Morgunblaðið - 10.02.1918, Page 2
2
MORGUNBLAÐTÐ
Hugheilustu hjartans þakkir flytjum við hér með meðlimum Iðnaðar-
mannafélags Reykjavíkur og öllum öðrum, er heiðrað hafa minningu
okkar ástkæra eiginmanns og föður, Bergs Þorleifssonar, og á svo inni-
legan og margvíslegan hátt hafa tekið þátt í kjörum okkar, við fráfall
hans og jarðarför.
Hólmfríður Arnadóttir. Guðiún Bergsdóttir.
Hjartanlega þökk fyrir auðsýnda hluttekningu við jarðarför konu
minnar, Svanlaugar Benediktsdóttur, fyrir hönd mina og barna minna.
Guðm. Sigurðsson.
1 skrifstofuherbergi
á 2. lofti í húsi Nathan & Olsen
til leigu nú pegar.
og vanir á þilskipum, geta íengið atvinnu á kútter Fugloy
írá Klaksvig í Færeyjum, sem væntanlega leggur at stað áleiðis
hingað þriðjudaginn 17. þ. m-
Helgí Zoega.
fram á, að kafbátahernaðurinn
bæri tilætlaðan árangur. Um-
mæli þýzku blaðanna um þetta
atriði benda til þess, að augu
manna séu að opnast fyrir þessu.
í öllu, sem um þetta er ritað í
Þýzkalandi, er reynt að ganga
fram hjá því, sem áður var spáð
um árangur kafbátahernaðarins.
»Tuscania«, skip Ancor-línunn-
ar, sem flutti herlið frá Ameríku,
var skotið tundurskeyti 5. febr.
í nánd við írlandsstrendur. Af
2397 mönnum, sem alls voru um
borð, var öllum bjargað nema
205 mönnum. Ameríkumenn lofa
mjög björgunarstarf brezku tund-
urspillanna. Fyrirliði tundurspiíl-
anna er sannfærður um það, að
kafbátnum, sem sökti »Tuscania«,
var einnig sökt.
Þýzkur herréttur hefir dæmt
brezku flugmennina og fyrirlið-
ana Scholtz og Wookey i 10 ára
betrunarhússvinnu fyrir að hafa
varpað niður að baki víglínu
Þjóðverja prentuðum skýrslum og
ræðum bandamanna. Fyrir dómi
þessum eru engin alheimslög og
þess vegna hefir utanríkisráðu-
neytið, fyrir milligöngu hollenzku
stjórnarinnar, tilkynt Þjóðverjum
að þeim mundi verða goldið í
sömu mynt, ef fyrirliðunum yrði
ekki þegar slept lausum. Brezka
stjórnin hefir í hyggju að gjalda
Þjóðverjum í líkri mynt það, að
þeir halda brezkum fyrirliðum
sem föngum í þeim byggingum,
sem sjerstaklega eru markmið
flugárásanna.
Frá Petrograd er símað 6. febr.
að rússnesku fulltrúarnir í Brest-
Litovsk hafi símað til aðalstöðva
Bolshevika, að þegar samningar
aftur byrjuðu, ætluðu Austurríkis-
menn og Þjóðverjar að krefjast
þess, að sjerfriðarsamningar yrðu
undirskrifaðir. Rússar neituðu
þessu einum rómi. Það er sagt,
að ef samningatilraunirnar færust
fyrir, þá mundi það þýða það, að
ekkert yrði úr samningum við
Ukrainestjórnina, sem mjög þótti
æskilegt, og þess vegna þorðu
Þjóðverjar og Austurríkismenn
ekki annað en að halda áfram
samningum þrátt fyrir þessa mót-
báru.
Símskeyti frá Hollandi herma
það, að brezk flotadeild hafi skot-
ið á herskipakvíarnar og herskál-
ann í Ostende og hafi tjóu þar
orðið mikið.
London, ódagsett.
Herdeildir óvinaliðs haldaáfram
að streyma til vesturvígstöðvanna
frá Rússlandi, jafnört og áður,
en þó hafa óvinirnir þar enn eigi
meiri mannafla heldur en banda-
menn. Að þeir draga svo mikið
lið saman á þessum stöðvum
bendir til þess, að þeir álíti þar
reglulega hættu á ferðum, sem
verði að afstýra. Samt sem áður
eru þeir nú eigi óhræddir um
sig fyrir Rússum. Þeir höfðu
búist við því að geta samið sér-
frið, sem sigurvegarar, en höfðu
eigi búist við því, að Bolzevikk-
ar mundu rísa öndverðir gegn
því að farið yrði með sig sem
sigraða.
