Morgunblaðið - 18.11.1918, Blaðsíða 4
4
v O GHJ3Í BL AÐIÐ
O <1 QB O K
160 ára afmæli Thorvaldsens var
13. þ. m. Hátfðahöld gátu vifcanlega
engin farið fram þann dag vegna
veikindanna í bænum.
Inflúeozan er nú korain austurum
sveitir og var sagt f bænum í gær,
að nokkrir væru þegar látnir eystra.
Mikill hefir manndauðinn verið hér
í bænum, en hræddir eru menn um
að hann verði enn meiri til sveita.
Sjúkir menn verða ef til vill að gæta
skepnanna, og er hætt við lungna-
bólgu er þeir verða að fara út. Enn-
fremur er erfitt að ná í lækni, hann
getur lfka veiksfc, svo horfurnar eru
ekki glæsilegar.
Ef þess væri nokkur kostur ætti
að gera einhverjar ráðstafanir til
þess að senda bjálparmenn (sem eru
búnir að fá veikina) austur, með
meðul og góð ráð handa sjúklingum.
En þetta er bægra sagfc en gert.
Hér er nóg að gera fyrir marga að
hjúkra.
Tvisvar sinnum hefir bátur verið
sendur af Akranesi hingað, siðan
inflúenzan byrjaði, til þess að sækja
meðul. Veikin virðist vera þar miklu
vægari en hér, fá eða engin tilfelli af
iungnabólgu og enginn látist nema
einn maður Oddgeir OtteBen.
Thtgíýsing
um
fjámarksverd á fyangikjöfi
Verðlagsnefndin hefir ákveðið hámark útsöluvetðs á hangikjöti þannig:
1. SauðaRjoí:
1. Velreykt: Vatn 55%, salt 10% eða minna: I heildsölu kr.
2.60 kilogr.; í smásölu kr. 3.00 kg. af lærum og síðum, af öðru kjöti
kr. 2.80 kg.
2. Linrr ykt: Vatn yfir 35%, salt 12% mest: I heildsölu kr.
2.20 kílogr.; i smásölu kr. 2.60 kg. af lætum og síðum, af öðru kjöti
kr. 2.40 kg.
2. cTijöt af rýrara Já:
1. Velreykt: Vatn 55%, salt 10% eða minna: I heildsölu 2
kr. kílógr., I smásölu kr. 2.30 kg. af lærum og síðum, af öðru kjöti kr.
2.20 k^,
2. Linreykt: Vatn yfir 35%, salt 12% mest: í heildsölu kr.
1.80 kílogr; í soiásólu kr. 2.10 kg. af lærum og siðum, af öðru kjöti
kr. 2.00 kg.
Það skal tekið fram, að hverjum sem vill, er heimilt að senda efna_
rannsóknarstofunni sýnishorn af hangikjöti, er verður þi rannsakað þar
án sétstaks endurgjalds.
Níræð varð frú Steinunn Sívertsen,
móðir Sigurðar prófessora, á föstudag-
lnn var. Er gamla kouan ágætlega
hresB, en hefir þó verið rúmföst
síðustu vikurnar.
27 manns lágu samtímis í infiú-
enzu á sjómannahæli Hjílpræðishers-
ins. Stóð herra Grauslund uppi við
annan mann öllum þeasum sæg til
hjálpar. Enginn hefir látist ennþá i
Kastalanum.
Ráðsmenn hjúkrunarnefndar í
Barnaskólanum:
Sjúkradeildin niðri: Ágúst Jóseps-
son bæjarfulltrúi.
Sjúkradeildiu uppi: Einar Péturs-
son vérzlunarstjóri.
Barnahælið uppi: Fenger stórkaup-
maður.
Eldhúsið i kjallara: Garðar Gísla-
sou stórkaupm.
Matargjafir. það var ekki fyrir
tilstilli hjúkrunarnefndar að Tómas
Jónsson kaupm. hefir gefið bágstödd-
um mat úr búð sinni nú í veikind-
nnum. Hjúkrunarnefndin biður oss
taka það fram að Tómas hafi gert
það alveg ótilkvaddur.
