Morgunblaðið - 10.02.1918, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 10.02.1918, Qupperneq 3
io. febr. 98. tbl. MORGUNBLAÐIÐ 5 10,000.000 , stangtr af Sunlight sápu eru seldar i hverrl viku, og er þa5 hin besta sönnun fyrir því, að Sunlight sápa hefir alla þá kosti til að bera, sem henni eru eignaðir, og að hún svarar til þeirra eptir- ' væntlnga, sem menn hafa gjört sjer um ágætihennar 1585 j Smáaíriði úr sögu smæSiogjanna. Það var frost og fjiik, auðn og kuldi vetrarins blasti allsstaðar við, og. eg var i þungu skapi. »Nii á víst margur erfitt«, hugsaði eg með mér, og á svipstundu þóttist eg sjá ýmsa af þeim, sem eg vissi að harð- indin léku harðast. Fátæku mæ?- urnar með klæðlitlu börnin sín I — »Ætli nokkur sinni um að klæða þau«. Mér virtist þögnin fullkomn- asta svarið við spurningunni. En þá var barið að dyrum. Komu- maður leggur bréf í lófa minn. í bréfinu er 50 króna seðill. »Það á að vera handa einhverju klæðlitla barninu, sem þér mintust á í Morg- unblaðinu nýskeð«, segir maðurinn. Eg þakka gjöfina. Fyrst og fremst vegna þeirra sem gjöfina þiggja eiga, þar næst sjálfrar mín vegna og síð- ast en eigi sizt af þvi að eg minn- ist þess nú glögt hve ríkur hann er, sem »gleymir ei aumingjans kveini«. Maðurinn vildi ekki láta nafns sins getið, og eg gjöri það því ekki. Guð þekkir hann og hann lætur hann ekki fara varhluta af gleðinni, sem fylgir þvi að gleðja smælingjann, — minsta bróðurinn eða minstu syst- urina. Kona ein kemur að máli við mig litlu síðar. Flún þekkir gamalmenni, klæðlaust og fátækt. »Væri ekki hægt að hjálpa honum eitthvað*, spyr húu. Og svo hlýði eg á eina sög- una enn um örbirgð og eifiðleika, ■— gömlu söguna, sem margir kann- ast við, en of margir gleyma á meðan alt leikur í lyndi. — Hjólið snýsr og snýr að oss ýmist sorginni eða gleðinni. »Hann kemstekki úi rúminu orðið fyrir fataleysi*, segir konan. »Hon- °tn svíður að láta sjá sig tötralegan, einu sinni átti hann betri daga« — eg horfi um öxl og í anda sé eg liðnu æfina hans, bjarta æsku og álit- leg unglingsár — pá óraði engan nekt ellinnar. Eg lofaði konunni að hugsa til Satnla mannsins- Guð þekkir þarf- Frá Langbarðalandi. Eftir orusturnar fara bifreiðar um yígvellina og safna saman særðum mönnum. Og nokkru seinna koma verkamenn sem draga saman hina dauðu. Hjá valköstunum staðnæmist læknir og les upp, en tveir liðsforingjar rita: Hermaður nr. þetta og þetta úr þessu tvífy ki þessarar herdeildar. Banamein: tættur sundur af sprengi- kúlu. Eftirlátnir munir: úr, myndir af konu og börnum og bréfaböggull. — Þegar þessu er lokið, er líkið tekið og látið i hina stóru, sameiginlegu gröf. Og þá er ótti og angist margra fjölskylda á enda. Ekkjunum hefir fjölgað f landinu. En herstjórnin tilkynnir: Manntjón vort var ekkert í samanburði við manntjón óvinanna. irnar hans, hugsaði eg með mér og sú hugsun var eins og sólargeisli í myrkri. Konan fór, eg horfði á eftir henni unz hún hvarf. Etfitt að geta ekkert hjálpaðl Sárt að vita af öld- ungnum f skorti og neyð! Stundu siðar sama dag færir mað- ur mér stóran stranga af góða fata- efni. »Handa klæðlitlum fátækling- um«, stóð á s,’ð!i, sem fylgdi gjöf- inni, ásamt nöfnum þeirra manna, sem hún var frá. Eg nafngreini þá ekki heldur, en leyfi mér að færa þeim ástarþakkir þeirra, sem nutu hinnar rausnarlegu gjafar þeirra, — hún varð drjúgur ábætir á jólagleði litlu