Morgunblaðið - 02.09.1917, Page 1
<Sunnud.
2.
sept. 1917
4. árgangr
299.
tðlublaO
Ritstjórnarsími nr. 500
Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen
ísafoldarprentsmiðja
Afgreiðslnsimi nr. 500
Gamla Bio
Gift í misgripum
(Konan hans pabba).
Gamanleikur í 3 þáttum eftir
Hennequin Millands
víðfræga Vaudeville, leikinn og
útbúinn hjáPathé Frerés í P.uis.
Aðalhlutverkin tvö leikur
Prince (Yendelby)
hinn góðkunni franski skopleikari
sem oft hefir leikið áður á dög-
um Lehmanns og Max Linders.
Erl. simfregnir.
frá fréttaritara Isaf. og Morgunbl ).
K.höfn 31. ág.
„Morning Post“ í London
segir frá því að verið só
að mynda nýjau „National-
Unionista“-flokk í Englandi
til þess að endurbæta
stjórnarfyrirkomulagið. —
Flokkurinn hefir ákveðna
lýðveldissteinuskrá.
ítalir eru komnir að að-
alvarnarlínunni bja flain-
sizza og hafa tekið 1000
fanga.
Bretar bafa bannað inn-
flutning á reyktu svína-
kjöti og smjöri nema sór-
stakt leyfl sé fengið.
— Alment verkfall var
haíið í Svisslandi í gær.
Frá Helsingfors er símað
að rússneskir hermenn
hafi með valdi varnað
finsku þingmöununum að
komast inn i þinghúsið.
Russneskar konur hafa
fengið jafnrétti við barl-
menn.
Erl. símfregnir
Opinber tilkynning frá brezku utan-
rikisstjórninni i London.
London, 31. ágúst.
Forseti Bandaríkjanna hefír kurt-
eislega hafnað friðaráskorun páfans
-og segir, að sá friður sé eigi til
frambiiðar, er byggist á loforðum
I. S. I.
I. S. I.
um
Knaftspyrnufiorn íslands
verður háður
mánudaginn 3. september 1917 kl. VU — sjö og há!f —
á Iþréttavellinum.
Knattspyrnufélag Reykjavíkur og Yalur keppa.
NB. Að eins þessi eini kappleikur.
----Hornið verður afhent sigurvegara að Kappleiknum loknum.-
Dómari mótsins er hetra kaupm. E. Jacobsen.
þýzka einveldisins. Þess verði að
bíða, að þjóðirnar í Miðríkjunum út
af fyrir sig og án tillits til sjóroanna,
gefi nýjan og betri vott um
hvað þær æt!i sér. Um alla
Ameríku hafa blöðin tekið þessu
svari forsetans með miklum fögnuði
og er það talið sem ávarp til þýzku
þjóðarinnar. London-blöðin taka
svarinu vel, en segja þó, að eigi sé
hægt að sýkna þýzku þjóðina af því,
að hún hafi sjálfviljuglega gerst
stjórninni samsek.
Ríkisráðstefuan í Moskva bendir
til þess, að mikill skoðanamunur sé
meðal borgaralegra og hernaðarlegra
yfirvalda. Hin borgaralega stjórn er
ófús á það, að fi herstjórninni full-
komið heraga-vald í hendur, því að
með því muni lýðveldinu hætt. En
herstjórifin segir, að ástandið sé von-
laust, nema því að eins, að hún fái
vald til þess að hnekkja agaleysinu
í hernum. Samt sem áður hefir öll-
um komið saman um það, að nauð-
synlegt sé að berjast ti! signrs.
Riðstefna jtfnaðarmanna banda-
manna í London fór skyndilega út
um þúfur hinn 29. ágúst, vegna
þess, að eigi var hægt að ná sam-
komulagi um þáttöku í Stokkhólms-
iðstefnunm og hernaðartilgang þann,
er verkamenn hafa hugsað sér. Það
er nú tilkynt, að ráðstefnunni í
Stokkhólmi hafi verið frestað.
Skýrslan um kafbátahernaðinn fytir
vikuna, sem endaði 26. ágúst, sýnir
það, að 2629 skip hafa komið til
brezkra hafna og 2680 farið. Átján
brezkum skipum, sem báru meira
en 1600 smálestir, og fimm minni,
vtr sökt. Á sex skip var ráðist
árangurslaust.
Opinber tilkynuing hefir verið
birt um innflutningsbann til Bret-
lands á allskonar fleski (bacon, ham,
lard) og smjöri, nema undanþága sé
veitt. Er það tilgangurinn, að mat-
vælaráðherrann geti aflað sér upp-
lýsinga um birgðir þær, sem fyrir
eru, og takmarka verðið.
