Morgunblaðið - 24.03.1918, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
7
Siðustu sfmfregnir
KhöÍD, 23. marz.
Frá London er símað að Þjóð-
verjar haldi þeim stöðvum, er þeir
hafa tekið, og er búist við áköfum
orustum upp úr þessu.
Frá Berlín er simað að orustur
á vesturvígstöðvunum harðni altaf.
Þjóðverjar hafa nú handtekið 16000
menn og tekið 200 failbyssur að
herfangi.
Frá Rotterdam er símað að þing-
menn Hollendinga vilji að slitið sé
stjórnmálasambandi við Bandaríkin.
Ingólfl hlekkist á.
í gærmorgun kl. rúmiega 11 fór
flóabáturinn Ingólfur úr Borgarnesi
áleiðis hingað. Er skipið var komið
á móts við Akranes, bilaði vélin svo,
að áfram varð ekki haldið. Sneri
skipið þvi við og komst með naum-
indum aftur til Borgamess á segl-
um.
Þar liggur skipið nú og kvað það
vera mjög óvíst, hvort hægt veiður
að gera við vélina hér.
Jessen vélfræðingur fer héðan á
vélbáti upp eftir 1 dag til þess að
rannsaka vélina og gefa skýrslu um
bilunina.
Ameríkuferðir.
Sú fregn hefir gengið hér um bæ-
inn síðustu dagana, að stjórn Banda-
ríkjanna hafi lagt hald á Gullfoss og
aetli að senda skipið i nokkrar ferðir
til Vesturheimseyja frá New York.
Það fylgdi og fregninni, að orðið
hafi að taka allar vörurnar, sem þeg-
ar höfðu verið fermdar, úr skipinu
aftur.
Vér höfum leitað oss upplýsinga
um þetta á skrifstofu Eimskipa-
félagsins, og getum sagt það, að
fregnin er ekki sönn. Það hefir
komið til tals að yfirvöldin í Banda-
ríkjunum tækju Gullfoss og Island
í ferðir til Vesturheimseyja, en það
em miklar likur til þess, að und .n-
hága fáist að minsta kosti fyrir Gull-
foss. Er fullnaðarsvar ekki enn kom-
en það mun vera væntanlegt á
hverri stundu.
Nefnd sú, sem landsstjórnin hefir
skipað til þess að semja við Breta
þessu sinni er nú á förum héðan.
af því, sem íslendingar sérstak-
vænta af þeirri nefnd er, að
ún gerj sjtt jtrasta ttj þess ag koma
utningum frá Ameríku hingað í
^Öunanlegt horf. Til þess að eng-
ltln skortur verði hér, má engin
St^7uu verða á aðflumingum. Nefnd-
Reyktóbak:
Gsrrick,
Embassy,
Westw’ard Ho,
Glasgow-Mixture,
Waferley —
Sun Cured Mixture.
Cigarettur:
Nilometer,
Milo,
G’.rrick,
Embassy,
Westminster,
Three Cast'es,
Hassan.
Fiestar tegundirnar bæði í dós-
um og pökkum.
Allar þessar ágætu tegundir
af Tóbaki og Cigarettum komu
með Borg, í
Liverpool.
in þarf að sýna Bretum fram á það,
að bezta ráðið til þess að hafa hér
nákvæmt eftirlit með aðflutningum,
þannig að við fáum ekki meira en
það sem við nauðsynlega þörfnumst,
en á það virðast bandamenn leggja
aðaláherzluna, er einmitt að lofa
skipunum Gullfossi og Lagarfossi að
sigla óhindruðum milli Ameríku og
íslands, sjá um sð þau skip verði
ekki tafin um of í New York.
Þessi tvö sk;p geta ekki flutt meira
að en það, sem við þörfnumst og
stjórni ætti að geta séð um það, að
hingað flytjist eingöngu þær vörur
sem við þörfum nauðsynlega að fá.
Á þetta verður nefndin að leggja
mikla áherzlu. Bretar geta, ef þeir
vilja, séð um að engin hindrun verði
á aðflutningum hiagað frá Ameriku.
Gullfoss og Lagarfoss í matvöru-
flutninga og Willemoes í- steinolíu-
flutninga. Því geta Bretar komið
i framkvæmd ef þeir vilja og
Stýrimaður.
Góður og duglegur stýrimaður getur fengið stöðu á skipi sem fer
héðan til Spánar og hingað aftur.
Ekki þýðir fyrir aðra en þá, sem hafa góð meðmæli, að gefa sig
fram. —
E Strand.
þeir vilja það og gera, ef að
eins nefndin léggur nógu mikla
áherzlu á þetta atriði á þeim fund-
um, sem hún brátt mun halda með
fulltrúum brezku stjórnarinnar i
London.
Komi nefndin þessu i framkvæmd,
er það raiklu meira virði en þó hún
geti fengið verðlagið á afurðum vor-
um hækkað eitthvað ósköp lítið, án
þess að vér þó viljum gera of lítið
úr þeim hluta hins væntanlega
samnings.
