Morgunblaðið - 18.11.1918, Page 3
MORQUNBLAPIÐ
!>eir eiga að sendast heim þegar i
stað.
Undir ems og k intumstæður leyfa
ve:ða byrjaðit regluiegar flugfeiðir
nr.ll; London og Parísar. Fe'ðin
verður fjrin i 21/^ klukkustund og
Lrgjnld verður rúmlega 15 pund
Sterling.
»Berliner Tageblait* segir fiá því
að fyrirliðar úr flugsveit Þjóðverja
hafi flutt elsta fOn þýzka ríkiserfing
ans á buit oj að hann sé nú á ör-
uggum stað. Piituiinn er aðeins á
13. ári. í fyrsm var stungið upp
á því 3ð hann tæki við völd. m
þegar Vilhjálrnur Keisari segði af sér.
Það er tilkvnt að Wilson Banda-
tíkjaforsen sé yæntanlegur til Norð-
urálíu inr.an ska : s.
Siðan í gær hafa blaðinu borist
þessar dánarfregnir:
Karl Brynjólýsson
vélstjóri, Bjargarstíg 3.
GuSrún Þorvaldsdóttir,
kona hans. Þau láta eítir sig 5 börn.
Jóti Jónsson
(yngri), Lindargötu 14.
Olaýur Kristóýersson,
Bræðraborgarstig 8.
Halldóra Arnadóttir
Ingólfsstrætt 18.
Benjamín Þorvaldsson,
unglingsmaður. Hafði legið sjúkur
á Landakotsspítala síðan 1912.
Guðmundur Guðmundsson,
cand. phil., sjúkiingur á Vífilsstaða-
hælinu.
Þorbjðrn Siqurðsson
frá Mjösundi í Flóa, sjúklingur á
L ugat esfpítala.
Guðmundur Gíslason,
KLpparstíg 5.
Mat>nús Hróbjartsson,
sjómaður, Hverfisgötu.
Krisíinn Guðmundsson,
tnúrari, Grettisg. 70.
Júlíana KArnadóttir,
Vesturgötu.
Borvhild Arnljótsson,
kona Snæbjarnar stórkaupmanns.
ErL simfregnir
Keísarinn
Fregn frá Khöfn, segir að Vil-
hjálmur Þýzkalar dskeisari, ríkiserf-
inginn og keisarafrúin hafi flúið til
Hollands og séu þau komin heilu
og höldnu til Maartricht. Ennfiem
ur, að ákvörðun hafi eigi verið tekin
um það hvort keisarannm skuli leyfð
þar landvist.
í skeyti sem kom litlu siðar er
sagt að ríkiserfinginn hafi verið
myrtur, næsta fregn þar á eftir að
enginn vafi sé á því að fregnin sé
sönn, hann hafi verið myrtur af
þýzkum uppreistaihermönnum hjá
landamærum Holiand’. En í fyrra-
dag barst loks hingað sú fregn að
ríkiserfinginn muni vera enn á iifi,
en að menn viti þó ekki hvar hann
sé.
Það hefir ekki vciið boiið aítur
að keisarinn og frú hans séu komin
til Hollands, svo það má ganga að
þVí vísu að sú fregn sé sönn.
Karl keísari s gir af sér
London 12. nóv.
Fregn frá Khöfn, hermir það eftir
einkaskeyti frá Vínarborg að Karl
keisari hafi tilkynt opinberlega að
hann legði niður völd.
Alsheijar verkfall var hafið í
Vínarhorg 13. nóv.
Balltn dauður
Loftskeyti hermir það, að Ballin,
hinn alþekti .forstjóri Hamborg-
Ameríku-línunnar, hafi dáið skyndiU^a
i Hamborg.
Konstantinopel
Þegar eftir voposhléið var samið
við Tyrki gerðu bandamenn, Frakkar
og Bietar, ráðstafanir til þess að
slæða upp tunduiduflin í Hellusundi
og Bosporus. Hafa þeir sett lið í
vigin við sundin og síðustu fregnir
herma að nú séu herskip þeirra
komin til Miklagaiðs.
Hlutleysingjarnir
Khöfn, 12. nóv.
Sviar, Norðmenn og Danir hafa
nú sent heim mikinn hluta þeirra
manna, sem kallaðir höfðu verið
undir vopn vegna styi j'ldarinnar.
Er nú verið að taka upp öll tundur-
dufi, sem þær þjóðir höfðu iagt til
varnar hlutleysingjum.
Erleiíd myiit
Khöfn, 12. nóv.
Steiling == kr. 17.80, Dollar =
3.75, Sænskar krónur = 104.75,
Norskar krónur = 102.50, Austur-
rískar krónur = 29.00 Mörk =
53.00, Frankar = 69.00.
Brélaeltirlit Breta
Botnía er á leið hingað og hafa
sennilega flestir búist við þvi, að
hún flytti hingað mikinn póst frá
Danmörku, þar sem vopnahlé er nú
komið á og samgöngufrelsið þar af
leiðandi ætti að hafa lýmkað.
Þó er eigi svo vél. Botnía hefir
að því er sagt er, engan póst með-
ferðis.
Vér fáum eigi skiiið hversvegna í
hið afaróvinsæla bréfabann hefir e'gi !
þegar verið upphafið. Nú getur |
bandamönnum þð eigi slafað nein
hætta, af bréfaskiptum við Þýzkaland
og yfiileitt eru öll lök sem
talin hnfa veiið btnninu til helgi,
buTtu fallip. Ea það stendur eitt
eftir réttlaust og gagnlaust, en lands-
iýð til óþæginda og böivunar.
