Morgunblaðið - 17.11.1918, Page 4

Morgunblaðið - 17.11.1918, Page 4
4 MORatTNBLAÐlÐ Ráðskona vel að sér í matanilbúningi, p,etur f ngið vellaunaða stöðu hjá H. Debell framkvæœdarstjðra, Tjarnargötu 33. A sama stað vantar konu til að halda skrifstofum hreinum. Það tilkynnist hérmeð vinum og vandamönnum að minn hjartkæri eiginmaður, Jóhannes Magnússon, andaðist á heimili sinu, Bræðraborgar- stíg 15 Reykjavík, miðvikudaginn 6. þ. m. Jarðarförin verður ákveðin siðar. Dóróthea Þórarinsdóttir. Hérmeð tilkynnist vinum og vandamönnum að konan min elskuleg, Stefanía A. V, Guðmundsdóttir, andaðist á heimili okkar 6. þ. m. Jarðaiförin verður ákveðin síðar. Páll H. Gíslason. Hérmeð tilkynnist að ráðskona mín, Guðbjörg Guðmundsdóttir, dó á Landakotsspítalanum miðvikudaginn 13. þ. m. Jarðarförin verður ákveðin síðar. Holger Debell. Vopnablé komið á. Það var opinberlega tilkynt í loftskeyti sendu frá Paris 11. þ. m. um kvöldið, að vopnahlé hafi komist á milli Þjóðverja og baodamanna þá um morguninn kl. n. En áður höfðu bandamenn lýst þvi yfir, að þeir væru reiðubúnir að semja um vopnahlé við fulltrúa Þjóðverja og að þeir hefðu gefið Foch yfirhers- höfðingja fult umboð til þess að undirskrifa samninga. Sendu Þjóð- verjar siðan 4 menn á fund Foch’s, en degi siðar komust samningar á. Höfðu Þjóðverjar þá gengið að öll- um skilyrðum bandamanna, en eigi hafa hingað komið neinar fregnir af því, hverjir þeir skilmálar eru. En fráleitt munu bandamenn hafa kraf- ist minna af Þjóðverjum en þeir gerðu af Austurrikismönnum. En þeir sammngar hafa áður verið birtir í blaðinu. Enginn vafi er á þvi, að bráðlega mun komast á friður, því svo mun um hnútana búið af bandamönnum, að Þjóðverjar geti ekki gripið til vopna aftur þó þeir vildu. Þýzka- land er gersigrað, og Þjóðverjar verða að ganga að öllum friðarskil- yrðum bandamanna, hversu harðir sem skiímálarnir verða. Vopnahlésskjlmálarnir Dálítið úr skilmálunum getum vér birt. Þjóðverjar eiga að afhenda bandamönnum: 5000 fallbyssur, 5000 vélbyssur, 10000 bifreiðar, 3000 flugvélar, 100 kafbáta. Þjóðverjar eiga að afvopna Vs hluta þýzka flotans og verður hann undir umsjón bandamanna. Þjóðverjar halda með lið sitt yfir á eystri bakka Rinarfljóts og hverfa á burt úr Elsass og Lothringen. Frið- urinn, sem samin var við Rússa í Brest-Litovsk og við Rúmena í Bukarest, verður upphafin og Þjóð- verjar eiga að skila aftur öllum her- föngum, en fá að svo stöddu enga i staðinn. Síðustu símfregnir Khöfn 14. nóv, Syndikalistar hafa á ný gert óspekt- ir miklar í Khöfn. Sambandslögin eru nú til umræðu f þinginu. Nú á margur bágt. Það er eigi ætiun vor, að fara að rifja upp einstök atriði úr hörm- ungaviðburðum síðustu daga. Þess ætti ekki að vera þörf, þ»í- að allir eða flestir bæjaibúar hafa af eigin reynd kynst því, hve hart örlögin hafa leikið fjölda fólks hér í bænum. Og flestir munu sjalfir hafa fengið meiri eða minni sár, við fráfall skyld- menna eða vina. Það mun óhætt að