Erí. símfregnir
Opinber tilkynning frá brezku utan-
ríkisstjórninni í London.
London ódagsett.
Hernaðarskýrsla vikuna sem lauk
21. marz. Undirbúningi undir sókn
Þjóðverja var lokið fyrir nokkru síð-
an, þótt það sé markvert að enn
eru nokkrar hersveitir væntanlegar
að austan. Eq lið það sem notað
var til undirbúningsáhlaupanna, var
sérstaklega valið á meðal þeirra sem
þarfnast æfingar. Óvinirnir hafa nú
á að gizka 190 herdeildir (divisions)
á vesturvígstöðvunum og er helm-
ingur þess liðs gegnt vlgstöðvum
Breta. Loftorustur hafa verið nær
látlausar. 155 óvinaflugvélar voru
skotnar niður, 99 eyðilagðar en
56 féllu til jarðar stjórnlausar. A
iðnaðarborgirnar þýzku Zweibrucken,
Kjiserslautern og Mannheim var
varpað sprengikúlum með ágætum
árangri; einnig var varpað sprengi
kúlum á járnbrautarstöðvar, herskála,
forðabúr og flugvélaskýli. Stórskota-
hríðar h.fa staðið við og við á vest-
urvígstöðvunum á allri viglínunni og
endaði vikan með ákafri hrið á víg-
stöðvar Breta suður frá St. Quentin
til Scarpe og fylgdi henni fótgöngu-
liðsáhlaup hið megnasta. 50 herdeild-
um (divirions) var teflt fram á þess-
um stað, og voru 25 til vara.
Áhlaupið var gert milli Oise-
fljótsins, í nánd við Lafére, og
Sedree-fljótsins hjá Croiselles, þar
sem búist var við því. Enn þá
hafa Þjóðverjar ekkert unnið,
nema það, að reka framverði
Breta dálítið aftur. Manntjón
þeirra hefir verið afskaplegt og
er óliklegt, að það auki hugrekki
Þjóðverja, sem vissulega var ekki
svo mikið áður. Er það auðséð
á því, að strokumenn, sem teknir
hafa verið höndum, hafa gefið oss
upplýsÍDgar, svo að brezka her-
stjórnin vissi fyrirfram, hvar á-
hlaupið skyldi gert.
Hersveitir vorar halda óvinun-
um enn á herstöðvum þeirra.
Hinar þéttskipuðu áhlaupsfylk-
ingar óvinanna voru ágætur skot-
spónn fyrir skyttur vorar, vél-
skyttur og stórskotaliða, enda
neyttu þeir þess fyllilega.
Á vigstöðvum ítala hafa engar
markverðar hernaðarframkvæmd-
ir orðið. Bendir þó sumt til þess,,
að óvinirnir muni aftur ætla að
hefja sókn í fjallahéruðunum, þeg-
ar veðrátta leyfir. Hafa þeir dreg-
ið saman her í Gludicorie-dal og
umhverfis Lugorina-dal, og má
búast við þvi, að þeir hefji árás
á þeim stöðvum. En bandamenn
standa ágætlega að vígi í báðum
þessum dölum.
Á Saloniki-vígstöðvunum hefir
verið orusta alla leið milli Struma-
mynnis og Di’eswa-vatns, en ekk-
ert hefir gerst merkilegt á þeim
slóðum annað en það, að skotið
var ákaft á Monastir með gas-
sprengikúlum. Ovinirnir láta
enn í veðri vaka, að þeir muni
gera hríð að bandamönnum með
herliði því, sem losnað hefir frá
Rúmeníu, en engin merki sjást
um það, að nokkuð muni verða
úr þeim heitingum. Þó má bú-
ast við því, að orustur hefjist aft-
ur á þessum vigslóðum þegar
veður batnar.
Hin eina breyting, sem orðið
hefir í Gyðingalandi, er sú, að
Bretar hafa sótt fram norðan við
Jórdan og eru nú komnir J/2 mílu
norður fyrir ána. í Armeníu hafa
Tyrkir tekið aftur Trebizond,,
Erzerum og Batum. Meðfram
ströndinni gátu Armeningar ekk-
ert viðnám veitt gegn skipum og
fallbyssum, en innar í landinu
börðust þeir all-djarflega. Þeir
hafa nóg hergögn, sem Rússar
skildu eftir, og það má vænta
þess, að þeir geti haldið sínum
hlut fyrir Tyrkjum. Þeir hafa
ekkert val nema milli að berjast
0g að verða myrtir.
í norðurhluta Persiu hefir nú
verið komið á reglu aftur með
persnesku herliði, sem nú hefir
verib æft og gert duglegt.
I Rússlandi mæta Þjóðverjar
engri mótspyrnu. Hafa þeir tek-
ið Odessa, Nikolajew og aðrar
borgir í Ukraine. Framferði
Þjóðverja hefir vakið á þeim ill-
an bifur og gert afturkipp í frið-
arhreyfinguna. Getur verið, að