Þessa vikuna hefir eigi annað
verið að frétta en um útrásir,
flugferðir og stórskotahríð. Þjóð-
verjar gerðu 25 útrásir. I hin-
um smærri útrásunum tókst þeim
að handtaka fáeina menn, en í
hinum stærri voru þeir brotnir á
bak aftur. Bretar og Frakkar
gerðu færri útrásir, en höfðu sig-
ur í fleirum en Þjóðverjar. I
einni útrásinni voru handteknir
29 menn.
— Starf flugmanna Breta og
Frakka hefir verið stórkostlegt.
Gerðu þeir nær daglega árásir á
verksmiðjur og samgöngutæki
óvinanna, og í loftorustum skutu
þeir margar flugvélar niður. —
Bretar ónýttu 26 flugvélar og
hröktu aðrar 25 til jarðar á vest-
urvígstöðvunum. En Frakkar
réðu niðurlögum 20 flugvéla, þar
af voru 17 ónýttar og 3 hraktar
til jarðar.
Á vígstöðvum ítala var 41
óvinafiugvél skotin niður. Alt
flugvélatjón óvinanna er mjög
mikið. Og það væri stórhættu-
legt fyrir þá, ef þeir yrðu alger-
lega undir í loftinu.
Þjóðverjar reyna að slá ryki í
augu heimsins með því að breiða
það út, að Bretar liggi á liði sínn
og að fult sé af hermönnum í
Englandi til landvarna. Á með-
al hersveitanna í Englandi eru
500.000 menn, sem eru að æfa,
en verða bráðum sendir á stað.
Þótt taldir væru með allir ör-
kumlamenn og menn, sem vinna
að nauðsynlegum störfum heima,
og enn fremur menn þeir, sem
þarf til þess að auka með herinn,
þá væri þessi áburður Þjóðverja
eigi á rökum bygður. Þjóðverj-
ar þykjast sanna ummæli sín
með því að fullyrða, að tvær eða
fleiri miljónir hermanna sjeu í
Englandi, en sannleikurinn er sá,
að slíkur hermannafjöldi er þar
hvergi.
Hafíiarstræti.
iolskin & Naokin.
Morgunkjólatau,
Flónel & Léreít,
Prjónavörnr,
Ullarteppi -- Rúmteppl,
Piöscb Borðdúkar
ítalir fylgdu fram sigri þeim,
er þeir unnu á Asiago í síðustu
viku með frekari smá-framsókn
norðaustur af Col del Rasso og
styrktu með því stöðvar sínar.
Óvinirnir gerðu nokkrar árang-
urslausar tilraunir með nýrri
gagnáhlaupa-aðferð hjá botni
Melago-dalsins og ætluðu sjer að
reyna að komast á hlið við Val-
bella-stöðvarnar og ná þeim aft-
ur. ítalir létu stórskotahríð dynja
á hersveitum þeim, er sendar
voru fram til áhlaups og brytj-
uðu þær niður áður en þeim tókst
að ná takmarki sínu. í Lagarina-
dalnum og norður af Pasubio
reyndu óvinirnir hvað eftir ann-
að á styrkJeik ítala. Stöðvar
þessar eru ramlega vígvarðar og
nokkuð frá sléttunni, hjá vegin-
um milli Verona og Vicenza, sem
eru þýðingarmiklar borgir skamt
að baki Piave-vígstöðvanna.
Nokkuð meiri hreyfing er á
vígstöðvunum hjá Saloniki, en þó
hefir ekkert merkilegt komið þar
fyrir. Grikkir hafa aftur flogið
yfir Miletkovo-járnbrautarstöð í
Vardar-dalnum. Eru þar lagðar
ljettar járnbrautir til aðdrátta
fyrir Doiran-stöðvarnar. Þar
vörpuðu flugmennirnir niður
sprengikúlum 0g varð mikill ár-
angur af því. Árangurinn af
árásinni á herdeildar-forðabúr
Búlgara í Livunovo, má sjá á
herteknum mönnum. Segja þeir
að hinn illi klæðnaður sinn sé
því að kenna, hverjar skemdir
urðu á þessu forðabúri.
Á öðrum vígstöðvum urðu efi&'
ar merkilegar hernaðarfran1'
kvæmdir, nema framsóknin norð'
an við Jerúsalem í áttina til veg'
arins, 3em liggur austur ^
Shechem-vegi tilHedjaz-járnbraut'
arinnar, og svo i Austur-Afri^11*
Óvinirnir voru þar hraktir í att'
ina til Mtarica og Pamuni-fja .
tóku hersveitir frá Para-Aruolia
og náðu þar 50 smálestuiu a
matvælum.