Morgunblaðið - 01.05.1918, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 01.05.1918, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Pétar Þórðarson hafði fyrst kom- ið fram með dagskrána og var hún þá á þá leið, að deildin treysti því að stjórnin réði málÍDu til lykta á viðunandi hátt. En Bjarni og E. Arnórsson fengu henui breytt á þá leið, sem áður er sagt, aðallega vegna þess, að enn væri eigi sýnt hvers virði Gaulverjabær væri. Það sæist eigi fyr en árangurinn kæmi í ljós af Flóaáveitunni. Þingsályktun um úthlutun korn- vðru- og sykurseðla og vðruðutn- inga. Flutningsmenn vilja að sveita- mönnum, sem eiga erfiða aðdrætti, sé úthlutað vörum til lengri tima en 4 mánaða i senn og að séð sé nm vöruflutninga í sumar til þeirra hafna, sem eru brimasamar eða geta tepzt af ísi. Eftir nokkfar umræð- ur var málinu vísað til bjargráða- nefndar og umræðu frestað. |>að kom nærri því ennþá meiri beserksgangur í þingmenn út af jarðabótum í Gaulverjabæ heldur en þegar þeir fóru í mógrafirnar nm daginu. Allir vildu vinna sem bezt fyrir jörðina og landið. Búi vildi ekki selja vegna þess að Gaulverja- bær hefði einu sinni verið prestsetur — og í eign hins opinbera um 800 ára ekeið — heldur vildi hann sýna jörðinni sóma og gera hana að sér- Btöku og sjálfstæðuprestakalli. Pétur f Hjörsey vildi endilega selja og bæta þannig fyrir það að hann hafði álp- ast til þess að vera á móti Ólafs- vallasölunni um daginn og kvað það ekki rétt að »láta eina syndina bjóða annari heimi. Einar á Geldingalæk vildi selja af þvi að ábúandi ætlaði að vera búinn að vinna 1000 dagsverk á jörðinni í vor eftir tveggja ára búskap, þótt hann (Einar) væri nú ekki viss um að hann gæti það (og það efast eg líka um að þeir fyrir austan, þótt duglegir torfristumenn sé, geti unnið 500 daga á ári að jarðabótum). Jör- undur reiknaði það út með dæmi sem þórarinn á Hjaltabakka lagði fyrir sjálfan sig í fyrra, að eftir 34 ár væri landssjóður búinn að >gefa< jörðina ef hann »seldi< hana nú. En þórarinn kom; þá með annað dæmi og bað Jörnnd reikna hve miklu landsjóður hefði tapað ef Jörundur hefði ekki komist á þing. Elendínus. Síðustu símfregnir. Khöfn, 30. apríl. Wiborg er fallin. Voru 6000 »rauðir< hermenn handteknir, þá er þeir reyndu að komast undan til Friedrichshamn. Frá Washington er símað, að Þjóðverjar hafi hótað þvi að taka Petrograd, ef Rússar sendu eigi handtekna þýzka hermenn tafarlaust heim. Frá Bern er simað, að skip þau sem færa eigr Svisslendingam mat- 4 dugl. sjómenn, helzt vanir á mótorbátum, óskast nú þegar ^ *3fínna Unglingsstúlka, vönduð og þrifin,- óskast frá 14. maí til þess að gæta barna í sumar. Uppl. Oðinsg. 8. til sjóróðra á Aiistfjorðnm. Verða að fara með Borg á laugardaginn. Nánari upplýsingar gefur Jón Þórðarson, Hittist frá kl. 8 árd. til 7 síðd. ísafoldarprentsmiðju. t tXaupsfiaput $ Tvö samstæð rúmstæði til sölu. Laugavegi 44) uppj á lofti. Sögusöfn Heimskringlu fást í Bókabúðinni Laugav. 4. 2 koffort, ný, hentug fyrir sjó- menn, fást keypt á Laufásvegi. 