg i Isafjartasýsln.
Úrslit eru enn ókunnug, en sam-
kvæmt fregn frá ísafirði hafa atkv.
i hreppunum fallið þannig: Hóls-
hreppi 226 atkv., Eyrarhreppi 125
atkv., Súðavíkurhr. 122 atkv., Ögur-
hr. 70 atkv., Reykjarfjarðarhr. 56 at--
kvæði, Nauteyrarhr. 34 atkv., Snæ-
fjallahr. 30 atkv., Grunnavíkurhr. 29»*
atkv. og Sléttuhr. 120 atkv.