Morgunblaðið - 24.06.1918, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
um sðlu og úlflutning
áuil.
V (Tilkynning nr. 3 frá Útflutningsnefndinni).
1. gr.
Öllnm framleiðendum og öðrum er hafa með höndum ull sem fram-
leidd er á árinu 1918 og eigi verður höfð til notunar í landinu sjálfu,
er skylt að bjóða hana til kaups fulltrúa Bandamanna hjer í Reykjavik,
jafnskjótt og ullin er útbúin til útflutnings. Annast útflutningsnefndin fram-
kvæmdir á þessu, samkvæmt auglýsingu stjórnarráðsins, dags. 4. þ. m. og
ennfremur reglugjörð, dags. ir. þ. m.
Samkvæmt samningum við
2. gr.
Bandamenn
ber að afhenda ullina til
sölu á þessum höfnum:
Reykjavik,
Seyðisfirði og
Akureyri.
En fulltrúi Bandamanna hefir fallist á við nefndina, að kaupa ullina og
veita henni móttöku einnig á þessum höfnum:
Stykkishólmi,
ísafirði,
Blönduósi,
Sauðárkrók,
Húsavík,
Reyðarfirði,
Borðeyri,
Hólmavík,
Hvammstanga,
Þórshöfn,
Vopnafirði,
Vestmannaeyjum.
Þó mega seljendur sem eiga ull á þessum viðbótarhöfnum búast við
því, að hafa allan kostnað og ábyrgð á geymslu hennar þar og eldsvoða-
tryggingu, án nokkurs endurgjalds, þangað til varan kemst um borð.
Svo greiða þeir og þann farmgjaldsmismun, sem verða kann við það, að
taka ullina á þessum aukahöfnum.
3- gr*
Útflutningsnefndin sinnir frumboðum frá kaupmönnum, er kaupa
inn ull til þess að selja hana út í heildsölu, svo og frá fjelögum, sem
hún viðurkennir. Hagkvæmast er, að framboð frá kaupmönnum og fje-
lögnm komi jafnskjótt og ullin er tilbúin til útflutnings, og um vor-
ulíiaa, allar tegundir, komi tilboðin eigi síðar en 15. ágúst.
5- gr-
öll ull skal metin og skilin í flokka (sjá 4. gr.) af fyinum skipuðu
ullarmatsmönnum. Staðfesta þeir með vottorði sinu, að þeir hafi ná-
kvæmlega rannsakað ullina og metið hana i hina tilgreinda flokka. Þeir
skulu og votta um rjetta vigt á ullicni, að umbúðum þeim meðtöldum,
sem hún flytst í til útlanda, hvern sekk um sig, með áframhaldandi rað'
tölu og flokksmerki, er ritað sje í vigtarskrána. Smærri brot úr kíló en
7é klló má eigi taka til greina. Loks skulu þeir og athuga og votta
um rjetta merking á ullarsekkjunum, samkvæmt reglum um flokkun og
merking ullar frá 10. jú!í 1916, þó með þeirri viðbót að IV. flokkur
greinist í undirflokka a. og b. er merkist IV. a. oglV. b. Að öðru leyti
visast til erindisbrjefs yfirullarmatsmanna frá 25.-febr. 1916.
6. gr.
Fulltrúi Iíandamanna áskilur sjer hæfilegan frest, til þess sjerstaklega
að gera athugun á ullinni á útflutningsstað, áður en hann gerir kaup á
henni. Kaupi hann ullina, mega líða 30 dagar frá því kaup gerðust
þangað til borgun fer fram, eða 30 dagar frá því vottorð matsmanna og
vigtarskýrslur í tvennu lagi hafa borist fulltrúanum. Nú er vörunni skip-
að út áður en 30 dagar eru liðnir, og greiðist verðið þá um leið og
farmskrá, matsvottorð og vigtarskýrslur eru komnar i hendur fulltrúans,
eða umboðsmanns hans. í báðum tilfellum getur útflutningsnefndin ekki
greitt andvirðið tii seljanda nema faktúrur sjeu komnar hénní í hendur.
7- gr.
Skylt er seljanda að flytja ullina um borð og greiða toll og önnur
gjöld er á leggjast, kaupanda að kostnaðarlausu. Hann skal og hafa ull-
ina i hreinum og sterkum strigasekkjum (venjulegum ullarböllum).
8. gr.
Þangað til útskipun ullarinnar fer frain á útflutningshöfn, hvílir sú
skylda á seljanda, að geyma hana óskemda í góðu húsi, og vátrygðafyr-
ir eldsvoða, en kaupandi endurgreiðir á aoalhöfnunum, sbr. 2. gr., geymslu-
kostnað og vátryggingargjald, hlutfallslega fyrir þann tíma, sem varan
þannig geymist fram yfir 30 daga frá því kaup gerðust. Geymslukostn-
aður reiknast samkvæmt venju, eða eftir samkomulagi. Kröfur um end-
urgreiðslur á ofannefndum gjöldum skulu sendar útflutningsnefndinni
tafarlaust, þá er varan er komin um borð.
Beykjavík, 20. júní 1918.
cT/ior clensen cPátur cJonsson.
p. t. Jormaður.
(3 cfienjaminsson.
UPPBOfi!
4- gr-
Samkvæmt nefndum samningi er flokkun og verð ullarinnar
þannig:
I. Öll hvít vorull, blæfalleg, vel þvegin og vel þur kr. 4,00 pr. kilo
II. Öll önnur hvít vorull, vel þvegin og vel þur . — 3,69 — —
III. Öll svört ull, vel þvegin og vel þur...............— 4,00 — —
IV. ÖIl mislit vorull, svo og svört og hvít vorull,
sem eigi telst til framantaldra flokka:
a. þur og hrein.......................................— 2,93 — —
b. þur, en fitu og ruslkend .......................— 2,51 — —
V. Hvít haustull, óþvegin en þur, laus við haus-
ull, fætlinga, blóðskorpur og öll annarleg efni . — 2,88 — —
VI. Mislit haustull, óþvegin o. s. frv., sbr. V. fl. . — 2,51 — —
Verð þetta er háð þeim skilyrðum, sem hjer fara á eftir.
Mil aí allsioiar Maállii
yerðnr selt á nppboði, þriðjudaginn 25. jonL ll 1 síðd.
Svo sem: Tjöld af ýmsum stærðum og gerðum, Hnakkap,
Kvensöðlar enskir og íslenzkir af ýmsum gerðum, Beizli,
Klifsöðlar, KoffoiPt, Þverbakstöskur, Þófa—
undirdekk, Gjarðir, Ferða-rúmstæðl, Ferða-
stólar, Kjúlkar á skemtikerru, vagnstengur
og margt fleira.
I ■
Uppboðið fer fram á hafnarbakkanum hjá vörugeymsluhúsi h.f. Kol & Salt.