Morgunblaðið - 22.09.1917, Page 2
2
\
MORGUNBLAÐIÐ
Skóhfífar. Enn er dálífið effir af
Skrifstofa andbannmgafélagsins,
Ingólfsíræti 21,
opin hvern virkan dag kl. 4—7 síQd.
Allir þeir sem vilja koma áfengis-
málinu í viðunandi horf, án þess að
hnekkja persónufrelsi manna og al-
mennum mannréttindum, eru beðnir
að snúa sér þangað.
Sími 544.
Mótekjan.
Misjafnk hafa orðið dómar
manna um bæjarmóinn og þó
aðallega á eina lund, að bann
væri illhæfur til notkunar. Og
þegar nú þar við bætist að mór-
inn verður miklu dýrari heldur
en búist var við, þá hafa hinar
góðu vonir manna brugðist hast-
arlega.
Mómálið var til umræðu á
bæjarstjórnarfundi í fyrrakvöld.
Jón Þorláksson, forstjóri elds-
neytisskrifstofunnar, reifði málið.
Kvað hann sér og bæjarstjórn
hafa mjög yfirsézt í vor þegar á-
æklunin var ger, því að þá hefði
verið gert ráð fyrir því að 12
hestar af mó færu í smálestina,
en sönnu nær væri að áætla 24
hesta í smál. öaf hann svo yfir-
lit um kostnaðinn við mótekj-
una og sagði að áætlað væri að
2500 smál. af stungumó og 500
smál. af eltimó hefði verið tekn-
ar upp og samsvaraði það hér
um bil pöntunum manna í vor.
— Um gæði mósins sagði hann,
að sumt af honum væri heldur
laust í sér vegna þess að hann
hefði þornað áður en hann varð
stunginn i sundur. En yfirleitt
væri mórinn góður.
Margt fleira kom fram í mál-
inu, en að lokum var samþykt
að smálestin skyldi seld á 45 kr.
og þeir, sem ekki hafa þegar
fengið móinn heim til sín, megi
vera lausir við pantanir sínar.
^ Gasið hækkar enn.
Á bæjarstjórnarfundi i fyrrakvöld
var samþykt að hækka verð á ljósa-
gasi í 125 aura teningsmetrana,
sjálfsalagas í 85 aura og suðugas i
80 aura. Bæjarstjórnin á nú von á
kolum frá Englandi handa gasstöð-
inni og eins hafa verið fest kaup á
100 smálestum af kolum hjá Kol
og Salt. Þetta nýja gasverð er mið-
að við meðalverð á þessum báðum
kolatégundum og sett svo lágt, að
gasstöðin haö engan hag af gassöl-
unni og eigi heldur tjón.
í sumar hefir gasnotkunin verið
með minsta móti, eða eigi nema
svo sem a/3 af þvi sem gasstöðin
getur framleitt. En þó er búist við
því að hún verði enn minni í vet-
ur, eða eigi nema helmingur af því
sem hægt er að framleiða.
Þorvarður benti á, hvort eigi
mundi heppilegra núna í dýrtíðinni
að, selja gasið lægra verði, enda þótt
gasstöðin tapaði á þvi, en ná því
svo aftur upp þegar um hægðist.
Jón Þorláksson áleit að slik dýr-
tiðarhjálp mundi eigi koma þar nið-
ur, er henni væri ætlað, og heldur
eigi rétt að vera að hvetja menn til
gaseyðslu.
Sigurður Jónsson sagði að sin
reynsla væri sú, að á undan þessari
hækkun hefði gasið- verið helmingi
dýrara en steinolia sú, sem hér hefir
fengist, enda þótt hún hefði ekki
reynst vel.
DAGBOK
Gangverð erlendrar myntar.
Dollar Bankar 3,52 Fósthús 3,60
Frankl 60,00 69,00
Sænsk króna ... 111,00 111,50
Norsk króna ... 104,00 103,00
Sterlingspund ... 16,40 16,00
Mark 49,00 48,00
Kveikt á ljóskerum bifreiða og hjóla
kl. 8 á kvöldin.
Messað í fríkirkjunni í Reykjavík
kl. 5 síðd. (síra Olafur Olafsson).
Njörðqr kom inn af fiskveiðum í
gærmorgun, með ágætan afla, sem hann
fékk hór úti í flóanum. Fiskurinn var
seldur hór í bænum. Er það happ
fyrir bæjarmenn, því að þótt nægur
fiskur só úti fyrir má ekkert vera að
veðri til þess að smábátar geti róið svo
langt og hefir þess vegna oft verið lítið
um fisk hór að undanförnu, nema það
sem vélbátarnir tveir hafa aflað.
Eggert Ólafsson og íslendingur
komu hingað í gær og höfðu í eftir-
dragi hinn mikla kolabark Elíasar
Stefánssonar.
Lóð E. í. A hæjarstjórnarfundi í
fyrrakvöld var samþykt frumvarp að
leigusamnrngi við Eimskipafólag íslands
um lóð þá er fólagið fær á uppfylling-
unni. Lóðin er lelgð til 90 ára og
ákveður matsnefnd leiguna á 5 ára
fresti frá 1. okt. 1917. E. í. hefir
forgangsleigurótt að uppfyllingunni
aust'ir að framlenging Pósthósstrætis
með sömu kjörum. Fólagið má segja
upp samningum með 12 mánaða fyrir-
vara, hvenær sem það vill.