segj?, að sár- in hefðu orðið miklu færri, ef mann- afli hefði verið meiri, hinum sjúku til hjálpar og hjúkrunar. En sakir þess, hve óðfluga veikin breiddist út, varð ómögulegt að veita aðhlynningu, svo fullkomna sem annars. Nú eru margir orðnir heilbrigðir, sem áður voru sjúkir, og hægra að koma hjálp- inni við. Þess vegna viljum vér alvarlega biðja alt vinnufært fólk um, að hafa fytir hugskotssjónum viðburðina ný- afstöðnu og láta þá verða til þess að enginn liggi á liði sinu. Ennpá eru i hœttu tnörq mannsUf, sem áreiðanle^a er hagt að bjarpa, eý allir %era skyldu sina. Vér erum fátæk þjóð, og meig- um sízt ef öllu við því að missa mannslíf fyrir fyrir handvömm. Geri nú hver maður skyldu sina! Það er auðvitað skylda allra þeirra, sem nú eru nýstaðnir upp úr sótt- inni miklu, að fara gætilega með heilsu sina. En það er líka heilög Góður vagnhestur í ágætu standi og gallalau', er til sö!u. Upplýsingar gefur Guóbj. Guðmundsson, prentari, ísafoldarprentsmiðju eða Lindarg. 7A. Menfhol- brjóstsykur í heilum og hálfum dósum fæst í Tóbakshúsinu. skylda hvers, sem um er fær, að leggja fram alla krafta sína, til að draga úr þeirri ógæfu, sem þjóðin hefir orðið fvrir. Hjúkrunarnetndina vantar fólkl Bjóðið henni aðstoð yðar straks i dag, svo mörg, að hún geti valið úr fólki og látið hvern og einn vinna það starf, sem hann er færastur til. Munið það, að sumt hjúkrunarfólk- ið starfar bæði dag og nótt, og þarf hvildar við. Og látið engan geta sagt það um yður með sanni, að þér hafið brugð- ist yðar eigin þjóð á þrautastund. Hjálpið öll til að bjarqa 1 Bæjarsíminn er opinn á nóttunni. Hjúkrunarnefndin. Næturlæknir er í Brunastöðinni frá 10 að kvöldi til 8 að morgni. Hjúkrunarnefndin. Daglæbnir er í Brunastöðinni. Hjúkrunarstöðin. Mannhjálp karla og sérstaklega kvenna óskast. Borgun ef krafist er. Hjúkrunarnefndin. Hvar er ósjúka skólaýólkið ? ? Hjúkrunarnefndin. Yfirsetubonur vantar í Brunastöðina. Góð borgun. — Bíll. Hjúkrunarnefndin. Bílar óskast með bllstjórum. Hjúkrunarnefndin. Matur fæst ó k e y p i s 1. í eldhúsi Barnaskólans (hafra- seyði). 2. hjá \T6tnasi Jónssyni Laugav. 2 (n jólkurvellingur). Hjúkrunarnefndin. Steinolía fæst i Steinolíufélagsskúrnum við Amtmanusstlg Hjúkrunarnefndin. Barnahæli var fyrirhugað í Barnaskólanum en komst ekki lengra vegaa kvenmanns- leysis. Nú er skorað á fjölskyldur, er geta tekið við umhirðulausum börnum að gefa sig fram á Brunastöðinni. Sími S30. Hjúkrunarnefndin. Fast hjúbrunariólk sérstaklega kvenióW óskast. Borgun: 5—6 kr. á dag atik fæðis. Hjúkrunarnefndin, Brunastöðin. Sími 330. Kol afgreiðir landsverzlunin í dag — (sunnudag) kl. 12—4. Hjúkrunarnejndin. Likkistur smíðar Ólaiur Ólafsson, Vegamótastíg 9. — Heimiii, Grettisgötu 39 B — Hérmeð tilkynnist vinum og vandamönnum að systir mín elsku- leg, Guðrún S. Ólafsdóttir, andaðist á heimili minu 14. nóv. 1918. Jarðarförin auglýst síðar. Stefán Olafsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.