Vonandi er þetta að eins að kenna
drætti af hálfu stjórnariáðsins en
eigi öðru verra, Viljum vér þvi
fyrir hönd íjölda manna skora á
stjórnarráðið að geia ráðstafanir til
þess að póstsamgöngurnar við önnnr
lönd verði frjálsar eins og áður var,
og gera það svo fljótt, að póstur
geti komist ónindraður með Botníu
er hún fer næst til útlanda.
Skip ferst hjá Grimsey
Öllum bjargað.
Akureyri í gær.
Danska skonortan »Valkyrien«,
sem fór frá Siglufirði fyrir um hálf-
um mánuði með síld til Svíþjóðar
fórst á Grímseyjarsur.di. Komust
skiptmenn allir, 7 talsins, á skips-
bátnum upp undir Grímsey, en
voru tétt farnir á boða er hrepp-
stjóranum úr Grímsey, Frimanni
Benediktssyní, tókst að bjarga þeim
með sérstökum dugnaði og stór-
bættu fyrir sjálfan sig. Kom hann
hingað í nótt með skipshafnarmenn
alla.
Sóttvarnir nyrðra
Akureyri i gær.
A fundi sóttvarnarnefndar og lækna
kaupstaðarins siðastliðinn þriðjudag,
var ákveðið að gera tilraun til þess
að verja bæinn og sýsluna fyrir in-
flúenzunni, með öllum leyfilegnm
ráðum.
Siglufjörður er r.ú [ s’ittkvi vegna
þess að sjúkir menn voru á vél-
bátnum Leo, sem þar liggur á höfn-
inni, nýkominn frá Reykjavík. Skag-
fitðingar, Húnvetningar, Þingeying-
ar og Múiasýslur ætla að verjast
sóttinni.
Lyfjaskorturinn.
Það er komið á daginn að lyfja-
búðin hér í Reykjavík, sem jafnframt
því að vera lyfjabúð bæjarins sér
flestum læknum landsms fyrir lyfj-
um er algerlega þrotin að nauðsyn-
legum lyfjaefnum, ekki vegna pant-
ana utan af landi, heldur aðeins
vegna söiu í borgina. Ræður að
líkihdum hversu fara muni um
meöalabirgðir .lækpa þar sem influ-
enzan gengur uppi til sveita og í
kauptúnum út um land, fyrst aðal-
forðabúrið reynist ekki drýgra en
raun er á orðin.
Þetta er líka farið að sýna sig.
Akuroesingar hafa sent hingað tví-
vegis til þess að sækja meðul, en
ekki geta fengið. Þeir eru nærtir
Og því heyrist fyrst til þeirra. En
enginn vafi er á því að þörfin á
lyfjum er víðar orðin rrjög knýiandi,
þó iítið heyrist um það, og að of-
langt verður að bíð.i þess, að juu
komi frá Danmörku.
Hiusvegar er enginn vafi á því
að hér út um bæinn er mikið til
af lyfjurn, afgangur á heimilum. þar
sem allir eru orðnir hei.brigðir.
Væri n ú ekfei hæft — stiaks i dag
— að gera gangskcr að því, að fá
þessi meðul aftur — gefius eða með
fullu endurgjaldi — og sendt þau
þegar i stað þangað, setn mest ligg-
kr á? Þau mundu geta komið að
góðu haidi, þangað til nýjar birgðir
koma með Botniu.
I Vestmannaeyjum geisar veikin
ákaflega. Þangað fellur ferð mjög
bráðlega og væri eigi ástæðuhust
að grensla .t eftir, hvernig ástatt væri
þar, og senda þangað þá hjálp sem
nnt er að veita, því annars verður
líklega að gera íerð þangað s>ðar.
Og svo er víðar. Atferli veikinnar
hér ætti að hafa kent oss, að gera
alt sem hægt er til að varna vand-
ræðum og gera það fljótt.
Landi fallinn.
Hinn 27. septen'ber 1918 féll í
áhlaupi á vesturvígstöðvunum Pétur
Biynjólfsson, sonur Brynjólfs Bjarna-
sonar i Eugey, 27 ára gamali, fædd-
ur 7. febrúar 1891, f Engey. Hana
gekk i stríðið sem sjálfboðaiiði fyrir
tveimur árum, og v<»r í 44, her-
deild Kanadamanna. Pétur færði úr-
smiði hjá Magnúsi Benjaminsyvni
úrsmið i Reykjavík. Að aflok u
námi fýsti hann til Ameríku o? fór
þangað á sumrinu 1913, seti t að
i Winnipeg og vann þar að úr,"’ði
þar til hann gekk í stríðið.
--------— ■ >-------
Prestskostningar
hafa nýlega farið fram í Öræfum
og GrÍTpsnesi. í Öræfum var kosið
19. f. mán. Þrir fjórðu hlutar kjós-
enda neyttu kosningaiéttar og kusu
þeir allir hinn setta prest sinn, Eirik
Helgason. 2 atkvæði af 75 greidd-
um atkvæðum urðu ógild. Aðrir
voru eigi umsækjendur.
í Grímsnesi var kosið 3. þ. m.
Kjörfundur varð óiögmætur, því
að ekki greiddu atkvæði nema 12)
af 286 kjósenduro. Atkvæðin félln
þannig:
Sira Þorsteinn Briem 114.
Sira Helgi Hjálmarsson 7.
Ógild 8.
Umsækjendur voru eigi nema 2.
Ófærð var mikil kjördaginn, og var
sú ástæðan til þess að fundurinn.
var svo iila sók ur.