Bærinn tokur lán. Samþykt var
við fyrri umræðu í fyrrakvöld á fundi
bæjarstjórnar, að taka alt að 180 þús.
króna lán. Er það litlu meira heldur
en lánveitingar, sem bæjarstjórn hefir
þegar heimilað í mörgu lagi, en eigi
hafa verið notaðar. Er nú alt dregið
saman í eitt. Ennfremur var borgar-
stjóra fahð að taka alt að 100 þús.
króna bráðabirgðalán tll þess að stand-
ast ymsar greiðslur í næsta mánuði.
Lóðakaup. Bæjarstjórn hefír fallist
á tillögu fasteignajiefndar um það að
kaupa lóð af Stefáni Kr. Bjarnasyni
skipstjóra, til breikkunar á Grundarstíg.
HÚMÍn á uppfyllingunni. Það er
nú afráðið að þarfahúsin, sem áður voru
á steinstóttinni hjá bæjarbryggjunni
akuli endurreist austast og efst á upp-
fyllingunni, eða þar sem upphaflega
var ákveðið að hafa þau.
Dýrtíðaruppbót. Bæjarstj. heimilr
aði gasetöðvarstjóra að veita 4 mönn-
um gasstöðvarinnar, þeim er lengst hafa
verið í þjónustu hennar, 700 kr. dýr-
tíðaruppbót. Tveir þeirra fá 200 kr.
hvor og hinir tveir 150 kr. hvor.
Kologoiía. Bæjarstjórn hefir feng-
iö loforð wm rúml. 1200 smál. af kol-
um fyrir 125 kr. smál. og 572 tunnur
af steinolíu hjá landsstjórninni. Auk
þess er búist við aS bærinn geti fengið
um 100 smái. meira af Tjörneskolum,
hsldur en búist var við og munu þau
kosta hingaö komin um 100 kr. smál.
Messað á morgun í dómkirkjunni
í Rvík ki. 10 síra B. J og ki. 5 síra
Jóh. Þ.
Hið nýja hús
Nathan & Olsens er dú bráðum
fullgert. Hafa skrifstofa verziunar-
innar verið fluttar í húsið þessa
dagana, Landsbankinn flutti þangað
fyrir nokkru.
Leigjendur verða margir í þessu
húsi. Landsbankinú hefir auk allrar
neðstu hæðarinnar, ennfremur tvö
herbergi á 2. lofti, en öll önnur
herbergi á þeirri hæð nota Nathan
& Olsen sjálfir. Hafa þeir þar, auk
margra smáherbergja, eina feikistórá
almenna skrifstofu sem m. a. er 13
metrar á lengd, og annað herbergi
sem er 9 metrar á lengd.
Á þriðja lofti eru 9 herbergi og
hefir Samband íslenzkra samvinnu-
kaupfélaga leigt eitt, Vitamálaskrif-
an eitt (skift í tvent) íRavnkilde
tannlæknir þrjú og Ljóslækningastofa
Gunnlaugs Claessens þrjú herbergi.
Á fjórða lofti hefir Guðm. Péturs-
son nuddlæknir leigt eitt herhergi,
Gunnar Sigurðsson frá Selalæk eitt,
DrP.J.OIafson
tannlækni
er fyrst um sinn að hitta í
KveHnaskólanum við Frikirkjuveg
kl. 10—11 og 2—3
á virkum dögum.
Ólafur Benjamínsson eitt (skift í
tvent). Geo. Copland þrjú, Páll
Ólafson tannlæknir eitt (skift í
tvent), en tvö þerbergi eru óleigð
enn.
Alt húsið þar fyrir ofan (^ær
hæðir) hefir Frímúrarareglan tekið á
leigu.
Á hverri hæð eru vatnssalerni,
þvottaherbergi og baðherbergi og
alt verður húsið raflýst.
Gert er ráð fyrir því að flutt verði
í húsið 1. oktober og er nú verið
að mála herbergin og leggja dúk á
gólfin.
Barnaskólinn.
Vér Reykjavikurbúar megum vera
skólanefnd barnaskóla Reykjavíkur
þakklátir fyrir hinar viturlegu rið-
stafanir hennar með barnaskólann,
sem fyrir nefndarinnar tilstilli fær að
starfa á komandi vetri, að visu með
takmörkunum, sem eg mun koma
að síðar.
Barnaskólinn og fræðslulögin voru
gerð að umtalsefni á síðasta alþingi,
einkum vaið barnaskóli Reykjavíkur
að sæta miklum árásum af hendi
eins þingmanns, er lét sér sæma að
kasta fram óverðskulduðum sleggju-
dómum um skólann.
Það er nú á allra vitorði, að börn
sem taka fullnaðarpróf frá barna-
skólanum, ganga að því loknu sama
ár inn í æðri skóla, svo sem Menta-
skólann, Kvennaskólann og Verzl-
unarskólann, og er það óræk sönn-
un þess, að keoslan muni vera í
góðu lagi, og óhætt má fullyrða það
að skólastióri og kennarafólkið leit-
ast við að innræta börnunum skyldu-
rækni og góða siðu.
En það var nú aðallega eitt atriði
í ráðstöfun skólanefndarinnar, er
eg vildi gera hér að umtalsefni, og
það er það, að handavinna barnanna
er tekin út úr skólanum.
Það vantar nú ekki, að maður sér
oft vinnubrögð dásömuð í blöðum
hér á landi, heimilisiðnaðarféiög
mynduð og prófessorsembætti í
vinnuvísindum stofnað við Háskóla
íslands, þá er það heldur hjáleitt,
að í fæstum barnaskólum landsins^
er kend handavinna, og nú sér
maður að þegar nauðsyn krefup