Morgunblaðið - 20.08.1918, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
Gamta Bió
Æðsía boðorðið.
Amer. sjóaieikur í 3 þáttum.
Þeir sem kunua að meta fag-
urt heimilislif, fagran hugsun-
arhátt og hreina samvizku, ættu
að s'á þennan fagra og til-
komumikla leik, sem er alvar-
legur með köflum, en mjög
ánægjulegur í heild sinni.
Fatty á dausleik.
Þessi fidæma skemtilegi gam-
anleikur verður sýndur í'kvöld
sem aukamynd.
Fiskikutter SJKS
Póstbox 291. Beykjavík.
Hinn 18. ágúst 1918
verður Landsbókasafn íslands lokað og um allan þennan mánuð.
Landsbókaaafn íslands.
Jón Jacobsos.
2-3 karlmenn
vantar mig nú þegar til heyskapar yfir ca. vikutíma.
Eggert J ónsson,
Bröttugötu 3 B.
Ditgleg
stúlka
óskast í vist einn mánaðartíma. —
Upplýsingar gefur
Guðný Guðjónsdóttir
Ingólfshvoli.
Kötturinn
í Ingóifökvoli.
S Kjartansson
Box 383. Reykjavík.
lagasamnÍDginn. Ber einkum mikið
á greinum Knúts í nKöbenhavn., og
eru þær allar ritaðar af hans al-
kunna velvilja til íslands, eða hitt
þó heldur. Verður honum einkum
skrafdrjúgt um það, að samningur-
inn losi um sambandið milli land-
áQna, og er meinilla við það, að ís-
land skuli verða fullvalda ríki. —
Yonum vér að geta gefið lesandum
vorum kost á því að kynnast skrif-
um þessa dánumanns næstu daga.
Ranðakross-bréfin, eða danska
bænin, er nú í umferð um bæinn svo
hundrnðum ekiftir. þ>ó eigi geri þau
annað, þá auka þau tekjur bæjar-
póatsins. En hverjir eru það, eem
hafa gaman af að senda slíka vit-
leyau frá sér?
Sfld hefir veiðst nokkuð vestra og
einnig nyrðra undanfarna daga. En
fremur kvað það vera lítilfjörlegt.
Faxi, mótorkútter, fer einhvern
nseBtu daga til Siglufjarðar og kemur
við á í8afirðj. Ferðin gerð til þess
að sækja {óðursíld norður.
Botnía fór frá Khötn föstudaginn
16. þ. m. kl. 2 síðd. Skipið hefir
600 smál. af vörum hingað, og mun
því hafa litla viðdvöl í Færeyjum f
þetta skifti.
Kvæðabók eftir Ben. |>. Gröndal
nú verið að prenta á Akureyri.
hann hefir eigi áður látið prenta
kvæði sín í einni heild. Mun þetta
gleðiefni öllum ljóðelskum mönnum.
Sterling fór í hringferð f gær kl.
3.. Megal farþega voru: Magnús
Blöndahl, Eggert Bachmann, Páll
Bjarnason cand. jur., Ól. jborsteins-
son verkfræðingur, Halldór Guð
mundsson rafmagnsfræðingar, Arni
Óla blaðamaður, Asgeir Blöndal með
fjölskylda, Jón Jónsson beyair, Skúli
Einarsson, Ingvar Ólafsson kaupm.,
Vilhj. Olgeirsson, Guðm. Bergsson
póstafgreiðslum. á ísafirði o. fl.
Herra ritstjóri Morgunblaðsins!
1 279. tölublaði blaðs yðar frá 16.
þ. m., er grein eftir einhvern J. G.,
með fyrirsögninni »Endaslepp skemti-
ganga«. Grein þessari vil eg ekki
láta ómótmælt, eða óleiðréttar allra
mestu fjarstæðurnar í henni.
Eftir laugan og skáldlegan for-
mála segir greinarhöfundurinn. »Alt í
einu sá eg að gluggi er skyndilega
opnaður á efstu hæð á »Ingólfs-
hvoli* og út um hann er fleygt ein-
hverju, sem eg sá ekki í augnabragði
hvað var, en litif og falleg hönd
lokaði glugganum uppi með einDÍ
eldsnarri hreyfingu.< »D álítið for-
vitinnc, segir greinarhöfundurinn
»fer eg að litast um til að gá hvaða
hlntur sé meðhöndlaður svo gálaus-
lega, að fleygja honnm niður úr
slíkri hæð. í sama bili, sem eg lit
niður á götuna fellur það sem fleygt
var niður ofan á steinlagt strætið.