13. Tvö skrifstofuherbergi á ágætum stað i bænum, eru til leigu frá 14. mai næstkomandi. Afgr. vísar á. Salt. Tilboð um sölu á 300—4oo smálestum af salti, til afhendingar á Siglufirði í miðjum júli, óskast nú þegar merkt »SaIt<, á afgreiðslu blaðsins. væli frá Ameríku hafi fengið leyfi tiljþess að siglavóhindruð til Cette. Bretar tilkynna áköf áhlaup' hjá Meteren, Voormezeille og fyrir norð- an Kemmel. Þjóðverjar segja að leyfi matvæla- skipa Svisslendinga til óhindraðra siglinga sé fyrsti þáttur fullkomins viðskiftasamnings. Frá Budapest er simað, að Wekerle sé að reyna að mynda nýja stjórn. Nýstofnað er félag í Danmörku, sem ætlar að reka flugferðir með póst og farþega þegar að ófriðnum loknum. »Svenska Handelstidning< birtir nýlega itarlega frásögn um stórkost- legar fyrirætlanir Austur-Asíu-félags- ins á íslandi. Fréttaritari yðar hefir spurst fyrir um þetta á skrifstofu félagsins og fengið það svar, að i aðalatriðunum sé það tilbúningur einn. Gelr kom hingað f gær með danska seglskipið»Vore Fædres Minde< í eftirdragi. En það skip rak á Iand í Vestmannaoyjum fyrir nokkru. Botnia kom til Bcrgen snemma á máoudagsmorgun. Kvðldskemtun verður haldin í Iðnó á fimtudagskvöldið til ágóða fyrir byggiugarsjóð Dýraverndunar- félagsinB. Verður þar margt til skemt- uuar, söngur, hljóðfærasláttur, upp- lestur, gamanvfsur o. fl., svo góð Bkemtun verður það. — Ættu bæjar- menn að sekja skemtunina og styðja með því þarfiegt fyrirtæki, um leið og þeir skemta sjálfum sér. Njörður kom inn af fiskveiðum í gær hlaðinn fiski eftir nokkra daga útiveru. Asta heitir danskt seglskip sem hingað kom f gær með ýmsar vörur frá Danmörku. Að sögn hefir ekipið verið mjög lengi á leiðinni. Seglskip kom hingað f gærkvöldi með timburfarm til T. Frederiksen. Pax æterna, hin framúrskarandi fagra ög tilkomnmikla kvikmyDd Ole Olsens, verður nú sýnd í sfðasta sinn í kvöld í Nýja Bíó — með niðursettu verði. Hefir húu verið sýnd 25 Binnum f röð og er það al- veg dæmalauet hér á laDdi. Mun óhætt að fullyrða að engin kvik- mynd hafi fengið eins marga áhorf- endur, þvf að jafnan hefir hún verið sýnd fyrir fuilu húsi. i Hegningarhúsinu er lokuð í dag- allan daginn. Bjargráðanefnd Rviknr. L. F. K. R. [nnköllun bóka fer fram frá 1 — ior mai. A þvi timabili verða engar bækur lánaðar út. Munið að skila öllum þeim bókum er þér hafið a& láni frá safninu. S t j ó r u i n. Agætt Harmonium til sölu. Það hefir þessi registur: Bassinn: Bass Koppel Subbass '16 Diapason ’8 Dulsett ’8 Prinsepal '4 Oboe ’4 V o x H Diskant: Vox Celseste ’S' Dulsett ’8 Melodia ’8 Flöte ’4 Clarenetto ’8 Diskant Koppel m m a n a. Þetta Harmonium er reglulegæ gott og um leiö fallegt. Loftur Guðmundsson Smiðjustig 11. Sími 190, Atvinna 2—3 duglegir og vanir menn við jarðyrkju óskast nú þegar. Afgreiðslan vísar á. Stúlka Af sérstökum ástæðum óskast kur- teis og dugleg stúlka í vist nú þegar til 1. okt. Kaupgjald 200 krónur" yfir tímann. öuðný Ottesen. Til sölu. Hús á góðum stað. Leiga 12%- af söluverði ef samið er strax. Laus ibúð fyrir kaupanda. Öísli Porbjarnarson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.