Það er opinberlega tilkynt, að
komið sé á nýju fyrirkomulagi, til
þess að afli verzlunarskýrslna og
breiða þær út, og að stofnuð sé ný
embætti í því tilefni í sambandi við
aukna verzlunarmálastjórnardeild;
skal deild þessi hafa í þinginu um-
boðsmann, er sé talsmaður bæði
fyrir verzlunarmálaráðuneytið og
utanríkismála-ráðuneytið.
Lloyd George simaði til forsætis-
ráðherra Rúmena á afmælisdegi þess
að þeir gengu í ófiiðinn og dáðist
að hinni hetjulegu dáð og þrautseigju,
er þeir hefðu sýnt í hinum dæma-
lausu raunum ófriðarársins.
Fréttaritari »Times« í Washington
segir, að viðbúnaði B.mdaríkjanna til
þess að taka fuílan þátt í ófriðnum
miði áfram hröðum skrefum. Miljónir
manna verði fullæfðar innan mánað-
ar, en allir framleiðendur keppast við
að byrgja stjórnina upp með vörum.
Á þingfundi í Ottawa hinn 27.
ágúst voru samþykt herskyldulög og
er stjórnin að búr alt undir, að þau
geti kornið þegar til framkvæmda.
Það er tilkynt, að ’ öflug nefnd
hafi verið kosin og formaður henn-
ar sé Bryce viscount. Á hún að
íhuga endurbætur á neðri málstof-
unni.
Félag fatlaðra hermanua og sjó-
manna hefir símað til koDungs og
forsætisráðherra: »250 þúsundir
mauna, sem fatlast hafa i orustunum
hjá Mons, Marne, Aisne, Ypres, Jót-
landi og víðar og hjálpuðu til þess
að bjarga Norðurálfunni« mótmæla
því harðlega, að sendir séu fulltrúar
til ráðstefnunnar i Stokkhólmi.
Grey jarl, sem áður var landstjóri
í Kanada, er látinn.
Margir menn og konui í brezka
ríkinu, er sýnt hafa framúrskarandi
aðstoð i því, er hernaðinum viðkem-
ur, eru nefnd á fyrsta listannm, er
hefir verið birtur með nöfnum þeirra~
er fengið hafa tvö ný heiðursmerki,
»Order of the British Empire« og»Or-
der of the companions of Honour«.
nýjn bíó
Ópiumreykjarinn.
Mjög áhrifamikill og vel leik-
inn sjónleikur í 3 þáttum. —
Aðalhlutverkin, bræðurna Kauf-
mann, syni barónsins, leika þeir
Alf Bliitcher og Robert Smith.
Tölusett sæti.
Reynir Gfslason
byrjar aftur
timakenslu í Pianospili,
Teori (= hljómfræði)
og Instrumentation.
Heiðursmerki hafa einnig verið veitt
hergagna-verkamönnum, er sýnt hafa
dugnað og sjálfsfórn.
London ódagsett.
Vikuna, sem endaði 31. ág. hafa
stormar og illviðri orsakað hlé á or-
ustum hjá Ypres, Lens og St. Quen-
tin, en Bretar halda þó öllum þeim
stöðum jafn hörðum greipum og
áður. Þrátt fyrir storm og regn
hefir orusta staðið fyrir norðan Ypr-
es Menin veginn, og þvert yfir Ypr-
es Roulers veginn, þar sem viðnám
Þjóðverja var mest. Þar og hjá
Poelcapelle hafa Bretar barist um
siðustu hálsana áður komið er á
Flandem-hásléttuna. Hjá St. Janshoek
hafa verið teknar tvær ramlegar
varnarlinur Þjóðverja, margar stöðv-
ar þriðju linunnar eru nú i hönd-
um Breta. Óhugur hefir gripið Þjóð-
verja, sem þessvegna hafa gert áköf
áhlaup, mist margt manna, en hafa
ekki getað hindrað fyrirætlanir vorar.
Vér höfum haldið öllu því, sem
vér höfum unnið hjá Lens og höld-
um sífelt áfram að þröngva kosti
óvinanna, þrátt fyrir æðisgengnar
tilraunir þeirra til þess að ná aftur
70 hæðinni, sem er afar-þýðingar-
mikil til þess að geta haldið borg-
inni. Fall Lens er nú að eins tíma-
spursmál og gagnáhlaup óvinanna í
engum öðrum tilgangi gerð en að
hermenn þeirra láti ekki hugfallast
og að bjarga la-Bassée, sem nú er
líka í hættu, svo lengi sem unt er.
Það er enn á ný hægt að lesa
hræðslu óvinanna milli línanna í
opinberum skýrslum þeirra. Er það
að Bretar hrundu áhlaupi Þjóðverja
fyrir norðan I.ens gert að áköfu á-
hlaupi Breta á línunni frá Lens að
La Bassee, sem »alveg fórst fyrir
vegna mannfallsþeirra*. Þetta áhlanp
er tilbúningur einn, og sýnir greini-
lega sálarástand óvinanna.