..........Þetta var þá lifandi skepna,
ofurlítill Ijómandi fallegur köttur.
Þama lá hann með hálfmolað höfuð-
ið hræðilega limlestur og blóðið foss-
andi úr flakandi sárinu.<
Hið rétta er, að köttur, sem eg
undirritaður, er bý á kvisthei bergj-
um á efsta lofti á »Ingólfshvolic;
er eigandi að, datt niður á götu of-
an af þaksvölunum, en yzt á þeim
er flatt járn með halla á mjórri brún,
svo kötturinn hefir sennilega ekki
getað fótað sig þar.
Að kettinum hafi verið fleygt nið-
ur eru ósannindi og getur, eftir öll-
um atvikum, ekki hafa átt sér stað.
Út á þaksvalirnar hefir kötturinn
farið um dyr, sbm þangað liggja, og
opnaðar höfðu verið þeunan dag,
sem oftar, vsgna þess að rúmföt
vorn til hreinsunar á þaksvölunum.
Það, sem greinarhöfundurinn
segir um meiðsli kattarios, er álíka
ósannindi. Því þó^fallið væri mik-
ið, meiddist kötturinn lítið og verð-
ur líklega jafngóður aftur. Þegar
drengurinn, sem tók köttinn upp af
Útvegar allskonar rafmagnsvélar
og alt annað er að rafmagni lýtur
svo sem: Rafstöðvar, vira, lampa,
ljósakrónnr, allskonar hitunarvélar
o. fl.
Dugleg kaupakona
óskast strax til rétta í haust. Uppl.
hjá Guðjóni Jonssyni. Hverfisgötu
37. Heima frá kl. 12—1 og 7—8.
götunni kom með hann til min,
fékk eg Magnús Einarson dýra-
læknir til þess strax að skoða kött-
inn. Hann gefur svohljóðandi skýrslu:
Sunnudagskvöldið n. ág. siðast-
liðinn var eg af hr. Sigvalda
Bjarnasyni á Iagólfshvoli kallaður
þangað til að lita á ketling, sem
falhð hafði niður á götu.
Um ástands ketlingins þá var það
að segja, að hann virtist með öllu
óbrotinn og meiðsli eða sár út-
vortis fundust engin, en blóðnasir
hafði hann dálitlar, er þó stöðv-
uðust fljótt, og í vinstri framlöpp
tylti hann að eins litið eitt.
Nú i dag virðist ketlingurinn
heilbrigður, að öðru leyti en þvi,
að hann er enn haltur á vinstri
framlöpp, án þess þó að vart verði
við nokkra bólgu eða önnur meiðsl.
Reykjavik, 17. ág. 1918.
Maqnús Einarson
dýralæknir.
Af þessu, sem hér er sagt, sézt
vonandi, að hér hefir ekkert ámæl-
isvert átt sér stað, og tek eg þetta
fram ekki sízt vegna stúlknanna, sem
búa á efsta lofti Ingólfshvols og
allið hefir þessi ranga frásögn grein-
arhöfundarins mjög illa.
Ingólfshvoli 19. ágúst 1918.
Siqvaldi Bjarnason.
«
Margarina
ágætar tegundir fást hjá
01. Amundasyni
Laugaveg 22.
Mentaskólanemandi óskar eftir
góðu herbergi frá 1. sept., helzt í
miðbænum. Tilboð merkt »Leiga<
leggist inn á skrifstofu þessa blaðs.
Dugleg og rösk
stúlka
óskast í vist nú þegar til 1. októ-
ber. Upplýsingar á Ingólfshvoli hjá
Oddrúnu Jónsdóttur.
Te og Rókó
er bezt hjá
01. Áfflundasym
Laugaveg 22.
Herbergi
óskast til leigu nú þegar. Uppl,
á afgreiðslunni.
Kranzar
úr lifandi blómnm fást i
Tjarnargötu 11 B.