systkinanna á fátækum heimilum hé.i i bænum. Eg þarf tæpast að taka það fram að gamli maðurinn fékk fötin, þótt þau væru úr öðru efni en þvi sem klæðisstranginn hafði inni að halda. Ungur maður hér í bænum sendi honum góð föt, og sjálfsagt hefði gefandanum verið á- nægja að því að sjá gleðisvipinn á gamla manninum, þegar hann var kominn i nýju fötin. Hún býr við þröng kjör. Skortur er daglegt hlutskifti hennar. Sárast af öllu er henni þó að sjá nekt barnanna sinna og geta ekki úr bætt. Hún hlýðir kvíðafull á stunur storms- ins, sem lætur hátt i vetrarmyrkrinu. »Mamma, fæ eg ekki nýjan kjól bráðum f Gamli kjójlinn minn er orðinn svo ónýtur«. »Mamma, mig vantar yfirhöfn, mér er altai svo kalt ef eg fer út«. »Mamma, nú eru skórnir^minir orðnir alveg ónýtir*. »Mamma, eg þarf að fá vetlinga«. Þau sögðu langtum fleira en þetta, en móðirin hafði sama svarið við þau öll: Hún hafði ekki efni á að kaupa handa þeim neitt af þessu. Daglaumn mannsins hennar hrukku tæplega fyrir daglegum nauðsynjum, fatnaðurinn varð að sitja á hakanum. Og hún sá engin ráð til þess að bæta úr nekt þeirra. Hún bætti og stagaði fötin þeirra eins vel og hún frekast gat, vakti við það þegar börnin sváfu, og þreyttri og þjak- aðri lá henni við að leggja árar í bát og gefast npp í baráttunni. Það er barið að dyrum. Hver leitar að hreysum hennar. Ung stúlka vel búin réttir henni stóran böggul. »Það er handa börnunum yðar«, segir hún. Börnin gerast forvitin þegar þau sjá móður sína koma inn með stór- an böggul í fanginu, og þau þyrpast utan um hana þegar hún tekur um- búðirnar utan af bögglinum. »Nei, mamma, sko kjólinn! og svuntur og nærföt og sokkar og yfirhöfn, nei mamma, hún er mátu- leg handa mér! sjáðu, sjáðu!«. Aug- un ljóma af gleði og litlu hendurnar eru á lofti iðandi af fjöri og til- hlökkun. Það er erfitt að lýsa fögn- uði barnanna, sem þannig fá bættar brýnustu þarfir sínar á óvæntan hátt. En tárin lauga brár móðurinnar. Það eru gleðitár, þvíað hún finnur það nú að hún er ekki qleyrnd. Fatnað- urinn og brosleitu barns-andlitin bera vott um það. Sú hugsun vermir hjarta jjhennar og veitir henni þrólt til þess að ganga enn á ný á hólm við erfiðu lífskjörin. Hún er ekki qleytnd. Vinarhendur eru að henni réttar, til þess að létta á byrðinni með henni. Hún á rúm í hlýjum, kærleiksríkum . vinahjörtum. Hún hefði fegin viljað þakka þeim sem gerðu henni gott, en húa þekkir þá ekki, og veit ekki hverjir þeir eru, en hitt veit hún, fátæka konan, að það er guð sjálíur, sem þannig vekur góða menn henni til hjálpar, þegar neyðin þrýstir að sem fastast. Og blessunaróskir hennar stíga í hæð- irnar, og verða að heitri bæn, fyrir ölium þeim, sem láta af hendi rakna fátækum til hjálpar. Og eg er viss um að blessunar- óskir fátæku mæðranna hérna í bæn- um fylkja fögru liði umhverfis alla þá, sem auðsýna hlýleika hjálpsem- innar, þeim er bágt eiga. Guðrún Lárusdóttir. Kuldar. Þa5 hefir v/ðar verið kalt síðan um. nýár heldur en hér. í Svíþjóð hafa verið frosthríðar og hafís frosið um öll Norðurlönd. í Ameríku hafa líka ver- ið miklir kuldar og Huðsonsflóinn var fullur af /s um nýár. í New York náði frostið 46 stigum á Fakrenheit (um 43 stig á Celsius), á nýársnótt. Er það hið mesta frost þar, sem mena muna eftir. Fraus þá vatnsleiðsla borgarinnar svo að víða var vatns- laust borginni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.