Messufall varð 1 báðum kirkjum
borgarinnar f gær og einnig fyrra-
snnnudag. Hefir það eigi viljað til
síðan í inflúenzunni 1894 að eigi
hafi verið messað tvo helgidaga f
röð.
Borg kom frá Norður- og Austur-
landi BÍðastliðið föstudagskvöld. Með-
al farþega: Snorri Halldórsson stud.
med., Stefán Stefánsson yngri frá
Fagraskógi, Guðm. 0. Einarsson og
þórhallur Arnason stud. med.
Þetta er almenningi hérmeð birt til leiðbeiningar og eftirbreytni.
Lögreg'ustjórinn i Reykjavík, 12. nóvember 1918.
Jón Jfermannsson.
RATiN
Sören
Kampmann
K9
Útrýmið rottunum, sem flytja með sér sóttkveikjur og
og næma sjúkdóma.
Ratin drepu " a.llar Rottur.
Sðren Kampmann.
cySajfi* og cMa ísölufíúsié
, Uppsalir‘
verður opnað afíur á morgun (þriðjudag).
Læknanemar Háskólans hafa
komið að mjög miklu liði í veikind-
unum undanfarið. Hefir sumum
þeirra verið veitt lækuingaleyfi til
bráðabirgða.
Tslands Falk kom frá Færeyjum
og Seyðisfirði f gær.
Nauðsyn brýtnr lög. Landsvórzl-
unin afgreiddi kolapantanir i gær kl.
12-4.
Bifreiðarslys lá nærri að yrði á
á AuBturstræti í fyrradag. Kom
bifreið akandi ofan Banbastræti, en
er hún var á móts við Islandsbanka
kom hestvagn úr Kolasundi á þvera
Bæjarsímlnn
er opinn á nóttunni.
Hjúkrunarnefndin.
Næturlæknis-
er í Btunastöðinni frá 10 að kvöldi
til 8 að morgni.
Hjúkrunarnefndin.
Daglæknir
er í Brnnastöðinni.
Hjúkrunsrstöðin.
Mannhjálp
karla og sérstaklega kvenna óskast.
Borgun ef krafist er.
Hjúkrunarnefndin.
■
Hvar
er ósjúka skólaýólkið ??
Hjúkrunarnefndin.
Yfirsetukonur
vantar i Brunastöðina.
Góð borgun. — Bíll.
Hjúkrunarnefndin.
Steinolía
fæst í Steiuolíufélagsskúrnum við
Amímanusstlg Hiúkrunarnefndin.
Fast hjúkrunariólk
sérstaklega kvenfólk óskist. Borgun;
5—6 kr. á dag ank faeðis.
Hjúkruharnefndin,
Brunastöðin. Simi 530.
Hjúkrunarnefudin
þarfnast mjög kvenna og kirla til
að vaka um nætur. Komið ítrax.
Barnahæii
fyrir umhirðulaus börn verður opnað
í Barnaskólanum með mánudaqsmorgni
18. þ. m. — Forstöðukona jungfrú
Sigurborg lónsdóttir. Ráðsmaður
stórkaupm. Fcnger.
Hjúkrn"arnefndin.
Menfhol-
brjóstsykur
i heilum og hálfum dósum
fæst í
Tóbakshúsinu.
akbrautina. Stansaði bifreiðarstjór-
inn þá svo snarlega að bifreiðin
slengdist til hliðar inná gangstéttina
og brotnaði mjög. En hestvagninn
né mennina sakaði eigi.
Stefán Jónsson læknir, sem verið
hffir mjög þungt haldinn undanfarið,
sást á ferli úti í gær.
Gnllfoss fer að Bögn í kvöld til Vestm.-
eyja og þaðan til Ameríku. Krókur-
inn til Eyja er farinn til þess að
koma þangað Eyjabúum mörgum,
sem hér hafa dvalið undanfarinn
hálfan mánuð.